Dagur - 01.08.1989, Side 2
2 fltBAÆflDR e.£*Wðjudargur Jgú^if«Ö9
fréttir
Viimuaðstæður kannaðar um
borð í frystitogunun
- Magnús Ólafsson sjúkraþjálfari fór um borð í Örvar og Arnar
Nýlega fór Magnús Ólafsson
sjúkraþjálfari frá Akureyri í
ferð með frystitogurunum
Örvari og Arnari frá Skaga-
strönd að beiðni forráðamanna
til að kanna vinnuaöstæöur og
það sem betur mætti fara.
Magnús hefur unnið að slíkum
könnunum í landi undanfarin
fimm ár og árangur verið
nokkur góður.
„Svona starf gengur út á það
að reyna að benda á aðstæður á
vinnustað sem betur niega fara.
Það á að reyna að laga aðstæð-
urnar að fólkinu frekar en fólkið
að aðstæðunum,“ sagði Magnús.
„Það skiptir afskaplega miklu
rnáli að aðstaða sé góð þegar
menn vinna eins mikið og t.d. á
frystitogurum. Álagið er rnarg-
víslegt ekki aðeins erfiðar vinnu-
aðstæður lieldur einnig umhverf-
ið.“
„Framkvæmdastjóri togaranna
hafði samband við mig en hann
hafði orðið var við að mann-
skapurinn hafði farið illa og þurft
að vera mikið í burtu vegna veik-
inda. Þessu vildi hann gjarnan
reyna að bæta úr,“ sagði Magnús.
Hann sagði .fólk yfirleitt taka
mjög vel í þetta þegar það vissi
hver tilgangurinn væri. „Ég man
að vísu á einum vinnustað eftir
því að fólk hélt að það ætti að
fara að pína meiri út úr því. Auð-
vitað er hugsanlegt að fá meiri
afköst en það er þá vegna þess að
fólki líður betur."
Yfirleitt tekur Magnús mynd-
bönd og Ijósmyndir á þei'm
vinnustöðum sem hann kannar
en einnig skrifar hann skýrslur.
Myndböndin eru síðan til sýnis á
stöðunum þannig að hægt sé að
Iæra af þeim. „Oftast er unnið
hægt og rólega eftir skýrslunum
og þær hafðar til hliðsjónar þegar
farið er út í breytingar. Það vant-
ar kannski á að geta fylgt hlutun-
um meira eftir.“
Árangurinn segir Magnús
koma fram í meiri samheldni á
vinnustöðunum, fólk verður
ánægðara. Einnig verður minna
vart við vöðvabólgu, bakskaða
og önnur líkamleg óþægindi.
„Verkstjórar hafa sagt mér að
ekki sé nokkur vafi á að þetta
skili sér.“ KR
Grasvöllurinn á Siglufirði illa farinn:
Síður en svo ónýtur
- er álit Guðmundar H. Gunnarssonar
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
Grasvöllurinn á Siglufírði er
heldur illa útlítandi eftir
óvenju harðan vetur. Stór
svæði á vellinum hafa kalið og
þurrkarnir í júlí hafa leikið
grátt það gras vallarins sem
lifði af vorhörkurnar. I sumar
hefur lítið verið spilað á vellin-
um og hafa Siglfírðingar velt
því fyrir sér hvort völlurinn
kunni að vera ónýtur. Guð-
mundur H. Gunnarsson hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
skoðaði völlinn á dögunum og
segir það af og frá að hann sé
ónýtur.
Grasvöllurinn á Siglufirði var
formlega tekinn í notkun á sl. ári.
Fyrsti alvöru kappleikurinn á
vellinum var milli KS og UBK
þann 20. ágúst , 1?88, Völlurinn
var tyrfður árið 1987 °g leit mjög
vel út síðari hluta sumars í fyrra.
Það kom mönnum því nokkuð á
óvart hversu illa hann var
útleikinn í vor og fyrri part
sumars. Samkvæmt upplýsingum
Jakobs Kárasonar, sem sæti á í
vallarnefnd á Siglufirði, leist
mönnum ekki meira en svo á
ástand vallarins og því voru
kvaddir til sérfróðir menn til að
líta á aðstæður. Guðmundur fór
vestur og tók sýni úr vellinum og
er að vænta niðurstöðu úr þeirri
greiningu í þessari viku. „Völlur-
inn kól hjá okkur en þeir blettir
eru að lagast. Hins vegar er það
gras sem kom fagurgrænt undan
snjó í vor farið að gulna. Þarna
virðist eitthvað vera að gerast og
fyrir það verður að komast," seg-
ir Jakob. „íþróttaráð ákvað að
loka vellinum af þessurn sökum,“
bætti hann við. Áður höfðu KS-
menn æft á vellinum og einn leik-
ur fór fram á honum 14. júlí sl.,
milli KS-manna og Dalvíkinga.
Guðmundur H. Gunnarsson
segir að þar sem ekki liggi niður-
stöður rannsókna fyrir sé erfitt að
segja fyrir um hvað valdið hafi
því að gras á vellinum tók skyndi-
lega að gulna. Hann segir þó ekki
ósennilegt að hluti vallarins hafi
þornað upp í nokkra daga og
grasið því gulnað. Guðmundur
tekur fram að engin ástæða sé til
að ætla að völlurinn geti ekki náð
sér aftur á strik eftir þá vætutíð
sem verið hefur undanfarna
daga. óþh
Þannig leit grasvöllurinn á Siglufiröi út fyrir tæpu ári síðan. Nú er völlurinn
illa kalinn og gras gult í rót. , Mynd: ss
i
Kári Lárusson, til Itægri, ásamt Hallbirni Björnssyni rafvirkjameistara sem
llar raflagnir við bátana. Mynd: et
Skagaströnd:
^ium flóra daga
í sumarfrP
- segir Kári Lárusson sem rekur
dráttarbraut ásamt félaga sínum
Þrátt fyrir erfíðleika í skipa-
sniíðum innanlands virðist nóg
vera að gera í viðhaldi smærri
báta. Ekki er allavega annað
að heyra á Kára Lárussyni á
Skagaströnd en ásamt félaga
sínum Ólafí Guðmundssyni
tók hann í febrúar síðastliðn-
um á leigu dráttarbraut
hreppsins. Síðan hefur verið
meira en nóg að gera.
Það er ekki bara bjartsýnin
sem réði því að þeir félagar færð-
ust þetta í fang því báðir eru þeir
menntaðir í þessa áttina. Kári er
trésmiður og vélvirki en Ólafur
er skipasmíðameistari. Kári sér
um reksturinn og rekur raunar að
auki eigið trésmíðaverkstæði.
„Það er smá uppihald í þessu
núna sem betur fer. Ætli við
fáum ekki svona fjóra daga í
sumarfrí í sumar,“ sagði Kári þar
sem blaðamaður rakst á hann
inni í „stjórnstöð" brautarinnar,
þar sem raunar er ekki pláss fyrir
margt annað en dráttarspilið.
Dráttarbrautina leigja þeir
félagar af Höfðahreppi en áður
var reksturinn í höndum Mána-
varar sem varð gjaldþrota síðast-
liðinn vetur. En er þetta framtíð-
in hjá þeim? „Já ætli það ekki
bara,“ segir Kári. Þegar hann svo
er spurður hvort ekki standi þá til
að eignast græjurnar svarar hann
neitandi. „Þá þurfum við að fara
að hafa áhyggjur af peningunum
í þessu. Umsetningin er ekki
nægilega mikil til þess að standa
undir kaupunum." ET
Vanskili í bankaútibúunum á Akureyri:
Sjávarútvegsfyrirtækin í mestum vanskilum
Svo virðist sem almenningur
og stjórnendur fyrirtækja fari
sér varlegar í fjáifestingum og
lántökum nú en áður, sam-
kvæmt upplýsingum frá banka-
útibússtjórum á Akureyri.
Vanskil hafa almennt aukist
nokkuð í bankaútibúum
bæjarins, og mest þar sem sjáv-
arútvegsfyrirtækin hafa við-
skipti.
í heild ríkir þó ágætt jafnvægi í
viðskiptum peningastofnana í
bænum, og hefur síður orðið vart
við þá miklu vanskila- og gjald-
þrotasveiflu sem bankamenn
kvarta yfir í höfðuborginni.
„Ég get ekki merkt að vanskil
hafi aukist, þau eru ekki meiri nú
en á síðasta ári. En því er samt
ekki að neita að vanskilin eru of
algeng, vanskil eiga eiginlega
ekki að vera til,“ sagði Gunnar
Hjartarson hjá Búnaðarbankan-
um á Akureyri. Hann sagði einnig
að eftirspurn eftir lánum væri
ekki meiri nú en venjulega í úti-
búinu.
„Það er þungt hjá fólki,“ sagði
Kristín Jónsdóttir hjá Alþýðu-
bankanum. Hún segir að banka-
starfsfólk verði vart við þetta
m.a. á þann hátt að nokkuð meiri
vinna sé í kringum vanskilamál.
Akureyringar væru skilafólk,
ekki vanskilafólk, en tvímæla-
laust mætti oft rekja vanskil til
þrengri stöðu efnahagslífsins í
heild, eins og alkunna væri.
„Fólk er varkárara og tregara til að
fara út í stórkostlegar fram-
kvæmdir en áður og minni bjart-
sýni gætir en fyrir tveimur árum,“
sagði Kristín.
„Ég get tekið undir að vanskil
hafa aukist og þetta er allt saman
þyngra en áður. Þó er aukningin
ekki áberandi mikil. Mér sýnast
almennar aðstæður í þjóðfélag-
inu liggja þarna til grundvallar,“
sagði Ásgrímur Hilmisson, úti-
bússtjóri Útvegsbanka íslands
hf á Akureyri.
„Vanskil eru svipuð og hafa
verið hérna. Ef ég miða við
Reykjavík þá er útibúið hérna í
betri kantinum hvað þetta
snertir. Eftirspurn eftir lánum er
svipuð og áður, hún er nokkuð
meiri hér fyrir norðan en fyrir
sunnan," sagði Guðjón Stein-
dórsson, útibússtjóri Iðnaðar-
bankans á Akureyri.
Helgi Jónsson, útibússtjöri
Landsbanka íslands, sagði að
vanskil hefðu óneitanlega aukist
talsvert sem væri ekki óeðlilegt,
enda væri Landsbankinn með
stórviðskipti við sjávarútveginn.
Vanskil einstaklinga hefðu einnig
aukist, en þó mun minna en sjáv-
arútvegsfyrirtækja. „Það er erfitt
ástand í þjóðfélaginu, en það
hefur oft verið erfitt áður. Þetta
gengur í bylgjum og við skulum
vona að birti upp fyrr en seinna,"
sagði hann. EHB
Sjónvarpsvísir Stöðvar 2:
Taföist í prentun
Vegna táfa í prentun í Reykja-
vík, verður einhver bið á því að
áskrifendur Stöðvaf 2 á Akur-
eyri, fái Sjónvarpsvísi fyrirágúst
í hendur.
Sjónvarpsvísirinn er rétt kom-
inn til bæjarins og verður honum
dreift af krafti næstu daga og því
eru áskrifendur beðnir að sýna
örlitla þolinmæði.