Dagur - 19.10.1989, Qupperneq 3
Fimmtudagur 19. október 1989 - DAGUR - 3
vsk.i?
Hvemig er
frádráttarheimildin
í viröisaukaskatti?
Endurgreiðsla ef innskattur
er hærri en útskattur
nnskattur á ákveðnu uppgjörstímabili
kann að verða hærri en útskattur sama tímabils. Þetta
getur t.d. gerst vegna fjárfestingar (bygging eða viðhald
fasteignar fyrir reksturinn eða kaup á dýrum tækjum)
I }'eðaeffyrirtækiðsafnarbirgðum. Einnigeffyrirtækiselur
undanþegna vöru eða þjónustu (t.d. útflutningur).
Innskattur dregst frá útskatti
’ irðisaukaskattur sem fyrirtæki greiðir af
vöru og þjónustu sem það kaupirtil nota í rekstrinum er
nefndur innskattur. Virðisaukaskattursem fyrirtæki
innheimtir af sölu sinni er hins vegar nefndur útskattur.
Við uppgjör til ríkissjóðs dregur fyrirtækið þann
innskatt sem það greiðir á hverju uppgjörstímabili frá
útskattinum sem það hefur innheimt á sama tímabili,
þ.e. fyrirtækið greiðir aðeins mismuninn á útskatti og
innskatti.
Innskattur af flestum
aðföngum er frádráttarbær
I þessum tilvikum endurgreiðir ríkissjóður
mismun innskatts og útskatts.
Skilyrði frádráttar
kilyrði fyrir frádrætti eru:
• Að fyrirtækið stundi skattskylda starfsemi.
• Að keypt vara eða þjónusta sé til nota í rekstrinum.
• Að innskatturinn sé bókfærður á grundvelli löglegs
fylgiskjals (reiknings eða tollskýrslu).
Endurgreiðsla er heimil
þóttvaran sé óseld
f nnskattinn má draga frá á því
uppgjörstímabili sem vara eða þjónusta er keypt. Ekki
skiptii máli hvort aðföngin eru staðgreidd eða keypt með
greiðslufresti. Innskatt af vöru sem keypt er til endursölu
eða úrvinnslu má draga frá þótt hún sé óseld í lok
uppgjörstímabils.
Uppgjörstímabilin
eru mislöng
] rádráttarheimildin nærtil innskatts af svo
til öllum aðföngum fyrirtækja sem varða skattskylda
sölu þeirra. Það er ekki aðeins innskattur af endursölu-
vörum og hráefnum sem kemurtil frádráttar, heldur
einnig innskatturaf fjárfestingu og rekstrarvörum sem
notaðar eru fyrir reksturinn.
í nokkrumtilvikum erfrádráttarheimildin
takmörkuð. Innskattur af hlunnindagreiðslum, risnu og
gjöfum er ekki frádráttarbær. Sama gildir almennt um
innskatt vegna fólksbifreiða.
(Imennt uppgjörstímabil er tveir mánuðir,
en ef útskattur er að jafnaði lægri en innskattur, þannig
að fyrirtækið eigi yfirleitt rétt á endurgreiðslu, getur
fyrirtæki fengið heimild skattstjóra fyrir skemmra
uppgjörstímabili. Uppgjörstímabil bænda er sex
mánuðir.
Upplýsingasími RSK
vegna virðisaukaskatts er
91-624422
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI