Dagur - 14.11.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 14. nóvember 1989 - DAGUR - 5
Þingfulltrúar í þungum þönkum á Hótel KEA á laugardag. Gissur Pétursson, formaöur SUF, í ræðustól en hann
var einn gesta kjördæmisþingsins. Mynd: ehb
Stjómmálaályktun 34.
kjördæmisþings KFNE
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra sem haldið var á Akur-
eyri á laugardaginn að Hótel
KEA, samþykkti eftirfarandi
stjórnmálaályktun.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra haldið á Akureyri 11.
nóvember 1989, lýsir yfir fullum
stuðningi við hina nýju ríkis-
stjórn Steingríms Hermannsson-
ar. Þingið treystir því að þrátt
fyrir ýmsa erfiðleika, sem nú er
við að etja í þjóðfélaginu, takist
henni að vinna þjóðina út úr
þeim vanda og hefja nýtt fram-
faraskeið.
Þrátt fyrir mikinn árangur af
starfi Atvinnutryggingasjóðs
útflutningsgreina og Hlutafjár-
sjóðs Byggðastofnunar er staða
margra atvinnu- og þjónustufyr-
irtækja enn mjög erfið. Takist
ekki að ná betra jafnvægi í
atvinnustarfsemi landsbyggðar-
innar er enn hætta á mikilli
byggðaröskun og stórfelldu
atvinnuleysi.
Þingið telur að marka beri fisk-
veiðistefnu á þeim grundvelli sem
lagður hefur verið, þar sem mið-
að er við hámarksafrakstur fiski-
stofnanna, traustan hag útgerðar-
staðanna og þjóðhagslega hag-
kvæma nýtingu sjávarafla. Nauð-
synlegt er að fiskveiðistefnan
stuðli að sem mestri fullnýtingu
afla í landinu.
Þingið bendir á þá alvarlegu
stöðu sem pr í landbúnaði. Lýst
er stuðningi við gerð nýs búvöru-
samnings sem byggir á því að
bændur framleiði fyrst og fremst
með þarfir innanlandsmarkaðar í
huga. Hugmyndum um aukinn
innflutning landbúnaðarafurða
sem hægt er að framleiða innan-
lands er hafnað. Þá leggur þingið
áherslu á að við upptöku virðis-
aukaskatts um næstu áramót
verði tvö skattþrep og verði lægra
skattþrep m.a. á þeim matvælum
sem framleidd eru innanlands.
Við uppbyggingu og þróun
iðnaðar verður að gæta þess að
hann búi við sambærileg rekstrar-
skilyrði og aðrar atvinnugreinar
og geti keppt við erlenda iðnað-
arframleiðslu. Landið og auð-
lindir þess verðum við að nýta og
leita til að ná samningum um
orkusölu til iðnaðar í stórum stíl.
Stóriðja getur aukið útflutn-
ingstekjur þjóðarinnar verulega
og uppbygging slíkra fyrirtækja á
landsbyggðinni er mikilvægur
þáttur í að snúa við þeirri byggða-
röskun sem orðið hefur á undan-
förnum árum.
Mikill fjármagnskostnaður
veldur framleiðslufyrirtækjunum
miklum erfiðleikum. Þingið skor-
ar á stjórnvöld að beita þeim
heimildum sem eru í lögum til að
halda vöxtum í skefjum.
Atvinnulíf landsmanna þolir ekki
að greiða hærri raunvexti en tíðk-
ast í viðskiptalöndum okkar.
Hallalaus ríkisbúskapur er ein
af undirstöðum trausts efnahags-
lífs. Jafna þarf halla ríkissjóðs í
áföngum en við núverandi
aðstæður ber að gera það með
niðurskurði ríkisútgjalda fremur
en skattlagningu. Uppbygging
atvinnulífsins í landinu þarf að
hafa forgang ef takast á að auka
þjóðartekjurnar og verja kaup-
máttinn.
Þrátt fyrir nauðsynlegt aðhald í
opinberum rekstri telur þingið
mikilvægt að standa vörð um
velferðarkerfi það sem þjóðin
hefur komið sér upp þannig að
allir geti, án tillits til efnahags og
búsetu, búið við félagslegt
öryggi, fullkomna heilbrigðis-
þjónustu og jafnrétti til menntun-
ar og menningarlífs.
Nauðsynlegt er að ná samning-
um við EFTA og EB þar sem
tryggðir eru viðunandi viðskipta-
samningar okkar og menningar-
leg samsipti án þess að verða
svipt forræði yfir landinu og
auðæfum þess. Því kemur ekki til
greina að hleypa fiskiflota banda-
lagsins inn í fiskveiðilögsögu
okkar þar sem við þurfum að
nýta fiskistofnana sjálf.
íslendingar eiga að taka þátt í
alþjóðasamstarfi um verndun
umhverfisins til að bægja frá
þeirri yfirþyrmandi hættu sem
tækniþróun þessarar aldar veldur
lífi og umhverfi, um leið og hald-
ið er áfram í vaxandi mæli öflugu
gróðurverndar- og landgræðslu-
starfi, undir forystu landbúnaðar-
ráðuneytisins og stofnana þess.
Kjördæmisþingið leggur áherslu
á mikilvægi þess að Framsóknar-
flokkurinn verði áfram leiðandi
afl í íslenskum stjórnmálum og
væntir þess að honum takist, í
anda stefnu sinnar og hugsjóna,
að skapa betra og réttlátara sam-
félag.
DAGA
FORSKOT
Með okkar áætlun
styttist biðin
eftir innflutningi
frá Reykjavík
um (§) daga.
LESTUNARHAFNIR
INNANLANDS
REYKJAVÍK
Alla miðvikudaga
VESTMANNAEYJAR
Alla föstudaga
HÚSAVÍK
Alla sunnudaga
AKUREYRI
Alla mánudaga
ÍSAFJÖRÐUR
Alla þriðjudaga
Aðrar hafnir eftir þörfum.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
AKUREYRI
27797
, A A A A A A A J
TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA
Tilkynning til launa-
skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald-
dagi launaskatts fyrir mánuðina september og október er
15. nóvember nk.
Launaskatt ber að greiöa til innheimtumanna ríkissjóðs, í
Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráöuneytið,
12. nóvember 1989.
Við hvetjum lesendur
til að koma úr felum og láta
skoðanir sínar í
Ijós hér í lesendahorninu.
Símmn er 24222
Guð á að vera sá miðpunktur
sem allt snýst um, en ekki maður-
inn.
Að lokum til minnis. „Ég er
Drottinn Guð þinn, . . . þú skalt
ekki hafa aðra guði en mig.“ „Ég
er vegurinn, sannleikurinn og líf-
ið, enginn kemur til föðurins
nema fyrir mig.“ „Sá sem trúir og
skírist mun hólpinn verða, en sá
sem trúir ekki mun fyrirdæmdur
verða."
Elsku fólk varist hina vatns-
lausu brunna en leitið Hans sem
gefur lifandi vatn sem verður að
lind sem streymir fram til eilífs
lífs:“
Níls Gíslason.
Lokað próíkjör
sjálfstæðismanna
á Akureyri
Sjálfstæðismaður hringdi:
„Ég las í Degi smáskot á sjálf-
stæðismenn á Akureyri undir
fyrirsögninni Smátt og stórt. Mér
brá dálítið við lesturinn, en við
nánari íhugun sé ég að það er
alveg rétt sem þarna stendur, í
grófum dráttum.
Við sjálfstæðismenn á Akur-
eyri verðum að fara að hugsa
okkar gang betur. Við erum í
meirihluta í bæjarstjórn sem
stendur, en hvað tekur við eftir
kosningar? Þá verður flokkurinn
dæmdur eftir verkum sínum í
bænum, en hann fær líka fylgi á
landsmælikvarða miðað við
almennt stjórnmálaástand. Það
er nú einu sinni svo að margir
kjósendur gera ekki mikinn
greinarmun á alþingis- og bæjar-
stjórnarkosningum, og því þykir
mörgum líklegt að við fáum svip-
að atkvæðamagn í vor og fyrir
fjórum árum á Akureyri.
Spurningin sem ég hef velt fyr-
ir mér er þessi: Hvar er fulltrúi
hins almenna sjálfstæðismanns í
bænum í bæjarstjórn? Þessari
spurningu verður ekki svarað
nema í lokuðu prófkjöri.
Við, sem munum einhver ár
aftur í tímann, erum sumir undr-
andi á ástandinu nú. Sjálfstæðis-
menn höfnuðu ágætum mönnum
á Akureyri í prófkjörum fyrir
nokkrum árum, án þess að nein
nöfn séu nefnd. Sumir þessara
manna eru og voru dugandi
athafnamenn, sem hafa sýnt og
sannað getu sína. Nú finnst mér
og fleirum að leita ætti til þessara
manna í sambandi við prófkjör
fyrir flokkinn, manna sem hafa
mikla reynslu á ýmsum sviðum
athafnalífsins. Þetta ætti að gera í
ljósi þeirrar reynslu sem orðið
hefur á þessu kjörtímabili.
Ekki kemur til greina neitt
annað en að hafa skýrar línur í
þessum efnum sem allra fyrst."