Dagur - 21.07.1989, Side 4
2 ■= ilýj rs lueebtiíöq-]
4 - DAGUR - Föstudagur 21. júlí 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA'595 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÓRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Jöfiiun raforkuverðs
Þegar rætt er um kosti þess og galla að búa í
dreifbýli verður ekki horft framhjá þeirri stað-
reynd að orkuverð er landsbyggðinni utan
höfuðborgarsvæðisins víða óhagstætt.
Álagning opinberra gjalda á orku er eitt þeirra
stjórntækja sem ríkisvaldið getur notað til að
jafna búsetuaðstöðu um landið. Athyglisvert er
að skoða þróun raforkuverðs og orkuskatta
undanfarna áratugi í þessu ljósi, en Jón Ingi-
marsson, verkfræðingur hjá Orkustofnun, hefur
tekið saman fróðlegt yfirlit yfir þetta efni.
í skýrslu Jóns kemur fram að árið 1960 var inn-
leiddur 3% söluskattur á raforkuverð. Þessi sölu-
skattur hækkaði smám saman og var orðinn 11 %
árið 1970. Söluskattur þessi var felldur niður árið
1972 af orku til upphitunar húsa, en sex árum
áður, árið 1966, hafði hins vegar verið tekið upp
verðjöfnunargjald á söluskattsskylda raforku.
Gjaldið var fyrst 7,4%, en hækkaði síðan smám
saman og varð hæst 19% árið 1984. Verðjöfnun-
argjaldið var fellt niður 1. mars 1986.
Skattar og önnur opinber gjöld á raforkusölu
hafa því farið lækkandi undanfarin ár, og á
afnám verðjöfnunargjaldsins auðvitað mestan
þátt í því. Ríkissjóður aflar þó enn mikilla tekna
með 25% söluskatti á raforku, og voru tekjur
ríkisins af skattinum um 800 milljónir króna árið
1987. Sú tala hækkaði umtalsvert í fyrra.
Á síðasta ári var raforkuverð í heildsölu frá
Landsvirkjun til almenningsveitna aðeins 65%
af verðinu árið 1984. Hvað raforkuverð hjá
RARIK snertir þá er heildsöluverð orku frá þeirri
stofnun hærra en frá Landsvirkjun.
Nýting almenningsveitna á aflinu sem þær
kaupa hefur áhrif á verðið til þeirra. Þannig er
verðið frá Landsvirkjun 20% lægra við 6.000
stunda nýtingu en við 4.500 stunda nýtingu, svo
dæmi sé tekið.
Meðalverð raforku frá Landsvirkjun til al-
menningsveitna hækkaði stöðugt frá 1980 til
1984, en hefur síðan lækkað árlega. Heildsölu-
verð frá RARIK hefur einnig lækkað, en er alltaf
hlutfallslega hærra en orkuverð Landsvirkjunar.
Stjórn Fjórðungssambands Norðlendinga
fundaði um raforkuverð sl. vor og lagði til að all-
ar almenningsveitur í landinu sitji við sama borð
um innkaupsverð á raforku. Einnig er lagt til að
rafmagnsverð til neytenda verði jafnað í fram-
haldi af jöfnun heildsöluverðs, og að skattlagn-
ing á raforku miðist við sama verð á orkuein-
ingu. Þetta er eðlileg krafa þegar þess er gætt að
almenningsveitunum er gróflega mismuhað, eft-
ir því hvort þær kaupa orkuna frá RARIK eða
Landsvirkjun, en allt að 26% munur er þarna á,
viðskiptavinum RARIK í óhag.
Áskell Einarsson, framkvæmdastjóri Fjórð-
ungssambandsins, segir um þetta mál í frétta-
bréfi sambandsins: „Það er forsenda eðlilegrar
byggðar í landinu að framfylgt sé almennum
jafnréttisaðgerðum. - Jöfnun raforkuverðs er
þeirra mikilvægast. “ EHB
Hvoðer að gerast {
Unglingaleikhópar frá Norðurlöndunum:
Sýna leikverkið Fenris
á Húsavík og Akureyri
Lcikklúbburinn Saga frá Akur-
eyri hefur undanfarnar fjórar vik-
ur verið á leikferðalagi um
Norðurlöndin, ásamt unglinga-
leikhópum frá Danmörku, Nor-
egi, Svíþjóð, Finnlandi og Fær-
eyjum.
Þessi hundrað manna hópur
hefur sýnt sameiginlegt leikverk,
Fenris, í áðurtöldum löndum. Nú
er hópurinn kominn til landsins
og eru áætlaðar sýningar í
íþróttahúsinu á Flúsvík á laugar-
dagskvöld 22. júlí og í íþrótta-
skemmunni á Akureyri mánu-
dags- og þriðjudagskvöld, 24. og
25. júlí. Allar sýningarnar hefjast
kl. 20.30 og er miðaverð aðeins
kr. 400.
Verkinu hefur allsstaðar verið
vel tekið og er það mál manna að
samvinna þessara leikhópa hafi
tekist einkar vel, því oft er allur
hundrað manna hópurinn á svið-
inu í einu. Því vilja forsvarsmenn
sýningarinnar, skora á alla þá
sem tök hafa á, að láta þessa sýn-
ingu ekki fram hjá sér fara.
Einar Kristján Einarsson spilar ásamt Robyn Koh á sumartónleikum um
helgina.
Einar og Robyn á
sumartónleikum
Þriðju sumartónleikarnir á
þcssu sumri verða um helgina.
Að þessu sinni spila Einar
Kristján Einarsson, gítar, og
Robyn Koh, sembal. Þau
koma fram á þremur tónleik-
utn, þeim fyrstu í Akureyrar-
kirkju 23.júlí kl. 17. Aðrir tón-
leikarnir verða í Húsavíkur-
kirkju 24. júlí kl. 20.30 og
þriðju tónleikarnir í Reykja-
hlíðarkirkju 25. júlí kl. 20.30.
Fenningí
Sauðárkróks-
kirkju
Guðsþjónusta verður í Sauðár-
krókskirkju að morgni nk.
sunnudags, kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson predikar og þjónar fyrir
altari. Um er að ræða ósköp
venjulega messu, nema hvað
fernid verður ein stúlka. Hún er
búsett í Bandaríkjunum, dóttir
Höllu Ólafsdóttur frá Skarði, en
hefur verið í fermingarfræðslu
hjá Hjálmari að undanförnu.
Þetta er í annað skiptið sem
Halla kemur í heimahagana og
lætur fernia barn sitt í Sauðár-
krókskirkju, því fyrir sjö árum
fermdi sr. Hjálmar einmitt eldri
dóttur Höllu.
dagblaðið ykkar
Einar Kristján er Akureyring-
ur og lauk námi í gítarleik frá
Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar árið 1982. Síðar nam
hann erlendis og lauk einleikara-
og kennaraprófi frá Guildhall
School of Music árið 1987. Nú
starfar hann sem kennari við
Tónskóla Sigursveins.
Robyn Koh er fædd í Malasíu
árið 1964. Hún nam semballeik í
Bretlandi og hefur m.a. komið
fram sem einleikari í Malásíu,
Englandi, íslandi og Frakklandi.
Robyn hefur verið búsett undan-
farið í Reykjavík og kennt við
Söngskólann og Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar.
Á efnisskrá tónleikanna eru
sex verk eftir innlenda og erlenda
höfunda.
Að undánförnu hafa verið haldn-
ar guðsþjónustur í Hóladóm-
kirkju, á hverjum sunnudegi og
nk. sunnudag, 23. júlí, verður
messað kl. 14. Prestur verður sr.
Hjálmar Jónsson, og mun hann
þjóna fyrir altari. Messununi á
Hólum verður fram haldið fram
að Hólahátíð, sem halda á 13.
ágúst nk.
í messunni nk. sunnudag
mun Jóhann Már Jóhannsson
syngja einsöng og í messulok
Skákfélag Akureyrar:
15 mínútna
skákmót
Á sunnudagskvöldið, 23. júlí,
heldur Skákfélag Akureyrar 15
mínútna mót í félagsheimili
félagsins við Þingvallastræti 18.
Mótið hefst kl. 19.30.
Gagnfræðingar frá GA:
Sameigin-
legt fertugs-
afmæli
Skólafélagar úr Gagnfræðaskóla
Akureyrar sem fæddir eru árið
1949 ætla á laugardagskvöld að
halda.sameiginlegt fertugsafmæli
í Golfskálanum að Jaðri. Hátt í
hundrað manns hafa tilkynnt
þátttöku sína, bæöi afmælisbörn
og makar.
Áætlað er að hittast kl. 19.00
og borða sarnan. Seinna um
kvöldið verður sungið, leikið og
dansað. Rykið verður burstað af
gönilu skólamyndunum og gaml-
ar minningar rifjaðar upp.
Árgangurinn hefur haldið
nokkuð mikið saman og fyrir
þremur áruni var haldið upp á
tuttugu ára gagnfræðaaímæli og
var þátttakan þá góð. Á laugar-
daginn mætir hins vegar líka fólk
sem ekki hefur séð gömlu skóla-
félagana í rúnilega tuttugu ár og
tilhlökkunin því mikil.
Hótel Þelamörk:
Kaffihlaðborð
Hótel Þelamörk verður með
glæsilegt kaffihlaðborð á boðstól-
uni næstkomandi sunnudag, 23.
júlí, milli klukkan 14 og 17. Fólk
er hvatt til að mæta og gæða sér á
kræsingunum og minnt er á að
mjög góð sundlaug er á staðnum
sem sjálfsagt er fyrir fólk að not-
færa sér og kæla sig í sumarblíð-
unni.
syngur Jóhann einnig nokkur lög.
Organisti verður Rögnvaldur
Valbergsson. Öllum er velkomið
að koma til messu á Hóluni, en
undanfarna sunnudaga hefur
messusókn verið mjög góð, sér-
staklega hjá ferðamönnum sem
hafa átt leið heim að Hólum í
Hjaltadal.
Stefnt er á að klára múrhúðun
kirkjunnar að utan, fyrir Hóla-
hátíðina, svo og snyrtingu kirkju-
garðsins og endurgerð kirkju-
garðsveggja.
Guðsþjónusta í
Hóladómkirkju
- nk. sunnudag