Dagur - 19.10.1989, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 19. október 1989
Verður verkefinatilfærslan
í anda byggðasteftiu?
spjallað við Áskel Einarsson framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Norðlendinga
um nýja verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga
Ný verkaskipting milli ríkis og
sveitarfélaga kemur til fram-
kvæmda um næstu áramót.
Hér er um breytingu að ræða
sem hefur víðtæk áhrif í þjóð-
félaginu, en til að forvitnast
nánar um bakgrunn þeirra
mikilvægu ákvarðana sem hér
liggja til grundvallar var leitað
til Askels Einarssonar, fram-
kvæmdastjóra Fjórðungs-
sambands Norðlendinga, og
var hann spurður um persónu-
legt álit í þessu sambandi.
Að hverju er stefnt með ný-
skipan á verkefnaskiptingu milli
ríkis og sveitarfélaga?
„Markmið sveitarfélaganna
hefur verið að ná eins konar sátt
við ríkið, til að koma í veg fyrir
að löggjafinn ýtti linnulaust
útgjöldum yfir á sveitarfélögin,
án samráðs við þau. í öðru lagi til
að koma í veg fyrir að löggjafinn
gæti ekki án samráðs hlutast til
um tekjustofna sveitarfélaga, án
nokkurs tillits til tekjustofna
þeirra.
Stóra spurningin er hvort með
verkaskiptingu hafi þetta náðst,
því hér ætti að vera um mikla
byggðaaðgerð að ræða, lands-
byggðinni í hagj en það er alveg
óljóst."
Atriðin sem gleymdust
- Er þetta nokkur nýlunda, hafa
ekki átt sér stað áður leiðrétting-
ar á verkefnaskiptingunni sam-
hliða breytingunni á tekjustofn-
unm sveitarfélaga? „Já, rétt er
það. í tíð vinstri stjórnarinnar
1971-’74 var gerð veigamikil lag-
færing til einföldunar á samskipt-
um ríkis og sveitarfélaga. Áður
höfðu sveitarfélög orðið að
greiða stóran liluta lögreglu-
kostnaðar og verulegan hluta af
kostnaði við almannatryggingar.
Með þessu átti að marka þá
stefnu að rekstur sem ríkið hefði
alfarið með höndum væri ekki
greiddur af sveitarfélögunum. í
uppgjörinu gleymdust samt
sjúkrasamlögin, framlag til
Átvinnuleysistryggingasjóðs og
greiðsla óinnheimtra barnsmeð-
laga. Þetta átti að lagfæra í
núverandi verkaskiptingu.
Á móti þessu voru útsvörin
gerð að flötum skatti, innan
þröngra marka. Aðstöðugjald á
atvinnurekstri voru lækkuð og
flokkuð eftir atvinnugreinum
með lagaboði. Þess er og að geta
að með grunnskólalögunum 1974
fengu sveitarfélögin mikla leið-
réttingu á kostnaðarskiptingu
gagnvart ríkinu. Með nýrri ríkis-
stjórn árið 1974 var leitað eftir
því að ýta verkefnum tengdum
grunnskólarekstri til sveitarfélag-
anna og færa rekstrarkostnað
staðbundinna stofnana til sveitar-
félaganna, sem höfðu notið
rekstursstyrkja frá ríkinu.
Gamalt baráttumál
sveitarfélaga
- Breytt verkaskipting hefur þá
lengi verið baráttumál sveitarfé-
laga?
„Á árum ríkisstjórnar Gunnars
Thoroddsens var áfram hreyfing
um að verkaskiptingunni skyldi
breytt, einkum var þá rætt um
samrekstur framhaldsskólastigs-
ins, og í tengslum við það breyt-
ingu á kostnaðarskiptingu milli
aðila varðandi grunnskólarekst-
urinn.
Allt þetta strandaði á einarðri
afstöðu Fjórðungssambands
Norðlendinga og annarra sveitar-
stjórnarsamtaka sem kröfðust
þess aö tekjur kæmu á móti.
í stjórnartíð fyrri ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar var
hafin sú aðferð að skerða framlög
ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga með ýmsum hætti, m.a.
með því að mæta kostnaði ríkis-
ins við að greiða skólaakstur og
Smásagnasamkeppni
Dags dg MENOR
★ MenningarsamtöK Morðlendinga og dagblaðið Dagur
hafa ákveðið að efna til samkeppni um bestu frum-
5ömdu smásöguna.
★ Veitt verða 60 þúsund Króna verðlaun fyrir þá sögu sem
dómnefnd telur besta. AuK þess verður veitt 20 þúsund
Króna viðurkenning fyrir þá sögu 5em næstbest þyKir.
★ Verðlaunasagan mun blrtast í jólablaðr Dags en frétta-
bréf MEMOR ásKilur sér einnig rétt til birtingar. Einnig er
ásKilinn hliðstæður réttur til birtingar á þeirri sögu, 5em
viðurKenningu hlýtur.
★ 5ögur í keppninni mega að hámarKi vera 6-7 síður í
A-4 stærð, vélritaðar í aðra hverja línu.
★ 5ögurnar sKal senda undir dulnefni, en með sKal fylgja
rétt nafn, heimllisfang og símanúmer í loKuðu umslagi,
auðKenndu dulnefninu.
★ Skilafrestur handrita er til 24. nóv/ember nk.,
sem er sTðasti póstlagningardagur.
Utanáskriftin er:
Menningarsamtök llorðlendinga
b/t Hauks Ágústssonar
Gilsbakkavegi 13, 600 Akureyri
kostnað við heimavistir og mötu-
neyti.
Það er mat Sambands íslenskra
sveitarfélaga að árið 1988 hafi
niðurskurðurinn numið nærri
helmingi af lögboðnu framlagi
ríkisins til Jöfnunarsjóðsins, sam-
kvæmt tekjustofnalögum.“
- Átti að koma í veg fyrir að
slíkt gæti ekki endurtekið sig?
„í greinargerð samstarfsnefnd-
ar ráðuneyta og fulltrúa Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga,
sem undirbjó tillögur um breytta
verkaskiptingu, er bent á að
helstu ágallar ríkjandi skipulags
væru að ríkið annaðist verkefni
sem betur væru komin í höndum
sveitarfélaga. Nefndin taldi að
sveitarfélögin myndu leysa slík
verkefni á hagkvæmari hátt
vegna nálægðar. Verkaskiptingin
er, að dómi nefndarinnar, oft á
tíðum óskýr og flókin, og veldur
sífelldri tortryggni milli sveitar-
félaga og ríkisins.
Nefndin taldi að ákvarðanir
séu oft á tíðum teknar af aðilum
sem ekki bera næga ábyrgð á
greiðslu stofnkostnaðar og á
rekstri. Nefndin klykkir út með
því að sveitarfélögin séu talin
fjárhagslega ósjálfstæð og of háð
ríkinu.“
Rekstur og stofnkostnaður
falli undir sama aðila
- Markmið verkaskiptinga-
nefndarinnar?
„Meginmarkmið verkaskipt-
ingar skyldi vera að sveitarfélög-
in hafi með höndum verkefni sem
ráðast af staðbundnum störfum
og verkefni sem ætla má að í
þeirra höndum leiði til betri og
ódýrari þjónustu en hjá ríkinu.
Næsta boðorð nefndarinnar er að
gera tillögur um að verkaskipting
ríkis og sveitarfélaga verði skýr
og einföld, eftir því sem kostur
er, og að saman falli rekstur og
stofnkostnaður undir sama aðila,
sem beri í senn ábyrgð á rekstri
og greiðslu stofnkostnaðar.
Síðasta boðorð verkaskipta-
nefndarinnar er að stuðlað sé að
því að sveitarfélög séu fjárhags-
lega óháðari ríkinu en áður. í
forsendum nefndarinnar komu
fram meginatriði ályktana Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og
landshlutasamtakanna á undan-
förnum árum. Það kom ekki í
hlut þessarar nefndar að semja
lagafrumvarp um verkaskipting-
una.“
- Var togstreita um verkefna-
skiptinguna?
„Svo vildi til að á útmánuðum
1988 hætti þáverandi ríkisstjórn
við að hefja verkefnatilfærsíuna
sem ráðgerð var í áföngum. Á ný
var skipuð fjölmenn nefnd ráðu-
neytismanna, fulltrúa stjórn-
málaflokka og fulltrúa Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Nefnd
þessi gerði tillögur sem voru
undirstaða frumvarps um breytta
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga. Teknar voru til greina
ábendingar Fjórðungssambands
Norðlendinga, að eðlilegt sé að
heilsugæslan verði einnig verk-
efni ríkisins, ásamt sjúkrahúsun-
um, þar sem hér er um að ræða
verkefni sent ekki lúti stjórn
sveitarfélaga í faglegum skiln-
ingi.
Gengið gegn yfírlýstri
stefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga
Á móti þessu lagði nefndin til að
sveitarfélög greiddu 40% stofn-
kostnaðar og viðhaldskostnaðar
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva.
Þetta fékkst leiðrétt og greiðslu-
HRISALUNDUR
Islenskir
dagar
í Hrísalundi
kynningar í dag