Dagur - 19.10.1989, Page 1
Útgerð G. Ben á Árskógssandi:
Tilboð gert í nýtt
skip í stað Amþórs
- loðnuveiðiskip í Vestmannaeyjum
tilbúið til afhendingar ef kauptilboð
og skilyrði verða samþykkt
strax eftir helgi.
„Þarna er um að ræða lítið
loðnuveiðiskip sem ekki er á síld-
arkvóti. Kvótar af Arnþóri og
Sæþóri yrðu þá að fást fluttir yfir
á skipið. Ég vil ekki trúa því aö
það verði vandamál," segir
Hermann.
Hann segir úrval af skipurn
ekki mikið á innlenda markaðn-
um en hugsanlegt sé þó að þegar
frá líði komi fleiri skip á sólulista.
Tíminn sé hins vegar mjög tak-
markaður því stefnan sé að nýja
skipið nái að nýta síldarkvóta
útgerðarinnar.
Enn óvíst um afstöðu aðila á Norðurlandi eystra til skipulags slátrunar:
Rallkappar framtíðarinnar.
G. Ben, útgerð Arnþórs EA-
16 sem sökk á síldarmiðunum
fyrir suðaustan iand í síðustu
viku, hefur gert tilboð í skip í
Vestmannaeyjum. Um er að
ræða yfir 200 tonna skip, eða
nokkru stærra skip en Arnþór
var. Hermann Gtiðmundsson,
hjá G. Ben segir að kapp sé
lagt á að fá skip sem fyrst og
gangi kaupin í gegn og kvóti
fáist fluttur á nýja skipið verði
unnt að senda það til vciða
Allt of lítið gerst í þessum málum“
- segir Kristján Karl Kristjánsson, kaupfélagsstjóri KL á Þórshöfn
Kristján Karl Kristjánsson,
kaupfélagsstjóri Kaupfélag
Langncsinga á Þórshöfn, segir
nauðsynlegt að fyrir liggi eigi
síðar en um áramót sameigin-
leg afstaða sláturleyfishafa á
Norðurlandi eystra um hvernig
staðið skuli að slátrun á svæð-
inu í framtíðinni. Hann segir
að umræður um þetta hafi leg-
ið niðri í sláturtíðinni en menn
verði að setjast niður strax upp
úr mánaðamótum og komast
að niðurstöðu um þetta mál.
Eins og Dagur hefur greint frá
hefur svokölluð úreldingarnefnd
Björgúlfur EA seldi í Hull í gær:
103 króna meðalverð
- andvirði aflans 15,6 milljónir
Björgúlfur EA-312 seldi 151,9
tonn að andvirði 15,6 milljónir
Gjaldþrot Híbýlis:
Undirverktakar
skilieftii
Nú liggur ljóst fyrir að undir-
verktakar Híbýlis verða krafð-
ir um að þeir skili aftur tækjum
og efni sem þeir fjarlægðu af
byggingarstöðum, eftir að Ijóst
var að fyrirtækið myndi íýsa
sig gjaldþrota.
Brynjólfur Kjartansson hrl.,
bústjóri, segist bíða eftir tilboði
frá Akureyrarbæ í eignarhluta
Híbýlis í Helgamagrastræti 53.
Varðandi undirverktakana og
efnið sem þeir tóku sagði hann:
„Þetta hlýtur að verða rannsakað
af opinberum aðilum og þess
krafist að hlutunum verði skilað
aftur.“ Hann sagði að ekki stæði
til að kæra undirverktaka fyrir að
fjarlægja hlutina en reynt yrði að
ná þeim með góðu áður en til
harkalegri aðgerða kærni. „Eig-
um við ekki að segja að þeim til-
mælum verði fyrst beint til
manna að þeir skili aftur því sem
þeir hafa tekið". EHB
króna í Hull
Meðalverð i
krónur.
Englandi í
kíló er
gær.
103
Uppistaða í aflanum var
þorskur. Seld voru 100 tonn fyrir
10 milljónir króna sem gefur 100
króna meðalverð. Af kola voru
seld tæp 27 tonn fyrir2,7 milljón-
ir króna, meðalverð rúmlega 100
krónur. Fyrir 19,6 tonn af ýsu
fengust 2,2 milljónir, meðalverð
tæpar 113 krónur. óþh
komist að þeirri niðurstöðu að
ekki sé unnt að fallast á úreldingu
sláturhúsanna á Kópaskeri og
Vopnafirði á meðan ekki liggi
fyrir sameiginleg niðurstaða
heimamanna um hvernig staðið
skuli að slátrun í framtíðinni.
Þessi afstaða er túlkuð seni þrýst-
ingur á heimamenn að setjast nú
þegar niður og móta sameigin-
lega tillögu um framtíðarskipulag
slátrunar á svæðinu.
„Pví miður hefur allt of lítið
verið að gerast í þessum málum.
Nú verðum við að fara í fullan
gang,“ sagði Kristján. Hann segir
að sú hugmynd sé ennþá uppi að
koma upp fullkomnu sláturhúsi á
Þórshöfn. Margir styðja þá
hugmynd, að sögn Kristjáns, og
segist hann telja margt mæla með
henni. „Við höfum þegar sent
ráðuneytinu beiðni um úreldingu
hússins hér, með þeim fyrirvara
að hægt verði áfram að slátra hér
á Þórshöfn,“ segir Kristján.
Kristán segir að nú þegar sé
fyrir hendi fokhelt hús á Þórs-
höfn sem hugmyndin hafi vcriö
að innrétta sem sláturhús. Um er
að ræða hús sem Sögunarmyllan
hf. byggði og hefur staðið fokhelt
í um eitt ár. Leitað hefur verið
álits á kostnaði við að innrétta
húsið til slátrunar. óþh
Skinnaiðnaður Sambandsins:
Hafiii kynning á „línu“ næstu
tveggja ára á helstu mörkuðum
- níu mánaða uppgjör að fæðast þessa dagana
„Við höfum að undanförnu
verið að kynna ’90 og ’91 lín-
una af okkar framleiðslu á
helstu mörkuðum okkar, m.a.
Bretlandi og Italíu. Það er of
snemmt að segja til um árang-
uriiin af því. Við eigum eftir að
fá viðbrögð frá okkar kaup-
endum,“ segir Bjarni Jónas-
son, framkvæmdastjóri
Skinnaiðnaðar Sambandsins.
„Þcim virtist ekki lítast illa á
það sem við höfum fram að færa.
Okkar vara hefur oftast líkað vel.
Þetta er alltaf spurningin um að
fylgjast með tískusveiflunum,
hitta á réttu vöruna, á réttum
tíma og á réttum stað,“ sagði
Bjarni.
Þessa dagana er að fseðast upp-
gjör fyrstu níu mánaða ársins.
Bjarni er ófáanlegur á þessu stigi
að tjá sig um afkomu fyrirtækis-
ins. „Ég vil ekkert um það segja.
Þetta á eftir að fara fyrir stjórn
Sambandsins og á meðan hún
hefur ekki fengið uppgjörið í
hendur vil ég ekki tjá mig um
það.“ óþh
Hermann segir að tveir til þrír
mánuðir líði þar til greiðsla komi
frá tryggingafélögum vegna
Arnþórs. „Þau mál eru því í lagi
en matið er ekki hátt miðað við
það sem þarf að kaupa. Síðan var
talsvert sem ekki var tryggt, t.d.
síldarnótin, kör í lestum og ann-
að smærra. Tjónið er því talsvert
en það er fyrir mestu að mennirn-
ir náðust heilir, maður veltir sér
ekki upp úr hinu,“ segir
Hermann.
Áhöfn Arnþórs hefur ekki far-
ið í aðra vinnu frá óhappinu og
sagðist Hcrmann ekki sjá fram á
að útgcrðin gæti boðið þeim aðra
vinnu nema að nýtt skip fáist.
Þau mál gætu skýrst í dag. JÓH
Útgerðarfélag
Akureyringa hf.:
Vænn kvóta-
bátur keyptur
Útgerðarfélag Akureyringa
hefur fest kaup á Baldri frá
Keflavík, sem er 40 tonna eik-
arbátur. Að sögn Gunnars
Ragnars, framkvæmdastjóra
ÚA, var ráðist í þessi bátakaup
í því skyni að auka kvótann hjá
togurum fyrirtækisins en um
550 tonna kvóti fylgir Baldri.
Þar af er þorskkvótinn mjög
vænn, eða 507 þorskígildi.
Gunnar sagði að þessi kvóti
nýttist að sjálfsögðu ekki allur á
þessu ári því nokkuð væri gengið
á hann. Þó væri Ijóst að sá kvóti
sem Baldur átti eftir myndi laga
stöðuna hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa á þessu tímabili en
Gunnar sagði að fyrst og fremst
væri verið að hugsa um framtíð-
ina, enda sjá menn ekki fram á
aukinn kvóta á næstunni.
Harðbakur kom inn til löndun-
ar í gærmorgun með um 1 H) tonn
af blönduðum afla, mest þorski
og karfa. Þá sagði Gunnar að von
væri á Norðfjarðartogara á föstu-
daginn sem myndi landa hjá
Útgerðarfélaginu. SS