Dagur - 14.11.1989, Síða 13
Þriðjudagur 14. nóvember 1989 - DAGUR - 13
Fæddur 1. júlí 1970 - Dáinn 7. nóvember 1989
í gegnum tíðina hef ég oft verið
spurð hver minn uppáhaldsnem-
andi hafi verið. Þessu er erfitt að
svara, því að öll börn hafa eitt-
hvað til síns ágætis. Þó hef ég
yfirleitt nefnt Kristján Loft.
Hvað ætli það hafi verið, sem
gerir Kristján mér hugstæðari
öðrum nemendum? Varla verður
sagt að hann hafi verið til fyrir-
myndar hvað varðar samvisku-
semi eða snyrtilegan frágang í
stílabókum! Það er hins vegar
staðreynd, að hann var einhver
greindasti krakki sem ég hef
kynnst. Sú staðreynd skiptir sjálf-
sagt máli, en ég veit, að mér þótti
Kristján fyrst og fremst svo
skemmtilegur. Þegar fólk hlær
eða brosir að sömu hlutum
myndast með því samkennd og
því líður vel saman. Við Kristján
hlógum að því sama, hvort sem
það var setning úr sögubók, til-
vitnun í kennslustund, eða
skammarræða frá mér, sem nálg-
aðist nöldur og skipti ekki máli.
En það var einmitt um hluti sem
skipta máli sem okkur Kristján
greindi á. Hvað skiptir máli fyrir
unga menn? Hvað skiptir yfirleitt
máli ef út í það er farið? Eg þótt-
ist vita best hvað skipti máli fyrir
Kristján; langaði til að móta
hann eins og leir eftir mínum
hugmyndum. En það er valdbeit-
ing, og greindir og viljasterkir
menn fara sínar eigin leiðir. Ég
býst við að leið Kristjáns hafi oft
verið erfið eins og hjá flestum
unglingum, sem leita að svörum
um framtíðina. Þeir eru kvíðnir
og óöruggir, en verða samt að
leita sjálfir.
Fjögur ár eru nú liðin síðan
Kristján Loftur útskrifaðist frá
Húsabakkaskóla. Síðan þá höf-
um við aðeins hist á götu; slógum
þá á létta strengi og frestuðum
alltaf að ræða um það sem máli
skiptir. Nú er hann dáinn og það
er sorg og söknuður í mínum
huga.
Elsku Rósa og Sölvi. Við á
Húsabakka sendum ykkur og
öðrum aðstandendum dýpstu
samúðarkveðjur.
Júlíana Lárusdóttir.
..Öllu er íit'mörkud stund.
og sérhver hlutur undir himninum
hefur sinn tímn. “
Préd. 3:1.
„Kenn oss nð telju dagti voru
að vér megum öðlnst viturt hjarta."
Sálm. 90:12.
Mósaikmyndir eru samsettar úr
fjöldanum öllum af smáum stein-
um í ýmsum litum og hefur þeim
verið raðað í ákveðið mynstur,
þannig að útkoman verður falleg,
samstæð heild.
Maðurinn er mótaður á sama
hátt af ótal þáttum, mismunandi
eiginleikum hæfileikum og
gáfum. Þeim hefur verið komið
fyrir í samræmi við ákveðið innra
mynstur og útkoman verður sú
persóna sem við þekkjum og
umgöngumst. Ávallt eru sömu
steinarnir notaðir en á ólíka vegu
og við erum misjafnlega fljót að
fuligera myndina sem við höldum
að sé hin eina rétta.
Vinur minn, Kristján Loftur,
hafði fullgert sína mynd og hún
mun lifa í minningunni heilsteypt
og skýr, þótt sjálfur hafi hann
horfið af landi lifenda svo fljótt,
og alltof fljótt að því er okkur
finnst. En slysin spyrja ekki um
stað eða tíma. Það verðum við að
reyna að sætta okkur við. E.t.v.
átti Kristján einhverja steina eftir
að dómi sumra til að fegra enn
sína mynd, en treystum því að
hann fái þá tækifæri til þess í ver-
öld Guðs.
Hann var ungur og hann lifði
hratt eins og margur af hans
kynslóð. Við ræddumst stöku
sinnum við þessi fáu ár sem leiðir
lágu saman og ævinlega hafði
hann sínar skoðanir á hreinu.
Hann vissi að lífið er gjöf frá
Guði og dýrmætast af öllu og
þess vegna held ég að hann hafi
líka treyst því að það væri í hendi
hans hvað sem kynni að koma
fyrir.
Ég vil líka treysta því og aðeins
nota þetta tækifæri til að þakka
samverustundirnar. Ég minnist
hans svo oft þegar fjölskyldan
kom saman og ég minnist veiði-
ferðanna, bæði með honum ein-
um og einnig ásamt með nafna
hans og afa.
Nú hefur Kristján horfið okkur
um stund en það er okkar vissa
von að hinn hæsti höfuðsmiður
muni leiða okkur saman að
lokum. „Sérhver hlutur hefir sinn
tíma.“
Megi góður Guð blessa minn-
ingu Kristjáns Lofts og styrkja
aðstandendur hans og vini í sorg
þeirra.
Helgi Sigfússon.
I.O.O.F 15 = 17114118'/2=9. ER.
I.O.O.F Ob. 2E171111581/2. 9. IT.
ET. 1.
Frá Sálarrannsóknarfélaginu á
Akureyri.
Aðalfundur félagsins verður haldinn
fimmtudaginn 16. nóvember kl.
20.30 í verslunarhúsi KEA við
Kaupvangsstræti, efstu hæð (gengið
inn að sunnan).
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Borgarbíó
Alltaf nýjar
myndir
Símsvari 23500
Hvímsutttiummn HamnswA
Þriðjud. 14. nóv. kl. 20.00,
æskulýðsfundur 10-13 ára börn vel-
komin.
Minningarspjöld Slysavarnafélags
íslands fást á eftirtöldum stöðum:
Bókabúð Jónasar, Bókvali og
Blómabúðinni Akri.
Styrkið Slysavarnafélagið í starfl.
Hraðfiski
bátur
Framleiðum þennan 22 feta
hraðfiskibát.
Afhentur á öllum byggingastigum.
T^Trefia
Trefjaplast hf.
Efstubraut 2, 540 Blönduós,
sími 95-24254.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtöldum fasteignum
fer fram á eignunum sjálfum
á neðangreindum tíma:
Garðarsbraut 48, Húsavík, þingl.
eigandi Foss hf., mánudaginn 20.
nóvember ’89 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður, Iðnaðarbanki
(slands hf., innheimtumaður ríkis-
sjóðs, Byggðastofnun, Ásgeir Thor-
oddsen hdl, Ásdís J. Ftafnar hdl,
Guðjón Ármann Jónsson hdl,
Gjaldskil sf., Hróbjartur Jónatans-
son hdl., Gústaf Þór Tryggvason
hdl., Hallgrímur B. Geirsson hdi.,
Þorsteinn Eggertsson hdl., Björn
Ólafur Hallgrímsson hdl., Sigurður
Sigurjónsson hdl. og Landsbanki
íslands.
Hálsvegur 2, Þórshöfn, þingl. eig-
andi Óli J. Jónsson, föstud. 17. nóv.
’89 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Örlygur Hnefill Jónsson hdl., inn-
heimtumaður ríkissjóðs og Jón
Ólafsson hrl.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu,
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Sundáhugamenn!
Númer Sundfélagsins
Óðins í getraunum er
597
Sundfélagið Óðinn.
_ekki
----------------------------------------------------------------------\
AKUREYRARB/ÍR
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 16. nóvember 1989 kl. 20-22
veröa bæjarfulltrúarnir Áslaug Einarsdóttir og
Sigurður Jóhannesson til viðtals á skrifstofu
bæjarstjórnar, Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
AKUREYRARBÆR
Auglýsing um
lögtök
Þann 26. október sl. kvað bæjarfógetinn á Akur-
eyri upp lögtaksúrskurð fyrir gjaldföllnum en
ógreiddum gjöldum til bæjar- og hafnarsjóðs
Akureyrar álögðum árið 1989.
Gjöldin eru þessi.
Útsvör, aðstöðugjöld, kirkjugarðsgjöld, fasteigna-
skattur, holræsagjald, vatnsskattur, lóðarleiga og
hafnargjöld.
Lögtökin verða látin fara fram án frekari fyrirvara
fyrir ofangreindum gjöldum á kostnað gjaldenda
en á ábyrgð bæjar- og hafnarsjóðs að liðnum átta
dögum frá birtingu þessarar auglýsingar.
Bæjargjaldkerinn, Akureyri.
r ^.
Hjartans þakkir til ættingja og vina,
fyrir heimsóknir, gjafir, blóm,
heillaóskaskeyti og kort, á 90 ára afmæli
mínu 2. nóvember síðastliðinn.
Sérstakar þakkir til barna minna,
tengdabarna og barnabarna,
fyrir framlag þeirra og fyrirhöfn, til að gera
mér daginn ógleymanlegan.
Guð gefi ykkur blessun sína.
Lifið heil.
LAUFEY SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
Norðurgötu 31, Akureyri.