Dagur - 29.04.1989, Qupperneq 7
poppsíðan
7) Umsjón: Valur Sæmundsson.
t
Gott að vita um hljómtæki - 6. hluti:
Mikilvægi loftneta
fyrir útvarpstæki
Hljómtækjapistillinn er í
styttra lagi aö þessu sinni en
í honum er fjallað um út-
varpstæki. Um þau er í raun-
inni lítið að segja, það helsta
sem fjallað er um er hvernig
má bæta móttökuskilyrðin.
Sjöundi og síðasti hluti
umfjöllunarinnar um hljóm-
tæki birtist væntanlega að
hálfum mánuði liðnum og þá
verður fjallað um diskspilara.
Heimildin er eins og áður
bæklingurinn Gott er að vita
nr. 1, sem Fræðsludeild S(S
gaf út árið 1985.
Hljómgæði og útvarp eru orð sem
sjaldan eru nefnd í sömu andrá. Þó
er það svo að hægt er að ná hljóm-
gæðum úr útvarpinu. Það má eigin-
lega segja að hljómgæðin liggi í loft-
inu, en annað mál er hvort þau nást.
Langbylgjan (LW), miðbylgja (MW)
og stuttbylgjur (SW) eru ekki hljóm-
gæðabylgjur og því illa fallnar til
tónlistarflutnings. Þessar bylgjur eru
styrkmótaðar (Amplitude modulat-
ion) eða AM og innihalda mikið suð
auk þess sem brak og brestir eru
fastir fylgifiskar slíkra stöðva. Með
tíðnimótun (Frequency modulation)
eða FM hverfa að mestu ýmsar
truflanir og suð úr útsendingu. Við-
tækin sjálf eru heldur ekki veiki
hlekkurinn i þessari keðju því
vegna nýjunga í framleiðslutækni
og hönnun viðtækja má fullyrða að
flest þeirra hafi viðunandi hljóm-
gæði.
Flestir notendur FM tækja nota inni-
loftnet eða alls engin loftnet og þar
stendur hnifurinn í kúnni. Það eru
aðallega tvö atriði sem draga veru-
lega úr gæðum FM bylgju: veikt
merki og speglanir.
Það er einföld regla sem segir að
stereo móttaka þurfi tífalt meiri loft-
netsstyrk en mono. Er þá átt við
spennuna sem loftnetið skilar í loft-
netstengil viðtækisins. Lágmarks-
spenna sem þarf „svo hlustandi sé
á stöðina" er 10 míkróvolt fyrir
mono og hundrað fyrir stereo, þá er
suðið -60 dB. Suðið minnkar eftlr
því sem spennan hækkar uns
hámarki er náð við 100 míkróvolt
fyrir mono og 1000 míkróvolt fyrir
stereo og er suðið þá nálægt -80 til
90 dB.
Draugur á sjónvarpsskjá er vanda-
mál sem margir hafa glímt við og
allir þekkja. Færri gera sér grein fyr-
ir því að draugurinn er oft til staðar
við FM móttöku þótt hann sjáist
ekki. Ástæðan fyrir draugagangi hér
eins og í sjónvarpi eru speglanir
(multipath) sem koma frá fjöllum og
byggingum að loftnetinu talsvert
seinna en beini geislinn frá sendin-
um. Speglarnir valda bjögun og
lélegri rásaaðgreiningu. Inniloftnet
eru hreinlega til þess fallin að vekja
upp drauga. Vísbending um
draugagang er þegar stöðin dofnar
verulega eða dettur út ef gengið er
um stofuna. Loftnetsgreiða utan-
húss kveður hins vegar niður
drauga og eyðir suði í ofanálag. Þar
sem svo háttar til að FM stöð og
sjónvarpsendurvarpsstöð eru á
sama stað, má með deiliboxi nýta
sömu greiðuna fyrir FM og sjón-
varp. Annars er loftnetsbúnaður til-
tölulega ódýr fjárfesting sem alltaf
borgar sig.
Langi Seii og skuggarnir:
Sæmileg afþreying ef
ekkert betra býðst
Ég verð að játa það, að stundum
hefur mér þótt miður að búa ekki í
Davíðsborg, þar virðist nefnilega
alltaf eitthvað vera að gerast. Til að
mynda eru alloft haldnir tónleikar í
þeirri borg en fátt þykir mér
skemmtilegra en að fara á tónleika,
standa fast upp við þessa heljar-
stóru hátalara og anda að mér
hávaðanum. Það er ofsalega nota-
legt. En þar sem höfuðborgin okkar
er ekki ýkja hlýleg í garð þeirra sem
minna mega sín, er það borin von
að ég hafi möguleika til að láta
draumana rætast í borginni, þar
eða fjármagnsforði heimsins virðist
hafa tekið höndum saman um að
forðast mig.
Mér datt þetta sisona i hug um
daginn þegar ég var að hlusta á
nýútkomna plötu með Langa Sela
og skuggunum. Ég held nefnilega
að ég liti plötuna öðrum augum ef
ég heföi séð Langa Sela á sviði.
Það vantar ekki, tónlistin er hröð,
taktföst og fjörug og ég hafði dálítið
gaman af að hlusta á hana. En ekki
nema dálítið. Þetta er rokkabillí og
ekkert meira en það. Vel flutt,
fjörugt og allt það. En engan veginn
áhugavert. Það eina sem ég sé við
þetta er að stundum má hafa dálítið
gaman af músíkinni. En það er ekki
nóg til þess að ég eigi eftir að setja
þessa plötu oft á fóninn. Aðdráttar-
aflið skortir. Annars hefði verið
betra að átta sig á hljómsveitinni ef
fleiri en fjögur lög hefðu verið á
plötunni. Það má val vera að eitt-
hvað búi í hljómsveitinni, en það
kemur bara ekki fram á þessari skífu.
Það getur verið að þeir sem hafa
séð hljómsveitina á sviði 20 sinnum,
sjái hana í öðru Ijósi en óg.
Það er afar sennilegt.
Á þessari plötu eru fjögur lög, þar
af eru tvö þeirra frambærileg, Breið-
holtsbúgí og Kane. En platan í heild
sinni er ekki nama tólf mínútur að
lengd. Það væri svo sem allt í lagi ef
maður þyrfti ekki að reiða fram níu
hundrud krónur fyrir herlegheitin.
Hræðilegt okur. Var ekki nær að
gefa út stóra plötu í samfloti við 2-3
aðrar hljómsveitir sem myndi kosta
11-12 hundruð kall. Það finnst mér
áhugaverðari kostur.
Litlausir Sogblettir:
Hnignunin þrykkt á plast
Það er kunnara en frá þurfi aö
segja, að fyrir síðustu jól komu út
svo margar íslenskar plötur að mér
lá við uppsölu. Þetta á reynar við
um flest jól undanfarinna ára.
Þ.e.a.s. þetta með plöturnar. Það er
líka kunnara en frá þurfi að segja,
að afskaþlega margar af þessum
plötum drukkna í flóðinu. Það eru
aðeins þær sem mesta auglýsing-
una fá, sem ná aö seljast eitthvað.
Þannig urðu afar margar prýðilegar
plötur útundan fyrir síðustu jól. En
hitt er líka til, að margar lakar plötur
verða útundan. I þeim flokki er
einmitt platan sem ég ætla að fjalla
um í næstu linum. Hún heitir Fyrsti
kossinn og hljómsveitin er
Sogblettir.
( Sogblettum heyrði ég fyrst í
febrúarmánuði 1987. Þá hituðu þeir
upp fyrir Shark Taboo á eftir minni-
legum tónleikum í gamla H-100.
Mér fannst helvíti gaman að þeim
þá, en engu að síður voru þeir hróþ-
aðir niður. Einhvern tímann í fyrra
skiptu þeir svo um söngvara og eftir
það fór frægð þeirra dvínandi.
Rétt fyrir andlátið gáfu þeir síðan út
sex laga skífu þá er hér er til
umfjöllunar.
Það er skemmst frá því að segja,
að þessi svanasöngur er ekki verð-
ugur fyrir Sogblettina. Platan er sem
sé ekki góð. Söngurinn er veikasti
hlekkurinn, hreinlega arfalélegur.
Krafturinn er yfrið nægur í lögunum
en annars eru þau ekki neitt.
Bara keyrsla. Textarnir eru máttlitlir
og einfaldir. Hljómurinn finnst mér
ekki bæta, þó að Hilmar Örn hafi
setið við takkana. Það er aðeins í
laginu Rauða brosið þitt, sem örlar
á einhverju viti.
Nei, þessi plata verður ekki
brúkleg til kynningar á Sogblettun-
um, ef ske kynni að einhver myndi,
eftir einhver ár, ætla að kynna sér
hræringar í tónlistarlífi landsmanna.
Þessi plata er einungis fyrir gall-
hörðustu aðdáendur Sogblettanna.
Laugardagur 29. apríl 1989 - DAGUR - 7
íbúð óskast!
Lítil íbúð (2ja til 3ja herbergja) óskast til leigu
sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Kristján Kristjánsson í sím-
uni 96-24222 og 96-26367.
AKUREYRARB/íR
Unglingavinna
Skráning 13, 14 og 15 ára unglinga (ár-
gangur 74, 75 og 76) sem óska eftir
sumarvinnu hefst þriðjudaginn 2. maí.
Skráning fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofunni
Gránufélagsgötu 4, sími 24169 frá kl. 9-12 og 13-
16 alla virka daga.
Skráningu lýkur föstudaginn 12. maí.
Forstöðumaður.
V.
ODYRUSTU
HAMBORGARARNIR!
ODYRUSTU
KJÚKLING ABITARNIR!
1BÆNUM!
S3U3 NESTIH
Innritun er hafin
Flokkaskrá sumarið 1989
1. fl. Drengir 8 ára og eldri 6. júní-16. júní 10 dagar
2. fl. Drengir8ára og eldri 19. júní-29. júní 10 dagar
3. fl. Stúlkur 8 ára og eldri 3. júlí -13. júlí 10 dagar
4. fl. Stúlkur 8 ára og eldri 14. júlí -21. júlí 7 dagar
5. fl. Drengir8 ára og eldri 25. júlí - 1. ágúst 7 dagar
Dvalargjald er kr. 9.400 fyrir 7 daga en kr. 13.400 fyrir 10
daga.
Innritun fer fram í félagsheimili KFUM og KFUK Sunnuhlíð,
Akureyri, mánudaga og miðvikudaga kl. 17-18 sími 26330 og
utan skrifstofutíma hjá Önnu í síma 23929, Björgvin I síma
23698 og Hönnu í síma 23939.
Sumarbúðirnar Hólavatni.
J)(Murwnuft[öc]in ima vimanÁi jóífii tíf
ójnvar ocj jmtfí affrn fuíffa áfamttu-ocj
fiátiíiscfccji affjjoífccjrar wfccifijkfimjjincjar.
@ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA