Dagur - 14.11.1989, Qupperneq 9
Strákarnir í VMA sigruðu í Vínarmótinu í innanhússknattspyrnu
sem fram fór að Hrafnagili helgina 4.-5. nóvember. Vel var að mót-
inu staðið og var sigurvegurunum boðið í mat í Vín í boði Hreiðars
Hreiðarssonar, eiganda Vínar. Strákarnir úr VMA eru allir þekktir
knattspyrnumenn og því engin furða að þeir skyldu ná þetta langt í
mótinu. Á myndinni eru þessir knáu piltar; í fremri röð: Páll Gísla-
son, Rósberg Óttarssson, Sverrir Ragnarsson. Aftari röð: Axel
Gunnarsson, Jónas Baldursson og Árni Þór Árnason.
- og sigruðu ÍBV 24:21
svaraði með þremur mörkum í
röð. Það vakti nokkra athygli að
gestirnir voru í þrjú skipti einum
leikmanni fleiri en tókst aldrei að
nýta sér liðsmuninn til þess að
komast yfir. í leikhléi var því
staðan 11:10 fyrir KA.
KA-menn komu mjög ákveðn-
ir til leiks í byrjun síðari hálfleiks
og náðu fjögurra marka forskoti,
16:12. Þrátt fyrir nokkur ágæt
tækifæri tókst þeim ekki að auka
muninn meira og þá fóru Vest-
mannaeyingarnir að bíta frá sér.
Þeir gripu til þess ráðs að taka
Erling úr umferð og við það riðl-
aðist sóknarleikur KA. Staðan
breyttist á skömmum tíma úr
19:15 í 20:20 og þá fór að fara um
áhangendur Akureyrarliðsins.
Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi en KA-strákarnir
náðu að halda haus með góðum
stuðningi áhorfenda og skoruðu
þrjú síðustu mörkin í leiknum og
lokatölur því 24:21 fyrir KA.
Bestu menn KA í leiknum
voru þeir Axel Stefánsson í
markinu og svo Erlingur Krist-
jánsson þjálfari. Axel varði mjög
vel á köflum og Erlingur er eini
útileikmaður liðsins sem hefur átt
jafna og góða leiki í vetur. í þess-
um leik bar hins vegar líka meira
á þeim Friðjóni Jónssyni og Pétri
Bjarnasyni en áður í vetur og eru
þeir vonandi að komast í sitt
gamla góða form. Sérstaklega
virkaði Pétur léttari en hann hef-
ur verið. Karl Karlsson byrjaði
inn á og skoraði tvö falleg mörk
en það vantar stundum meiri aga
hjá honum í sóknarleiknum. Það
á þó eftir að koma með meiri
leikreynslu og mun Friðjón þurfa
að hafa fyrir því að halda stöðu
sinni í næstu leikjum.
Hjá KA bar mest á þeim Sig-
urði Gunnarssyni, sem skoraði 6
af fyrstu 9 mörkum ÍBV, og síð-
an var Sigurður Friðriksson
skæður í horninu. Guðfinnur
Kristmannsson kom inn á í síðari
hálfleik og náði hann að skora
þrjú mörk með fallegum skotum
því KA-vörnin fór ekki út á móti
honum.
Dómarar voru þeir Egill Már
Markússon og Kristján Sveins-
son. Meira samræmi vantaði í
dómana hjá þeim og virtist
Kristján einkum vera óstyrkur.
Áhorfendur voru tæplega 300
en þeim fer vonandi fjölgandi
með betra gengi liðsins.
Mörk K.A: Erlingur Kristjánsson 6/3,
Friöjón Jónsson 4, Pétur Bjarnason 4,
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 4/2,
Jóhannes Bjarnason 3, Karl M. Karlsson
2, Guðmundur Guðmundsson 1. Axel
Stefánsson 12 varin skot, þar af 1 víti.
Mörk fBV: Sigurður Gunnarsson 10/3,
Sigurður Friðriksson 5, Guðfinnur Krist-
mannsson 3, Óskar F. Brynjarsson 2 og
Björgvin Þ. Rúnarsson 1. Sigmar Þ. Ósk-
arsson 11 varin skot.
Laugamótið:
- unnu sinn annan leik í röð
Skíði:
Valdimar Valdimarsson skíða-
maður frá Akureyri heldur á
morgun til Svíþjóðar til æfínga
með íslenska landsliðinu.
Hann er nýkominn frá Ítalíu
og Austurríki þar sem hann
dvaldi við æfíngar þannig að
búast má við góðum árangri
frá Valdimari í vetur.
„Það munar gífurlega um
hvern skíðadag sem maður fær,“
sagði hann í samtali við Dag um
þessar ferðir. „Ef maður ætlar sér
að ná einhverjum árangri er
nauðsynlegt að fara í svona æf-
ingaferðir.“
En það kostar sitt að fara í
svona æfingaferðir og þessir
krakkar sem eru í íslenska skíða-
landsliðinu greiða meirihlutann
af kostnaðinum sjálfir. Hvernig
gengur Valdimari að standa
straum af þessum mikla kostnaði.
„Það gengur svona og svona. Égi
var svo heppinn að nokkur fyrir-
tæki á Akureyri studdu mig til
þessarar farar til Ítalíu og Aust-
urríkis. Síðan þurfti ég að selja
bílinn minn en það verður ekki
mikill afgangur þegar ég kem til
baka aftur.“
Á Ítalíu æfði Valdimar ásamt
tveimur öðrum íslenskum skíða-
mönnum með júgóslavneska
unglingalandsliðinu og sagði
hann að það hefði verið ómetan-
leg reynsla. „Þeir eru ívið betri
en við þannig að maður fékk
mikla og góða keppni í þessari
ferð,“ sagði Valdimar.
En er þessi kostnaður og tími
þess virði að eyða í skíðaíþrótt-
ina. Valdimar hugsaði sig um í
nokkurn tíma og sagði svo: „Já,
ég held það. Ef maður ætlar sér
eitthvað þá verður að fara
erlendis til æfinga. Hins vegar er
það umhugsunarefni að íslend-
ingar geti ekki haldið úti fjögurra
manna skíðalandsliði á meðan
HSÍ og KSÍ geta haldið úti lands-
liðum með tugum þátttakenda.
Það er vonlaust að ætlast tii þess
að meðlimir skíðalandsliðsins geti
ár eftir ár lagt út stórfé til þess að
taka þátt í þessum landsliðsferð-
um, þrátt fyrir að viljann vanti
ekki. Ég er ekki með þessu að
gagnrýna stjórn SKÍ heldur að
benda á staðreynd sem íslenskir
íþróttaáhugamenn ættu að velta
fyrir sér.“
Valdimar fer suður í dag og
síðan til Svíþjóðar á morgun.
Hann kemur síðan í stutt jólafrí
til landsins en heldur síðan aftur
út til frekari æfinga og keppni.
Landsliðið mun keppa á þó
nokkrum mótum í Svíþjóð,
Finnlandi og Noregi og við mun-
um birta fréttir af því eins og
okkur er kostur.
Völsungar unnu góðan sigur á
Fylki 31:26 í 3. deildinni í hand-
knattleik á Húsavík á föstudags-
kvöldið. Sigur heimamann var
aldrei í hættu og voru þeir með sjö
marka forystu, 17:10, í leikhléi.
Líkt og Seltirningar í síðasta leik
þá virtust Árbæingarnir koma fullir
sjálfstrausts til Húsavíkur til þess
eins að hirða öll stigin. Hin mikla
barátta Völsunga kom þeim því í
opna skjöldu og fór það í taugarnar á
þeim. Á tímabili var t.d. þremur
leikmönnum þeirra vísað út af í einu
og kann það ekki góðri lukku að
stýra.
Fylkismenn komu ekki fyrr en um
átta leytið til Húsavíkur vegna seink-
unar á flugi og fóru því nánast beint
í leikinn. Völsungar voru samt ekk-
ert á því að sýna þeim neina miskunn
og keyrðu yfir þá strax á fyrstu mín-
útunum með því að skora fjögur
fyrstu mörkin í leiknum. Fylkismenn
vöknuðu þá upp við vondan draum
og reyndu að klóra í bakkann. Það
gekk ekki of vel því heimapiltarnir
sýndu mjög góðan leik í fyrri hálfleik
og náðu því sjö marka forskoti fyrir
leikhlé, 17:10.
Meiri harka hljóp í leikinn í síðari
hálfleik og höfðu nafnarnir Guð-
mundur Stefánsson og Lárusson
dómarar frá Akureyri í nógu að snú-
ast til halda leiknum niðri. Þeim
tókst það ágætlega en Fylkismenn
þurftu nú samt að hvíla í 12 mínútur
en Völsungar í 10 mínútur.
Fylkismenn söxuðu nokkuð á for-
skot Völsunga án þess þó að ógna
forystunni að neinu ráði. Lokatölur
því 5 marka sigur þeirra græn-
klæddu, 31:26.
Hinn nýi markvörður Völsunga,
Ólafur Börkur Þorvaldsson, átti góð-
an leik fyrir lið sitt og varði oft mjög
vel. Einnig átti Vilhjálmur Sig-
mundsson góðan leik í fyrri hálfleik.
Reyndar spilaði allt Völsungsliðið
ágætlega og er greinilegt að Arnar
Guðlaugsson þjálfari er að að gera
góða hluti með liðið.
Fylkismenn tefla nú fram nokkuð
breyttu liði frá því í fyrra og er uppi-
staðan ungir piltar. Þar er fremstur í
flokki markaskorari sumarsins í
knattspyrnunni, Kristinn Tómasson
og skoraði hann 11 mörk í leiknum.
Einnig bar töluvert á Þórhalli
Jóhannessyni og skoraði hann 6
mörk.
Mörk Völsunga: Jóhann Pálsson 8, Vil-
hjálmur Sigmundsson 6, Ásmundur Arnars-
son 6, Haraldur Haraldsson 5, Tryggvi Þór
Guðmundsson 3, Örvar Þór Sveinsson 2 og
Helgi Helgason 1.
Erlingur Kristjánsson stekkur upp og skorar eitt af 6 mörkum sínum í leiknum.
Mynd: KL
„Ég er auðvitað mjög ánægður
með sigurinn,“ sagði Friðjón
Jónsson fyrirliði KA-liðsins í
handknattleik sem sigraði ÍBV
24:21 á Akureyri á föstudags-
kvöldið. „Það er góður stíg-
andi í liðinu og þetta fer nú
vonandi að ganga betur eftir
þessa tvo sigurleiki í röð,“
bætti hann við.
Leikur KA og ÍBV var jafn og
spennandi en ekki að sama skapi
vel leikinn. Mikið var um feil-
sendingar og boltanum var oft
gloprað líkt og hann væri glóandi
eldhnöttur. Hins vegar verður að
segja satt og rétt frá að inn á milli
sáust líka mjög skemmtileg tilþrif
í bæði sókn og vörn og skoruðu
þeir Friðjón og Pétur t.d.
skemmtilega mörk eftir fléttur.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
og skiptust liðin á að skora. Vest-
mannaeyingar náðu að vísu að
komast tvö mörk yfir, 8:6, en KA
Handknattleikur/2. deild kvenna:
Knattspyrna:
Kristinn bestur
hjá TBA-drengjum
- Haukur Jóhannsson efnilegastur
Varnarmaðurinn Kristinn Hreins-
son var kosinn besti leikmaður
TBA í knattspyrnu á uppskeru-
hátíð knattspyrnudeildar félagsins
á laugardaginn. A sama tíma var
markvörðurinn Einar Kristjáns-
son valinn skemmtilegasti strákur-
inn í félaginu. Einnig fékk hinn
síungi Haukur Jóhannsson verð-
laun fyrir að vera efnilegasti leik-
maðurinn síðasta sumar.
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson fékk
markakóngsbikarinn en hann skor-
aði 18 mörk síðastliðið sumar í D-
riðli 4. deildar þrátt fyrir að vera
meiddur undir lok tímabilsins. Pétur
Bjarnason var heiðraður fyrir störf
að kvennamálum og Egill Áskelsson
fékk verðlaun fyrir mark sem hann
skoraði á æfingu 18. júlí í sumar.
Kristinn er nú þekktari sem hand-
knattleiksmaður með Þór en sýndi
það og sannaði í sumar að hann er
engu síðri knattspyrnumaður.
Kristinn Hreinsson var kosinn bestur
hjá TBA.
Valdimar Valdimarsson er nú á leið með íslenska skíðalandsliðinu til Svíþjóðar.
- KA í 2. sæti og
Hið sterka innanhússlið HSÞ-b
sigraði á hinu árlega Lauga-
móti í innanhússknattspyrnu.
Liðið sigraði Þór frá Akureyri
8:5 í úrslitaleik. Hvöt frá
Blönduósi náði þriðja sætinu
með því að leggja Dalvíkinga
að velli 9:6.
Það voru 20 lið frá Blönduósi
að Mývatni sem tóku þátt í mót-
inu að þessu sinni. Liðunum var
skipt í fjóra riðla og komust tvö
lið upp úr hverjum riðli. Þetta
voru lið Þórs, HSÞ-b, Hvatar,
Dalvíkur, Reynis, Völsungs,
Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki
og Magna frá Grenivík.
Þessum liðum var síðan skipt
upp í tvo riðla og komust sem
sagt lið Þórs, HSÞ-b, Hvatar og
Dalvíkur áfram.
Mótið fór mjög vel fram og var
mikil barátta í flestum riðlunum.
Stundum var markamunur látinn
ráða hvaða lið komst áfram, svo
jöfn var keppnin.
Sigur HSÞ-b var verðskuldað-
ur. í liði þeirra voru margir
þekktir kappar og má þar t.d.
Haraldur Haraldsson leikur nú aftur með Völsungum eftir ársdvöl í herbúðum KA.
Hann styrkir liðið mikið og Völsungar hafa nú unnið tvo leiki í röð.
Döpur suðurferð
- Pórsstelpurnar töpuðu báðum leikjunum
Þórsstelpurnar í 2. deildinni í
handknattleik fóru enga frægðar-
för suður um heiðar um síðustu
helgi. Þær léku tvo leiki, gegn
IBK á föstudagskvöldið og gegn
Selfossi á laugardaginn, og töpuðu
þeim báðum. Gegn ÍBK 18:13 og
gegn Selfossi 25:12.
Þórsstelpurnar náðu sér engan
veginn á strik í þessari ferð og vilja
sjálfsagt gleyma þessum tveimur
leikjum sem fyrst. í leiknum gegn
ÍBK gekk hvorki né rak gegn ungu
liði Keflavíkur. Keflvíkingar náðu
strax forystunni og leikhléi höfðu
þeir 4 marka forskot.
Það forskot hélst óbreytt í síðari
hálfleik og tókst Þórsstelpunum
aldrei að klóra í bakkann. Lokatölur
urðu því fimm marka sigur ÍBK,
18:13.
Nýtingin var mjög slök hjá Þór í
þessum leik. Þær glötuðu boltanum
eftir misheppnað markskot eða önn-
ur mistök 21 sinni í leiknum og það
er ekki hægt að vinna leik með slíkri
Þórunn Sigurðardóttir skoraði 9 mörk
fyrir Þór í tveimur leikjum.
nýtingu.
Þórunn Sigurðardóttir og Steinunn
Geirsdóttir voru markahæstar Þórs-
stúlkna í þessum leik með fjögur
mörk hvor.
Ágætt í fyrri hálfleik
gegn Seífossi
Það gekk ágætlega hjá Þór gegn .Sel-
fossi í fyrri hálfleik. Stúlkurnar léku
nokkuð skynsamlega og létu boltann
ganga. Reyndar voru nú heimastúlk-
urnar sterkari og höfðu þriggja
marka forystu í leikhléi.
í síðari hálfleik hrundi spil Þórs-
stúlknanna gersamlega. Það gekk
hvorki né rak hjá þeim og glötuðu
þær boltanum eða létu verja frá sér
hvorki í fleiri né færri en 31 skipti.
Selfossdömurnar gengu þá að
sjálfsögðu á lagið og unnu síðari
hálfleikinn 13:3. Lokatölur því 25:12
fyrir Selfoss.
Þórunn Sigurðardóttir var:sú eina
af Akureyrarstúlkunum sem sýndi
eitthvað í þessum leik og skoraði hún
7 af 12 mörkum Þórs í leiknum. En
sem liðsheild náði Þórsliðið sér
aldrei á strik í þessari ferð og ýmis-
legt sem þarf að laga fyrir næstu
leiki.
Stúlkurnar í VMA-liðinu komust í 4-liða úrslit á Framhaldsskólamóti KSÍ en þar töpuðu þær 3:0 fyrir sterku liði Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti. Hér sjást stúlkurnar ásamt Hinrik Þórhallssyni þjálfara liðsins.
Jónas Hallgrímsson og félagar í
HSÞ-b unnu Laugamótið.
Hvöt í því þriðja
nefna Hallgrímssynina og Viðar
Sigurjónsson. Þeir unnu flesta
leiki sína nokkuð örugglega og
má búast við þeim sterkum á
íslandsmótinu innanhúss eftir
áramótin.
Lið Hvatar kom nokkuð á
óvart og náði þriðja sætinu. Góð-
ur árangur það hjá Blönduósing-
unum.
8 - DAGUR - Þriðjudagur 14. nóvember 1989
Þriðjudagur 14. nóvember 1989 - DAGUR - 9
fþróffir
Handknattleikur/3. deild:
Skriður á Völsxingum
Handknattleikur/1. deild - VÍS-mótið:
KA-menn héldu haus
HSÞ-b sigraði
Það munar um hvem skíðadag
- Rætt við landsliðsmanninn Valdimar Valdimarsson