Dagur - 14.11.1989, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 14. nóvember 1989
leiklist
l
1
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Sauðárkróks var
formlega stofnað 13. aprfl
1888. Fyrsti formaður þess var
V. Claessen, en aðrir í stjórn
voru kosnir L. Popp kaupmað-
ur og S. Blöndal bókhaldari.
Áður höfðu verið haldnar
leiksýningar m.a. á leikritum
eftir ýmsa heimamenn t.d. á
Maurapúkanum eftir Gunn-
laug Einar Gunnlaugsson.
Samkvæmt heimildum Sögu
Sauðárkróks var ekki vafamál að
fyrst var leikið í íbúðarhúsi Halls
Asgrímssonar, sem síðar var
nefnt Erlendarhús.
Upphafið að stofnun Leikfé-
lags Sauðárkróks má rekja til
Fellisvorsins mikla 1887. Þá kom
fyrsta vöruskipið til Norðurlands
í apríl. í*á voru margir orðnir
máttlitlir af hor og eymdin mikil.
Tilgangur stofnunar leikfélagsins
var „gagn og skemmtun" til að
bágindin gleymdust í bili. Stofn-
endur félagsins voru sextán að
tölu: Sigvaldi Blöndal bókhald-
ari, Einar Stefánsson frá Reyni-
stað, Jóhanna alsystir Einars,
Valgard Claessen kaupmaður,
Ludvig Popp kaupmaður, Finnur
Jónsson gullsmiður, Jónas Jóns-
son afabróðir þeirra Jónasar og
Jóns Múla, Ólafur Briem snikk-
ari, Pétur Bjarnason bókhaldari,
Vigfús Guðmundsson hrepp-
stjóri, Kristján Jósefsson Blöndal
bókhaldari, Guðmundur Jónsson
sjómaður, Árni Jónsson læknir,
Cristian Hansen beykir og bóndi
og Guðrún Blöndal. Fljótlega
bættust í hópinn fleiri áhugasam-
ir leikendur og félagar.
Félagið átti þó nokkrar eignir
og voru þær brunatryggðar fyrir
500 krónur sem þótti stórfé í þá
daga.
Helsta afdrep félagsins var í
öðrum enda vöruskemmu Popps-
verslunar og þar voru sýningar
settar upp. Húsið tók um 300
manns í sæti! Einnig var sýnt í
svokölluðu Sýslumannshúsi.
Það segir sig sjálft að erfitt hef-
ur verið að halda uppi leiklistar-
starfsemi í 170 manna þorpi.
Tíundi hver íbúi var meðlimur í
félaginu. í nóvember voru haldn-
ir fundir í félaginu tvo daga í röð
og ákveðið að framvegis skuli
sýningar fara fram í geymsluhúsi
Popps kaupmanns. Nokkurar
óánægju gætti meðal félags-
manna um þetta og Vigfús
Guðmundsson, sem hafði lánað
hús sitt (Sýslumannshúsið) undir
sýningar, sagði sig úr félaginu.
Félagið starfaði blómlega
næstu árin allt þangað til árið
1906. Þá var síðasti aðalfundur-
inn haldinn. f fundargerð þess
fundar segir orðrétt: „Þar eð ekk-
ert útlit er fyrir, að félag þetta
geti haldið áfram sem leikfélag,
kom félagsmönnum saman um að
það hætti sem leikfélag og um
leið að fela formanni félagsins að
selja við tækifæri tjöldin fyrir sem
mest verð ásamt leikritum, bún-
inga og fleira.“
Þetta var lítið brot af sögu
fyrstu ára leikfélagsins. Nú hefur
mikið vatn runnið til sjávar og
félagið hefur verið starfrækt í
mörg ár. kj
Vörur á tilboðsverði
Kartöflur ........
Egg 1. verðflokkur
Egg 2. verðflokkur
Hamborgarar 2 st.
Sykur ............
178 kr. kg
356 kr. kg
259 kr. kg
111 kr.
2 kg 138 kr.
Verslunin
ÞORPIB
Móasíöu 1 • Sími 27755.
Opiö alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30.
Heimsendingarþjónusta.
Smásaqnasamheppni
Dags cg MEM0R
ic MenningarsamtöK Morðlendinga og dagblaðið Dagur
hafa áKueðið að efna til samKeppni um bestu frum-
sömdu smásöguna.
ir Veitt verða 60 þúsund Króna verðlaun fyrir þá sögu sem
dómnefnd telur besta. AuK þess verður veitt 20 þúsund
Króna viðurKenning fyrir þá sögu sem næstbest þyKir.
ir Verðlaunasagan mun birtast í jólablaði Dags en frétta-
bréf MEMOR ásKilur 5ér einnig rétt til birtingar. Einnig er
ásKilinn hliðstæður réttur til birtingar á þeirri sögu, sem
viðurKenningu hlýtur.
★ 5ögur í Keþþninni mega að hámarKi vera 6-7 síður í
A-4 stærð, vélritaðar í aðra hverja línu.
★ 5ögurnar sKal senda undir dulnefni, en með sKal fylgja
rétt nafn, heimilisfang og símanúmer í loKuðu umslagi,
auðKenndu dulnefninu.
★ Skilafrestur handrita er til 24. nóvember nK„
sem er sTðasti póstlagningardagur.
Utanáskriftin er:
Menningarsamtök Morðlendinga
b/t hauks Ágústssonar
Gilsbakkavegi 13, 600 Akureyri
Menningar5amtöK Horðlendinga - Dagur
Félagsheimilið Bifröst. Leikfélagið á hlut í því og þar eru sýningar settar upp.
Nóg að gera fyrir alla
- segir María Gréta Ólafsdóttir
formaður Leikfélags Sauðárkróks
María Gréta Olafsdóttir er
núverandi formaður Leikfé-
lags Sauðárkróks. Dagur tók
hana tali þar sem hún var við
vinnu sína í Skagfirðingabúð.
- Hvað hefur þú verið formað-
ur lengi?
„Ég er búin að vera formaður
síðan í maí 1988.“
- Hverjir eru fleiri í stjórn-
inni?
„Það eru Guðni Friðriksson
sem er varaformaður, Sólveig
Jónasdóttir gjaldkeri, Helga
Haraldsdóttir ritari og Friðrik
Halldórsson er meðstjórnandi.“
- Hvað eru margir félagar í
Leikfélaginu?
„Það eru svona 80-90 manns
sem eru skráðir félagar en megn-
ið af þeim eru svo styrktarfélagar
sem borga árgjaldið og ekkert
meira.“
- Hvenær er aðal starfstími
félagsins?
„Hann hefur nú verið venju-
lega á haustin og vorin, ein upp-
færsla á haustin og ein í Sælu-
viku, en haustið í ár fer í að gera
upp húsið okkar, Leikborg. Við
erum þar alltaf á miðvikudags-
kvöldum og það eru nú ekkert
allt of margir sem mæta nú orðið,
það var ágæt þátttaka fyrst og ég
vona bara að fólk fari að vakna
aftur.“
En hvernig gengur að fá fólk
til að starfa í félaginu?
„Það hefur gengið vonum
framar núna undanfarið en oft er
það mjög erfitt. Ég kvíði dálítið
fyrir vetrinum því að sviðs-
mennirnir sem hafa verið hjá
okkur eru allir fluttir burtu, hver
einasti þeirra, ljósamaðurinn er
farinn og sminkarinn er fyrir
sunnan fram að áramótum. Við
erum búin að missa alveg rosa-
lega mikið af fólki nú í haust.“
- Er mikill áhugi á leiklist í
bænum, meðal almennings?
„Já það held ég. Við þurfum
allavega ekki að kvarta útaf
aðsókninni."
- Hvaða stykki hafa verið vin-
sælust að undanförnu?
„Við höfum verið með barna-
leikrit á haustin og þau hafa verið
best sótt og svo höfum við verið
með söngleiki í Sæluviku og gam-
anleikrit einnig og það hefur fall-
ið vel í kramið hjá áhorfendum.“
- Hvernig er undirbúningi að
leikritum háttað, þ.e. fyrir frum-
sýningar?
„Við byrjum 6 vikum fyrir
frumsýningu á að lesa saman
handritið og svo er það vinna upp
á hvert einasta kvöld. T.d. fyrir
þá sem eru í stærstu hlutverkun-
um, þeir þurfa að mæta kl. átta
Leikborg, hús leikfélagsins. Þar eru stykki æfð fyrir sýningar og þar er einnig
að finna búninga og leikmyndir félagsins.
hvert einasta kvöld og eru að
alveg til hálf tólf. En það er frí
oftast á sunnudögum og æft á
laugardögum. En fyrir þá sem
eru í stjórn, þá þurfa þeir að vera
vakandi og sofandi yfir þessu.
Það er alveg geysilegur tími sem
fer í þetta. Það þýðir ekkert að
fara í þetta nema að hafa áhug-
ann alveg ómældan.“
- Er mikið af frambærilegum
leikurum í félaginu? Nú hefur
maður heyrt að nokkrir leikarar
hérna gætu spjarað sig vel á fjöl-
um störu leikhúsanna í Reykja-
vík. Er eitthvað til í því?
„Já það er enginn vafi á því.
Það eru margir frambærilegir
leikarar í bænum, bæði utan
félags og innan þess.“
- En hvað með aðra starfsemi
en uppsetningu leikrita?
„Við höfum oft verið með litla
leikþætti á 17. júní t.d. En núna
undanfarið þá höfum við alltaf
verið með tvær uppfærslur á ári
og barnaleikritin hafa tekið
þó nokkuð langan tíma því við
sýnum bara um helgar, þannig að
þetta nær yfirleitt saman frá því í
endaðan september til aprílloka.
Svo að það er oft erfitt að fá fólk
til þess að hlaupa inn í einhverja
aðra hluti en þessa föstu.“
- Hvernig stendur leikfélagið
hérna í samanburði við önnur á
landinu?
„Ég held að það standi bara
mjög vel. Við erum vel sett þann-
ig að við eigum okkar eigið hús-
næði, þó að við getum ekki sýnt í
því. Við reyndar höfum ekki
góða sýningaraðstöðu, aðstaðan í
Bifröst er vægast sagt hræðileg,
sem að skapast af því hvað húsið
er lítið, aðstaðan engin niðri í
búningsherbergi. Leikfélagið
samþykkti teikningar fyrir nokkr-
um árum þar sem var búið að
teikna viðbyggingu við Bifröst."
- En eitthvað að lokum?
„Ég vil biðja bæði félaga og
aðra sem áhuga liafa að hafa
samband við okkur' og sjá hvað
við erum að gera í Leikborg. Það
er nóg að gera fyrir alla.“
Þetta voru lokaorðin í þessu
viðtali við Maríu Grétu og greini-
legt að það er mikið um að vera í
leiklistarlífinu á Króknum. kj