Dagur - 01.08.1989, Qupperneq 9
Þrlðjudagur 1. ágúst 1989,-' d/03UR - 9
Knattspyrna/2. deild:
Einheiii lagði Tindastól
4:3 í köflóttum leik
talbjörn Björnsson formaður Einherja er mjög lið-
kur knattspyrnumaður og hefur um margra ára skeið
rið einn aðalburðarásinn í Einherjaliðinu. Um helg-
i unnu þeir góðan sigur á Tindastóli 4:3. Mynd: Jóhann
Einherjamenn láta ekki að sér
hæða og lyftu sér úr fallsæti
með því að leggja Tindastól frá
Sauðárkróki að velli á Vopna-
firði 4:3 í 2. deildinni í knatt-
spyrnu.
Hávaðarok var á Vopnafirði er
leikurinn fór fram og setti það að
sjálfsögðu ntikinn svip á leikinn.
Leikmenn beggja liða börðust vel
og greinilegt á öllu að bæði lið
vissu hvað í húfi var. Hins vegar
var knattspyrnan ekki upp á
ntarga fiska fyrsta hálftímann og
var boltinn oft utan vallar.
Síðustu 15. mínútur hálfleiks-
ins fóru þó hlutirnir að gerast fyr-
ir heimamenn og skoruðu þeir 4
mörk á þeim tíma. Baldur Kjart-
ansson braut ísinn er hann skor-
aði fram hjá Gísla í marki Tinda-
stóls. Gísli Davíðsson skoraði
annað markið er hann þrumaði
knettinum í mark af löngu færi.
Markvarðarhrellirinn Þrándur
Sigurðsson skoraði síðan þriðja
markið nokkru síðar og rétt fyrir
leikhlé bætti Kristján Davíðsson
Guðbrandur Guðbrandsson skoraði
fyrir Tindastól, cn liðið tapaði samt
4:3.
fjórða markinu við. Heimamenn
trúðu vart sínum eigin augum,
4:0, fyrir Einherja!
Bjarni þjálfari Tindastóls hefur
sjálfsagt lesið vel yfir sínum
mönnum í búningsherbergjunum
og það var allt annað Tindastóls-
lið sem skeiðaði út á völlinn í síð-
ari hálfleik. Þeir hófu strax þunga
sókna að marki heimamanna og
Guðbrandur Guðbrandsson
skoraði á 52. mínútu og nokkrum
mínútum síðar bætti Eyjólfur
Sverrisson öðru marki við fyrir
Tindastóll. Formaður knatt-
spyrnudeildarinnar á Vopnafirði,
Aðalbjörn Björnsson, varð svo
óheppinn að skora í sitt cigið
mark en þar með var ntarkasúp-
an búin. Lokatölur 4:3 Einherja í
vil.
Þetta var mikilvægur sigur fyrir
Einherja sem lyfti sér úr 9. sæti í
það 7. í deildinni. Liðið barðist
vel í þessum leik og gaf Tinda-
stólsmönnum engan friö að spila
boltanum. Síðan var sóknar-
leikurinn beittur og sigurinn því
verðskuldaður.
Staða Tindastóls versnaði til
muna við þetta tap og þeir sitja
nú einir og yfirgefnir á botni 2.
deildar með 7 stig. Liðið er hins
vegar allt of gott til að vera á
þeim stað og það hlýtur að vera
að þetta fari að smella saman hjá
Sauðkrækingunum.
II
Mynd: KL
Knattspyrna/4. deild:
TBA enn taplaust
TBA sigraði SM 5:0 í 4. deild-
inni á laugardaginn og er liðið
næsta öruggt í úrslit því næst
efsta liðið, HSÞ-b, tapaði fyrir
Æskunni 6:4 á Svalbarðseyri.
UMSE-b lagði Neista 3:2 og
Hvöt sigraði Eflingu 2:1 á
Laugum.
Það var sannkallað markaregn
á Svalbarðseyri á föstudagskvöld-
ið. Æskan varð fyrri til að skora
en síðan skoraði Viðar Sigurjóns-
son þrjú mörk fyrir HSÞ-b á tæp-
um tveimur mínútum og þannig
var staðan í leikhléi.
Æskan minnkaði muninn í 3:2
en Stefán Guðmundsson bætti
við fjórða markinu HSÞ-b. Flest
lið hefðu nú gefist upp en Æskan
tvíefldist og skoraði fjögur mörk
áður en dómarinn flautaði til
leiksloka. Baldvin Hallgrímsson
setti þrjú mörk fyrir Æskuna,
Gunnar Berg tvö og Stefán
Rögnvaldsson eitt.
viku.
markaregn á Svalbarðseyrinni
síðari hálfleik en sóknarleikur
TBA var beittari og Bragi Sig-
urðsson og Sigurpáll Árni bættu
við sínu markinu hvor fyrir tenn-
isdrengina. TBA hcfur því enn
ekki tapað leik á íslandsmótinu.
Hvöt lagði Eflingu
Það var hörkuleikur að Laugum
er Efling tók á móti Hvöt. Eftir
markalausan fyrri hálfleik fóru
hlutirnir að gerast. Gísli Torfi
Gunnarsson skoraði fyrir Hvöt
en Þórarinn Jónsson jafnaði fljót-
lega fyrir Eflingu. Hvatarmenn
sóttu stíft eftir markið og upp-
skáru laun erfiðis síns ér Gísli
bætti við öðru marki fimm mínút-
um fyrir leikslok. í millitíðinni
hafði reyndar Friðrik Þ. Jónsson
markvörður Eflingar varið víta-
spyrnu frá Axeli Rúnari Guð-
mundssyni með miklum tilþrif-
um.
UMSE-b sigraði Neista
UMSE-b sigraði Neista 3:2 í
ágætum leik. Eyjafjarðardreng-
irnir voru sterkari en Hofsósingar
veittu verðuga mótspyrnu. Sig-
urður Bjarkason skoraði fyrst
fyrir UMSE-b og Valþór Brynj-
arsson bætti síðan öðru marki
við. Hjalti Þórðarson minnkaði
muninn fyrir Neista rétt fyrir
leikhlé.
Valþór bætti síðan þriðja
markinu við fyrir UMSE-b í síð-
Atli M. Rúnarsson markvörður
UMSE-b varði vítaspyrnu gegn
Neistanum.
TBA enn taplaust
TBA fékk óskabyrjun gegn SM á
Melum í Hörgárdal því eftir rúm-
ar tíu mínútur var staðan orðin
3:0 Akureyrarliðinu í vil. Sigur-
páll Árni Áðalsteinnsson skoraði
tvö þessara marka og Jóhannes
Bjarnason eitt. Var mark
Jóhannesar sérlega glæsilegt,
þrumuskot í vinkilinn frá víta-
teig. Alfreð Gíslason brenndi
síðan af víti fyrir TBA skömmu
fyrir leikhlé.
Leikurinn jafnaðist nokkuð í
Guðni fór
holu í höggí
ari hálfleik og síðan varði Atli M.
Rúnarssón markvörður víta-
spyrnu með glæsibrag frá Neista-
mönnum. En Hjalta tókst að
skora sitt annað mark og undir
lok leiksins sóttu þeir Hofsósing-
ar nokkuð stíft. Vörn UMSE-b
gaf hins vegar ekki eftir og stigin
þrjú urðu eftir í Eyjafirði.
Grænlendingurinn Anas Hellman
kemur til KÁ.
Anas
kemur
-tilKA
Tveir leiknienn hafa nú gengið
til liðs við 1. deildarlið KA,
það eru Grænlendingurinn
Anas Hellman og svo Vest-
mannaeyingurinn Jens Gunn-
arsson. Á móti kemur að Ólaf-
ur Hilmarsson hefur ákveðið
að leika aftur með sínu gamla
félagi Þór.
Anas er sterk vinstri-handar
skytta og kemur frá Nuuk í
Grænlandi. Hann er nú í Dan-
mörku en kernur til Akureyrar í
lok september.
Jens Gunnarsson er 19 ára
garnall og kemur frá ÍBV. Hann
er sterkur línumaður og á sjálfsagt
eftir að veita öðrum línumönnum
KA verðugt aðhald.
Ólafur Hilmarsson er genginn
til liðs við Þórsara eftir rúmlega
ársdvöl hjá KA. Einnig er frá-
gengið að Sigurður Pálsson mun
leika aftur me'ð Þór. Það er því
Ijóst að Þórsliöiö kentur mun
sterkara til leiks næsta vetur en
það var á síðasta keppnistímabili.
Golf:
Hörð barátta
- í parakeppninni
Hulda Vilhjálmsdóttir og Þór-
arinn B. Jónsson sigruðu í
parakeppni hjá GA. í öðru
sæti kontu mæðginin Elsa
Kemp og Sigurður Haraldsson
eftir að hafa tapað bráðabana
fyrir Huldu og Þórarni.
í þriðja sæti komu þau Fjóla
Stefánsdóttir og Skúli Agústsson.
Aukaverðlaun fengu þau feðgin
Ingibjörg Stefánsdóttir og Stefán
Einarsson og Jónína Pálsdóttir
og Guðni Jónsson.
Það voru Amaro, Kjötiðnaðar-
stöð KEA, Hótel KEA, Höldur,
Hlóðir, Bautinn og Uppinn sem
gáfu öll verðlaun á mótinu.
Það var mikil og góð þátttaka á
þessu móti og var gerður góður
rómur að þessu fyrirkomulagi.
Parakeppni er nú að ryðja sér til
rúms hjá golfklúbbunum hér-
lendis og má því búast við að
keppendum fjölgi ár frá ári.
Guðni „Trölli“ Jónsson hinn
geðþekki kylfingur í Golf-
klúbbi Akureyrar, gerði sér lít-
ið fyrir og fór holu í höggi á
Jaðarsvelli á mánudaginn.
Guðni var að spila ásamt félög-
um sínum, þeim Gísla Jónssyni,
Þórarni B. Jónssyni og Eyjólfi
Ágústssyni og draumahögginu
náði hann á 6. braut, með járni
númer 5. -KK
Sigurvegararnir í parakcppninni, Hulda og Þórarinn.