Dagur - 19.10.1989, Side 11
hér & þor
Fimmtudagur 19. október 1989 - DAGUR - 11
|
Ringo Starr sveik kærustu sína:
Þaggaði niður í henni
með 24 miiljónum kr.
Ringo Starr er í vondu máli.
Hann hefur greitt fyrrverandi
kærustu sinni alls 250 þúsund
pund, yfir 24 milljónir íslenskra
króna, til þess að koma í veg fyrir
að hún skýrði frá safaríkum svall-
veislum hans og taumlausri eit-
urlyfjaneyslu.
Nancy Leigh Andrews var með
Ringo í sjö ár og við blasti hjóna-
band og fjölskyldulíf. Þá kom
Barbara Bach, James Bond
gellan, til sögunnar og Ringo
hætti við Nancy.
„Hann var búinn að biðja mig
að giftast sér en svo fór hann á
bak við mig með Barböru. Ég
hélt fyrst að þau væru bara góðir
vinir en annað kom á daginn.
Þetta var eins og hnefahögg í
andlitið og framkoma hans var
ekki herramanni sæmandi," segir
Nancy og kveðst hafa verið
afskaplega sár.
Ári eftir að Ringo sparkaði
Nancy hótaði hún málaferlum.
Hann gat ekki hugsað sér að
ganga í gegnum réttarhöld því
hann óttaðist að drykkjuskapur
hans og eiturlyfjaneysla kæmu
fram í dagsljósið. Þess vegna
féllst hann á að greiða Nancy álit-
lega fjárupphæð til að sleppa við
þau ósköp. Hann lét hana fá
Hér er Ringo með Barböru sinni, sem tók virkan þátt í sukkinu með honum.
Ringo og Nancy voru saman í sjö ár. Hún hafði áhyggjur af eiturlyfjaneyslu
Bítilsins.
væna fúlgu á hverju ári í átta ár,
samtals ríflega 24 milljónir
íslenskra króna. Þetta eru hæstu
greiðslur sinnar tegundar sem um
getur í Hollywood.
Nancy segist hafa haft miklar
áhyggjur af Ringo þegar hún bjó
með honum. „Ég óttaðist um
heilsu hans. Líkaminn getur ekki
tekið endalaust við eiturlyfjum
og ég var hrædd um að þau væru
að drepa hann. Þess vegna stakk
ég upp á því að hann færi í með-
ferð og reyndi að losna frá þessu
böli,“ segir Nancy.
Sem kunnugt er hefur Ringo
loks séð sig um hönd en þau
hjónin fóru bæði í meðferð vegna
áfengis- og eiturlyfjaneyslu. Fyrr
á þessu ári fékk Nancy síðustu
greiðsluna frá gamla Bítlatromm-
aranum og er hann því laus við
þennan Akkilesarhæl, auk þess
að vera laus úr klóm bölvaldsins.
Eftir stendur að hann er 24 millj-
ónum fátækari en það skiptir
kannski ekki máli. Batnandi
manni er best að lifa.
Trésmiðafélag Akureyrar færir VMA gjöf
Nýlega færði Trésmiðafélag Akureyrar, grunndeild tréiðna í Verkmenntaskólanum á Akureyri, Lamello
samsetningartæki að gjöf. Það var Guðmundur Ómar Guðmundsson sem afhenti skólanum gjöfina fyrir
hönd félagsins. Á myndinni eru skólameistari VMA, Bernharð Haraldsson, Guðmundur Ómar og kenn-
arar og nemendur í grunndeild tréiðna. Mynd: kl
Bríddsmót á Húsavík
Opið sveitamót á vegum Bridge-
félags Húsavfkur verður haldið á
Hótel Húsavík helgina 3.-5. nóv.
nk. Á mótinu verða spilaðar 7 um-
ferðir, 16 spila leikir eftir Monrad-
kerfi. Spilaðar verða 2 umferðir
á föstudagskvöld, 3 á laugardag
og 2 á sunnudag. Spilað er um
silfurstig. Keppnisgjald kr. 12
þúsund fyrir sveit. Mótið verður
sett kl. 20 á föstudagskvöld og
mótsslit áætluð kl. 17 á sunnu-
dag. Flug milli Reykjavíkur og
Húsavíkur, báðar leiðir, ásamt
gistingu í tvíbýli í 2 nætur með
morgunverði er kr. 11 þúsund
per mann, en hótelpakkinn ein-
göngu kostar 3900 kr.
1. verðlaun eru 100 þúsund, 2.
verðlaun 50 þúsund og 3. verð-
laun 25 þúsund. Þátttöku þarf að
tilkynna fyrir mánaðamótin októ-
ber/nóvember til Guðlaugar á
Ferðaskrifstofu Húsavíkur, sími
96-42100. Björgvin Leifsson hs.
96-42076, vs. 96-41344 veitir nán-
ari upplýsingar.
Mótið verður ekki haldið nema
minnst 16 sveitir taki þátt í þvf.
Hljómsveit Birgis Arasonar á Akureyri:
Æfir af krafti
fyrir komandi
„vetrarvertíð“
Hljómsveit Birgis Arasonar á
Akureyri hefur að undanförnu
æft af fullum krafti fyrir kom-
andi „vetrarvertíð“. Hljóm-
sveitin sem hefur verið starf-
rækt síðustu ár, hefur nú hafíð
störf á ný að loknu sumarleyfí.
Hljómsveit Birgis Arasonar
leikur blandaða tónlist sem hent-
ar vel á árshátíöum, þorrablótum
og öðrum slíkum samkomum.
Hljómsveitina skipa þeir Birgir
Arason sem leikur á bassa og
syngur, Ólafur Þórðarson sem
leikur á píanó og hljómborð,
Húnbogi Valsson sem leikur á
gítar og syngur og Friðrik Sig-
urðsson sem leikur á trommur.
Þcir þrír fyrsttöldu hafa allir ver-
ið í hljómsveitinni síðustu ár en
Friðrik trommuleikari er nýliði í
sveitinni.