Dagur - 29.04.1989, Page 6

Dagur - 29.04.1989, Page 6
Y - ilu'ÐAG - 836í !hqe .62 tufjsmöfJUAJ 6 - DAGUR - Laugardagur 29. apríl 1989 Frá Hrafnagilsskóla Sýning á handavinnumunum, teikningum og vinnu nemenda veröur í skólanum sunnudaginn 30. apríl n.k. kl. 14.00-18.00. Tískusýning kl. 15.00-16.00 og 17.00. Selt veröur kaffi. Skólastjóri. ^^Aðalfundur ^Pjí^Hestaíþróttafélagsins Þráins verður haldinn miðvikudaginn 3. maí kl. 20.30 í Jakobshúsi, Svalbarðseyri. Á dagskránni veröur auk venjulegra aöalfundar- starfa, lagabreytingar. Stjórnin. KRAKKAR - KRAKKAR! 1. maí nefnd vantar merkjasölubörn Þau sem hafa áhuga á að selja merki 1. maí nefndar geta sótt þau á skrifstofu Iðju, Skipagötu 14, sunnu- daginn 31. apríl kl. 13.30-15.00. GÓÐ SÖLULAUN. Háskóíinn á Aknrcyri Viðskiptafræðingar - Hagfræðingar Styrkur til framhaldsnáms Háskólinn á Akureyri auglýsir styrk til fram- haldsnáms fyrir viðskiptafræðing eða hag- fræðing. Sú kvöö fylgir styrkveitingu þessari að styrkþegi skuldbindur sig í ákveðinn tíma eftir aö námi lýkur til starfa við áðurnenda stofnun. Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður rekstrar- deildar Háskólans á Akureyri, sími 96-27855. Umsóknir sendist til Háskólans á Akureyri fyrir 25. maí 1989. Háskóíimt á Afiureyrí. Ávarp 1. maí nefndar verka- lýðsfélaganna ó Akureyri Sauðárkrókur: Stúdentsefni í F. á S. dimmitera - ætla til Acapulco Þrátt fyrir verkföll og önnur óáran tóku stúdentsefni við Fjölbrautaskólann á Sauðár- króki sig tii sl. fimmtudag og „dimmiteruðu“ með pomp og prakt. Þau byrjuðu eldsnemma morguns og fyrsta verk á dagskrá var að sjálfsögðu að vekja kennarana. Að þeirra sögn tóku þeir allir heimsókn- unum vel og bauð einn þeim heim í pizzu! Þótt engin próf séu enn á dagskrá, sökum verkfalls, sögðust krakkarnir ætla að útskrifast, og ekkert múður. Fríður hópur stúdentsefna barði dyra á ritstjórnarskrifstofu Dags á Sauðárkróki sl. fimmtu- dagsmorgun og var erindið að komast í viðtal og fá mynd. Hvað fyrri óskina varðar, verður þess að bíða að hún rætist, en mynd- ina fengu þau svo sannarlega og fylgir hún hér með. Að lokinni væntanlegri útskrift ætlar svo þessi föngulegi hópur að bregða sér út fyrir landstein- ana, hvorki meira né lengra en til Mexíkó, nánar tiltekið til Aca- pulco, borgarinnar sem Phil Coll- ins söng um. Dagur óskar þeim góðrar ferðar. -bjb ✓ 1 Mexíkó að lokinni væntanlegri útskrift Enn er runninn upp hátíðisdagur verkalýðs- ins 1. maí. Pessi dagur hefur á síðustu árum tapað nokkru af ljóma sínum og þátttaka í honum hefur dregist saman. Hann er þó sem fyrr minnisvarði fyrri tíma og áminning þeim sem eftir koma. Hann minnir okkur á að stéttabaráttan er samfelld barátta. Barátta launamanna við að halda sínum hlut. Áður barátta um brauðið, frumþarfirnar, nú bar- átta um að viðhalda þeim lífskjörum, sem við höfum réttilega til okkar tekið og barátt- an um að viðhalda og bæta það þjóðfélag, sem við og gengnar kynslóðir höfum byggt upp. Pjóðfélag jöfnuðar og samvinnu. Við höfnum hugmyndum sérhyggjunnar um það að hver sé sjálfum sér næstur. Við vitum að samvinna, samstarf og samfylking færir okkur fram á við, en sérhyggja sundrar okkur og gerir auðvaldinu kleift að koma fram áformum sínum. Pví miður eru þeir sigrar sem við höfum unnið á síðustu tólf til átján mánuðum ein- ungis varnarsigrar. Á þeim tíma höfum við orðið að þola það að frá okkur var tekinn helgur réttur okkar, samningsrétturinn, og samningar okkar hafa verið skertir með vald- boði. Slíkt megum við aldrei aftur láta yfir okkur ganga án þess að berjast á móti. Ríkis- valdið þiggur vald sitt frá fólkinu, að mestu frá hinum vinnandi stéttum, eins og verka- lýðssamtökunum. Ríkisvaldið og stéttar- félögin eru því greinar af sama meiði og eiga að vinna sameiginlega að bættu þjóðfélagi. Ríkisvald sem vinnur gegn hagsmunum launafólks hefur fyrirgert umboði sínu. Langtímamarkmið okkar eru að byggja upp þjóðfélag réttlætis, þjóðfélag jöfnuðar, þjóðfélag, þar sem allir hafa sömu mögu- leika, allir geta nýtt sér hæfileika sína sem best. Petta gerum við m.a. með því að koma á auknu og virku atvinnulýðræði. Ef við ráð- um ekki yfir stjórnun framleiðslutækjanna þá náum við ekki valdi yfir fjármagninu. Pá verðum við einungis leiksoppar örlaganna. Pað er okkar að ráða þróuninni, það er okk- ar að ráðstafa arðinum og það er okkar að deila tapinu á réttlátan hátt sé um tap að ræða. Með vinnu fjöldans verður auðurinn til. Hann verður ekki til í okurfyrirtækjum auðvaldsins. Við stefnum einnig að þjóðfélagi framtfð- arinnar með því að auka og bæta starfs- menntun, sem og félagslega menntun. Með aukinni menntun sjá menn að það starf sem þeir framkvæma er nauðsynlegt. Að starfið felur ekki einungis í sér að menn fá greitt kaup heldur gefur einnig lífinu gildi. Við lít- um svo á að rétturinn til að hafa vinnu sé grundvallar mannréttindi og nú þegar atvinnuleysisvofan hefur gert vart við sig verðum við að gera þeim ljóst, sem við höf- um kjörið til stjórnunar í þjóðfélaginu, að við ætlumst til þess af þeim að henni verði bægt frá. Við getum ekki þolað að menn séu atvinnulausir ílangan tíma, jafnvelþótt bæt- ur komi til. Brotin mannréttindi verða ekki að fullu bætt með peningum. Rétturinn til vinnu verður að vera skilyrðislaus. Við viljum bæta aðbúnað og hollustu á vinnustöðum. Við verðum að vera trú þeirri meginstefnu að vinnustaðurinn, vinnuað- ferðir og vinnuskipulag sé lagað að þörfum starfsmanna. Pað getur vart verið hagur þjóðfélagsins, heildarinnar, að einstakling- arnir bíði tjón á andlegu eða líkamlegu atgervi sínu vegna vinnu. Verði slitnir og útbrunnir áður en þeir ná gamals aldri. Skammtímamarkmið okkar eru að ná í þrepum þeim kaupmætti sem við höfum tapað. Knýja á um lækkaða vexti. Prýsta á aðhald í verðlagsmálum og stöðugt gengi. Jafnframt verðum við að krefjast réttlátara skattakerfis, betra húsnæðiskerfis og aukins og endurbætts 'tryggingakerfis. Framundan er tími óstöðugleika og jafn- vel átaka. Við verðum ætíð að vera undir það búin að knýja fram réttindi okkar með öllum þeim vopnum sem okkur eru tiltæk. Par megum við ekki hika, því að hika er það sama og að tapa. Sameiginlega erum við sterkt afl og sameiginlega getum fært þjóð- félagið fram á veginn í átt til þess þjóðfélags jöfnuðar sem við stefnum að. Gleðilega hátíð.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.