Dagur - 19.09.1989, Qupperneq 13
Síi&f I9dmsíq93 .er i'jgfjbuíéi'T'i -- flUDACi - S?
Þriðjudagur 19. september 1989 - DAGUR - 13
Skóla-
dagbókin
- ný dagbók fyrir krakka
í skóla og frístundum
Vaka-Helgafell hefur gefið út
Skóladagbókirta. Hún er ætluð
nemendum sem þurfa að skrá hjá
sér verkefni fyrir skólann og
minnispunkta um frístundir og
helgaráform.
Hver opna bókarinnar rúmar
eina skólaviku. Gott pláss er ætl-
að fyrir verkefni-hvers dags auk
þess sem sérstakir dálkar eru til
að skrá minnispunkta, áforin um
helgina framundan og tómstund-
ir. Á hverri opnu er auk þess
teiknimyndabrandari með Disn-
ey-fígúrum sem allir þekkja,
Mikka nrús og Mínu mús, Andr-
ési önd og Andrésínu, Guffa og
fleirum. Auk þess eru tvær
stundaskrár í bókinni og sérstak-
ar blaðsíður til að skrá leyfi og
frídaga, kennara, bekkjarfélaga
og afmælisdaga. Auk þess eru
forvitnilegar upplýsingar um
jörðina okkar og ótrúleg veður-
met. Hver opna er prentuð í
tveimur litum.
Á bókinni er glæsileg kápa
með mynd af Mikka mús og
Mínu. Bókin er vel innbundin og
á að þola að vera í skólatösku og
handa í milli heilan vetur án þess
að láta á sjá.
Bókin kostar 585 krónur með
söluskatti og fæst í bókabúðum
og stórmörkuðum.
Betri framtíð!
Þakkir frá Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra
Enn einu sinni hafa landsmenn
tekið höndum saman og brugðist
við kalli Sjálfsbjargar. Síðastliðin
vika og helgin sýndu okkur
Sjálfsbjargarfólki að þjóðin öll
styður við bakið á okkur þegar
þörf krefur. Þó að miklir og ákaf-
lega nauðsynlegir fjármunir hafi
safnast í landssöfnuninni kunn-
um við Sjálfsbjargarfélagar ekki
síður að meta þann almenna vel-
vilja og stuðning sem við urðum
svo áþreifanlega vör við í allri
framkvæmd afmælisátaks okkar.
Hvar sem við komum og hvar
sem við leituðum liðsinnis voru
menn boðnir og búnir til að vinna
með okkur að framkvæmd átaks-
ins. Að ætla að telja upp alla þá
fjölmörgu sem þar lögðu hönd á
plóg yrði til þess að gefa yrði út
sérstakt aukablað sem eingöngu
fjallaði um það. Sérstakar þakkir
viljum við þó flytja Rás 2 og
Ríkissjónvarpinu sem voru með
söfnunardagskrána fyrir okkur,
Bifhjólasamtökum íslenska lýð-
veldisins hvers meðlimir létu sér
það lynda að „sniglast" áfram á
undan hjólastólaökumönnunum
frá Akureyri til Reykjavíkur,
Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur
sem lánuðu okkur strætisvagn og
ökumann í hjólastólaaksturinn,
Þýsk-íslenska sem lánaði okkur
bíl, bílstjóra og ógrynni af Varta
rafgeymum fyrir hjólastólana,
Bílaleigunni Höldur á Akureyri
sem lánaði okkur bíl undir
aðstoðarfólk, aðstoðarfólkinu
okkar í hjólastólaakstrinum sem
stóð sig með stakri prýði, gisti-
heimilinu Lónsá, Húnavalla-
skóla, Krútt kökuhúsi, Staðar-
skála, Sæbergi, veitingaskálanum
Víðigerði, Hreðavatnsskála,
Bændaskólanum Hvanneyri og
Western fried sem allir veittu
okkur húsaskjól eða veitingar. Þá
viljum við einnig flytja sérstakar
þakkir til allra skemmtikraftanna
sem komu fram í útvarpi og sjón-
varpi okkur að kostnaðarlausu
sem og stjórnmálamannanna
okkar sem tóku á móti okkur á
Lækjartorgi og svöruðu í símana
Brynhildur Sverrisdóttir verður til við-
tals á skrifstofu Fjárfestingarfélagsins á
Akureyri, Ráðhústorgi 3 (Ferðaskrif-
stofu Akureyrar) miðvikudaginn 20.
sept. nk. frá kl. 09.00-12.00.
FJÁRFESTINGASFÉLAG ÍSLANDS
FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURIM
Faðir minn,
ÞORSTEINN STEINBERG ÁRELÍUSSON,
Skarðshlíð 16, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag þriðjudaqinn 19
september kl. 13.30.
Fyrir hönd annarra aðstandenda.
Harpa Þorsteinsdóttir.
í sjónvarpssal að ógleymdu fyrir-
tækinu Miðlun sem lánaði okkur
Gulu línuna sjálft söfnunarkvöld-
ið og tók á móti framlögum.
Vissulega gæti ég haldið svona
áfram lengi enn því þetta var í
sannleika sagt átak þjóðarinnar,
en að endingu vil ég þó þakka
sérstaklega Sjálfsbjargarfélags-
deildunum um allt land og þeim
fjölmörgu sem aðstoðuðu okkur
við að dreifa söfnunarbaukum og
sáu um aðra vinnu við fram-
kvæmd átaksins.
Við hjá Sjálfsbjörg kunnum
landsmönnum öllum hinar bestu
þakkir fyrir þær sérstaklega góðu
móttökur sem við fengum við
framkvæmd afmælisátaksins og
fyrir þá gjafmildi sem þið sýnduð
í verki. Við eigum okkur þann
draum að sú vakning sem við
fundum fyrir meðal þjóðarinnar
við framkvæmd átaksins megi
verða upphafið að markvissum
breytingum í samfélagi okkar,
breytingum sem geri öllum þegn-
um þjóðfélagsins mögulegt að
njóta sín, breytingum sem tryggi
jafnrétti allra þegna þjóðfélags-
ins. Þá getum við með sanni sagt
að „betri framtfð hafi byrjað í
dag“.
Jóhann Pétur Sveinsson,
formaður Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.
Allir þurfa að nota
ENDURSKINSMERKI!
IUMFEROAR
RÁÐ
KRISTNESSPITALI
Hjúkrunarforstjóri
Umsóknarfrestur um stöðu hjúkrunarfor-
stjóra hefur verið framlengdur til 30. sept-
ember nk.
Stöðunni fylgir íbúðarhúsnæði og aðgangur að
barnaheimili.
Umsóknir sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna,
Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Krist-
nesspítala í síma 96-31100.
Sjúkraþjálfari
Staða sjúkraþjálfara við Kristnesspítala er
laus til umsóknar.
Góð vinnuaðstaða með nýjum tækjum.
Komið og takið þátt í uppbyggingu nýrrar endurhæf-
ingadeildar við spítalann.
Starfinu fylgir aðgangur að barnaheimili spítalans.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri eða yfir-
læknir í síma 96-31100.
jMS Hjúkrunarfræð-
ingar athugið!
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ól-
afsfirði, auglýsir eftir hjúkrunarforstjóra.
Upplýsingar um starfið og starfskjör (húsnæði og
fríðindi), veita forstöðumaður í síma 96-62480 og
formaður stjórnar í síma 96-62151.
Frá Glerárskóla
Vegna forfalla
vantar kennara
í fullt starf í heimilisfræði frá 1. okt. næstkomandi
til 31. mars á næsta ári.
Upplýsingar hjá skólastjóra í símum (96-)21395
og (96-)21521.
Skólastjóri.
Heildarupphæð vinninga
16.9 var 4.939.856.-
1 hafði 5 rétta og fær hann
kr. 2.279.694,-
Bónusvinninginn fengu 4
og fær hver kr. 98.565.-
Fyrir 4 tölur réttar fær
hver kr. 5.113.- og fyrir 3
réttar tölur fær hver um
sig kr. 361.-
Sölustaðir loka 15 mínútum
fyrir útdrátt i Sjónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
eins og þú vilt
að aorir aki!
ll XER0AR