Dagur - 01.12.1989, Síða 7
hvað.er að gerast
Föstudagur 1. desember 1989 - DAGUR - 7
r-
Hús Bernörðu Alba:
Síðasta sýning
Vegna mikillar aðsóknar hefur
Leikfélag Akureyrar ákveðið að
hafa aukasýningu á leikritinu
Hús Bernörðu Alba um helgina.
Sýningin verður á laugardags-
kvöld kl. 20.30 og er þetta allra
síðasta sýning á þessu rómaða og
vinsæla verki. Þeir sem hafa hing-
að til stigið í annan fótinn eru því
hvattir til að stíga í þá báða núna,
tíminn er naumur.
Næsta verkefni Leikfélags
Akureyrar er barna- og fjöl-
skylduleikrit systranna Iðunnar
og Kristínar Steinsdætra, Eyrna-
langir og annað fólk, sem frum-
sýnt verður 26. desember.
Styrktarfélag
vangefinna:
Jólabasar í
Húsi aldraðra
Styrktarfélag vangefinna heldur
jólabasar í Húsi aldraðra á Akur-
eyri laugardaginn 2. des. kl. 14.
Þar verða til sölu kökur og alls
kyns munir. Félagar eru beðnir
að skila kökum og munum í Hús
aldraðra á milli kl. 11 og 13 á
laugardag.
Bubbi Morthens.
Bubbi í Sjallanum
Bubbi Morthens kemur fram á
tónleikum í Sjallanum á Akur-
eyri um helgina. Fyrri tónleikar
kappans verða í kvöld og þeir
seinni annað kvöld. Bæði kvöldin
byrjar tónaflóð Bubba kl. 21.
Það er víst óþarfi að kynna
meistara Bubba Morthens. Hann
hefur komið fram með hvert
meistaraverkið á fætur öðru á
undanförnum árum og nægir þar
að nefna Konu, Frelsi til sölu,
Dögun og nú síðast Nóttina
löngu. Sú síðastnefnda hefur nú
þegar selst í rúmum 5 þúsund
eintökum og það áður en sjálf
jólagjafaverslunin hefst fyrir
alvöru.
Myndlist:
Óli G. sýnir í Gamla Lundi
Myndlistarmaðurinn Óli G.
Jóhannsson heldur sýningu á
verkum sínum í Gamla Lundi um
helgina. Sýningin er opin laugar-
dag og sunnudag kl. 14-23 báða
dagana.
Öli G. Jóhannsson á 60-70
nýleg verk í fórum sínum, stór
sem smá, og mun hann sýna eins
mörg og húsrúm leyfir með
góðu móti. í samtali við Dag
sagði Óli að efni málverkanna
væri raunsætt, hann hefði lagt
abstraktverk á hilluna og einbeitt
sér að veruleikanum.
Sýning Óla G. er sölusýning og
það skal ítrekað að hún stendur
aðeins yfir í tvo daga. Hún hefst
kl. 14 laugardaginn 2. nóvember
og henni lýkur á sunnudagskvöld
kl. 23.
Óli G. sýnir ný verk um helgina,
Aðventukvöld í
Akureyrarkirkju
írski trúbadúrinn Michael Kiely.
Kiely kynnir nýja
plötuáUppanum
Um helgina og raunar öll kvöld
til 9. desember nk. skemmtir
írski trúbadúrinn Michael Kiely á
Uppanum á Akureyri. Hann hef-
ur áður skemmt Akureyringum á
Uppanum og er þekktur fyrir að
ná upp mikilli og góðri stemmn-
ingu.
Michael Kiely mun að þessu
sinni m.a. kynna nýja tveggja
laga plötu sem hann hefur gefið
út. Platan ber nafnið „LAND OF
ICE AND FIRE“ eða „land ísa
og elda“. Lög og textar eru eftir
Michael Kiely.
Lag á a-hlið plötunnar ber
sama nafn og platan, LAND OF
ICE AND FIRE. Um þetta lag
hefur Kiely þau orð að á þrem
mínútum spanni það íslands-
söguna allt frá dögum víkinga til
þess dags er ísland gekk í Nato.
Opið hús í
Dansstúdíói Alice
Á morgun, laugardaginn 2. des.,
verður opið hús í Dansstúdíói
Alice frá kl. 14-17. Öllum er vel-
Desember-
tónleikar
Suzuki-defldar
Hinir árlegu desembertónleikar
Suzuki-deildar Tónlistarskólans á
Akureyri, verða haldnir í Lóni,
sunnudaginn 3. desember kl.
15.00.
Sunnudaginn 3. des. er eitt ár lið-
ið frá því félagið ÓLUND hóf
starfsemi sína. ÓLUND hefur á
starfsferii sínum rekið útvarps-
stöð, gefið út blað, haldið fjölda
tónleika ásamt fleiri menningar-
uppákomum á Akureyri.
Haldið verður uppá ársafmælið
með útgáfu smásagna- og ljóða-
bókar sem inniheldur verk níu
ungra höfunda. Bók þessi er um
80 bls. að stærð og er gefin út í
200 tölusettum eintökum. Vakin
skal athygli á því að þetta er
fyrsta íslenska bókin sem prent-
uð er á endurunninn pappír.
í tilefni afmælisins og útgáfu
bókarinnar, efnir ÓLUND til
útgáfukvölds sunnudagskvöldið
3. des. í Möðruvallakjallara
Menntaskólans á Akureyri. Þar
munu höfundar lesa úr verkum
sínum ásamt fleiri uppákomum.
komið að fylgjast með danstím-
um hjá börnum og unglingum
eða taka þátt í leikfimitíma, sér
að kostnaðarlausu. Þeim, sem
eru nú þegar farnir að huga að
einhvers konar hreyfingu eftir
áramótin, gefst þarna tækifæri til
að kanna hvað er í boði og henti
þeim.
Kennarar skólans verða á
staðnum og svara fyrirspurnum
og leiðbeina um val á tímum sé
þess óskað.
Video verður í gangi allan tím-
ann þar sem sýnt verður frá nem-
endasýningum.
Kaffi og te verður á könnunni
og piparkökur með.
Bókin er til sölu hjá höfundum
og kostar kr. 800.-. Einnig er
hægt að panta bókina með því að
skrifa ÓLUNDAR-félögum.
Heimilisfangið er; ÓLUND póst-
hólf 9 602 Akureyri.
Skógræktarfélag Austurlands og
Framfarafélag Fljótsdalshéraðs
standa fyrir kynningarfundi um
„Héraðsskóga" sunnudaginn 3.
des. kl. 13.30 í Valaskjálf Egils-
stöðum.
Þar verða m.a. flutt erindi um
bændaskóga, landgræðsluskóga,
Næstkomandi sunnudagskvöld,
3. desember kl. 20.30, verður
haldið árlegt aðventukvöld í
Akureyrarkirkju. Ræðumaður
kvöldsins verður Ólafur Hergill
Oddsson, héraðslæknir. Flutt
verður fjölbreytt tónlist og Sigrún
Sigurðardóttir og Þóra Braga-
dóttir sjá um helgistund.
Fjölmargir tónlistarmenn
leggja sitt af mörkum. Þar má
nefna Lilju Hjaltadóttur, Waclaw
Lazarz og Dorot Manzcyk. Þá
syngja Kór Barnaskóla Akureyr-
ar og Kór Akureyrarkirkju undir
stjórn Björns Steinars Sólbergs-
sonar, organista kirkjunnar.
Meðal annars munu kórarnir
flytja saman „Guðs kristni í
heimi“ og „Hátíð fer að höndum
ein“, sem Jón Hlöðver Áskelsson
Kaffiogköku-
basar í Hlíð
Kvenfélagskonur úr Kvenfélag-
inu Framtíðinni ásamt hjúkrun-
ar- og starfsfólki mun halda
kökubasar og selja vöfflukaffi
laugardaginn 2. desember kl.
15.00 í Dvalarheimilinu Hlíð á
Akureyri.
Ágóðinn rennur til altaris-
kaupa og lagfæringa á kapellu
dvalarheimilisins, en ráðgert er
að altari verði tilbúið fyrir jóla-
hátíðina. „Gaman væri ef flestir
sæju sér fært að koma í Hlíð
þennan dag. Með fyrirfram þakk-
læti fyrir veittan stuðning, Kven-
félagið Framtíðin og hjúkrunar-
og starfsfólk Hlíðar,“ segir í
fréttatilkynningu. EHB
um umhverfisáhrif skógræktar og
um flutning aðalskrifstofu skóg-
ræktar ríkisins til Austurlands.
Fyrirlesarar eru lykilmenn
hver á sínu sviði. Allt áhugafólk
um skógrækt er hvatt til að mæta
á fundinn.
hefur útsett.
Aðventukvöldinu lýkur með
ljósahátíð, sem notið hefur mikilla
vinsælda. Kirkjugestir halda á
kertum og syngja í lokin sálminn
Heims um ból.
Michael Kiely er nú í sinni
fimmtu heimsókn á íslandi og
mun að þessu sinni koma fram á
Uppanum á Akureyri, Rauða
Ljóninu í Reykjavík og Vitanum
Sandgerði.
Maharishi Maliesh
Yogi
Innhverf íhugun
- Námskeið
Kynningarfundur um Innhverfa íhugun verður
haldinn í fundasal Hótel Norðurlands á morgun,
laugardaginn 2. des. kl. 11.00 fyrir hádegi og er
hann öllum opinn. Sjálfsþroskatækni Maharishi
Mahesh Yoga losar spennu, virkjar hugann og
eykur árangur.
Nánari upplýsingar í síma 91-678178.
íslenska íhugunarfélagið.
LAUFABRAUÐ
Laufabrauð
Tekið á móti pöntunum
í okkar sívinsæla
laufabrauð
í öllum kjörbúðum KEA
og í Brauðgerð
Verð 29 krónur stk.
mn
Brauðgerð, sími 21400.
Kaffiveitingar.
Ólund á eins árs afmæli á sunnudaginn:
Afmælisins minnst með út-
gáfu smásagna- og ljóðabókar
- útgáfukvöld í Möðruvallakjallara
á sunnudaginn
Kymiingarfundur um
„Héraðsskóga“ í Valaskjálf