Dagur - 24.05.1990, Page 1
73. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 24. maí 1990
97. tölublað
Stúdentastjörnur
14 kt. gull
Einnig slúdentarammar og
fjölbreytt úrval
annarra stúdentagjafa
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
tekinn í slipp og skorið gat á síðuna
„Það sýnist Ijóst að Björgúlfur
verði að minnsta kosti frá veið-
um í þrjár vikur,“ sagði Valdi-
mar Bragason, útgerðarstjóri
Útgerðarfélags Dalvíkinga.
Ásrafallinn í Björgúlfi EA
brann þegar hann var á
heimleið síðla sunnudags-
kvölds. Togarinn var tekinn
upp í Slippstöðinni á Akureyri
á mánudagskvöldið og þar var
unnið að því í gær að skera gat
á síðu hans til þess að ná ásraf-
alinum út.
Valdimar sagði síðdegis í gær
að ekki væri ljóst hvort reyndist
unnt að gera við ásrafalinn, en
líkur á því hefðu aukist. Hvort
sem gert yrði við hann eða nýr
fenginn frá Noregi, væri ljóst að
skipið yrði frá veiðum í að
minnsta kosti þrjár vikur.
Ásrafallinn, sem er 800 kíló-
vött, er hið mesta flykki. Valdi-
mar áætlaði að hann væri um þrjú
tonn á þyngd. Hann er staðsettur
aftan við aðalvél skipsins, ofan á
Kópasker:
Vantar fólk
ívinnu
„Það er ekki hægt að segja
annað en atvinnuástandið sé
mjög gott þó svo að kaupfélag-
ið hafi þurft að leggja upp
laupana,“ segir Ingunn
Svavarsdóttir, oddviti Prest-
hólahrepps, aðspurð um
atvinnuástandið á Kópaskeri.
„Sem stendur vantar fólk í
rækjuvinnsluna og í slátrun hjá
Silfurstjörnunni. Iðnaðarmenn á
svæðinu hafa líka haft mikið að
gera,“ sagði Ingunn.
Gistihúsið á Kópaskeri hefur
nu verið opnað undir stjórn nýrra
rekstraraðila sem aðkomnir eru á
staðinn. Þá verður mikil breyting
á póstþjónustu á staðnum innan
tíðar þegar tekið verður í notkun
nýtt húsnæði fyrir Póst og síma.
Þetta húsnæði leysir eldra hús af
hólmi. JÓH
niðurfærslugírnum. Til þess að
rannsaka hann vel og vandlega
var nauðsynlegt að skera gat á
síðu skipsins og ná honum þannig
út.
„Það er alveg óskýrt hvað
þarna hefur gerst. Þetta gerðist á
siglingu, ekki undir neinu álagi,“
sagði Valdimar.
„Ofan á þetta bætist að við
höfðum áformað að fara með
Björgvin EA í lestarviðgerð í
Slippstöðinni á mánudaginn
kemur. Það er mjög bagalegt að
þurfa að breyta þeim áformum.
Ef ekki kemur til önnur hráefnis-
útvegun, getur þetta óhapp sett
verulegt strik í reikninginn,"
sagði Valdimar. óþh
Stund milli stríða.
Mynd: KL
Niðurstöður víðtækrar könnunar á innkaupavenjum íslendinga:
Raufarhafnarbúar til rakara í Reykjavík
Akureyringar eru duglegastir
aö kaupa vörur og almenna
þjónustu í sinni heimabyggð,
samkvæmt könnun sem gerð
var á innkaupavenjum í 37
svéitarfélögum. Að meðaltali
eru 95,75% af öllum innkaup-
um gerð innan sveitarfélagsins
á Akureyri. Húsavík er næst í
röðinni með 93,49%, þá
Reykjavík með 91,81% og
Sauðárkrókur með 91,13% af
innkaupum í heimabyggð.
Þessar upplýsingar inunu koma
frám í skýrslu sem ívar Jónsson
hjá Félags- og hagvísindastofnun
íslands hefur unnið fyrir Verð-
lagseftirlit. Verðlagseftirlitsmenn
í sveitarfélögunum höfðu hönd í
bagga með að kanna hvernig
kaupum á alls- 34 flokkum vöru
og þjónustu var háttað. Fyrri
hluti skýrslunnar, Svæðisbundnir
markaðir á íslandi, mun væntan-
lega koma út í næstu viku.
Dagur hefur aflað sér upplýs-
inga um nokkra helstu þætti þess-
arar viðamiklu skýrslu sem lúta
að sveitarfélögum á Norðurlandi.
Könnuð voru innkaup heimila í
sveitarfélagi heimilis sem hlutfall
af heildarinnkaupum í viðkom-
andi flokki vöru og þjónustu.
Einnig var kannað hvar viðkom-
andi vara eða þjónusta var keypt
ef hún var keypt utan sveitarfé-
lagsins.
Tölurnar sem getið var um hér
í upphafi eru meðaltal allra vöru-
flokka, en það er mjög misjafnt
eftir flokkum hvernig innkaupum
er háttað. Ef við lítum á Norður-
land eystra kaupa Akureyringar,
Ólafsfirðingar og Húsvíkingar
matvæli og helstu nauðsynjar nær
eingöngu í sinni heimabyggð.
Dalvíkingar sækja hins vegar
mikið af vörum og þjónustu til
Akureyrar. Raufarhafnarbúar
sækja töluvert til Akureyrar,
Reykjavíkur og Húsavíkur,
minnst þó til Húsavíkur. Athygli
vekur að meirihluti karla á Rauf-
arhöfn sækir hársnyrtiþjónustu til
Reykjavíkur.
Það sem Akureyringar sækja
helst utan bæjarfélagsins eru föt,
þó í minna mæli en önnur sveitar-
félög á Norðausturlandi. Akur-
eyringar eru líka nokkuð dugleg-
ir að kaupa Iiúsgögn í Reykjavík
svo og hljómflutningstæki en
annars virðast þeir sjálfum sér
nógir.
Á Norðurlandi vestra mun
staðan vera þannig að íb.úar á
Blönduósi, Sauðárkróki og Siglu-
firði kaupa matvæli aðallega
heimabyggð. Þá kernur í Ijós að
Blönduósbúar og Sauðkrækingar
versla meira í Réykjavík en á
Akureyri en Siglfirðingar beina
innkaupum sínum frekar til
Akureyrar. Blönduósbúar kaupa
hljómflutningstæki í Reykjavík
en þangað sækja Sauðkrækingar
húsgögn og Siglfirðingar föt.
Nánar verður greint frá þess-
um könnunum þegar skýrslan
kemur út en í niðurstöðum henn-
ar mun m.a. koma í ljós að ísland
er ekki einn markaður, eins og
.margir höfðu talið í ljósri bættra
samgangna, heldur margir
svæðisbundnir markaðir. SS
Akureyri:
Húsaköramn á Oddeyri lokið
- niðurstöðurnar notaðar við framtíðarskipulag
Húsakönnun á Oddeyri, sem
Hjörleifur Stefánsson arkitckt
gerði, er nú lokið en töluverð
vinna er þó eftir við úrvinnslu
og frágang skýrslunnar. Að
sögn Árna Olafssonar, skipu-
Tónlistarviðburður á Akureyri annað kvöld:
Kim Larsen og félagar norður í dag
Danska poppgoðið Kim Lar-
sen heillar margan Norðlend-
inginn ef marka má forsölu
aðgöngumiða á tónleika hans
annað kvöld. Stórpopparinn
danski og sveit hans Bellami
koma til Akureyrar í dag og á
morgun verða þeir félagar
áberandi í miðbæjarlífínu.
Hápunkturinn í heimsókninni
til Akureyrar verður kl. 20.30
annað kvöld þegar Larsen þen-
ur raddböndin í hljóðkerfí
fólk á öllum aldri hefur tryggt sér miða
Reykjavíkurborgar sem sett
verður upp í IþróttahöIIinni í
dag.
Kim Larsen mun árita plötur í
hljómdeild KEA eftir hádegi á
morgun og taka lagið ásamt
félögum sínum í göngugötunni
kl. 16.30.
í gær hófst forsala aðgöngu-
miða í verslununum Ábæ á Sauð-
árkróki og Torginu á Siglufirði,
sem og hjá Ferðaskrifstofu Húsa-
víkur. Sætaferðir verða frá öllum
þessurmstöðum og einnig frá Dal-
vík og Ólafsfirði.
Forsala hefur staðið yfir frá því
á föstudag í verslununum Tölvu-
tæki-Bókval og Sunnuhlíð á
Akureyri. Starfsfólk í þessum
verslunum sagði í samtali við
blaðið í gær að Larsen og félagar
virtust heilla alla aldurshópa og
töluvert hafi verið um miðapant-
anir úr nágrannasveitunum.
Búast megi því við vaxandi fram
að tónleikunum. JÓH
Iagsstjóra Akureyrarbæjar, er
varðveislugildi húsa á Oddeyri
metið í þessari könnun.
Niðurstöður könnunarinnar
verða hafðar til hliðsjónar við
gerð deiliskipulags Oddeyrar, en
könnunin er liður í undirbúningi
fyrir það skipulag.
„Niðurstöðurnar úr þessari
könnun verða notaðar við
ákvörðun varðandi landnýtingu
eða skipulag á svæðinu; hvað
menn vilja gera, hvernig menn
vilja endurnýja, byggja upp eða
varðveita. Við höfum þarna efni
til að byggja á þegar ákvarðanir
verða teknar," sagði Árni.
I könnuninni eru engar tillögur
um hvað eigi að gera við húsin
eða hvar eigi helst að byggja,
heldur er hér aðeins um hlutlaust
mat á varðveislugildi húsa á
Oddeyri að ræða. Það mun síðan
koma í hlut nýrrar skipulags-
nefndar að sjá um framgang
deiliskipulags fyrir Oddeyri, en í
framtíðinni má gera ráð fyrir að
einhver hús hverfi og ný verði
byggð í staðinn. SS
Æðarvarp í Aðaldal
„Barátta við vargiim
„Við sinnum æðarvarpinu
mikið. Þetta er erfíð barátta
við varginn, hann sækir svo
fast á. Fuglinn er lítið sestur
enn, hann er seinni á ferðinni,
eins og svo margt á þessu vori.
Varpið er mest í eyjum Mýrar-
vatns og ögn niður við Laxár-
ós,“ sagði Vigfús B. Jónsson,
bóndi að Laxamýri í S-Þing.
,Þetta gengur í bylgjum, en
númer eitt, tvö og þrjú er að
verja varpið. Sérstakur minka-
veiðimaður er hér starfandi og
eins veiðum við mink í boga.
Svartbakurinn sækir fast á ung-
ana, þegar þeir fara niður til
sjávar, og er skotinn án afláts.
Það má aldrei slaka á,“ sagði
Vigfús. ój
Ásrafall í Björgúlfi EA brunninn:
Verður frá veiðum í að
minnsta kosti þrjár vikur