Dagur - 14.11.1989, Side 16
Jólakort með þínum myndum
★ Sérstakt tilboð
í nóvember
cPediomyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, simi 23324.
Útflutningur Fiskmiðlunar Norðurlands á Ítalíuskreið:
Hitamollan heldur ítölum
fr á norðlensku skreiðinni
- Nígeríumenn vilja kaupa en lítið er til af skreið ofan í þá
„Við erum að vona að hægt
verði að Ijúka útflutningi á
Ítalíuskreiðinni fyrir áramót.
Það gæti þó brugðið til beggja
vona. Okkur grunar að Ital-
arnir hafi hug á að bíða eftir
að árlegur frír tollakvóti á
skreið og saltfisk verði settur á
Húsnæðismál Háskólans á Akureyri:
Standa verður við sam-
þykkt ríkisstjómarimiar
- segir heilbrigðisráðherra
„Ég hlýt að leggja á það
áherslu að þarna verði náð
fram einhverri leiðréttingu
þannig að hægt verði að hefja
þetta nám samkvæmt þeim lín-
um sem lagðar hafa verið,“
segir Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra og 1. þing-
maður Norðurlandskjördæmis
eystra, um húsnæðismál sjáv-
arútvegsbrautar Háskólans á
Akureyri.
,Auðvitað verða menn að
skoða sínar ítrustu óskir og ég
leyfi mér að fullyrða að þeir
norðanmenn séu tilbúnir til að
líta á þetta mál með tilliti til
þjóðfélagsaðstæðna. En hitt er
alveg ljóst að það verður að ná
fram leiðréttingu sem menn geta
við unað. Ríkisstjórnin hefur
samþykkt að hefja þetta nám á
Akureyri af sóma og við það
verður að standa,“ segir Guð-
mundur. óþh
Röskun í innanlandsflugi Flugleiða:
Þrír af fimm Fokkerum
strand um helgina
Nokkur röskun varð á innan-
landsflugi Flugleiða um helg-
ina vegna vélabilana í Fokker-
vélum félagsins sem notaðar
eru í innanlandsflugi. Þrjár af
fimm vélum félagsins voru
ekki í notkun og þurfti því að
grípa til þotuflugs til Akureyr-
ar. I gær var flug komið í eðli-
legt horf þar sem tvær vélanna
voru komnar í umferð á ný og
sú þriðja átti að komast í gagn-
ið í dag.
Að sögn Gunnars Odds Sig-
urðssonar umdæmisstjóra Flug-
leiða voru farnar tvær ferðir með
Boeing-þotum til Akureyrar um
helgina, ein ferð á laugardags-
kvöld og önnur á sunnudag.
Þetta nægði til að koma öllum
farþegum sem áttu bókað far á
áfangastað. Gunnar sagði að ekki
hefði þurft að grípa til þess að
sameina flug vegna þessa þar sem
flug hefði komist í eðlilegt horf í
gær. Tvær vélanna voru þá
komnar í umferð og sú þriðja átti
að komast í gagnið í dag. VG
eftir áramótin,“ segir Hall-
steinn Guðmundsson, starfs-
maður Fiskmiðlunar Norður-
Iands á Dalvík, þegar hann var
inntur eftir útflutningi á Ítalíu-
skreið.
Hallsteinn segir að gangur út-
flutnings á Ítalíuskreiðinni sé
hægari en menn hafi bundið von-
ir við. Hann segir að yfirleitt sé
flutt út vikulega en þó hafi ekkert
farið í síðustu viku. Búið er að
flytja út um helming þeirrar
skreiðar sem seld verður á vegum
Fiskmiðlunar Norðurlands af
framleiðslu þessa árs. „Þetta
gengur nokkuð hægar en reiknað
var með og kenna Italir veðurfar-
inu um. Við seljum mest til
suðurhluta Ítalíu og þar hafa ver-
ið miklir hitar fram að þessu. Sal-
an á skreiðinni markast af hita-
stigi þar suður frá, því heitara því
minna af skreið og því kaldara
því meira vilja þeir af skreið."
Hallsteinn segir að ekki standi
á greiðslum frá Italíu fyrir skreið-
ina. Ekkert er sent út nema fyrir
hendi séu óafturkræfar ábyrgðir.
Þannig liggja fyrir allar trygging-
ar áður en skreiðin er send úr
landi.
Fiskmiðlun Norðurlands selur
einnig skreið til Nígeríu og eru
hausarnir þar í meirihluta. „Það
er lítið til af skreið fyrir Nígeríu-
markað en við höfum getað losn-
að við þá skreið sem tiltæk er. Að
vísu eru verðin frekar lág. Þetta
eru opinber verð sem menn
verða að fara eftir,“ segir Hall-
steinn Guðmundssson. óþh
Ari Gunnarsson með hluta veiði sinnar á rjúpnaveiðitímabilinu. Hér
hanga ríflega 300 fuglar. „Þó veiðin sé stór þáttur í þessari íþrótt þá er
útiveran og fjallgangan líka stór hluti,“ segir Ari.
Fengsæll ijúpnaveiðimaður
Dalvíkingurinn Ari Gunnars-
son hefur ekki slegið slöku við í
rjúpnaveiðinni í haust. Hann
hefur þegar fengið um 400 fugla
sem hann hefur veitt í 14
ferðum. Veiðisvæðið er við
vestanverðan Eyjafjörð þar sem
hann hefur nánast farið á alla þá
staði þar sem rjúpu er að vænta.
Þrátt fyrir að vera kominn með
400 fugla ætlar hann ekki að
láta staðar numið því takmarkið
er að veiða 500 í ár. Rætt er við
þennan fengsæla rjúpnaveiði-
mann á bls. 3 í blaðinu í dag.
JÓH
Stóra sfldin finnst ekki:
„Menn eru orðnir svartsýnir“
- segir Sævar Ingvarsson, stýrimaður á Arnþóri EA-16
„Okkur gengur bara ágætlega.
Viö erum nú komnir með 515
tonn eftir 10 daga sem líklega
verður að teljast ágætt,“ sagði
Sævar Ingvarsson, stýrimaður
á Arnþóri EA frá Árskógs-
strönd, í gær þegar Dagur leit-
aði fregna af sfldveiðum fyrir
Atvinnukönnun Félagsvísindastofnunar:
Meiri samdráttur hjá fyrirtaekjum
í Reykjavík en á landsbyggðmni
- tæplega 3% vinnandi fólks óttast að missa atvinnu sína á næstunni
Félagsvísindastofnun Háskóla
Islands hefur birt niðurstöður
úr könnun á stöðu atvinnu-
mála á landinu á árunum 1987-
89 og atvinnuhorfum. Skýrslan
sýnir að atvinnuþátttaka fólks
á aldrinum 18-75 ára var 81-
83% á árinu 1988 en í október
1989 var hún komin niður í
78%. Atvinnuleysi karla hefur
aukist nokkuð en á síðustu
mánuðum hefur skráð atvinnu-
leysi kvenna minnkað. Umtals-
verður hluti fólks hefur horfið
af atvinnumarkaði án þess að
skrá sig í atvinnuleysi.
Um helmingur vinnandi fólks
segir að það merki samdrátt í
starfsemi fyrirtækisins eða stofn-
unarinnar sem það vinnur hjá.
Athygli vekur að samdrátturinn
virðist meiri í Reykjavík en á
landsbyggðinni. I Reykjavík
sögðust 56,4% merkja samdrátt
en 49,5% á landsbyggðinni.
Reykjanes var einnig sérstaklega
tiltekið í könnuninni og þar virð-
ist ástandið best, 41,7% aðspurðra
sögðust greina samdrátt.
Þegar litið er á landið allt virð-
ist samdrátturinn mestur í land-
búnaði (72,2%), verslun og sam-
göngum (54,2%) og iðnaði
(50,7%), en minni í sjávarútvegi
og opinberri þjónustu.
Fleiri karlar en konur eru á
vinnumarkaði en atvinnuþátttaka
beggja kynja hefur minnkað.
Karlar vinna einnig lengri vinnu-
tíma en konur. Þó hefur vinnu-
tími þeirra styst um eina klukku-
stund á viku meðan vinnutími
kvenna hefur lengst.
Nærri 3% vinnandi fólks segist
óttast að missa atvinnu sína á
næstu vikum eða mánuðum
vegna samdráttar í þjóðfélaginu.
Það er nærri þrefalt stærri hópur
en nú er skráður í atvinnuleysi.
Ófaglært verkafólk og þeir sem
starfa í iðnaði óttast atvinnuleysi
meira en fólk í öðrum atvinnu-
greinum. Opinberir starfsmenn
virðast öruggastir um vinnu sína.
SS
suðaustan land. Arnþór var þá
að fara frá bryggju á Seyðis-
firði en þar Iandaði skipið 130
tonnum sem fengust í einu
kasti á miðunum.
„Þetta hefur mest verið fryst
enda er þetta millisíld af stærð-
inni 28-30 cm. Stóra síldin finnst
hins vegar ekki og menn eru að
verða svartsýnir á að hún komi,“
segir Sævar um veiðarnar sem
síðustu dagana hafa verið frá
Hornafirði og vestur undir Hrol-
laugseyjar.
Hann segir að ef samningar
takist um sölu á síld til Rússlands
muni það verð sem sjómennirnir
fá fyrir síldina hækka. Nú eru
greiddar um 9 kr. meðalverð fyrir
kílóið af millisíldinni í frystingu
á Evrópumarkað. Væru samning-
ar í höfn og stór síld á miðunum
væri verðið 2-3 krónum hærra að
meðaltali. „Þetta er kannski ekki
alvont, alla vega ekki meðan við
sleppum við bræðsluna því þá eru
ekki greiddar nema um 4 kr. fyrir
kílóið,“ segir Sævar.
Sævar segir „nýja“ Arnþór
reynast vel, en skipið var keypt á
dögunum frá Y^stmannaeyjum.
Síldarkvóti skipsins er samtals
2200 tonn. JÓH