Dagur - 01.08.1989, Side 11

Dagur - 01.08.1989, Side 11
Þtíftyidageé 1 r ág^itgliyMJaigðWl -A91 Skólafélagar úr Gagnfræðaskóla Akureyrar: Sameiginlegt fertugsafmæli skólafélaga úr Gagnfræða- skóla Akureyrar var haldið sl. laugardagskvöld í golfskálan- um að Jaðri. Kvöldið heppn- aðist vel á allan hátt og mættu nákvæmlega 100 manns, 63 afmælisbörn og 37 makar. Veislustjóri var Herdís María Júlíusdóttir og hófst samkvæmið með fordrykk og borðhaldi. Fjöldasöngur, skemmtiatriði og samkvæmisleikir voru síðan á dagskránni. Meðal þeirra sem tróðu upp var hópur sem síðast hafði sungið saman í fjórða bekk og þá á árshátíð Gagnfræðaskól- ans. Afmælisterta var borin í sal- inn með 40 logandi kertum og á meðan sungu allir „við eigum afmæli í dag“. Á eftir dunaði dansinn. Helga Haraldsdóttir sem var í skemmtinefnd sagði afmælið hafa heppnast mjög vel og alla skemmt sér vel. „Það var sérstakt að hitta gömlu félagana aftur og reyndar rétt eins og við hefðum hist í gær. Ég vil fyrir hönd skemmtinefndarinnar þakka öll- um sent komu fyrir sérstaklega skemmtilegt kvöld.“ Aðspurð um áframhaldandi mót skólafélaganna sagði Helga ekki nema tvö ár í 25 ára gagn- fræðaafmæli margra úr hópnum Guörún Bergsdóttir, Lilja Sigurðardóttir, Herdís María Júlíusdóttir, Grímur Sigurösson, Sigríður Eysteinsdóttir, Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir og Helga Haraldsdóttir rifja upp gömlu lögin. og þá yrði sjálfsagt komið saman. „Það er síðan aldrei að vita með 45 ára afmælið,“ sagði hún. KR Gunnlaug Hanna og Helga bera inn afmælistertuna sem hin síöarnefnda bakaði. Héldu sameiginlegt fertugsafmæli hér & þar Heyra þættirnir um Matlock sögunni til? Matlock lögmaður berst um öldungadeMarsæti Bandarískum öldungardeildar- þingmönnum er betra að hafa ekkert óhreint í pokahorninu því að sjálfur Matlock hefur nú hug á að bjóða sig fram í kosningum til öldungadeildar Bandaríkjaþings. Hér er auðvitað ekki átti við Matlock, „him self“, eins og kan- inn myndi orða það, heldur leikarann Andy Griffith sem túlkar lögmanninn snjalla á sjón- varpsskjánum. Þannig ætlar Griffith sjálfur að ráðast til atlögu við atvinnuleysið, heil- brigðismálin og eyðslu ríkisvalds- ins. Jesse Helms: Óttast Andy „Matlock“ Griffith. Þeir sem til þekkja segja að Andy hafi góða möguleika á að vinna sér sæti í deildinni. Hann hefur hug á því að berjast unt sæti það sem nú er í höndum repúblikanans Jesse Helms í Norður-Karólínufylki. „Andy nýtur almannahylli í Norður-Karólínu. Hann yrði frábær frambjóðandi sem hefði alla möguleika á að sigra og tryggja sér sæti,“ segir Lawrence Davis, kosningastjóri demókrata í Norður-Karólínu. Repúblikönum í fylkinu þykir hugmyndin góð. Þess séu dæmi að leikurum í frægum sjónvarps- þáttunr hafi tekist að koma sér áfram í stjórnmálabaráttunni og á þingi hafi þeir reynst hinir bestu starfskraftar. Ekki sé því að efa að Griffith standi sig í þessu hlut- verki sem öðrum. Leikarinn sjálfur hefur ekki talað um þessi áform opinberlega en í kunningjahópnum hefur þingmannssætið borist í tal. „Ég er ekki að tala um þetta tækifæri í neinu gríni,“ sagði Andy við einn af kunningjunum. „Þetta er eitthvað sem ég hef virkilega haft áhuga á að gera. Þingmaður yrði góð skrautfjöður á starfsferil- inn.“ Hugmyndin að þessu framboði er ekki eingöngu runnin undan rifjum leikarans heldur hafa stjórnmálamenn haldið henni á lofti um nokkurt skeið. í fyrstu var Griffith ekki áhugasamur um hugmyndina vegna þess að hann taldi enga möguleika á að hann gæti sigrað. Stuðningsmenn hafa hins vegar sannfært hann um að hann gæti sigrað. Snemnta á næsta ári kemur í Ijóst hvort Griffith nær sætinu. Fari svo heyra þættirnir um Mat- lock lögmann sögunni til. „Heim- urinn lifir áfram þó Matlock hverfi af sjónvarpsskjánum," sagði leikarinn nýlega í kunningjahópi. Andy Griffith hefur nú fullan hug á að segja skilið við sjónvarpsvélarnar og berjast í næstu kosningum til bandarísku öldungadeildarínnar. Heildarupphæð vinninga 29.07 var 7.110.254.- 2 höfðu 5 rétta og fær hver kr. 2.103.448.- Bónusvinninginn fengu 4 og fær hver kr. 107.668.- Fyrir 4 tölur réttar fær hver kr. 5.422.- og fyrir 3 réttar tölur fær hver um sig kr. 369.- Sölustaöir loka 15 mínútum fyrir útdrátt i Sjónvarpinu. Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. Lukkulína 99 1002 eins og þú vilt að aorir aki! y^ERÐAR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.