Dagur - 01.08.1989, Qupperneq 13
e8Sf IgijgB .f 'iUBBbuÉ6h«l - flUOAQ - ílf
Þriðjudagur 1. ágúst 1989 -DAGUFT- 13
Rósa Ingólfsdóttir
sýnir í Gamla Lundi
- sýningunni lýkur um næstu helgi
Rósa Ingólfsdóttir sem íslensk-
ir sjónvarpsáhorfendur kann-
ast eflaust flestir við, opnaði
síðastliðinn laugardag mynd-
listarsýningu í Gamla Lundi á
Akureyri. A sýningunni eru 36
verk, svokölluð sjónvarps-
grafík, sem Rósa hefur unnið í
tengslum við starf sitt hjá
Ríkissjónvarpinu.
Þetta er fyrsta sýning Rósu á
Akureyri og raunar í fyrsta sinn
sem hún dvelur einhverja stund í
Bridgefélag Akureyrar:
Sumarbridds
fellur niður
- vegna leiks KA
og Þórs
Sumarbridds Bridgefélags
Akureyrar, sem halda átti í
kvöld í Dynheimum, fellur
niður vegna innbyrðisviður-
eignar Akureyrarliðanna KA
og Þórs í Hörpudeildinni í
knattspyrnu.
Stjórn B.A. tók þessa ákvörð-
un þar sem vitað er að mjög
margir briddsáhugamenn ætla að
taka knattspyrnuna fram yfir
briddsspilamennskuna í kvöld og
hvetja lið sitt til dáða. Þráðurinn
verður því tekinn upp að nýju í
Dynheimum að viku liðinni,
þriðjudaginn 8. ágúst næstkom-
andi og hefst spilamennskan að
venju kl. 19.30.
Nefnd til að
fjafla um
launamál
flstamanna
Menntamálaráðherra hefur skip-
að nefnd sem fjalla á um launa-
mál listamanna í því skyni að
gera tillögur um nýtt fyrirkomu-
lag á listamannalaunum. Nefnd-
inni er ætlað að skila fyrstu niður-
stöðum sínum fyrir nóvember-
lok. 1 nefndinni eru Ragnar
Arnalds, alþingismaður, sem
jafnframt er formaður, Eiður
Guðnason, alþingismaður, Gerð-
ur Steinþórsdóttir, kennari,
Brynja Benediktsdóttir, leik-
stjóri og formaður Bandalags
íslenskra listamanna og Guðný
Magnúsdóttir, myndlistarmaður.
bænum. „Mér fellur vel við það
mannlíf og andrúmsloft sem hér
ríkir og mér finnst menningar-
straumar fljóta yfir bænum,“
sagði Rósa í samtali við Dag.
Sem fyrr segir eru á sýningunni
36 sjónvarpsgrafíkverk. Um er
að ræða þrjár seríur og allt eru
þetta verk sem birst hafa á
skjánum. í fyrsta lagi er verkið
„Óðurinn til krónunnar" en það
var notað í innlendum fréttaþátt-
um um efnahagsmál. í öðru lagi
er um að ræða verkið „það er leið
út“ en það var notað í samnefnd-
um þætti um geðvernd. Loks er
um að ræða myndröðiiia „konur í
íslensku ljóðlífi".
Aðsókn hefur verið með ágæt-
um þessa fyrstu daga. Sýningin
stendur fram á sunnudag og hún
er opin frá 16-22. ET
Félag aldraðra
Akureyri
Opnu húsin hefjast aö loknu sumarfríi miðvikud.
2. ágúst kl. 2 í Húsi aldraðra.
Formaður.
HÚSNÆDISSTOFWUN RÍKISINS
TÆKNIDEILD
Útboð
Stjórn verkamannabústaða á Sauðárkróki, óskar eft-
ir tilboðum í byggingu 6 íbúða í þremur parhúsum,
við götuna Kvistahlíð þar í bæ.
Hvert hús er 165 m2 að flatarmáli og 513 m3 að rúm-
máli.
Verkið skal hefjast um mánaðamótin ágúst-septem-
ber nk. og skal skila húsunum fullbúnum um áramót-
in 1990-1991.
Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000 kr. skila-
tryggingu frá og með þriðjudeginum 1. ágúst, á
bæjarskrifstofunni á Sauðárkróki eða hjá Tæknideild
Húsnæðisstofnunar ríkisins að Suðurlandsbraut 24 í
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda er
þess óska, á sömu stöðum, þriðjudaginn 15. ágúst
kl. 14.00 stundvíslega.
F.h. Stjórnar verkamannabústaða
á Sauðárkróki.
Tæknideild Húsnæðisstofnunar.
nL HUSNÆÐISSTOFNUN
UáQi RÍKISINS
BhJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI • 696900
MEISTARAFÉLAG
BYGGINGAMANNA
NORÐURLANDI
Hafnarstræti 107 • sími 21022
box 711 ■ 602 Akureyri
Skrifstofan
er lokuð vegna sumarleyfa og flutninga frá 1.
ágúst til 4. september.
Verslun til sölu
Þekkt sérverslun til sölu.
Um er að ræða lager og innréttingar, verslunin er í
leiguhúsnæði á góðum stað í bænum.
Fasteignasalan
Brekkugötu 4 Sími 21744
Sölustjóri Sævar Jónatansson, sími 24300.
Sölumaður er á skrifstofunni alla virka daga
frá kl. 13.00-18.00.
Auglýsing
um skattskrár í Norðurlands-
umdæmi eystra
Dagana 31. júlí til 14. ágúst 1989, að báðum dögum
meðtöldum, liggja frammi til sýnis skattskrár Norður-
landsumdæmis eystra fyrir gjaldárið 1988.
Skrárnar liggja frammi á eftirtöldum stöðum: Á skatt-
stofunni á Akureyri. í öðrum sveitarfélögum í
umdæminu, hjá umboðsmönnum skattstjóra.
Athygli er vakin á, að enginn kærufrestur myndast
við framlagningu skránna.
Akureyri, 25. júlí 1989
Skattstjórinn í Norðurlands-
umdæmi eystra.
Gunnar Rafn Einarsson.
Auglýsing
um að álagningu opinberra gjaida
á árinu 1989 sé lokið
í samræmi við ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/
1981 um tekjuskatt og eignarskatt er hér með
auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu
1989 er lokið á alla aðila sem skattskyldir eru skv.
I. kafla framangreindra laga.
Álagningarskrár voru lagðar fram í öllum skatt-
umdæmum mánudaginn 31. júlí 1989 og liggja
frammi á skrifstofu hvers skattumdæmis og hjá
umboðsmönnum skattstjóra í hverju sveitarfélagi
dagana 31. júlí-14. ágúst að báðum dögum með-
töldum.
Álagningarseðlar skattaðila, er sýna álögð opin-
ber gjöld 1989, húsnæðisbætur og barnabóta-
auka, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna alira álagðra opinberra gjalda,
húsnæðisbóta og barnabótaauka, sem skattaðil-
um hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli
1989, þurfa að hafa borist skattstjóra eða
umboðsmanni hans innan 30 daga frá og með
dagsetningu þessarar auglýsingar eða eigi síðar
en 29. ágúst nk.
31. júlf 1989
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Ólafur Helgi Kjartansson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Rafn Einarsson.
Skattstjórinn i Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson.
Skattstjórinn i Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.