Dagur - 19.09.1989, Qupperneq 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 19. september 1989___________178. tölublað
íslandsmeistarar KA:
Nýjar
haustvöiur IMF
í úrvali HERRADEILD Gránufélagsgötu 4
v Akureyri • Sími 23599^
„Þið eruð stolt landsbyggðariimar“
- sagði m.a. í heillaskeytum sem bárust - Fagnaður í KA-heimilinu til morguns
tíma og þegar hjólin snertu
flugbrautina brutust út mikil
fagnaðarlæti.
Knattspyrnumönnunum voru
færðir blómvendir frá velunnur-
um þegar út úr vélinni var komið
og þar voru sömuleiðis fluttar
ræður. Bæjarstjóri Akureyrar var
mættur á staðinn, sömuleiðis for-
maður ÍBA, fulltrúi Pórs og
fleira gott fólk, en því næst hélt
hópurinn í félagsheimili KA þar
sem haldið var lokahóf deildar-
innar.
„Þið eruð stolt landsbyggðar-
innar," voru algengar fullyrðing-
ar í skeytunum sem bárust til
Knattspyrnudeildar KA en þau
voru á annað hundrað talsins.
Símarnir hjá skeytamóttöku
Landssímans stoppuðu ekki og
komu kveðjurnar víða að, frá
félagasamtökum um allt land,
einstaklingum og skipsáhöfnum.
Þá höfðu starfsmenn KA-heimil-
isins ekki við að taka á móti
blómvöndum og -körfum og
muna starfsmenn blómaversl-
ana á Akureyri ekki annað eins
annríki. Höfðinglegar gjafir fóru
að berast þegar um kvöldið, m.a.
gaf Esso aðal stuðningsaðili
deildarinnar 250 þúsund krónur,
Amaro gaf 100 þúsund en auk
þess nema áheit sem lofað var af
fyrirtækjum og einstaklingum um
600-700 þúsundum króna.
Það var aðalstjórn KA sem
hélt knattspyrnumönnunum,
stjórnum og mökum hófið á laug-
ardag. Síðar um kvöldið var
heimilið opnað fyrir stuðnings-
menn og er áætlað að þangað hafi
komið um 800 manns til þess að
samfagna og berja bikarinn dýr-
rriæta augum, en gleðin stóð yfir í
húsinu fram undir morgun.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri var
gestur félagsins á lokahófinu í
KA-heimilinu og þar tilkynnti
hann að bæjarstjórn byði knatt-
spyrnumönnunum og aðstand-
endum til veislu daginn eftir. I sal
bæjarstjórnar við Geislagötu var
margt um manninn og afhenti
Sigurður J. Sigurðsson forseti
bæjarstjórnar Stefáni Gunnlaugs-
syni fyrir hönd félagsins þar hálfa
milljón króna í viðurkenningar-
skyni fyrir þennan áfanga sem
hann sagði tvímælalaust mikla
lyftistöng fyrir bæinn.
Þess má að lokum geta að í
helgarviðtali sem tekið var við
Stefán Gunnlaugsson fyrr á þessu
ári var hann spurður að því eftir
hverju honum þætti erfiðast að
bíða, en hann segir þar sjálfur að
hann sé nokkuð óþolinmóður
maður. „Toppárangri KA í
knattspyrnu,“ var svar Stefáns
svo hann ætti nú að hafa fengið
ró í sínum beinum. VG
Þórshöfn:
Afli verið tregur
vegna brælu
- Stakfellið selur í Bretlandi
brælu. Stakfellið er nú á ísfíski
og ætlar að selja aflann í Bret-
landi 27. september en bátar
hafa lagt upp hjá Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar og þá aðallega
Geir, 80 tonna bátur, sem hef-
ur haldið vinnslunni gangandi.
Að sögn Gísia Óskarssonar,
skrifstofustjóra Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar, er þorskkvóti
Geirs á þrotum og hefur hann
verið á ufsa. Það hefur þó nægt til
að vinnslan er í gangi fimm daga
vikunnar, átta tíma á dag, en
þegar kvótinn er búinn má búast
við tvísýnna ástandi.
Gísli sagði að sláturtíðin bjarg-
aði því að nú gætu allir sem vildu
fengið vinnu á Þórshöfn og því
væri alls ekkert slæmt hljóð í
mönnum um þessar mundir.
„Nú bíðum við bara eftir loðn-
unni. Við erum tilbúnir til að
taka á móti henni. Hráefnistank-
arnir voru stækkaðir í sumar og
þróarrými hefur því aukist
mikið,“ sagði Gísli.
Hann sagði að lítið hefði
heyrst af loðnu síðan bátar leit-
uðu án árangurs í ágúst en þó
hafði hann heyrt af skipstjóra
sem væri að hugsa sér til hreyf-
ings og nú væri bara að bíða og
sjá. SS
„Við áttum von á að það yrði
tekið á móti okkur á flugvellin-
um, en ekki af þessum fjölda,“
sagði Stcfán Gunnlaugsson
formaður Knattspyrnudeildar
KA á laugardaginn þegar
íslandsmeistarar félagsins í
knattspyrnu komu heim úr
frækilegri för til Keflavíkur. A
að giska 800-1000 manns voru
saman komnir á Akureyrar-
flugvelli til að hylla meistarana
og var stcmmningin gífurleg á
meðan beðið var eftir flugvél-
inni. KA-söngurinn var kyrj-
aður í flugstöðinni á milli þess
sem lýst var beint úr flugturn-
inum hvar vélin var á hverjum
Árni Gunnarsson alþingismaður:
Húsavík, Þórshöfti og Kópasker
eiga í niiklum Qárhagserfiðleikum
„Ég efast um að fólk almennt
geri sér grein fyrir því hversu
slæmt ástandið er. Menn geta
tekið saman tapið á útgerðar-
félaginu og Fiskiðjusamlaginu
á Húsavík á síðasta ári, ásamt
tapi kaupféiagsins. Allar
helstu máttarstoðir samfélags-
ins á Húsavík eru rétt að hruni
komnar, það er viðurkennt.
Presthólahreppur er nánast
gjaldþrota, Raufarhöfn stend-
ur vel en Þórshöfn á í gífurleg-
um erfíðleikum, þeir eru nán-
ast kvótalausir. Hvernig í
ósköpunum á þetta að geta
gengið?“ sagði Árni Gunnars-
son alþingismaður, aðspurður
um stöðu atvinnumála í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Árni taldi fyrirsjáanlegt að
Akureyrarbær gæti þurft að taka
á móti fólki, jafnvel í stórum stíl,
á næstu árum, því margir myndu
sækja þangað á næstu árum, ef
ástandið lagaðist ekki. „Ef þessi
hrunadans á að halda áfram fer
allt að fara úr skorðum, meira og
minna,“ segir Árni.
„Raunveruleikinn getur verið
kaldur en Eyjafjarðarsvæðið er
framtíðarsvæði kjördæmisins.
Spurningin er síðan hvort tekst
að byggja upp þann sterka þétt-
býliskjarna á Húsavík sem þarf,“
sagði hann.
Árni telur álver í Eyjafirði
raunhæfan möguleika, ekki
innantómt kosningaloforð, og
ákveðinn grundvöllur sé til að
halda áfram með það mál. Verk-
fall eða aðgerðir í Straumsvík
geti þó hæglega gert þær vonir að
engu, því erlendir aðilar séu ekki
hrifnir af slíkum uppákomum.
Árni var spurður hvort hann
ætti eitthvert ráð við efnahags-
vandanum. „Það verður að taka
ineð miklu meiri hörku á fjár-
magnskostnaðinum. Mér finnst
það út í hött þegar menn tala um
að verðtryggja þurfi alla peninga
í landinu og greiða 8 til 14
prósent vexti ofan á. Slíkt þekk-
ist hvergi annars staðar á byggðu
bóli,“ sagði Árni, og telur að
grípa verði til ráðstafana eins og
að gefa erlendum bönkum starfs- |
leyfi á íslandi, þannig að innlend-
ir bankar og sparisjóðir neyðist
til að lækka vexti á inn- og útlán-
um vegna erlendrar samkeppni.
„Ég vil að þetta verði, því inn-
lendar peningastofnanir verða að
fara að fá einhverja samkeppni,
þær eru þjóðfélaginu alltof
dýrar,“ sagði hann.
Um lífeyrissjóðina segir Árni
að krafa heimamanna um að
binda fé í heimabyggð sé eðlileg.
Viðkomandi staðir sem skapa
gjaldeyristekjur eigi að njóta
þeirra með því að láta þær ávaxta
sig, en eins og hlutunum sé hagað
í dag renni árlega milljarður
króna úr kjördæminu til ávöxtun-
ar í Reykjavík. EHB
Erlingur Kristjánsson hanipar íslandsmeistarabikarnum í Keflavík. Hjá honum má sjá allmárga KA-félaga í gleði-
VÍniU. Mynd: Jakob
Afli hefur verið tregur á Þórs-
höfn að undanförnu vegna