Dagur - 29.04.1989, Side 13
Bílaklúbbur
Akureyrar
Fundur verður í Dynheimum þriðjudaginn 2. maí
kl. 20.00.
Fundarefni:
Torfærumál og fleira
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Þórhallur Filippusson við tvær mynda sinna, „Vornótt í Skagafírði“ og
„Geimstein“. Mynd: EHB
Málverkasýning:
Þórhallur Filippusson
sýnir á Akureyri
Þórhallur Filippusson, listmálari
og svifflugkappi, opnar mál-
verkasýningu í Bjargi, húsi
Sjálfsbjargar aö Bugðusíðu 1, í
dag klukkan 14.00. A sýningunni
eru 27 myndir; 21 olíumálverk og
6 vatnslita- og pastelmyndir. Sýn-
ingin, sem er sölusýning, verður
opin næstu tvær vikurnar, en 10
prósent af söluandvirði mynd-
anna rennur til Ferðasjóðs fatl-
aðra á Akureyri.
Þórhallur hefur haldið fjölda
einkasýninga um dagana og tekið
Linda Pétursdóttir alheimsfegurðar-
drottning, sérstakur heiðursgestur.
Fegurðar-
dísirnar
sýna í
Sjallanum
Stúlkurnar tíu sem keppa til úr-
slita í Fegurðarsamkeppni
íslands 1989 koma fram í Sjallan-
um miðvikudagskvöldið 3. maí
n.k. Linda Pétursdóttir alheims-
fegurðardrottning, er sérstakur
heiðursgestur kvöldsins. Jón
Axel Ólafsson útvarpsmaður
kynnir stúlkurnar. Þær sýna fatn-
að frá versluninni Sautján, en
stjórnandi tískusýningarinnar er
Gróa Ásgeirsdóttir sem jafn-
framt er framkvæmdastjóri feg-
urðarsamkeppni íslands. Sjallinn
er opinn fyrir matargesti frá kl.
20.00. Á eftir er almennur dans-
leikur til kl. 03.00. Rokkbandið
leikur fyrir dansi.
Miða og borðapantanir í síma
22970.
þátt í samsýningum með dóttur
sinni Kristínu. Hann lagði stund
á nám við Handíða- og mynd-
listaskóla íslands 1949 og 50 en
lagði myndlistina á hilluna í all-
mörg ár og stundaði þá m.a.
svifflug, en í því er Þórhallur
margfaldur íslandsmeistari, auk
þess sem hann rak Tómstunda-
búðina í Reykjavík.
Myndir Pórhalls einkennast oft
af áhrifum frá sviffluginu, skýja-
myndunum, veðurfari og loft-
straumum. Myndirnar sem hann
sýnir að þessu sinni eru bæði
landslagsmyndir og óhlutbundn-
ar myndir. Landslagsmyndirnar
eru bæði úr Skagafirði og frá
Suðurlandi, en Þórhallur býr á
Sauðárkróki með seinni konu
sinni, Önnu Þórðardóttur. Hann
á fjórar dætur af fyrra hjóna-
bandi og búa þær allar í Skaga-
firði.
Sýningin er öllum opin og er
áhugafólk um myndlist sérstak-
lega hvatt til að sjá hana. Eftir að
henni lýkur á Akureyri verða
verkin sýnd í Hátúni 12 í Rcykja-
vík. EHB
Nú er FEROZA kominn aftur og nú til
afgreiöslu strax.
4x4 býður uppá m.a.:
★ Vökvastýri
★ 16ventlavél
★ 5 gíra
★ Sóllúgu
★ Sjálfvirka kveikingu
ökuljósa
★ Sportfelgur
Daihatsu-umboðiö á Norðurlandi
Bílvirki hf.
Fjölnisgötu 6. Símar 96-23213 og 96-27255
HARIGRÆÐSLA
Hárígræðslumeðferð sem ábyrgist heilbrigt og náttúrulegt hár sem vex áfram það
sem þú átt eftir ólifað (skrifleg ábyrgð fylgir). igræðslan er bæði snögg og sársauka-
laus og er aðeins framkvæmd af mjög hæfum læknum á okkar vegum. Meðferðin
hefur verið reynd og rannsökuð í yfir 30 ár og þær sem hafa verið gerðar hafa tek-
ist frábærlega vel og er það ástæðan fyrir því að við lofum endurgreiðslu ef hún
tekst ekki fullkomlega.
Ráðgjafi R.H.C. verður á Akureyri 6. og 7. maí í síma 96-21566 og
mun veita allar upplýsingar um þessa spennandi meðferð.
SÍMAR 91-41296 OG 91-641923
REGROW HAIR CLINIC - 200 KÓPAVOGI.
HUSNÆÐIEFTIR
HJÓNASKILNAÐ
EÐA SAMBÚÐARSLIT
Því miöur er það staöreynd,
að hjónaskilnuðum hefur fjölg-
að hin síðari ár. Við skilnað
breytast aðstæður m.a. þannig,
að þar sem áður dugði ein
íbúð, þarf oft tvær eftir skilnað-
inn. Það hefur í mörgum til-
vikum orðiö upphafið að nýju
vandamáli.
EIGNARHLUTI MAKA
KEYPTUR
Algengt er að sá aðili, sem
hefur fengið forræði barna eftir
skilnaðinn, kaupi eignarhlut
fyrrverandi maka í íbúð þeirra.
Það er ekki sama hvernig að 1
þessari tilhögun er staðið.
ss
NAUÐSYNLEGUR
FRESTUR TIL KAUPANNA
Við hjónaskilnað eða sam-
búðarslit gengur það dæmi
ekki upp, ef gert er ráð fyrir að
annar aðilinn kaup eignarhlut
hins með láni frá Húsnæðis-
stofnun, nema tekið sé tillit til
þess tíma sem það tekur að
afgreiða lán frá henni.
BIÐ EFTIR LÁNI
Umsóknir um lán frá Hús-
næðisstofnun ríkisins eru af-
greiddar í þeirri röð sem þær
berast stofnuninni. Eini greinar-
munurinn, sem gerður er á um-
sóknum, er að umsækjendum
er skipt I forgangshóp og vikj-
andi hóp. í forgangshópi eru
þeir sem eru að byggja eða
kaupa í fyrsta sinn. Þeir sem
búa í ófullnægjandi íbúð teljast
einnig í forgangshópi hvað af-
greiðslutíma varðar.
Umsækjendur um lán, sem
eru að skilja, teljast flestir til
víkjandi hóps, eigi þeir íbúð
fyrir.
Ef skilnaður er óhjákvæmilegur,
leitaðu þá upplýsinga
um lánsrétt þinn
áður en þú samþykkir
að kaupa eignarhlut
fyrrverandi maka i íbúð ykkar.
husnæðis^tchfmjnar