Dagur - 01.08.1989, Side 7
ÞtSSJtUdagoP i: ágG#Þ«^<M»<SÖ*a-73
Knattspyrna/2. deild:
Völsungur réð ekki
við Stjömuna
Völsungur varð að bíta í það
súra epli að tapa fyrir Stjörn-
unni í Garðabænum og er liðið
því áfram í næstneðsta sæti
deildarinnar. Húsvíkingarnir
börðust vel í leiknum og var
markalaust í leikhléi. Um
miðjan síðari hálfleik skoraði
Stjarnan vafasamt mark og eft-
ir það var ekki spurning um
hver úrslitin yrðu.
Aðdragandi marksins var
þannig að Stjörnumaðurinn
Valdimar Kristófersson átti
þrumuskot að marki sem Harald-
ur Haraldsson markvörður
Völsunga varði mjög vel en hélt
ekki knettinum og þaðan barst
hann til Árna Sveinssonar sem
skoraði, 1:0. Margir töldu að
knötturinn hefði farið í hönd
Árna en dómarinn sá ekkert
athugavert við atvikið og dæmdi
markið löglegt.
Skömmu áður höfðu Völsung-
ar átt gullið tækifæri til þess að
komast yfir. Kristján Olgeirsson
átti góða sendingu á Hörð Ben-
onýsson sem lék upp kantinn og
átti síðan skot í stöng Stjörnunn-
ar. Þaðan barst boltinn til Jónas-
ar Hallgrímssonar hinum megin í
vítateignum en skot hans fór
Önnur úrslit
1. deild:
Valur-FH 0:1
2. deild:
UBK-Víðir 3:3
einnig í stöngina! Eða eins og
segir í kvæðinu: „íslands óham-
ingju verður allt að vopni.“
Eftir að Stjörnumenn höfðu
náð forystunni var eins og allur
vindur væri úr Húsvíkingunum.
Heimamenn tóku öll völd á vell-
inum og fljótlega bætti Valdimar
Kristófersson öðru marki við fyr-
ir Stjörnuna.
Síðustu mínútur leiksins sóttu
Garðbæingar stíft en tókst ekki
að bæta við mörkum. Liðið er þvf
með örugga forystu í 2. deildinni
og ekkert bendir til annars en
Stjarnan fari að dæmi Fylkis-
manna í fyrra og Leifturs árið þar
áður og fari beint úr 3. deild upp
í 1. deild.
Þetta var ekki dagur Völsunga
og mega þeir nú fara að taka sig
verulega á því næstu lið virðast
vera að hirða stig hér og þar og
fallið bíður handan við dyrnar.
Helgi Helgason og félagar í Völsungsliðinu sóttu ekki gull í greipar Stjörnumanna og töpuðu 2:0.
Knattspyrna/2. deild:
Leiftur lá í Garðmum
Þrátt fyrir stórleik Þorvalds
Jónssonar í marki Leifturs
tókst honum ekki að bjarga
stigi fyrir Ólafsfirðinga því eft-
ir að hafa varið tvívegis frá-
bærlega frá sóknarmönnum
Garðsbúa kom varnarmaður-
inn Sævar Leifsson aðvífandi
og skoraði sigurmark heima-
manna.
Þetta var leikur hinna sterku
varna og stæltra varnarmanna.
Síðasti leikur
Sveins með Þór
- Kristján ekki með gegn KA
Sveinn Pálsson knattspyrnu-
maður í Þór leikur sinn síðasta
Sveinn Pálsson er á leið til Banda-
ríkjanna og leikur sinn síðasta leik
með Þór gegn KA í kvöld.
leik á keppnistímabilinu gegn
KA í kvöld. Hann er á leið til
Bandaríkjanna í nám og missir
því af þeim leikjum sem Þór á
eftir í deildinni. Kristján Krist-
jánsson verður hins vegar ekki
með gegn KA því hann er
meiddur.
Sveinn fer til Háskólans í Suð-
ur-Karólínafylki (USC) og ætlar
að nema markaðsfræði í vetur.
Hann fær niðurfellingu á skóla-
gjöldum og ætlar að sjá til í vetur
hvernig honum líst á námið áður
en hann ákveður með framhald-
ið. Þetta nám er 4 ár en Sveinn
kemur aftur heirn næsta sumar og
leikur þá áfram með Þórsurum.
Kristján Kristjánsson þurfti að
fara út af gegn Fylki meiddur og
er ekki enn búinn að jafna sig af
meiðslum sem hafa verið að hrjá
hann að undanförnu. Það verður
því skarð fyrir skildi því Kristján
er markahæstur Þórsara í deild-
inni með 4 mörk.
Bæði lið eru þekkt fyrir mikla
baráttu og af henni sást ómælt í
leiknum, e.t.v. á kostnað knatt-
spyrnunnar. Hins vegar var
leikurinn ekki grófur þrátt fyrir
að ekki einn einasti leikmaður
Víðis væri í banni!
Ekki var mikið um marktæki-
færi í fyrri hálfleik því leikurinn
fór að mestu fram á miðjum vall-
arhelmingnum. Þó fékk Óskar
Ingimundarson ágætt tækifæri en
Þorvaldur sá við fyrrum þjálfara
sínum.
Svipað var uppi á teningnum í
síðari hálfleik en þó voru Víðis-
menn aðgangsharðari uppi við
markið. Tvívegis varði Þorvaldur
vel frá Óskari og þar að auki
skaut Guðjón Guðmundsson hátt
yfir í ágætu tækifæri.
Reyndar skoraði Arthur David
beint úr aukaspyrnu fyrir Leiftur
«n Gísli í marki Víðis lét knött-
inn fara því aukaspyrnan var
óbein og ekki má skora úr slíkri
spyrnu.
Það var síðan á 70. mínútu að
Sævar Leifsson skoraði sigur-
markið, eins og þegar hefur verið
lýst. Víðisliðið var mjög jafnt í
þessum leik og eru Garðsbúar nú
í harðri baráttu við Stjörnuna um
toppsætið í deildinni. Bestu
menn liðsins í þessum leik voru
þeir Björn Vilhelmsson og síðan
Daníel Einarsson, kletturinn í
vörninni. Einnig átti Gísli í
markinu ágætan leik.
Hjá Leiftri var Þorvaldur best-
ur og reyndar var hann yfirburða-
maður á vellinum. Þeir voru ófáir
boltarnir sem hann hirti og því
blóðugt að tapa leiknum. Árni
var einnig sterkur í vörninni en
sóknarleikur Leifturs var ekki
nægjanlega beittur og því fór sem
fór. MG/AP
Staðan
1. deild
FH 12 6-4-2 17:11 21
Valur 12 6-3-3 14: 7 21
KA 11 5-4-2 17:11 19
Fram 11 6-1-4 16:11 19
KR 11 4-4-3 17:15 16
ÍA 11 5-1-5 12:14 16
Víkingur 11 2-4-5 16:16 10
Þór 11 2-4-5 11:17 10
ÍBK 11 2-4-5 11:18 10
Fylkir 11 3-1-7 10:22 10
2. deild
Stjarnan n 8-1-2 25:11 25
Víðir n 7-2-2 16:10 23
ÍBV 9 6-0-3 22:15 18
Selfoss 10 6-0-4 12:14 18
Breiðablik 11 4-3-4 24:19 15
Leiftur 11 3-4-4 10:11 13
ÍR 11 3-3-5 13:16 12
Einherji 10 3-2-5 15:26 11
Völsungur 11 2-2-7 15:27 8
Tindastóll 11 2-1-8 16:19 7
Knattspyrna/1. deild:
Akureyrarslagur í kvöld
- KA og Þór mætast á Akureyrarvellinum
Það verður hörkuslagur á Akur-
eyrarvelli í kvöld er Þór og KA
mætast í 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Leikurinn er mjög
mikilvægur fyrir bæði lið því
KA má ekki tapa stigum í
toppbaráttunni og Þórsarar
bcrjast nú fyrir lífi sínu í 1.
deildinni. Það verður því hart
barist í leiknum og búast má
við fjölmenni á völlinn.
Stefán Gunnlaugsson formað-
ur knattspyrnudeildar KA segir
að allt geti gerst í leiknum í kvöld
því staða liðanna í.ideildinpi virð-.
ist litlu máli skipta í sambá'ndi við
úrslit leikja hjá KA. „Þar að auki
er árangur okkar gegn Þór í 1.
deild ekki neitt til að hrópa hurra
fyrir,“ sagði formaðurinn. „En
þar verður vonandi bragarbót á í
kvöld,“ bætti hann við og brosti.
Sigurður Arnórsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs er bjart-
sýnn á að þetta geti orðið
skemmtileg viðureign. „Leikir
liðanna í deildinni hafa yfirleitt
verið fjörugir og skemmtilegir og
ég á von á því að slíkt verði uppi
á teningnum í kvöld,“ segir
Sigurður.
Báðir formennirnir kváðust
vona að áhorfendur myndu mæta
á völlinn til þess að styðja sína
ntenn því það væri enginn
almennilegur Akureyrarslagur ef
ekki myndu mæta stuðningsmenn
beggja liða til þess að hvetja sitt
lið til sigurs.
KA-menn tefla fram óbreyttu
liði frá sigurleik sínum við Frarn í
síðustu umferð. Þar að auki er
Steingrímur Birgisson að ná sér
af meiðslunum en Stefán Ólafs-
son á við einhver meiðsli að
stríða.
Kristján Kristjánsson leikur
ekki með Þór eins og sagt er frá
annars staðar á síðunni.