Dagur - 01.07.1989, Blaðsíða 7
íltiíiáftíaáuFWÍ&líSiöÖé - ÖKGÚR - 7
SWabÖrn SnæðaS™o*Sv^tSÍ
í kringum I’ostojna-hcllinn hefur byggst cinskonar
þorp með fjölda lítilla ferðamannaverslana, hótela og
veitingahúsa. Kannski ekki að undra því óhætt er að
fullyrða að fáir eða jafnvel enginn staður í allri Júgó-
slavíu hefur jafnmikið aðdráttarafl á ferðamenn og
einmitt Postojna.
I Portoroz er þekkt heilsuhæli
sem þúsundir Evrópubúa, ekki
síst Finnar, hafa flykkst til á
undanförnum árum. Þarna fara
nienn í nudd, nálarstungu,
leirböð, svo eitthvað sé nefnt.
Einhver góður maður hafði orð á
því að heilsuhælið væri dæmigert
Hveragerði, að vísu mun full-
komnara og betra. Undirritaður
selur það ekki dýrara en han'n
keypti. óþh
fiskar.“ Litur þeirra er mjög
álíka húðlit hvíta mannsins.
Þetta er litlir fiskar, sem eru sér-
stakir fyrir það að þcir eru með
öllu blindir.
Adríahafs-sólin
í Ljubljana og nágrenni er ríkj-
andi dæmigert meginlandslofts-
lag. Vetur eru fremur svalir en
sumur hlý og notaleg. í Portoroz
við Adríahafið tekur dæmigert
Miðjarðarhafsloftslag við. Par er
maður enda í „ferðamannaþjóð-
félagi“ með öllum hugsanlegum
lystisemdum slíks samfélags.
Fáklæddir kropparnir flatmaga á
ströndinni eða svamla um í sund-
laugum eða sjónum. Fólk kælir
sig niður með bjór á fjölmörgum
veitingahúsum við ströndina og
lætur þreytuna líða úr sér. Þvílíkt
letilíf, drottinn minn dýri!
Portoroz er sá staðar í Slóven-
íu sem þarlendir leggja mikið
upp úr að markaðssetja sem
aðlaðandi ferðamannabæ í fram-
tíðinni. Staðurinn hafði lengst af
það orð á sér að vera gamaldags
sólarströnd, sem hæfði eingöngu
eldri borgurum. Þessari ímynd
vilja ferðamálafrömuðir í Port-
oroz breyta. Nú er lagt mikið upp
úr fjölbreyttu skemmtanalífi,
spilavítum, bjórhöll, diskótek-
um, o.s.frv. Það á með öðrum
orðum að yngja staðinn upp. Það
táknar þó ekki að eldra fólkinu
verði ýtt til hliðar.
Iöandi mannlíf á götum Ljubljana, höfuðborgar Slovemu. Borgin er
skemmtileg blanda gamla og nýja tímans. Á síðkvöldum yfir sumartímann
situr fólk með bjórkollu í hönd á götum úti í gamla hluta Ljubljana og ræðir
málin.
Skiðalyfturnar í Bohinj í hvíldarstöðu, en væntanlega taka hjól þeirra að
snúast um eða upp úr áramótum. Mikill fjöldi ferðamanna leggur á ári
hverju leið sína í skíðabrekkurnar í Slóveníu. Skíðaland er þar enda fjöl-
breytt og gefur ýmsa möguleika. Skíðagöngufólk þarf heldur ekki að kvarta
undan aðstöðunni.
Hver er fertugur í ár?
Skolafélagar úr Gagnfræðaskóla Akureyrar, fæddir 1949.
Höldum sameiginlegt fertugsafmæli í Golfskalanum að
Jaðri laugardaginn 22. júlí kl. 19.00.
Rífum okkur upp úr meðalmennskunni og
stormum öll að Jaðri með maka okkar og höld-
um eftirminnilegt knall.
Þátttaka tilkynnist til einhverra eftirtalinna fyrir 15. júlí:
Gullí Ragnars í síma 23296, Júlía Björns í síma 22163,
Haddí Júl. í síma 24778 og Júlía Þórs í síma 25103.
/A\M/A\ heilsugæslustöoin A akurevri
Tilkynning
frá Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Þorgils Sigurðsson, sérfræðingur í heimilis-
lækningum, hóf störf viö Heilsugæslustöðina á
Akureyri hinn 1. júní sl.
Ólafur Hergill Oddsson, héraðslæknir, hættir
heimilislækningum í heilsugæsluumdæmi Akureyrar
frá og með 1. júlí 1989.
Sjúklingum Ólafs er bent á að snúa sér til Sjúkra-
samiags Akureyrar og velja sér annan lækni.
Auglýsing frá
Atvinnutryggingarsjóði
útflutningsgreina
Vakin er athygli á að umsóknir sem berast
sjóðnum eftir 10. júlí nk. verða ekki teknar til
umfjöllunar fyrr en eftir 10. september nk.
Sömuleiðis er bent á að vegna sumarleyfa
verður starfsemi í lágmarki 17. júlí til 7. ágúst
nk.
Þá er nýjum umsækjendum um lán hjá sjóðn-
um bent á að með þeim er nú nauðsynlegt að
fylgi milliuppgjör á þessu ári.
Stjórn sjóðsins.
---------------------------------------------------------------N
AKUREYRARB/ER
Dagvistardeild
Skóladagheimilið
Brekkukot
Brekkugötu 8, tekur tii starfa 1. september.
Þar geta börn á skólaaldri dvalið frá kl. 07.30-17.30.
Þau sækja þaðan skóla í heimahverfi sínu.
Einnig fá þau máltíðir á heimilinu.
Auk daglegrar umönnunar á heimilinu fer fram
kennsla og aðstoð við heimanám.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Dagvistar-
deildar alla virka daga frá kl. 10.00-12.00 í síma
24600.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. ágúst 1989.
Dagvistarfulltrúi.
0 0
Skógræktarferð!
Munið skógræktarferðina að Hólum í Öxnadal, laug-
ardaginn 8. júlí.
Hittumst að Hólum kl. 13.00.