Dagur - 01.08.1989, Síða 15
e'£Hðjudaguf T.rá<#tttfh3k3flttÍftÖR- 15
myndasögur dags /i
ÁRLAND
ANDRES QND
Tólvur geta veriö svo^
■^veraldarvanar.
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
Ég heyrði Arabellu tala við þig og hún
hefur rétt fyrir sér Linda! Við höfum ekkj
nægan tíma! Hver er ákvörðun þín?
Skipti!
Ég tek tilboði yðar hr.
Wo svo framarlega
sem þú samþykkir
5
/Mí
# Kátir eða
svekktir
Það má með sanni segja að
landsmenn séu þessa dag-
ana í misjöfnu skapi. Sumir
brosa sínu breiðasta en aðrir
eru í miður góðu skapi. Og
hver er ástæðan fyrir þessu
mislyndi? Jú, skattayfirvöld-
in hafa sent út sína árvissu
álagningarseðla sem færa
landanum sanninn um skil-
vísi hans á síðasta ári. Þessir
seðlar sem nú eru að berast
hafa sennilegast söfnunar-
gildi þegar einhver ár verða
liðin því þetta eru jú fyrstu
seðlarnir eftir að hið merka
staðgreiðslukerfi skatta var
sett af stað. Ekki hafa allir far-
ið lofsamlegum orðum um
þetta kerfi á síðustu dögum
því að í einhverjum tilfellum
hafa menn orðið að sætta sig
við að skulda yfirvöldunum
en aðrir hafa sloppið betur
því að staðgreiðslan hefur
hert óþarflega mikið að þeim
ólina á síðasta ári og útkom-
an verður því sú að litlar og
fallegar ávísanir undirritaðar
af Ólafi fjármála læðast inn
um lúgur á næstu dögum.
# Svarar þetta
kostnaði?
Tölvubyitingin hefur ekki ein-
göngu haft í för með sér hag-
ræðingu og þægindi. Margir
álagningarseðlarnir sýna vel
hversu kostulega mynd
þessir tölvuútreikningar geta
tekið á sig. Þannig er S&S
kunnugt um að í fjölmörgum
tilvikum skulduðu menn upp-
hæðir sem skiptu örfáum
krónum. Þetta smáræði
reiknar tölvukerfi ríkisins út
samviskusamlega og útkom-
an verður sú að í sumum til-
vikum þurfa menn að greiða
nokkra aura á mánuði til ára-
móta. Á hinn bóginn eiga
sumir skattgreiðendur inni
nokkrar krónur hjá Ólafi
Ragnari og Co. og þá koma
um hæl ávísanir í pósti. Og
ekki hikar ríkið við að senda
jafnvel eina krónu í pósti og
borga margfalt í póstburðar-
gjald fyrir. Og svona í lokin
má geta um einn mann sem
skuldaðí skattinum fáeinar
krónur samkvæmt álagning-
arseðlinum. í stað þess að
fara og greiða skuldina þá
brást gjaldandinn við á þann
hátt að pakka inn tómri kók-
flösku og senda skattinum.
Og meðferðis fékk starfsfólk
skattayfirvalda þau skilaboð
að flöskuna mætti seija upp i
skuldina og skatturinn fengi
síðan að halda afgangnum.
Já, gott að einhverjum er
hlýtt til skattayfirvaldanna.
dagskrá fjöfmiðla
Sjónvarpið
Þridjudagur 1. ágúst
17.50 Freddi og félagar (22)
18.15 Ævintýri Nikka (5).
(Adventures of Niko.)
18.45 Táknmálsfréttir.
18.55 Fagri Blakkur.
19.20 Ledurblökumaðurinn.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fréttir og vedur.
20.30 Magni mús.
20.45 Blátt blód.
(Blue Blood.)
21.40 Nýjasta tækni og vísindi.
22.05 Leikstjórinn Ingmar Bergman.
Fyrri hluti.
Breskur heimildaþáttur í tveimur hlutum.
í þessum þætti er aðailega fjallað um á
hvern hátt einkalíf Bergmans endur-
speglast í verkum hans. M.a. er leitað
fanga í kvikmyndum hans, endur-
minningum og einkasafni leikstjórans.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
Þriðjudagur 1. águst
16.45 Santa Barbara.
17.30 Bylmingur.
18.00 Elsku Hobo.
(The Littlest Hobo.)
18.25 íslandsmótið í knattspyrnu.
19.19 19:19.
20.00 Alf á Melmac.
(Alf Animated.)
20.30 Visa-sport.
21.30 Óvænt endalok.
(Tales of the Unexpected.)
22.00 Sakfelld: Saga móður Convicted.
(A Mother's Story.)
Leikkonan góðkunna Ann Jillian fer með
hlutverk Billie Nickerson, tveggja barna
móður sem lendir í fangelsi. Unnusti
hennar telur hana á að stela tíu þúsund
dollurura frá fyrirtækinu sem hún vinnur
hjá. Þessa peninga notar hún svo til að
fjárfesta í viðskiptum hans ásamt fögrum
loforðum um að hún fái þessa peninga
margfalt til baka. En tíminn líður og ekk-
ert bólar á endurgreiðslum frá unnustan-
um. Hún er sótt til saka og fundin sek um
þjófnaðinn. Fangelsi fyrir hana þýðir
aðskilnaður frá börnunum hennar tveim-
ur. Dóttir Billie fer til systur hennar en
sonur hennar fer á fósturheimili. Sjálfri
finnst Billie þessi aðskilnaður miklu meiri
refsing en sjálf fangelsisvistin. Þegar hún
hefur afplánað fangelsisdóminn þarf hún
að berjast fyrir því að fá börnin aftur til
sin, endurreisa heimilið sitt og losa sig
við unnustann.
Aðalhlutverk: Ann Jillian, Kiel Martin,
Gloria Loring og Fred Savage.
23.40 Travis McGee.
Leikarinn góðkunni Sam Elhott fer hér
með hlutverk hins snjalla einkaspæjara
Travis McGee. Gamall vinur hans er tal-
inn hafa verið valdur að bátslysi, sem
hann man ekkert eftir.
Aðalhlutverk: Sam EUiott, Gene Evans,
Barry Gorbin og Richard Farnsworth.
01.10 Dagskrárlok.
Rás 1
Þriðjudagur 1. ágúst
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Edward FrederUtsen.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku
að loknu fréttayfirUti kl. 7.30. Lesið úr for-
ystugreinum dagblaðanna að loknu frétta-
yfirUti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
- „Viðburðaríkt sumar" eftir Þorstein
Marelsson.
Höfundur les (6).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir Tilkynningar
Tónlist.
13.05 í dagsins önn - Að vera með barni.
13.35 Miðdegissagan: „Pelastikk" eftir
Guðlaug Arason.
Guðmundur Ólafsson byrjar lesturinn.
14.00 Fréttir ■ Tilkynningar.
14.05 Eftirlætislögin.
15.00 Fréttir.
15.03 „Með mannabein í maganum ...“
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Suk og Saint-
Saéns.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Söngur og píanó.
- Wolf, Mozart, Schumann og Tubin.
21.00 Að lifa í trú.
21.30 Útvarpssagan: „Sæfarinn sem sigr-
aði ísland.“
Eysteinn Þorvaldsson les (5).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Leikrit vikunnar: „Ráðgátan Van
Dyke" eftir Francis Durbridge.
Þriðji þáttur.
23.15 Tónskáldatími.
24.00 Fróttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Þriðjudagur 1. ágúst
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Morgunsyrpa
Eva Ásrún Albertsdóttir.
- Neytendahorn kl. 10.05.
- Afmæliskveðjur kl. 10.30.
- Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur
kl. 11.03.
- Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit ■ Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni.
14.03 Milli mála.
- Árni Magnússon á útkíkki og leikur nýju
lögin.
Hagyrðingur dagsins rétt fyrir þrjú og
Veiðihornið rétt fyrir fjögur
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Sigurður Þór Salvars-
son, Lisa Pálsdóttir, og Sigurður G. Tóm-
asson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Auður Haralds talar frá Róm.
- Störmál dagsins á sjötta timanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur i beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 íþróttarásin - íslandsmótið í knatt-
spyrnu 1. deild karla.
íþróttafréttamenn lýsa og fylgjast með
leikjum; ÍBK-Fram, KA-Þór og Fylkis-KR.
22.07 Bláar nótur.
Pétur Grétarsson kynnir djass og blús.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11,12, 12.20, 14, 15,16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
01.00 „Blítt og létt... “
02.00 Fróttir.
02.05 Ljúflingslög.
03.00 Rómantiski róbótinn.
04.00 Fréttir.
04.05 Glefsur.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi.
05.00 Fróttir af veðri og flugsamgöngum.
05.01 Áfram ísland.
06.00 Fróttir af veðri og flugsamgöngum.
06.01 „Blítt og létt..."
Ríkisútvarpið á Akureyri
Þriðjudagur 1. ágúst
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Þriðjudagur 1. ágúst
07.00 Páll Þorsteinsson.
Morgunþáttur athafnafólks sem vill hafa
fréttimar á hrienu áður en það fer í vinn-
una.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Gömlu góðu lögin sem þú varst búin að
gleyma, heyrirðu hjá Valdísi.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Hér er allt á sinum stað, óskalögin og
afmæliskveðjur allan daginn.
18.00 Arnþrúður Karlsdóttir - Reykjavik
síðdegis.
í þessum þætti nær þjóðmálaumræðan
hámarki með hjálp hlustenda. Síminn í
Reykjavík siðdegis er 611111.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Þægileg ókynnt tónlist í klukkustund.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Strákurinn er kominn í stuttbuxur og er í
stöðugu sambandi við íþróttadeildina
þegar við á.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Þriðjudagur 1. ágúst
17.00-19.00 M.a. er létt umræða um lífið og
tilveruna.
Stjórnandi er Pálmi Guðmundsson.
Fréttir kl. 18.00.