Dagur - 19.09.1989, Blaðsíða 6
.TTWivr’i'qi
6 - PAS»g .^»ÍMdflgMf,19, scRteoiber
Jóhann Antonsson:
Stefliir byggðaþróun á Norðurlandi í blindgötur?
- erindi flutt á Fjórðungsþingi Norðlendinga
Meginvandamál sjávarútvegs á líö-
andi stund eru fólgin í því að afkasta-
geta greinarinnar er langt umfram
þarfirnar. Petta á bæði við um veiðar
og vinnslu. Kvóti á veiðar er ekki
orsök þess eins og sumir láta í veðri
vaka, heldur er þvert á móti kvóti og
stjórnun afleiðing af of mikilli af-
kastagetu.
Forsenda afnáms kvótakerfisins er
skipulögð minnkun flotans, sem leitt
gæti til jafnvægis miíli afrakstursgetu
fiskistofnanna og afkastagetu fiski-
skipaflotans. Umframafkastageta
veiða og vinnslu leiðir af sér að of
mikið fjármagn er bundið í greininni.
Ég býst við að flestir geri sér grein
fyrir réttmæti þessara staðhæfinga
varðandi fiskiskipaflotann en ef til
vill gera færri sér grein fyrir að hið
sama á einnig við um vinnsluna.
Skert úthald fiskiskipa vegna
kvótaleysis er áhyggjuefni margra og
þá oftast vegna þess að atvinna verði
ekki næg á landinu í heild eða í ein-
staka byggðarlögum. Það er skiljan-
legt að fólk hafi áhyggjur af atvinnu-
leysi bæði í einstaka byggðarlögum
og á landinu öllu, en í raun og veru
er það mun stærra áhyggjuefni hve
arðsemi sjávarútvegs er lítil, vegna
vannýttra framleiðslutækja bæði á
sjó og landi.
Vegna verkefnaskorts fiskiskip-
anna deila menn vart lengur um að
flotinn sé of stór. Það er einungis
þráttað um það hversu mikið of stór
flotinn kann að vera. En það skiptir
ekki máli hvort það þarf að rninnka
fiskiskipaflotann um 10% eða 50% —
leiðir til að minnka hann eru jafn tor-
sóttar eftir sem áður. Staðreyndin er
nefnilega sú að enginn vill verða sá
sem sér á eftir skipum?
Þjóðhagsstofnun hefur nýlega
reiknað út að ef skip yrðu úrelt sem
næmi um 10% af flotanum og kvóta
þeirra skipa útdeilt á þau skip sem
eftir verða - muni afkoma skipanna
batna um heil 7% ef engin greiðsla
yrði fyrir viðbótarkvótann en um 5%
ef þorskígildið yrði selt á litlar 10 kr.
kílóið. Þetta dæmi sýnir í hnotskurn
hvað um er að ræða. Ef staðið yrði
að slíkri uppstokkun með sölu á
kvóta, verða menn að hafa í huga, að
þar með væru útgerðir að auka hag-
ræðingu og kostnaðurinn yrði ekki
nema brot af hinum mögulega ávinn-
skattlagningu, eins og margir hafa
slysast til að gera þegar þessa þjóð-
þrifahugmynd ber á góma, hugmynd
sem felur í sér aukinn gróða fyrir
sjávarútveginn.
Nú eru teikn á lofti um að enn og
aftur verði veiðiheimildir takmark-
áðar á næsta ári. Þá mun útreikning-
ur Þjóðhagsstofnunar snúast við;
afkoma starfandi útgerðarfyrirtækja
gæti þcss vegna rýrnað um 7% vegna
aflasamdráttar. Og þá mun enn og
aftur verða hrópað á „gengislækkun
til að leiðrétta rekstrargrundvöllinn"
eins og það er ævinlega orðað.
Af hverju á þjóðin alltaf að sættS
sig við gengisfellingar til að „leiörétta
rekstrargrundvöllinn"? Hve lengi
verður ásættanlegt að reiknitölur
grundvallarins miðist við of stóran
flota og vannýttar fiskvinnslustöðv-
ar? Hvers vegna er ekki hagkvæmn-
isleiðin valin? Hvers vegna aukurn
við ekki frekar arðsemi greinarinnar
heldur en fella gengið og lífskjörin
með.
Ég tel að ástæðan fyrir því að við
fetum okkur ekki inn á hagkvæmnis-
leiðina sé sú, að baráttan um núver-
andi kvóta yfirskyggir alla skynsemi
og um leið hagkvæmni. Vissulega
hafa menn reynt að þokast í áttina
innan núverandi fyrirkomulags. En
því miður hafa orðið slys á þeirri
leið. Þannig hefur t.d. það tíðkast
við úreldingu nokkurra fiskiskipa, að
kvótinn hefur verið færður af bátum
yfir á togara. Afleiðing þessa hefur
arðið að sífellt fleiri þorsktittir eru í
ninnkandi kvótatonnum.
Nú er þar komið sögu, hvort sem
Akur líkar betur eða verr, að við
verðum að fækka verulega togurum.
Fyrir því liggja bæði fiskifræðilegar
ástæður og arðsemisrök, Að mínu
mati þola breytingar á þessu fyrir-
komulagi litla bið. Þau átök sem við
höfum orðið vitni að síðustu daga
vegna Patreksfjarðar eru aðeins
smjörþefurinn af þeim harkalegu
átökum sem framundan eru, verði
ekki snarlega farið af þeirri braut
sem nú er farin. Hagkvæmnisleiðin
bíður eftir okkur.
Undirrót átakanna um kvótann er
að fiskvinnslan í landi býr við minnk-
andi hráefni og hefur ekki aðlagast
þeim breytingum sem orðið hafa í
sjávarútvegi á undanförnum árum.
Fjármagn sem bundið er í vinnslunni
ber ekki þann arð sem eðlilegt getur
talist.
Frysting og vinnsla um borð í skip-
um sem aukist hefur að undanförnu
þýðir í raun að minna hráefni kemur
til vinnslu í landi. Aukinn útflutning-
ur á ísvörðum fiski í gámum hefur
sömu áhrif - þ.e. minni hráefn-
isvinnslu í landi. Fiskvinnslan á ís-
landi býr um þessar mundir við mun
meira óöryggi varðandi hráefni en
vinnslan á Humbersvæðinu í Bret-
landi og svæðinu í N.-Þýskalandi í
kringum Cuxhaven og Bremerhaven.
Islenskir útgerðarmenn (sem eins og
kunnugt er eru aðaleigendur ís-
lenskrar fiskvinnslu) skipuleggja
landanir erlendis hálft ár fram í tím-
ann og miða við að jafnt og nægt
framboð sé á ísfiski þar.
íslenskir fiskframleiðendur geta
e.t.v. best tryggt sér hráefni með því
að kaupa á mörkuðunum á Hull og í
Cuxhaven! Það kann líka vel að vera
við ákveðnar aðstæður að það borgi
sig frekar í raun fyrir íslenska fram-
leiðendur að kaupa hráefni á mörk-
uðunum í Bretlandi og Þýskalandi,
el' hráefnið þyldi flutninginn heim
aftur heldur en að kaupa skip á upp-
sprengdu verði til að fá aðgang að
kvótanum!
Öfugt við það sem ætla mætti eykst
ásókn í siglingar skipa og gámaút-
flutning með minnkandi kvóta. Öf-
ugt segi ég, m.a. vegna þess að lang-
stærstur hluti íslenskrar útgerðar er á
sömu hendi og fiskvinnslan í landi.
Einnig þetta minnkar umsvifin í
landi. Þörf fiskvinnslunnar fyrir kaup
á nýjum bátum og togurum eykst
auðvitað við þetta og ef bátar eru
keyptir á uppsprengdu verði, þarf að
drýgja tekjur með sölu afla erlendis
til að endar nái saman. Við erum sem
sagt stödd í vítahring sem við verð-
um að komast út úr.
Ef við drögum saman það sem ég
hef hér verið að segja í stuttu máli,
þá lítur dæmið þannig út að rekstrar-
grundvöllur sjávarútvegs er brostinn
vegna þess, að framleiðslutækin eru
miðuð við framleiðsluhætti og mark-
aði eins og þeir voru fyrir tíu árum.
Engin gengisfelling getur gert það
sem þarf að gera - fækka fiskiskipum
og auka hagkvæmni fiskvinnslunnar.
Síðustu tímar hafa fært okkur mörg
ný og freistandi tækifæri til að auka
arðsemi sjávarútvegsins en hinir nýju
möguleikar sem eru fyrir hendi hafa
ekki verið nýttir vegna þess að skipu-
lagið er bundið í dróma gærdagsins.
Við íslendingar erum knúnir til
aðgerða. Við lifum í heimi þar sem
allir vilja mikið frjálsræði í viðskipt-
um. Og samfara auknu frjálsræði
hefur hagsæld aukist. Við erum að
komast inn á stóra markaði með öðr-
um hætti en áður. En jafnvel þau
lönd sem geta státað af hve mestu
frjálsræði hafa einhverja ramma eða
reglur til að ýta undir efnahagslíf í
höndum eigin þjóðar. Þannig hafa
Bandaríkjamenn t.d. þá reglu að
bannað er að flytja arð af erlendri
atvinnustarfsemi úr landi.
Sú hugmynd sem felur í sér hvort
tveggja í senn meira frjálsræði í við-
skiptum við aðrar þjóðir og hina
óhjákvæmilegu hagræðingu sem ég
áður minntist á, er í þessum dúr:
Skylda verður öll fiskiskip til að selja
fiskinn á íslenskum fiskmörkuðum.
Þessi hugmynd lætur ekki mikið yfir
sér en þegar grannt er skoðað gæti
hún uppfyllt þarfir okkar um meiri
hagkvæmni í sjávarútvegi, meiri arð-
semi fyrir þjóðarbúið og valdið bylt-
ingu í lífskjörum þjóðarinnar.
Með hinum nýja íslenska frjálsa
fiskmarkaði myndi markaðsstarfsemi
sú, sem nú fer fram með íslenskar
afurðir á Huinbersvæðinu og í Cux-
haven færast inn í landið.
Þar með gæti íslenska fiskvinnslan
keypt það sem hún þarf og vill hér á
mörkuðum svo fremi að hún sé sam-
keppnisfær í verði við erlenda aðila.
Því auðvitað er óhjákvæmilegt að
leyfa erlendum aðilum að bjóða í
fiskinn á íslensku mörkuðunum. Á
hinn bóginn geturn við gert eins og
Evrópuríkin mörg gera, - sett kvóta
á rnagnið sem útlendingar geta keypt
á mörkuðum okkar hérlendis.
Reyndar búum við okkur í leiðinni til
góða samningsstöðu við Evrópu-
þandalagið, - við gætum t.d. samið
um að þeir megi kaupa tiltekið magn
á mörkuðunum að hámarki gegnt því
að felldir verði niður tollakvótar á
.ferskum flökum, saltfiski og skreið í
Evrópubandalagsríkjunum.
Einhverjir kynnu e.t.v. að halda
því fram að í þessu fælist einhvers
konar ívilnanir til útlendinga á kostn-
að hagsmuna okkar íslendinga. En
sá hinn sanri þarf ekki að hugsa í
margar mínútur til að komast að
raun um það, að núverandi ástand
jafngildir sjálfstæðisafsali íslenska
sjávarútvegsins í samanburðinum.
Því hefur stundum verið haldið fram
að útlendingar séu að smygla sér inn
í íslenskan sjávarútveg í núverandi
kerfi inn um þakdyrnar. En með nýja
fyrirkomulaginu erum við að bjóða
þá velkomna inn um aðaldyrnar - til
þess að geta haft með þeim eftirlit og
hagnast meira af viðskiptunum við
þá.
Ávinningur af nýja fyrirkomulag-
inu er margfaldur. Þannig má t.d.
nefna að um þessar mundir eru þús-
undir manna sem hafa vinnu af alls
konar þjónustu í kringum söluna og
dreifinguna á íslenskum fiski, sem
landað er í erlendum höfnum. Mörg
þessara starfa flyttust hingað heim.
Gjaldeyririnn sem við fáum fyrir
fiskinn skilaði sér fyrr og öruggar inn
í íslenskra hagkerfið og erlendur
milliliðakostnaður minnkaði um leið
og íslenskum milliliðum fjölgaði.
Enn annar ávinningur er fækkun
skipa. Það gerist rneð þeim hætti að í
núverandi fyrirkomulagi þurfa menn
að eiga skipsskrokk til að eiga mögu-
leika á að fá fisk til vinnslu í landi.
En þegar markaðurinn er orðinn hér-
lendur að, öllu leyti verður magn-
framboðið að sjálfsögðu margfalt
meira en nú - og innlend fiskvinnsla
verður líklegri til að tryggja sér nægi-
legt hráefni og hagkvæmt á mörkuð-
unum. Þar með dregur úr eftirspurn-
inni eftir skipsskrokkum og auðveld-
ara verður að taka óhagkvæm skip úr
umferð. Samhliða þyrftum við að
sjálfsögðu að auðvelda úreldingu
skipa og þar með minnka fjármagnið
sem liggur bundið í fiskiskipum og
auka arðsemi þess flota sem eftir
stæði. Þetta gæti gerst með því að
útgerðir keyptu kvóta, sem losa má
við úreldingu og því fjármagni síðan
varið til frekari úreldingar fiskiskipa.
Togstreitunni lýkur.
Eins og við öll vitum er fjöldi fisk-
vmnsluhúsa, bæði frystihúsa og ann-
arra, vannýttur. Staðreyndin er
nefnilega sú að markaðurinn sækist í
meira mæli en áður eftir ferskum
fiski, flökum, heilum fiski eða sér-
unnum og einnig sérunnum frystum
pakkningum. Þess vegna er ágóða-
vonin meiri í útflutningi á slíkum
fiski og þjónustu við þá sölu, heldur
en í hefðbundinni frystingu. í núver-
andi fyrirkomulagi græða útlending-
ar á þessari starfsemi - í nýja fyrir-
komulaginu eigum við líka að geta
grætt á þessum breytingum á mark-
aðinum. En við komumst heldur
ekki hjá því að draga úr því fjár-
magni sem bundið er í fiskvinnslunni
eins og áður sagði.
Það getum við t.d. gert með því að
steypa saman nokkrum fjárfestingar-
sjóðum, sem eiga að þjónusta veiðar
og vinnslu, og nota eigið fé þeirra til
að kaupa upp vannýttar húseignir og
tæki í fiskvinnslunni. Hjálpa mönn-
um að hætta eins og það er stundum
orðað. Þetta á ekki að vera jafn erfitt
og margur heldur, ég leyfi mér að
nefna dæmið af Fiskveiðasjóði, sem
sumir telja eitt mesta hjálpargagn
íslensks sjávarútvegs. Á síðasta ári,
1988, var ávöxtun eigin fjár þessa
sjóðs hvorki meira né minna en rúm
35%. Eigið fé jókst úr rúmum 2
milljörðum króna í rúma 2,7 millj-
arða króna eða raunávöxtun umfram
verðtryggingú var 13,6%!! En eins
og allir vita, var árið 1988 eitt allra
erfiðasta ár sjávarútvegsins, sérstak-
lega vegna þungs fjármagnskostnað-
ar. Engu að síður taldi þessi sjóður
nauðsynlegt að auka ávöxtun sína
enn meira og í júnímánuði sl. hækk-
aði hann vexti á velflestum lána-
flokkum sínum úr 8,75% upp í
9,75%. Þannig að menn þurfa ekki
að gráta þó þessi sjóður yrði rekinn
með öðrum hætti en í dag - hann
verði rekinn miðað við að auka hag-
kvæmni í sjávarútvegi, veiðum og
vinnslu.
Ágætu tilheyrendur. Ég þykist vita
að margir ykkar telji að ég sé að reifa
hugmyndir sem feli ekki í sér bjartar
horfur fyrir Norðurland, að svarið
við spurningunni: Stefnir byggða-
þróun á Norðurlandi í blindgötur? sé
jafnvel sterkara já en áður. En ég er
á algerlega öndverðri skoðun. Ég er
þeirrar skoðunar að sjávarútvegur á
Islandi sé í blindgötu. Þetta land
byggir ein þjóð.og sú þjóð lifir af
sjávarútvegi. Því skynsamlegri, hag-
kvæmari sjávarútvegur og þeim mun
meiri arður sem af honum er, þeim
mun meiri líkur á góðu efnahagslífi
um land allt.
Þess utan tel ég nýja fyrirkomulag-
ið með skyldusölu á íslenskum fiski á
íslensku mörkuðunum, fela í sér gíf-
urlega sóknarmöguleika fyrir Norð-
lendinga. Með nýja fyrirkomulaginu
mun þekking, reynsla og markaðs-
setning færast inn á svæðin, þar sem
salan fer fram. Og þar með einnig
inn í fyrirtækin sem vinna úr hráefn-
inu. Það verður að sjálfsögðu bein
lyftistöng fyrir atvinnulífið á
Norðurlandi. Þess utan mun meira
fjármagn og mun fyrr komast í hend-
ur þeirra sem selja fiskinn, þ.e.
Norðlendinga sjálfra. Atvinnulíf á
Norðurlandi getur því átt bjarta
framtíð fyrir höndum. Við þurfum
bara nýtt fyrirkomulag.
ingi. Þannig er út í hött að tala um
Erum að hefja 10 tíma dansnámskeið
Innritun og allar nánari upplýsingar
í síma 26624 mili kl. 10.00 og 18.00
Síðustu innritunardagar.
Kenndir verða:
Barnadansar, yngst 3ja ára,
samkvœmisdansar, suður-amerískir
dansar, rokk, tjútt og gömlu dansanir
Breytið til, prufið rokk, mambó eða salsa
Sigurbjörg D.S.Í.
|| || |í;: í::::: I :
DANSSKÓU
VISA
E
raðgreiðslur