Dagur - 14.11.1989, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 14. nóvember 1989
Enska knattspyrnan:
1
íþróttir
F
Enn tapar Liverpool
Derby skoraði sex - Chelsea á toppnum
Um helgina fengu sjónvarps-
áhorfendur loks að sjá beina
útsendingu frá ensku knatt-
spyrnunni. Leikur Q.P.R.
gegn Liverpool var sýndur
bcint og var hann frábær
skemmtun. Það er örugglega
álit margra, að sýna skuli frek-
ar frá Englandi heldur en troða
þýskum leikjum að í tíma og
ótíma. Áhugi manna hér er
mun meiri á ensku knattspyrn-
unni en þeirri þýsku og ensku
leikirnir oftast mun fjörugri og
skemmtilegri. En þá er komið
að leikjum laugardagsins.
Dcan Saunders skoraði úr tveimur
vítaspyrnum fyrir Derby gegn Man.
City.
Staðan
1 deild
Chelsea 13 7-4-2 20: 9 25
Arsenal 13 7-3-3 23:15 24
Liverpool 12 6-3-3 25:10 21
Aston Villa 13 6-3-4 19:15 21
Norwich 13 5-6-2 21:16 21
Everton 13 6-2-5 20:20 20
Coventry 13 6-2-5 11:15 20
Southampton 13 5-4-4 23:20 19
Tottenham 12 5-3-4 18:18 18
Luton 13 4-5-4 13:11 17
Man.Utd. 12 5-2-5 20:19 17
Nott.Forest. 13 4-4-5 16:14 16
Derby 13 4-3-6 15:12 15
Miilwall 13 4-3-6 20:20 15
Wimbledon 13 3-6-4 11:14 15
Crystal Palace 13 4-3-6 14:26 15
QPR 13 3-5-5 13:13 14
Man.City 13 4-2-7 19:24 14
Charlton 13 34-6 11:15 13
Sheff.Wed. 13 3-3-7 6:20 12
2. deild
Sheff.Utd. 17 11-5-1 30:16 38
Leeds Utd. 17 10-5-2 30:18 35
Newcastle 17 9-5-3 33:19 32
Oldham 17 8-5-4 23:18 29
Sunderland 17 8-54 28:24 29
Swindon 16 84-4 30:17 28
Plymouth 17 8-3-6 30:19 27
West Ham 17 7-6-4 25:18 27
Ipswich 17 7-5-5 28:25 26
Blackburn 16 5-10-1 27:17 25
Wolves 17 6-6-5 25:21 24
Brighton 17 7-1-9 26:26 22
W.B.A. 17 5-5-7 30:28 20
Oxford 17 54-8 24:28 19
Bournemouth 16 54-7 23:27 19
Port Vale 17 3-8-617:2117
Watford 17 4-5-8 16:22 17
Portsmouth 17 3-6-8 18:26 17
Bradford 17 3-7-719:1916
Barnsley 17 44-9 19:38 16
Middlesbr. 16 3-6-7 20:26 15
Leicester 17 3-6-8 19:28 15
Stoke 17 2-8-7 16:28 14
Hull 17 1-10-6 17:24 13
Lið Liverpool mætti seint til
leiks gegn Q.P.R. vegna umferð-
artafa, en það voru þó meiri
vandræði sem Trevor Francis
framkvæmdastjóri Q.P.R. gekk í
gegnum fyrir þennan leik. í vik-
unni gekk hann undir aðgerð
vegna meiðsla og var að auki
gagnrýndur í blöðum af Nigel
Spackman leikmanni liðsins og
fyrrum leikmanni Liverpool.
Spackman missti stöðu sína í lið-
inu, en það var ekki eina breyt-
ingin sem gerð var því Francis
setti þá Paul Wright og Mark
Falco inn og það átti eftir að
borga sig. Wright skoraði tvíveg-
is í fyrri hálfleik fyrir Q.P.R.,
fyrra markið úr vítaspyrnu sem
dæmd var á Glenn Hysen fyrir
brot á Falco og síðan beint úr
aukaspyrnu rétt utan teigs sem
dæmd var á Hysen. A milli
marka Wright skoraði John
Barnes úr víti sem hann fékk eftir
brot Paul Parker. Steve Nicol
kom ekki inná hjá Liverpool eftir
hlé, en í hans stað lék Jan Molby
síðari hálfleikinn. Falco bætti
þriðja marki Q.P.R. við stuttu
eftir hlé, en Barnes svaraði strax
með glæsilegu marki fyrir Liver-
pool. Fleiri urðu mörkin ekki, en
David Seaman markvörður
Q.P.R. varði glæsilega frá Ian
Rush úr dauðafæri og bjargaði
þar sigrinum í höfn fyrir lið sitt.
Liverpool er í öldudal um þessar
mundir og ekki sami sjarmi yfir
leik liðsins og oftast áður, en
Q.P.R. lék mjög vel að þessu
sinni.
Chelsea heldur toppsætinu í 1.
deild eftir frækinn sigur á útivelli
gegn Everton og Liverpool-liðin
riðu því ekki feitum hesti frá
þessari umferð. Chelsea liðið lék
mjög vel, vörn þess stöðvaði
sóknarmenn Everton auðveld-
lega og miðju- og sóknarmenn
liðsins voru sívinnandi allan leik-
inn. Sigurmark Chelsea kom á 50.
mín. leiksins, Kevin Wilson
skaut að marki Everton og bak-
vörðurinn Steve Clarke fékk
boltann frá vörn Everton og
skoraði örugglega framhjá
Neville Southall í mark Everton.
Peter Beagrie lék sinn fyrsta leik
fyrir Everton eftir að hann var
keyptur frá Stoke City og átti
ágætan leik, en besti maður vall-
arins var þó Tony Dorigo
leikmaður Chelsea.
Meistarar Arsenal komust í
annað sætið með sigri á útivelli
gegn Millwall. Leikmenn Arsenaí
urðu að hafa mikið fyrir þessum
sigri í hörðum, en ekki að sama
skapi vel leiknum leik. Michael
Thomas náði forystu fyrir Arsenal
í fyrri hálfleik, hann hóf sjálfur
sóknina á miðjunni og fylgdi síð-
an fram og fékk boltann eftir að
skot Niall Quinn hafði verið
varið. Leikmenn Millwall færðust
allir í aukana við mótlætið og
John Lukic í marki Arsenal varð
að taka á öllu sínu er hann varði
tvívegis glæsilega frá Teddy Sher-
ingham. Lukic átti hins vegar
ekkert svar við glæsilegu skalla-
marki Sheringham sem jafnaði
leikinn fyrir Millwall. David
Rocastle var borinn af velli rétt
fyrir hlé meiddur, en hann jafn-
aði sig þó og kom aftur inná eftir
hlé. Sigurmark Arsenal kom á
14. mín. síðari hálfleiks, Quinn
skoraði eftir að Brian Marwood
hafði skallað boltann til hans.
Eftir markið lagðist Arsenal í
vörn og hélt fengnum hlut.
Lið Sheffield Wed. er að rétta
úr kútnum og vann auðveldan
heimasigur gegn Charlton. John
Sheridan og Phil King sem liðið
keypti nýlega styrkja liðið mjög.
King átti upphafið að fyrsta
marki Sheffield eftir 34 mín. leik,
Craig Shakespere framlengdi þá
fyrirgjöf hans til Dalian Atkinson
sem skallaði í mark. 15 mín. fyrir
leikslok bætti David Hirst við
marki fyrir Sheffield eftir send-
ingu Shakespere og hann bætti
öðru marki sínu við 7 mín. fyrir
leikslok og öruggur sigur í höfn.
Derby burstaði Man. City 6:0,
en sá sigur var of stór eftir gangi
leiksins og dómarinn var heima-
liðinu mjög hagstæður. Mark
Wright miðvörður Derbý átti
stórleik, hann skoraði fyrsta
markið eftir að hafa átt skalla í
þverslá, skallaði síðan horn-
spymu fyrir fætur Trevor Hebberd
sem skoraði annað markið og átti
síðan skalla í stöng. Dean Saund-
ers skoraði tvö mörk úr víta-
spyrnum í síðari hálfleik og Paul
Goddard og Gary Micklewhite
gerðu sitt markið hvor.
Leikmenn Tottenham virtust
vanmeta lið Wimbledon sem
margir spáðu erfiðum vetri.
Tottenham með allar sínar
stjörnur lék eins og þeir hefðu
þegar sigrað í leiknum og alla
hörku vantaði í liðið. Wimbledon
gekk á lagið og náði undirtökum
í síðari hálfleik. Eina mark leiks-
ins kom á 61. mín., skot Lawrie
Sanchez fór af David Howells í
markið hjá Tottenham og
Wimbledon hefði hæglega getað
bætt við mörkum. Gary Lineker
sást varla í leiknum og fékk ekk-
ert úr að moða frá miðjumönnum
Tottenham.
Norwich lék mjög vel gegn
Aston Villa og sigur liðsins hefði
getað orðið mun stærri en raun
varð á. Andy Townsend átti
hörkuskot í slá og Dale Gordon
skaut framhjá marki Villa eftir að
hafa leikið vörn liðsins sundur og
saman. Mörkin tvö voru ekkert
sérstök, sjálfsmark Derek
Mountfield og síðan hnoðaði
Andy Linighan boltanum í mark
eftir hornspyrnu. Gordon og Ian
Butterworth léku mjög vel fyrir
Norwich, en David Platt sem val-
inn hefur verið í landsliðshóp
Englands, átti daufan dag fyrir
Villa.
Coventry náði að merja sigur á
heimavelli gegn Southampton,
A sunnudag léku Manchester
Utd. og Nottingham For. á
Old Trafford. Lið Utd. sem
hefur átt erfitt uppdráttar að
undanförnu þurfti nauðsynlega
á sigri að halda og það tókst
með miklum erfíðismimum.
Lið Utd. átti slæman dag þrátt
fyrir sigurinn, að undanskyldum
þeim Bryan Robson, Steve
Bruce, Jim Leighton og Paul Ince
sem lék sem bakvörður áttu aðrir
slakan leik.
Forest náði strax undirtökun-
um og Leighton varði mjög vel
frá Nigel Clough, Gary Crosby
og Steve Hodge, en Forest lék
skemmtilega sóknarknattspyrnu.
Öllum á óvart skoraði Utd.
nokkrum sek. fyrir lok fyrri hálf-
leiks og var þar að verki Gary
Pallister sem annars átti afleitan
dag, var nærri búinn að skora
sjálfsmark og var síðan heppinn
að fá ekki dæmda á sig víta-
Kevin Drinkell skoraði eina
mark leiksins á 74. mín. er liðin
virtust vera að sættast á jafntefli.
Bæði lið fengu mörg færi í fyrri
hálfleik, m.a. misnotaði Kevin
MacDonald vítaspyrnu fyrir
Coventry, en lítið markvert gerð-
ist í síðari hálfleiknum þar til
Drinkell gerði sigurmarkið.
Crystal Palace varð að láta
jafntefli nægja á heimavelli gegn
Luton þrátt fyrir nokkra yfir-
burði. Mark Bright skoraði fyrir
Palace í fyrri hálfleik er hann lyfti
laglega yfir Alec Chamberlain í
marki Luton, en Danny Wilson
tókst að jafna metin fyrir Luton í
síðari hálfleiknum.
2. deild
• Sheffield Utd. hefur þriggja
stiga forskot í 2. deild eftir 1:0
sigur á útivelli gegn Boumemouth.
Carl Bradshaw skoraði markið í
fyrri hálfleik.
• Ian Baird og Andy Williams
komu Leeds Utd. í 2:0 á útivelli
gegn Leicester. Það dugði þó
ekki til sigurs, Leicester reyndist
sterkara á endasprettinum og
sigraði 4:3.
• Andy Ritchie skorar grimmt
fyrir Oldham, hann gerði sigur-
mark liðsins gegn Oxford.
• Tommy Tynan er annar mikill
markaskorari í 2. deild og hann
skoraði í sigri Plymouth gegn
Watford.
• Stórliðin West Ham og New-
castle gerðu markalaust jafntefli
á Upton Park í London.
• Tveir framkvæmdastjórar
voru reknir í vikunni frá liðum í
2. deild. Allan Clarke var rekinn
frá Barnsley, en það hafði ekki
góð áhrif og Barnsley tapaði 7:0
gegn W.B.A. þar sem Don
Goodman skoraði þrennu.
• Stoke City rak Mick Mills þar
sem Alan Ball tók við og það hafði
betri áhrif því Stoke City sigraði
Brighton 3:2. Carl Beeston,
Dave Bamber og Chris Kamara
skoruðu mörkin fyrir Stoke City.
• í 3. deild er Bristol Rovers
efst með 31 stig, en Bury og
Bristol City hafa 30 stig.
• Southend er efst í 4. deild
með 33 stig, Exeter hefur 31 stig
og Stockport og Carlisle hafa 29
stig. Á botninum í 4. deild eru
spyrnu fyrir brot á Hodge. Eftir
aukaspyrnu Lee Martin skallaði
Bruce að marki Forest og boltinn
var á leið í markið er Pallister
potaði í hann af stuttu færi. Petta
mark reyndist eina mark leiksins,
en þrátt fyrir sigurinn virðist lið
Utd. enn eiga langt í land.
• Tveir af leikmönnum Liver-
pool sem töpuðu fyrir Q.P.R. á
laugardag missa af landsleikjum í
vikunni vegna meiðsla. Steve
Nicol missir af leik SkOtlands
gegn Noregi og Ian Rush missir
af leik Wales í V-Pýskalandi.
Iwan Roberts miðherji Watford
hefur verið valinn í hans stað, en
Steve Clarke kemur inn fyrir
Nicol í landsliðshóp Skota.
Clarke skoraði sigurmark Chelsea
gegn Everton á laugardag og
Skotar þurfa jafntefli gegn Norð-
mönnum til að tryggja sér þátt-
töku í úrslitum Heimsmeistara-
keppninnar í sumar. Þ.L.A.
Colchester og Hartlepool með 9
stig. Þ.L.A.
Lawrie Sanchez skoraði sigurmark
Wimbledon gegn Tottenham.
Úrslit Úrslit í vikunni.
Dcildarbikarinn 3 umf. cndurteknir
jafnteflisleikir.
Bolton-Swindon 1:1
Bournemouth-Sundcrland 0:1
West Ham-Aston Villa 1:0
W'imbledon-Middlesbrough 1:0
1. deild
Coventry-Southampton 1:0
Crystal Palace-Luton 1:1
Derby-Manchester City 6:0
Everton-Chelsea 0:1
Manchester Utd.-Nottingh. For. 1:0
Millwall-Arsenal 1:2
Norwich-Aston Villa 2:0
Q.P.R.-Liverpool 3:2
Shellield Wed.-Charlton 3:0
Tottenham-VVimbledon 0:1
2. deild
Blackburn-Ipswich 2:2
Bournemouth-Sheflield Utd. 0:1
Bradford-Hull City 2:3
Leicester-Leeds Utd. 4:3
Middleshrough-Swindon 0:2
Oxford-Oldham 0:1
Portsmouth-Port Vale 2:0
Stoke City-Brighton 3:2
Sunderland-VVolves 1:1
VVatford-Plymouth 1:2
W'.B.A.-Barnslev 7:0
West Ham-Newcastle 0:0
3. deild
Birmingham-Leyton Orient 0:0
Blackpool-Brentford 4:0
Bristol City-Bolton 1:1
Bury-Reading 4:0
Crewe-Mansfield 2:1
Fulham-Cardiff City 2:5
Huddersfield-Northampton 2:2
Notts County-VVigan 1:1
Rotherham-Chester 5:0
Shrewshury-Bristol Rovers 2:3
Swansea-Prcston 2:1
Tranmere-W'alsall 2:1
4. deild
Aldcrshot-Hartlepool 6:1
Chesterfield-Stockport 1:1
Colchester-Cainbridge 1:2
Halifax-Southend 1:2
Lincoln-Gillingham 1:3
Maidstone-York City 1:0
Pelerborough-Hcreford 1:1
Rochdale-Doncaster 1:3
Scarborough-Exeter 1:2
Scunthorpe-Burnley 3:0
Torquay-Carlisle 1:2
Wrexham-Grimsby 0:1
Heppnissigur Man. Utd.
á Nottmgham For.