Dagur - 14.11.1989, Qupperneq 3
Þriðjudagur 14. nóvember 1989 - DAGUR - 3
frétfir
Fengsæll rjúpnaveiðimaður frá Dalvík:
Hefur náð 400 ijúpum í 14 veiðiferðum
- „Veiði eingöngu á heimaslóð“ segir Ari Gunnarsson
„Mig vantar nú ekki nema fáar
upp á að ná 400 fugla markinu.
Maður er mest á heimaslóð við
þetta, það má segja að maður
sé búinn að fínkemba syæðið
vestan Eyjafjarðar frá Öxna-
dal og út að Lágheiði,“ segir
Ari Gunnarsson fengsæll
rjúpnaveiðimaður frá Dalvík
sem tók sér frí frá sjómennsk-
unni þegar rjúpnaveiðitímabil-
ið hófst og sneri sér alfarið að
veiðunum. Og sennilegast eru
þeir ekki margir sem geta stát-
að af því að fá nálægt 30 rjúp-
um að meðaltali í veiðiferð því
þessa fugla hefur Arí veitt í
aðeins 14 veiðiferðum.
Ari segist hafa mest náð 38
rjúpum í einni ferð. Eins og nærri
má geta þarf talsverða líkamlega
þjálfun til að þola það álag sem
fylgir svo stífri veiðimennsku.
DAGDR
AkurejTi
S 96-24»
Norðlenskt dagblað
„Jú, ég skal viðurkenna að mað-
ur verður að vera í góðu líkams-
ástandi, sérstaklega þegar engin
hjálpartæki eru notuð við þetta
t.d. fjórhjól, snjósleðar eða vel
útbúnir bílar. Þetta er allt önnur
íþrótt með svoleiðis útbúnaði og
hjá mér eru svoleiðis aðfarir ekki
hátt skrifaðar. Mesta ánægjan
hjá mér er sjálf fjallgangan og þó
maður sé líka að elta þessi grey
þá er helmingurinn af ánægjunni
náttúran sjálf og fegurð hennar.
En það er jú kannski meira en að
segja það að rækta sig þannig upp
að maður þoli það að bera allt
upp í 30 kg. 10-20 kílómetra,"
segir Ari.
Rjúpnaveiðar hefur Ari stund-
að ötullega síðustu 3-4 árin en 14
ára gamall fór hann fyrst til
rjúpna með föður sínum. Rjúp-
urnar sem hann veiðir segist hann
að mestu láta til kunningja og
ættingja fyrir lítinn pening. Ari
segir að talsvert hafi verið af
rjúpu í haust og góð veðrátta gert
veiðimönnum auðveldara með að
ná henni.
Ari notar hálfsjálfvirka Rem-
ington haglabyssu við veiðarnar
og einstaka sinnum grípur hann
til tvíhleypunnar. Hann notar
mest skot frá Mirage og Nike
með 3 mm. höglum og 34 gr.
Akureyri:
Rannsóknarlögreglan
opnar fvrir símann
- sjálfvirkur símsvari tekur við
upplýsingum um a&rotamál
Hjá rannsóknarlögreglunni á
Akureyri hefur verið opnað
fyrir síniann ef svo má segja, því
þar hefur verið tengdur sími
með sjálfvirkum símsvara. í
þennan síma getur almenning-
ur hringt inn hvers konar upp-
lýsingar sem hann vill koma á
framfæri en hefur e.t.v. ekki
kjark til að koma frá sér á ann-
an hátt.
Að sögn Daníels Snorrasonar
rannsóknarlögreglufulltrúa á
Akureyri er með þessu verið að
vonast til að fólk sem hugsanlega
býr yfir vitneskju t.d. um fíkni-
efnamál hringi og lesi inn á sím-
svarann það sem það veit. Ekki
er nauðsynlegt að gefa upp nafn,
en það er þó mun betra fyrir
rannsóknarlögregluna ef það er
gert. „Þetta þurfa ekki að vera
stórvægilegar upplýsingar, en við
höfum grun um að fólk fái upp-
lýsingar, eða heyri rætt um fíkni-
efnaneyslu eða önnur afbrot en
sjái samt ekki ástæðu til að gera
sér ferð til þess að skýra frá því.
Með þessu opnast möguleiki á að
þetta fólk hringi til okkar.“
Ástæðan fyrir því að þessi bún-
aður er settur upp sagði Daníel
m.a. vera aukna umræðu um
fíkniefnamál. Slíkur sími er í
notkun hjá Rannsóknarlögregl-
unni í Reykjavík og í Keflavík og
hefur gefið ágæta raun. Númerið
á Akureyri er 96-25784 og í það
er hægt að hringja alla daga vik-
unnar, allan sólarhringinn. VG
Visitala framfærslukostnaðar:
Hefiir hækkað um 5,6%
imdanfarna þná mánuði
- jafngildir um 24,4%
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í nóvember-
byrjun 1989. Vísitalan í
nóvember reyndist vera 135,7
stig (maí 1988 = 100), eða
1,5% hærri en í október. Sam-
svarandi vísitala samkvæmt
eldra grunni (febrúar 1984 =
100) er 332,7 stig.
Af einstökum verðhækkunum
má nefna að 2,6% hækkun hús-
næðiskostnaðar hafði í för með
sér 0,3% vísitöluhækkun, 2,7%
verðbólgu á heilu ári
verðhækkun fatnaðar hafði í för
með sér 0,2% hækkun og 3,1% á
verði nýrra bifreiða olli 0,2%
hækkun vísitölunnar. Verðhækk-
un ýmissa annarra vöru- og þjón-
ustuliða olli alls um 0,8% hækk-
un vísitölu framfærslukostnaðar.
Síðstliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 22,8%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 5,6% og jafngildir sú
hækkun um 24,4% verðbólgu á
heilu ári.
hleðslu. En fer ekki ógrynni af
skotum þegar svo mikið er veitt?
„Ég hef reynt að stilla það
hiklaust af þannig að ég fari ekki
með meira en eitt skot á rjúpu.
Ekki hefur það nú tekist ennþá, í
fyrra veiddi ég 430 fugla og var
með 60 skot í mínus en nú er ég
kominn með tæplega 400 fugla og
er með 16 skot í mínus. Að ná einu
skoti á rjúpu er erfiðara þegar
maður er farinn að skjóta um
30% á flugi en ég hef það sem
keppikefli að skjóta vel enda set-
ur það þrýsting á íþróttina. Mað-
ur fer líka betur með fuglinn,
maður sýnir honum meiri virð-
ingu með því að ætla sér að kom-
ast í það gott færi að maður sé
öruggur um að drepa hann. Þá er
ekki verið að skjóta í neinum
vafafærum sem skilja ekki annað
eftir sig en leiðinlegar minningar
úr túrnum."
Ari segist alltaf gefa upp hvar
hann fái sína fugla og segist ekki
sjá ástæðu til að leyna því. Sam-
skiptin við landeigendur segir
hann góð enda „er fokið í flest
skjól ef maður má ekki vera í
fjöllunum sínum því ég tel mig
eiga þessi fjöll eins og allir aðrir.
Mér finnst svolítið hæpið, með
allri virðingu fyrir bændum sem
eru mínir bestu vinir, þegar þeir
eigna sér heilu og hálfu dalina.“
Ari segir að það hljóti að vera
keppikeflið að fá sem mest og
ekki geti hann neitað því að
markmiðið sé að ná meiru en á
síðasta tímabili. „Já, ætlunin er
að ná 500 fuglum núna en svo
miklu hef ég ekki náð,“ segir Ari
Gunnarsson. JÓH
11. nóv. ’89
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 1.267.909.-
£. 4af 5^ Á 7 62.841.-
3. 4af5 192 3.952.-
4. 3af 5 5.565 318.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.504.159.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
ÍlllllÍI
Vikulega að sunnan.
Vörumóttaka í Reykjavík til kl. 16:00 á mánudögum.
Vörumóttaka á Akureyri til kl. 12:00 á fimmtudögum.
Allar nánari upplýsingar hjá EIMSKIP Akureyri,
sími 24131.
EIMSKIP
A AKUREYRI
ALLA FIMMTUDAGA!