Dagur - 14.11.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 14. nóvember 1989 - DAGUR - 7
Evrópukeppnin í blaki:
Þetta voru raunhæfari úrslit
- segir Haukur Valtýsson fyrirliði KA
- KA-menn geta vel við unað þrátt fyrir 3:0 tap fyrir Strassen
Þrátt fyrir að hafa tapað 3:0
fyrir Strassen V.C. í Evrópu-
keppni meistaraliða í blaki
geta KA-menn nokkuð vel
unað við úrslit leiksins því þeir
veittu lúxemborgaraliðinu
verðuga keppni og var allt ann-
að að sjá til KA-strákanna en í
fyrri leiknum. Hrinurnar fóru
4:15, 10:15 og svo 11:15.
„Þetta voru miklu raunhæfari
úrslit en í fyrri leiknum," sagði
Haukur Valtýsson fyrirliði KA
eftir leikinn. „Það er engin
spurning að þeir voru með betra
lið en við en samt fengu þeir að
hafa fyrir sigrinum í þessum leik.
Það er á vissan hátt sigur fyrir
okkur og þessir leikir hafa verið
dýrmæt reynsla fyrir okkur,“
bætti hann við.
Strax í fyrstu hrinunni sást að
KA-menn voru mun ákveðnari
en í fyrri leiknum úti í Lúxem-
borg. Liðin skiptust á að gefa upp
og bæði náðu að hala inn eitt stig.
Þá kom frekar slakur kafli hjá
KA og gestirnir skoruðu fjögur
létt stig í röð. Fei kallaði sína
menn út af og þá fór hávörnin
loksins að verja af viti. En síðan
seig aftur á ógæfuhliðina og
Strassen-drengirnir gerðu út um
hrinuna með nokkrum fallegum
stigum, 4:15.
KA kom inn í aðra hrinuna
með miklum krafti og áður en
áhorfendur voru almennilega
búnir að átta sig var staðan orðin
5:0 KA í vil. Kættust nú menn
mjög á áhorfendapöllum og
hvöttu þá gulklæddu til dáða. Það
var hart barist og gáfu heima-
piltarnir ekkert eftir og komust í
8:4. Strassen náði að jafna 8:8 og
þannig var staðan lengi vel. Þá
kom mjög góður kafli hjá Strass-
en-mönnum og sýndu þeir snilld-
artakta sem KA réði ekkert við.
Reyndar náðu KA-strákarnir að
klóra örlítið í bakkann en loka-
tölur í hrinunni 10:15.
Lúxemborgararnir byrjuð
þriðju hrinuna af miklum krafti
og komust í 1:6. Þá leist mönnum
ekkert á blikuna og spurðu sjálf-
an sig hvort KA ætlaði að springa
á limminu. En þeir gulklæddu
sýndu mikinn styrk er þeir náðu
að rífa sig upp úr þessari lægð og
breyta stöðunni úr 1:6 í 7:6.
Baráttan var mikil hjá báðum lið-
um á þessu leikkafla og skemmtu
áhorfendur sér hið besta við góð
tilþrif leikmanna beggja liða.
KA-liðinu gekk hins vegar erfið-
lega að stöðva smöss Strassen-
manna fyrir aftan sóknarlínuna
og það, ásamt mörgum misheppn-
uðum uppgjöfum, gerði útslagið í
þessari hrinu. KA náði að vísu að
minnka muninn í eitt stig, 11:12,
en þá gerðu gestirnir út um leik-
inn með nokkrum fallegum skell-
um og lokastaðan í hrinunni
11:15.
Alllt annað var sjá til KA-liðs-
ins í þessum leik en í leiknum fyr-
ir viku í Lúxemborg. Hávörnin
stóð sig vel og móttakan var
nokkuð góð úti á vellinum. Hins
vegar fóru allt of margar uppgjaf-
ir KA-manna í súginn og það má
ekki gerast í jafn mikilvægum
leik og þessum. Leikmenn liðsins
voru mjög jafnir að þessu sinni
og er erfitt að gera upp á milli
þeirra. Þó má geta þess að Haf-
steinn Jakobsson náði sér ágæt-
lega á strik í sóknarleiknum en of
margar uppgjafir hans fóru í
súginn. Stefán Jóhannesson og
Sigurður Arnar Ólafsson náðu
nokkrum fallegum skellum í gólf-
ið og svo stóð fyrirliðinn Haukur
Valtýsson sig vel að vanda.
Einnig átti Gunnar Garðarsson
ágæta spretti. Oddur Ólafsson
var eini varamaðurinn sem kom
inn á en annars keyrði Fei þjálf-
ari á sama liðinu, þ.e. Hauki,
Hafsteini, Stefáni Magnússyni,
Stefáni Jóhannessyni, Sigurði
Arnari og Gunnari.
Hjá Strassen bar mikið á
ClaUde Hoffmann fyrirliða og var
ótrúlegt að sjá hvað hann náði
mörgum smössum KA-manna
þótt hann væri einungis einn í
hávörninni. Lið Strassen mætir
Baeyrn Leverkusen frá V-Þýskal-
andi eða Palma frá Spáni í næstu
umferð Evrópukeppninnar í
blaki.
Áhorfendur á leik KA og
Strassen voru u.þ.b. 300 og létu
þeir vel í sér heyra.
Sigurður Arnar Ólafsson svífur hér himinhátt en hávörn Strassen er vel á verði.
Mynd: KL
Sagt eftir
leikmn
Haukur Valtýsson fyrirliði
KA:
„Það var allt annað að sjá til
okkar í þessum leik en í fyrri
leiknum í Luxemborg. Við vor-
um á taugum þar úti og náðum
okkur engan veginn á strik.
Nú gerðum við okkur grein
fyrir veikleikum andstæðinga
okkar og æfðum vel viss atriði
fyrir þennan leik. Okkur vant-
ar að vísu að vinna okkur út úr
erfiðum stöðum og það gerði
það að verkum að þeir náðu
að skora nokkur létt stig. Hins
vegar getum við vel við unað
að hafa náð þetta mörgum
stigum enda voru þetta mun
raunhæfari úrslit en í fyrri
leiknum.“
Stefán Magnússon formaður
blakdeildar KA:
Stefán sagðist vera tiltölulega
ánægður með þessi úrslit. KA-
liðið hefði sýnt það í þessum
leik að það geti spilað gott
blak og veitt jafn sterku liði og
Strassen verðuga keppni. Að
vísu hefði vantað herslumun-
inn til þess að sigra í hrinu en
andstæðingarnir hefðu hrein-
lega ekki gefið möguleika því.
„Þó að í annarri og þriðju
hrinunni hefði einungis skilið
1-2 stig að á tímabili þá var
það sýnd veiði en ekki gefin.
Við hefðum þurft að leika enn
betur til þess að vinna hrinu
gegn þessu liði,“ sagði Stefán.
Sigurður Arnar Ólafsson:
„Þetta var svona 100% fram-
för ef einungis er litið á stigin
sem við náðum í þessum leik
miðað við fyrri leikinn þannig
að maður getur ekki verið
annað en ánægður,“ sagði
Sigurður Arnar Olafsson eftir
leikinn. „Þar að auki var þessi
leikur um XA tíma lengri en
leikurinn í Lúxemborg og það
er líka framför. Við áttum
nokkra góða spretti en duttum
síðan niður á milli og það
gerði útslagið með að við náð-
um ekki að vinna hrinu að
þessu sinni,“ bætti hann við.
Réne Kugener liðsstjóri V.C.
Strassen:
„KA-liðið kom okkur nokkuð
á óvart með góðum leik. Við
vissum að þeir náðu sér ekki á
strik í fyrri leiknum gegn okk-
ur í Lúxemborg en það kom
okkur samt á óvart hve þeir
léku vel núna. Leikmenn nr. 4
(Stcfán Magnússon) og nr. 11
(Hafsteinn Jakobsson) léku
mjög vel og við máttum hafa
okkur alla við til þess að vinna
allar hrinurnar."
Alex Michcner. Nr. 4, 37
landsleikir fyrir Lúxemborg:
„Þetta var miklu erfiðari leik-
ur en sá fyrri. KA lék 120%
betur núna en þá og það kom
okkur nokkuð í opna skjöldu.
Við mætum Baeyrn Leverkus-
en eða Palma í næstu umferð
og þá verður við að ná algjör-
um toppleik til þess að eiga
nokkurn möguleik á því að
komast áfram.“