Dagur - 24.05.1990, Síða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 24. maí 1990
hvað er að gerast
Leikfélag Akureyrar:
Síðustu sýningar
á Fátæku fólki
Föstudagskvöldið 25. maí og
sunnudagskvöldið 27. maí verða
21. og 22. sýning á leikritinu
Fátækt fólk eftir Böðvar Guð-
mundsson/Tryggva Emilsson hjá
Leikfélagi Akureyrar, og eru það
jafnframt síðustu sýningar.
Leikritið var frumsýnt á mið-
vikudegi fyrir páska og hafa við-
tökur verið eins og best verður á
kosið. Húsfyllir hefur verið á
nánast hverja sýningu og eru
áhorfendur orðnir tæplega fjögur
þúsund talsins.
Sem kunnugt er var það
Böðvar Guðmundsson, rit-
höfundur, sem samdi leikritið -
að frumkvæði Leikfélags Akur-
eyrar - upp úr endurminninga-
bókum Tryggva Emilssonar,
Fátækt fólk og Baráttan um
brauðið. Böðvar er búsettur í
Danmörku og komst því ekki á
frumsýningu verksins, en hann er
nú á leið til íslands og verður sér-
stakur gestur Leikfélagsins á sýn-
ingunni á föstudagskvöld.
Ef uppselt verður á báðar helg-
arsýningarnar er mögulegt að
koma á aukasýningum helgina á
eftir - hvítasunnuhelgina.
Með Fátæku fólki lýkur far-
sælu leikári hjá Leikfélagi Akur-
eyrar og er undirbúningur fyrir
næsta leikár vel á veg kominn.
Fyrsti „Aglow“ fundur-
inn á Hótel KEA
Nú stendur til að stofna kristinn
kvennahóp, sem heitir „Aglow“
hér á Akureyri.
„Aglow“ eru samtök kristinna
kvenna, sem hafa helgað líf sitt
Jesú Kristi, Frelsara sínum og
Drottni. Það er mánaðarlegur
fundur kvenna úr fjölda kirkju-
deilda og af öllum þjóðfélagsstig-
um, sem koma saman til að til-
biðja Guð, lofa Hann og segja
öðrum frá því hvers virði Jesús
Kristur er þeim.
Fyrsti fundurinn verður hald-
inn mánudaginn 28. maí kl. 20.30
á Hótel KEA. Ester Jakobsen
talar Guðs orð. Janice Dennis
kynnir samtökin.
Kaffiveitingar kr. 500.
Allar konur eru hjartanlega
velkomnar.
Húseigendur athugið!
Tek að mér pappalögn á þök einnig kústun með
Aquaseal 40.
Upplýsingar í síma 23070.
Sigurður Hannesson, byggingameistari,
Austurbyggð 12, Akureyri.
Illl Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins á Húsavík
er að Garðarsbraut 5, Garðari (2. hæð) og er
opin sem hér segir:
Virka daga kl. 20.30-23.00. Laugard. og sunnudaga kl.
15.00-19.00
B-listinn hvetur fólk til þess að líta inn og ræða
bæjarmálin og kosningarnar.
Kaffi á könnunni.
B-listinn minnir stuðningsfólk sitt, sem verður fjarver-
andi úr bænum á kjördegi, á utankjörfundar-
atkvæðagreiðsluna.
Lítið inn. Leitið upplýsinga.
Síminn er 41225.
Framsóknarflokkurinn.
y/sr -Utboð
VST hf. fyrir hönd Hagkaups hf. óskar eftir til-
boðum í viðbyggingu við Norðurgötu 62, Akur-
eyri.
Byggingin er um 600 m að stærð.
Verklok eru 1. október 1990.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen Glerárgötu 30, Akureyri frá og með 25.
maí gegn 15.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað 8. júní 1990 kl.
11.00
VST hf.
I dag kynnum við stúlkurnar í 1. deildarliði Þórs. Þær urðu í 6. sæti á íslandsmótinu í
fyrra og hlutu þá 6 stig. Nokkrar breytingar hafa orðið á hópnum, liðið hefur misst þær
Kolbrúnu Jónsdóttur og Hörpu Örvarsdóttur, sem eru hættar, og Astu Baldursdóttur
sem leikur með FH í sumar. I staðinn komu Gerður Guðmundsdóttir frá Þrótti Nes-
kaupsstað og Friðrika Illugadóttir og Jórunn Jóhannsdóttir sem byrjuðu aftur. Þá eru
ótaldar stúlkur sem komu upp úr 2. flokki. I kynninguna hér að neðan vantar Soffíu
Frímannsdóttur, Gerði Guðmundsdóttur og Jórunni Jóhannsdóttur.
Friðrika Illugadóttir 23 ára
Inga S. Pétursdóttir 16 ára
Sveindís Benediktsd. 19 ára
Heiðrún Frímannsd. 15 ára
Ingibjörg Júlíusd. 19 ára
Valgerður Jóhannsd., 27 ára
„Þetta verður strögl“
- segir Sigurður Pálsson, þjálfari
„Ég er svona hæfilega bjart-
sýnn á sumarið. Þetta verður
strögl eins og alltaf. Liðin fyrir
sunnan eru klassa fyrir ofan
okkur þannig að hérna er það
aðallega baráttan milli Þórs og
KA sem máli skiptir,“ segir
Sigurður Pálsson, þjálfari.
Það er mikill aðstöðumunur
hér og fyrir sunnan. Þessar stelp-
ur þurfa að fá að spila meira við
betri aðstæður. Tæknin er
kannski ekki upp á það besta en
það vantar ekki kraftinn og áhug-
ann.
Varðandi sumarið þá reynum
við bara að gera góða hluti og
hafa gaman af þessu. Megin-
áherslan verður lögð á að vera
fyrir ofan KA en auðvitað reyn-
um við einnig að reyta stig af hin-
um liðunum,“ segir Sigurður.
Inga L. Matthíasd. 16 ára
Laufey Svavarsd. 16 ára
Steinunn Jónsdóttir 20 ára
Þórunn Sigurðard. 26 ára
Sigurður Pálsson þjálfari