Dagur - 01.08.1989, Qupperneq 10
19 {--Qft$SMtM>«ttf)8daggn 1 i ágóst 't$®9 i
Gamla miðvarðaparið úr 2. flokki KA fyrir 12 árum síðan, þeir Alfreð Gísla-
son og Friðjón Jónsson, léku aftur saman nú um helgina með TBA gegn SM
í 4. deildinni í knattspyrnu. Þessir stóru og sterku drengir sáu til þess að ekk-
ert mark var skorað hjá TBA en Alfreð brenndi reyndar áf víti fyrir TBA í
leiknum.
Guðlaugur og Bencdikt glíma til úr-
slita í opnum flokki. Benedikt vann
þá glímu.
Guðlaugur Halldórsson varð
öruggur sigurvegari í -86 kg flokki
lagði alla keppinauta sína í þeim
flokki.
Benedikt Ingólfsson vann gull t
-95 kg flokki. Hann sigraði alla
andstæðinga sína á ippon (10
stig, sem er fullnaðarsigur).
Hann vann þar að auki allar
glímur sínar á þessum móti á
ippon.
Svala Björnsdóttir lagði alla
andstæðinga sína í -56 kg flokki
og hlaut því gullverðlaunin í
þeim flokki.
Fjóla Guðnadóttir keppti í
opnum flokki kvenna og lenti í
þriðja sæti. Það þýðir að hún
hlaut bronsverðlaunin í þeim
flokki.
í opnum flokki karla glímdu
þeir Guðlaugur Halldórsson og
Benedikt Ingólfsson til úrslita og
hafði Benedikt betur. í þriðja og
fjórða sæti lentu þeir Paul Crowe
frá Mön og Birgir Christiansen
frá Færeyjum.
í sveitakeppni karla sameinuð-
ust lið íslendinga og Álandsey-
inga því báðar sveitirnir voru
fámennar. Þar sem liðsmenn
beggja sveita, þrír íslendingar og
tveir Álandseyingar, voru svipað-
ir að þyngd þurftu þeir Benedikt,
Guðlaugur og Álandseyingurinn
Anders Bentson að keppa við
menn úr þyngri flokkum til að
uppfylla öll skilyrði sveitakeppn-
innar. Það kom ekki að sök og
sigraði þessi sameiginlega sveit
andstæðinga sína og hlaut gull-
verðlaunin í þessum flokki. Fær-
eyingar lentu í 2. sæti og Mön í
því þriðja.
Eyjaleikarnir á milli íslend-
inga, Færeyinga, Alandsey-
inga og Mön fóru fram í Fær-
eyjum fyrr í þessum mánuði.
Islensku keppendurnir í júdó
voru allir úr KA og stóðu þeir
sig mjög vel á þessum leikum.
Þar var Benedikt Ingólfsson
fremstur í flokki og hlaut hann
þrenn gullverðlaun í keppn-
inni.
Sveit fslands skipuðu Benedikt
Ingólfsson, Guðlaugur Halldórs-
son, Hilmar Trausti Harðarson,
Svala Björnsdóttir og Fjóla
Guðnadóttir. Benedikt hlaut
þrenn gullverðlaun, eins og áður
sagði, Guðlaugur hlaut tvenn
gullverðlaun og eitt silfur. Hilmar
Trausti hlaut eitt gull og eitt
silfur, Svala hlaut eitt gull og
Fjóla Guðnadóttir hlaut eitt
brons.
Hilmar Trausti keppti í -71 kg
flokki og hlaut silfurverðlaun í
þeim flokki. Hann tapaði úrslita-
glímunni á móti færeyskum
keppanda og var sá úrskurður
dómara mjög umdeildur.
Svala Björnsdóttir hlaut gull í 56 kg.
flokki.
KA og Yölsungur eru komnir í úrslit í 4. flokki karla því að KA lagði Þór
5:1 í gærkvöld á KA-velIinum. Eins og sést þá var hart barist í leiknum en
KA-menn höfðu betur. Mynd/KL
íslenska drengjalandsliðið:
Guðmundur markahæstur
- Akureyringar með öll mörkin
Islenska drengjalandsliðið í
knattspyrnu tók þátt í alþjóð-
legu knattspyrnumóti í Ung-
verjalandi um helgina. Guð-
mundur Benediktsson úr Þór
varð næst-markahæsti kepp-
andi mótsins með þrjú mörk.
Þórður Guðjónsson úr KA sá
um að skora fjórða mark
íslands í venjulegum leiktíma.
íslendingar lentu í 7. sæti eftir
að hafa lagt úrvalslið Bæjaralands
4:3 að velli í keppni um 7.-8.
sætið. Ekki var hægt að fá upp-
gefið hverjir skoruðu mörk
Islands í þeim leik en jafnt var
eftir venjulegan leiktíma og
því var tekið til þess ráðs að taka
Knattspyma 2. flokkur:
Þór skelltí ÍBK
- en KA tapaði
Akureyrarliðin í 2. flokki karla
kepptu við IBK um helgina.
Gestirnir skelltu KA á föstu-
dagskvöldið 2:1 en Þórsararnir
tóku þá í kennslustund og rúll-
uðu þeim upp 5:1 á laugardag.
KA-liðið var ekki sannfærandi
á KA-vellinum gegn ÍBK á föstu-
dagskvöldið. Það vantaði bæði
baráttuna og sigurviljann í liðið
en af slíku höfðu Suðurnesjapilt-
arnir af nógu að taka og því var
sigurinn þeirra.
Reyndar voru bæði mörk ÍBK
af ódýrari gerðinni og því svekkj-
andi fyrir KA að tapa leik á slík-
um mörkum. Það fyrra kom eftir
hornspyrnu og einn varnarmanna
KA skallaði boltann glæsilega í
eigið mark. Það síðara kom eftir
að varnarmaður KA hafði brotið
klaufalega á Keflvíkingi og dæmd
var vítaspyrna sem gestirnir skor-
uðu örugglega úr.
Björn Pálmason minnkaði
muninn -um miðjan seinni hálf-
leik með snyrtilegu marki en
áður hafði Ægir Dagsson í marki
KA varið nokkrum sinnum stór-
glæsilega. Lokatölur voru því 2:1
fyrir ÍBK og verða það að teljast
sanngjörn úrslit miðað við gang
leiksins.
Engin miskunn hjá Þór
Keflvíkingar fengu hins vegar að
kenna á því gegn Þórsurum dag-
inn eftir á Akureyrarvellinum.
Þeir rauðklæddu voru í miklum
ham og áttu Keflvíkingar aldrei
möguleika í leiknum. Árni Þór
Árnason var góður í leiknum og
áttu Keflvíkingar í miklum erfið-
leikum með hraða hans og leikni.
Einnig var Axel Vatnsdal áber-
andi og eru þcir tveir tvímæla-
laust eitt besta framherjapar í 2.
flokki í dag.
Staðarí í leikhléi var 3:0 en
fljótlega í síðari hálfleik minnk-
uðu Keflvíkingar muninn í 3:1.
En Þórsarar voru ekkert á því að
gefast upp og bættu tveimur
mörkum við fyrir leikslok.
Árni Þór var markahæstur í
leiknum með tvö mörk, Axel
Vatnsdal skoraði eitt, Þórir
Áskelsson eitt og að lokum skor-
aði Páll Gíslason eitt mark úr
vítaspyrnu. Sem sagt, stórsigur
Þórs 5:1.
Þórir Áskelsson skoraði fyrir Þór
gegn ÍBK.
vítaspyrnur.
íslendingar léku fyrst við
Frakka, sem síðar sigruðu á mót-
inu, og töpuðu 4:2. Guðmundur
Benediktsson úr Þór skoraði
bæði mörk íslands í þeim leik.
í næsta leik rassskelltu Ung-
verjar okkur og sigruðu okkur
9:1. Guðmundur skoraði eina
mark íslands í þeim leik.
Þá var komið að Júgóslövum
og í jöfnum og spennandi leik
sigruðu Júgóslavar 2:1. Það var
Þórður Guðjónsson úr KA sem
skoraði mark íslands.
í gær léku síðan íslendingar
við Úrvalslið Bæjaralands, eins
og áður var sagt, og útkoman
sem sagt 7. sæti sem er þokkaleg-
ur árangur því þetta er mjög
sterkt mót.
íslenska landsliðið mun dvelja
nokkra daga í Ungverjalandi við
æfingar en heldur síðan til Eng-
lands þar sem það tekur þátt í
Norðurlandamótinu í knatt-
spyrnu sem að þessu sinni er
haldið þar í landi.
Staðan 3. deild
KS 11 10-1-0 44: 2 31
Þróttur N . 12 8-2-2 35:15 26
Dalvík 11 6-2-3 28:13 20
Huginn 11 5-2-3 20:22 17
Reynir Á, 11 4-2-5 23:20 14
Magni 10 4-1-5 18:22 13
Kormákur 11 2-2-7 20:44 8
Valur Rf. 12 2-2-8 9:39 8
Austri 9 0-2-7 5:25 2 4. deild
TBA 11 7-4-0 33:12 25
Hvöt 11 5-4-2 18:13 19
HSÞ-b 11 6-0-5 32:24 18
UMSE-b 11 4-2-5 17:22 14
Æskan 10 2-4-4 25:19 13
SM 10 3-3-4 14:21 12
Efling 9 2-2-415:25 8
Neisti 112-1-8 10:24 7
Karfa:
Þór með þjálfara
Körfuknattleiksdeild Þórs hef-
ur ráðið til sín þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil. Hann
heitir Brand Hagwood, 28 ára
Bandaríkjamaður, svartur á
hörund, og mun hann að sjálf-
sögðu einnig leika með liðinu.
Hagwood er bakvörður og hef-
ur leikið í V-Þýskalandi og í Arg-
entínu. Hann er 2,06 á hæð og
ætti því að geta skorað mikið af
stigum fyrir Þórsara í vetur.
Hagwood skoraði að meðaltali 23
stig í leik í Þýskalandi og ætti því
að getað orðið fjör aö horfa á
Þórsarana í körfunni næsta vetur.
Eyjaleikamir:
KA í sviðsljósinu
- tryggði íslendingum 7 gullverðlaun