Dagur - 14.11.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 14. nóvember 1989
11 fréttir
Fundur með þingmönnum um vanda Slippstöðvarinnar:
Allt viðhald opinbera
flotans fari fram innanlands
- er meðal tillagna sem lagðar voru fyrir þingmenn
- fundur á ný eftir hálfan mánuð
„Mikil áhersla var lögð á að
hagsmunaaðilar í skipasmíða-
iðnaðinum fái að tilnefna
mann í stjórn fiskveiðasjóðs.
Ég tei það fullkomlega eðliiegt
þó það verði ekki til annars en
að eyða tortryggni og draga úr
þeim hvössu skeytasendingum
sem eru milli aðila í dag,“
sagði Hákon Hákonarsons for-
maður Félags málmiðnaðar-
manna á Akureyri eftir fund
sem haldinn var á laugardag-
inn með formönnum stéttarfé-
laga, starfsmanna í Slippstöð-
inni á Akureyri, trúnaðar-
mönnum starfsfólks, öllum
þingmönnum kjördæmisins og
framkvæmdastjóra Slippstöðv-
arinnar á Akureyri um vanda
Slippstöðvarinnar.
A fundinum voru lagðar fyrir
þingmennina tillögur til úrbóta í
nokkrum liðum. Par er lagt til að
Slippstöðin hf. fái að smíða Vest-
mannaeyjaferju eða þá ferju sem
hentar fyrir þessa siglingaleið. í
deiglunni er að fjárfesta í ferju í
stað Hríseyjarferjunnar og er tal-
ið sjálfsagt mál að Slippstöðin fái
að smíða það skip.
í tillögunum er sömuleiðis lagt
til að allt viðhald hins opinbera
flota íslendinga, varðskip,
strandferðaskip og hafrannsókn-
arskip, fari fram innanlands.
„Við teljum stjórnvöld eiga
möguleika á að ráða því nokkuð
hvenær þessi skip koma inn í við-
hald og taka þannig tjllit til verk-
efnastöðu innlendu skipasmíða-
fyrirtækjanna, ef vilji er fyrir
hendi,“ sagði Hákon.
Áhersla er lögð á að veita
samskonar greiðsluábyrgð vegna
þessara verkefna, hvort sem þau
eru unnin innanlands eða utan en
fram til þessa hefur verið auð-
veldara að fá greiðsluábyrgð
vegna skipasmíðavinnu utan-
lands. Þá er lagt til að reyna að fá
erlend fiskiskip til viðgerðar og
endurnýjunar hjá íslenskum
skipasmíðastöðvum, en löndun-
arbann erlendra fiskiskipa í
íslenskum höfnum frá 1922 hefur
m.a. verið þess valdandi að
skipasmíðastöðvar hafa misst af
fjölda verkefna. Auk kröfunnar
um fulltrúa í fiskveiðasjóð var að
lokum lagt til að með skipulögð-
um hætti verði staðið að endur-
Mynd: KL
menntun og -þjálfun starfsmanna
skipasmíðastöðvanna og fari sú
menntun fram á þeim tíma þegar
verkefnastaða er slök.
Ýmis önnur mál voru rædd á
fundinum og var að lokum
ákveðið að hópurinn hittist á ný
að hálfum mánuði liðnum. Þá
munu þingmenn hafa lagt tillög-
urnar fyrir ríkisstjórn og þing-
flokka sína og er þess vænst að
árangur verði af viðræðunum.
„Það er mjög brýnt að leysa
bráða vandann því það eru að-
eins nokkrar vikur í að verkefna-
staða Slippstöðvarinnar verður
engin,“ sagði Hákon að lokum.
VG
Hugað að vetrarútbúnaðinum.
Sameiginleg gjaldheimta fyrir Eyjaijarðarsvæðið:
Leitað eftir riðræðum við
ráðuneytið síðar í mánuðinum
- þori ekki að segja til um afstöðu ráðuneytis, segir Snorri Olsen
Ljósavatnsskarð:
Rúta út af vegi
- róleg helgi á Húsavík
Rúta frá Sérleyfisbílum Akur-
eyrar sem var í áætlunarferð til
Mývatnssveitar fór útaf vegin-
um í Ljósavatnsskarði kl.
17:30 á föstudag. Átta faþegar
voru í bflnum, auk ökumanns.
Einn farþegi og ökumaður
hlutu minniháttar meiðsli.
Mikil hálka var þegar óhappið
átti sér stað.
Skömmu seinna á föstudag
varð bílvelta í Höfðahverfi. Þar
urðu engin meiðsli á fólki en
töluvert eignatjón.
Ekki var lögreglunni á Húsa-
vík kunnugt um fleiri óhöpp um
helgina og tvær árshátíðir sem
haldnar voru í Félagsheimilinu
munu hafa farið ágætlega fram.
Einn maður varð það brennivíns-
ruglaður um heígina að hann
fékk að gista fangageymslur lög-
reglunnar. IM
„Ég geri ráð fyrir að síðar í
þessum mánuði verði leitað
eftir viðræðum við fjármála-
ráðuneytið um þá hugmynd að
stofna til einnar sameiginlegrar
gjaldheimtu fyrir Eyjafjarðar-
svæðið,“ segir Vaigarður
Baldvinsson, bæjarritari á
Akureyri.
Fyrirkomulag gjaldheimtu-
mála hafa verið í nokkurri sjálf-
heldu um skeið. Fjármálaráðu-
neytið hefur lagt á það ríka
áherslu að eining náist um sam-
eiginlega gjaldheimtu meðal
sveitarstjórnarmanna heima í
kjördæmunum. Mörg sjónarmið
hefur þurft að sætta og því hefur
málið verið í nokkurri kyrrstöðu.
Sameiginleg gjaldheimta fyrir
Eyjafjarðarsvæðið er hugmynd
sem sveitarstjórnarmenn hafa
rætt sín á milli að undanförnu og
telja vænlegan kost. Ólafsfirðing-
ar voru lengi vel efins og eru enn
í vafa um aðild að slíkri gjald-
heimtu. Þeir telja þó rétt að taka
þátt í viðræðum við ráðuneytið
og sjá til hvers þær leiða.
Snorri Olsen, deildarstjóri í
fjármálaráðuneytinu, segir að
ráðuneytismenn séu tilbúnir til
viðræðna. Hins vegar segir hann
að fjármálaráðuneytið hafi lagt
áherslu á að stofnaðar verði tíu
gjaldheimtur á öllu landinu.
„Rökin fyrir svo fáum gjald-
heimtum eru einfaldlega þau að
með því móti fækkaði innheimtu-
mönnum. Ég þori ekkert að segja
Stjórn Mjólkursamlags K.V.H./K.F.H.B.:
Mótmælir niðurstöðum nefndarálits
um hagræðingu í mjólkuriðnaði
Á fundi stjórnar Mjólkursamlags
K. V.H./K.F.H.B. þann 26. októ-
ber sl. var rætt m.a. um nefndar-
álit um hagræðingu í rekstri inn-
an mjólkuriðnaðarins og eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
Sjávarútvegsbraut Háskólans á Akureyri:
Myndarlega verður að standa
að nauðsyrdegum fjárveitingum
- segir í ályktun Fiskiþings
Á lýloknu Fiskiþingi var
ánægju lýst með stofnun sjáv-
arútvegsbrautar við Háskólann
á Akureyri. í ályktun um mál-
ið segir að það sé von Fiski-
þings að myndarlega verði
staðið að nauðsynlegum fjár-
veitingum til deildarinnar
þannig að hún geti gegnt sínu
forystuhlutverki í menntun og
rannsóknum fyrir sjávarútveg-
inn.
„Fiskiþing lýsir sérstakri
ánægju með fyrirhugað samstarf
rannsóknastofnana sjávarútvegs-
ins og sjávarútvegsdeildarinnar.
Slíkt samstarf er forsenda auk-
innar verðmætasköpunnar sjáv-
arútvegs f framtíðinni."
í allsherjarnefnd þingsins kom
einnig til umræðu ferðakostnaður
nemenda við stýrimannaskólana
í Vestmannaeyjum og á Dalvík
vegna námskeiðs við radarsam-
líki í Stýrimannaskólanum í
Reykjavík. Stjórn Fiskifélags
íslands var falið að beita sér fyrir
því að menntamálaráðuneytið
greiði árlegan kostnað vegna
þessara námskeiða. JOH
„Stjórn Mjólkursamlagsir
mótmælir harðlega niðurstöðui
nefndarálits um hagræðingu
mjólkuriðnaði, sem nýlega hefi
veriö birt. þar sem komist er a
þeirri niðurstöðu að leggja be
niður mjólkursamlagið
Hvammstanga.
Stjórnin telur að sú niðurstað
hefði í för með sér mjög alvai
lega hættu fyrir byggð í Vestui
Húnavatnssýslu og við Hrút;
fjörð, þar'sem mjólkursamlagi
og mjólkurframleiðsla er einn ;
máttarstólpum byggðarinnar.
Stjórnin bendir á að Mjólkui
samlagið á Hvammstanga hefu
ekki þurft greiðslur úr verð
miðlunarsjóði á síðustu árur
þrátt fyrir að verulegar endui
bætur hafi verið gerðar á húsnæc
og tækjakosti m.a. með tilliti t
ostagerðar.
Slíkar ráðstafanir færa atvinn
burt úr héraði og stangast það
við allt tal manna um að auk
þurfi atvinnu úti á landi."
um afstöðu ráðuneytis til þessar-
ar hugmyndar Eyfirðinga. Sér-
stök gjaldheimta fyrir Eyjafjarð-
arsvæðið kann hins vegar að þýða
það að við myndum enda í þrjá-
tíu gjaldheimtum í staðinn fyrir
tíu gjaldheimtur," segir Snorri.
óþh
Dalvík:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fundi stjórnar Sjúkra-
samlags Dalvíkur fyrir
skömmu, kom m.a. fram að
heildarrekstrarkostnaður fyrir
árið 1988, var kr. 25.381.439.-
og þar af var lyfjakostnaður
kr. 7.893.658.-. Framlag Dal-
víkurbæjar til sjúkrasamlags-
ins er kr. 8.792.130,- og end-
urgreiddur tannlæknakostnað-
ur (100%) er kr. 1.731.258.-.
■ Þá kom einnig fram á fund-
inum ósk frá stjórn S.D. þess
efnis að Ðalvíkurbær annist
rekstur samiagsins til ársloka
1989, eða þar til annað verður
ákveðið með sömu skilmála-
um og gilt hafa.
■ Stjórn Sjúkrasamlags Dal-
vfkur hefur borist bréf frá
Tryggingastofnun ríkisins, þar
sem vakin er athygli á fyrir-
huguðum breytingum á rekstri
sjúkrasamlaga. Af þessu
tilefni vill stjórn sjúkrsamlags-
ins óska eindregið eftir því við
Tryggingastofnun ríkisins að
þessar breytingar komi ekki til
með að skerða þjónustu við
íbúa Dalvíkurbæjar frá því
sem nú er.
■ Formaður félagsmálaráðs
hóf máls á húsnæðisleysi A-A
samtakanna. á fundi ráðsins
fyrir skömmu. Félagsmálaráð
leggur til að leitað verði leiða
til að liðsinna samtökunum í
þessu máli.