Dagur - 01.08.1989, Side 5

Dagur - 01.08.1989, Side 5
frétfir Smábátahöfn á Skagaströnd Nýlega hófust framkvæmdir við smábátahöfn á Skagaströnd. í sumar verður fyrsti áfangi verksins unninn en þar er um að ræða 18 metra langa bryggju. Við bryggjuna er piáss fyrir um 20 báta en að sögn Guðmundar Sigvaldasonar sveitarstjóra hefur lengi vantað aðstöðu sem þessa á Skagaströnd. Kostnaður við þennan fyrsta áfanga er 4-5 milljónir. Mynd: ET Erfiðleikar hjá veitustofnunum Siglu^arðar: Gert rað fyrir tugmilljóiia kr. halla á rekstri rafveitu og hitaveitu Samkvæmt nýsamþykktri fjár- hagsáætlun Siglufjarðarbæjar er gert ráð fyrir 26,7 milljóna króna tapi á hitaveitu bæjar- ins, og 23,6 milljóna króna tapi á rafveitunni í ár. Samkvæmt bókunum bæjar- stjórnar eru nákvæmar tölur um áætlað tap hitaveitunnar kr. 26.741.000,- en rafveitunnar kr. 23.652.000,- Sverrir Sveinsson, rafveitustjóri, var spurður hverju þetta sætti. Hann upplýsti að Hitaveita Siglufjarðar hefði verið rekin með tapi á undanförnum árum, en tapið á Rafveitunni mætti rekja til þess að hún hefði búið við óhagkvæma valkosti í orku- öflun og dýrar framkvæmdir í bænum. „Við reiknuðum með að hitaveita bæjarins fengi samsvar- andi aðstoð og aðrar hitaveitur landsins, en hún gleymdist við gerð fjárlaga. Það verður leið- rétt, en veitan var byggð á árun- um eftir orkukreppuna fyrir mjög óhagstæð lán. Við máttum búa við lágt hitastig á vatninu og bull- andi olíukeyrslu undanfarin ár, og sitjum í því að þetta hefur safnast upp hjá okkur vegna þess að lán, sem við reiknuðum með að létt yrði af okkur, hafa farið í vanskil. Gjaldskráin hefur verið sambærileg við aðrar veitur. Hvað rafveituna svertir þá endurspeglar fjárhagsáætlun hennar þær rekstarforsendur sem við er að glíma. Við þurfum að færa niður skuldir, þ.e. útistand- andi eignir, og líka að takast á við verkefni sem bæjarstjórn hef- ur farið út í undanfarin þrjú ár, verkefni sem voru kannski stærri en við höfum efni á, aðallega vegna framkvæmda í gatnakerfi bæjarins, en þar verður rafveitan eðlilega að fylgja á eftir með lagnir o.s.frv.,“ sagði Sverrir. EHB Vöruskiptin við útlönd janúar-maí 1989: Vöruskiptajöfnuður hagstæður um röskar 2.700 millj. króna í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir röskar 7.000 millj. kr. og inn fyrir nær 8.500 millj. kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn í maí var því óhagstæður um nær 1.500 millj. kr. Af innflutningnum í maí stafa um 2.800 millj. kr. af þotukaupum Flugleiða hf. og að þeim frátöldum hefur vöruskipta- jöfnuðurinn verið hagstæður um 1.300 millj. kr. í maí í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð- ur um röskar 200 millj. kr. á föstu gengi. Fyrstu fimm mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir nær 30,4 milljarða kr. en inn fyrir rösklega 27,6 milljarða kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn á þessum tíma var því hagstæður um rösk- ar 2.700 millj. kr. en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um nær 700 millj. kr. á sama gengi. Fyrstu fimm mánuði þessa árs var verðmæti vöruútflutnings 11% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru um 71% alls útflutningsins og voru um 5% meiri en á sama tíma í fyrra. Útflutningur á áli var 35% meiri og útflutningur kísiljárns var 78% meiri en á sama tíma á síðastliðnu ári. Útflutningsverðmæti annarrar vöru (að frátöldum skipum og flugvélum) var 2% meira í janúar- maí en á sama tíma í fyrra, reikn- að á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutnings fob. fyrstu fimm mánuði ársins var 1% minna en á sama tíma í fyrra. Verðmæti innflutnings til stóriðju var álíka mikið og í fyrra, en verðmæti olíuinnflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var nær fjórðungi meira en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þess- ir innflutningsliðir ásamt inn- flutningi skipa og flugvéla eru jafnan breytilegir frá einu tíma- bili til annars, en séu þeir frátald- ir reynist annar innflutningur (73% af heildinni) hafa orðið um 18% minni en í fyrra, reiknað á föstu gengi. Dalvík: „Brennsi“ undir stýri Einn ökumaður var tekinn á Dalvík aðfaranótt sl. laugar- dags grunaður um ölvun við akstur. Ökumaður var Dalvík- ingur af yngri kynslóðinni. Að öðru leyti var helgin heldur tíðindalítil hjá lögreglunni á Dalvík. Að vísu þurfti hún að hafa afskipti af einu og öðru aðfaranótt laugardagsins en allt var til lykta leitt á farsælan hátt. óþh Þriðjudagur 1. ágúst 1989 - DAGUR - 5 ÞBGf teúpB .k - RUOAO - SJÓMANNAFÉLAG EYJAFJARÐAR Félagsfundur Sjómenn í sjómannafélagi Eyjafjarðar. Félagsfundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu, Skipa- götu 14, 4. hæð, þriðjudaginn 1. ágúst n.k. kl. 20.00. Fundarefni. Kröfugerð í komandi samningum. Umræða um lagabreytingu. Félagar! Nú mætum við allir vel og stundvíslega. Stjórnin. Fyrir verslunarmannahelgina Tjöld 3ja til 5 manna. Svefnpokar. Bakpokar 65 og 75 I. Vindsængur, tjalddýnur. Kælitöskur 24, 32 og 40 I. Tjaldborð, tjaldkollar. Pottasett, diskasett. Tjaldhælar, tjaldsúlur. Viðskiptavinir vinsaml. ath. að lokað verður laugardaginn 5. ágúst. JiJ EYKTÖHB Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275 Blaðamaður Dagur óskar eftir að ráða blaðamann til starfa á Sauðárkróki frá og með 20. sept- ember nk. Um er að ræða fullt starf og mun viðkomandi jafn- framt verða umboðsmaður blaðsins á Sauðárkróki. Góð íslensku- og vélritunarkunnátta áskilin. Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist ritstjóra Dags, Strand- götu 31, 600 Akureyri, fyrir 10. ágúst nk., merkt: Rlm Rlf“ ----------------------------------------------------------. Haflð þið opið á laugardögum eða suunudögum í sumar? Ef svo er, viljuin vlð miiina á að Dagur, helgarblað kemur út snemma á laugardögum. (Fyrir kl. 8.00 til áskrifenda á Aknreyri.) Haíið samband við auglýsingadeild Dags íyrir ld. 11 á íimmtudag, og auglýsingin birtist á laugardag. Strandgötu 31 • Sími 24222. Dagblaðið á landsbyggðiimi

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.