Dagur - 07.06.1990, Page 3
fréttir
Fimmtudagur 7. júní 1990 - DAGUR - 3
t
Pokasjóður Landverndar:
Plastpokapeningamir lyfta grettistaki í irnihverfismálum
Landgræðslu- og náttúru-
verndarsamtök íslands, Land-
vernd, eru að verða eitt mikil-
virkasta afl í umhverfisvernd
og gróðurverndarmálum hér á
landi. Á þessu ári veitir Land-
vernd 11 milljónum króna til
73 verkefna á þessu sviði en
þessir fjármunir koma úr
pokasjóði Landverndar sem
stofnaður var þegar sérstakt
gjald var lagt á sölu á plastpok-
um í matvöruverslunum hér á
landi.
Á síðasta ári var veitt tæpum 7
milljónum króna úr áðurnefnd-
um sjóði til 36 verkefna en taka
verður með í reikninginn að
þetta gjald var ekki lagt á plast-
poka fyrr en 1. mars á því ári.
Samkvæmt upplýsingum Land-
verndar hafa þessar tæpu 18
'milljónir króna farið til land-
græðslu, gróðurverndar og skóg-
ræktar. Sé dærni tekið um ein-
staka landshluta má nefna að
Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda hefur stofnað
hlutafélagið Union Islandia
S.A. á Spáni, sem tekið hefur
við allri sölu- og markaðsstarf-
semi SÍF sem opnuð var í Bar-
celona um áraniótin 1987-
1988. Union Islandia S.A. er
fyrsta erlenda dótturfyrirtæki
SÍF, en söluskrifstofa hefur
verið starfrækt í Genúa á Ítalíu
um langt árabil, auk skrifstof-
unnar í Barcelona.
Að sögn forsvarsmanna SÍF er
helsti tilgangurinn með stofnun
dótturfyrirtækis á Spáni að efla
enn frekar alla sölustarfsemi SÍF
á Spánarmarkaði, sem er mjög
mikilvægur markaður fyrir salt-
fiskframleiðslu landsmanna. Að
sögn Magnúsar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra SÍF, er afar
þýðingarmikið að tryggja og
styrkja verðmæt viðskiptasam-
bönd við saltfiskkaupendur á
Spáni, sem mörg hver eru meira
en hálfrar aldar gönrul.
Á síðasta ári flutti SÍF út 10
þúsund tonn af saltfiski til Spánar
fyrir þrjá milljarða króna. Það
sem af er þessu ári hafa verið
flutt út 8 þúsund tonn af saltfiski
til Spánar.
Stjórn Union Islandia S.A.
skipa Tryggvi Finnsson, Húsa-
vík, stjórnarformaður, Gunnar
Tómasson, Grindavík og Sigurð-
Norðurland eystra hefur fengið 3
milljónir af þessu fé til ýmissa
umhverfisverkefna.
I gögnum frá Landvernd kem-
ur fram að hluti af gjaldi þeirra
plastpoka sem merktir eru með
merki Landverndar rennur í
pokasjóðinn en á hinn bóginn eru
þær verslanir til sem nýta sér
undanþágu í lögum og selja plast-
poka án þess að láta hluta af and-
virði þeirra renna til Landvernd-
ar. Á þann hátt eru verslanirnar
að næla sér í peninga í stað þess
að láta andvirði pokasölunnar
renna til umhverfismála í land-
inu.
Úthlutun styrkja úr poka-
sjóðnum er með þeim hætti að
skipuð var sérstök fagnefnd til að
fjalla um umsóknir, leggja á þær
mat og gera tillögur til stjórnar
Landverndar um úthlutanir.
Þessa nefnd skipa aðilar frá
Landvernd, Háskóla íslands,
Hinu íslenska Náttúrufræðifé-
ur Haraldsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri SÍF. Fram-
kvæmdastjóri er Jose Solemou,
sem sá um rekstur söluskrifstofu
SÍF í Barcelona. óþh
lagi, Skógræktarfélagi íslands.
Kaupmannasamtökunum og Sam-
bandsverslunum.
Á þeim tíma sem liðinn er frá
upphafi gjaldtöku fyrir plastpoka
hefur samstarf við verslanir verið
gott. Samkvæmt upplýsingum
Landverndar hafa flestar verslan-
ir gert skil í hverjum mánuði.
Eins og áður segir hefur verið
úthlutað fyrir yfirstandandi ár 11
milljónum króna úr pokasjóðn-
um. Þetta fé dreifist vítt og breitt
um landið en alls eru 73 aðilar
sem sjá um framkvæmdirnar. Ef
litið er á úthlutanir til Norður-
lands kemur í ljós 'að á Norður-
landi vestra fengu 7 aðilar úthlut-
un en 11 á Norðurlandi eystra.
Aðilarnir á Norðurlandi vestra
eru eftirtaldir: Litlu Græningj-
arnir til skjólbeltageröar við
Reykjaskóla í Hrútafirði, Skóg-
ræktarfélag Ásahrepps til plöntu-
kaupa fyrir reit félagsins að Hofi
í Vatnsdal, Lionsklúbburinn Lilj-
ur á Blönduósi til uppgræðslu í
hvömmunum noröan Blöndu
gegnt Hrútey, Skógræktarfélag
Skagastrandar til gróðursetning-
ar á svæði félagsins í útjaðri
Skagastrandar, Húnavallaskóli til
gróðursetningar við skólann,
Skógræktarfélag Vestur-Húna-
vatnssýslu til viðhalds girðinga,
plöntukaupa, auglýsinga, vinnu
o.fl. á útivistarsvæði í Kirkju-
hvammi ofan Hvammstanga og
Skógræktarfélag Skagfirðinga til
framhalds Reykjahólaverkefnis.
Eftirtaldir aðilar á Norðurlandi
eystra fá styrk á þessu ári:
íþróttafélagið Leiftur í Ólafsfirði
til uppgræðslu í og við skriðurnar
sem féllu á bæinn í ágúst 1988,
Kvenfélag Ljósvetninga til kaupa
á trjáplöntum sem plantað verð-
ur innan girðingar við Stórutjama-
skóla, Skógræktarfélag Suður-
Þingeyinga til grisjunar og
umhirðu í Fossselsskógi, Golf-
klúbbur Húsavíkur til trjáræktar
og uppgræðslu á svæði klúbbsins
í Kötlum við Húsavík, Árskógs-
hreppur til skógræktar og um-
hverfismála í hreppnum, Prest-
hólahreppur til umhverfisbóta
við Kópasker. Brynjar Skarphéö-
insson á Akureyri til girðinga til
aö friða fágætt landsvæði sem
nær 100 m frá sjó og uppundir
Vaðlaheiðarbrún til þess að gera
athugun á trjágróðurleifum og
kvæmatilraunir, Skógræktarfélag
Eyfirðinga í samstarfi við
umhverfisnefnd Akureyrar og
Landgræðslu ríkisins til giröinga,
stíga- og slóðagerðar og plantna,
Melgerðismelar í Saurbæjar-
hreppi tl friðunar lands og gróð-
ursetningar, Grýtubakkahreppur
til kaupa á trjáplöntum til gróð-
ursetningar á Grenivík og Kven-
félagið Freyja á Raufarhöfn til
kaupa á fræi og áburði til a'ð
græöa upp land í nágrenni Rauf-
arhafnar. JÓH
SUNNUH L í Ð
Fimmtudagur 7. júní
Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda:
Opnar skrifstofu á Spáni
Upplýsingar
vegna MA-
hátíðar
Eins og fram kom í blaðinu í gær
verður skrifstofa vegna MA-há-
tíðar í íþróttahöllinni á Akureyri
að kvöldi 16. júní n.k. opin dag-
ana 14., 15. og 16. júní. Fram að
þeim tíma verða gefnar allar upp-
lýsingar um hátíðina hjá Ólafi H.
Oddssyni í síma: 96-24284 eða
Nönnu Þórsdóttur í síma: 96-
22199 niilli kl. 17 og 19 virka
daga.
• Boðið upp ó vöfflur og kaffi í Raflandi
• Kynning á slökkvitœkjum og frœðsla um
eldvarnir, sérfrœðingar á staðnum frá
kl. 13-18
• Hljóðfœrakynning
• Myndataka af börnum í skrípamótum frá
kl. 14-15 og 16.30-17.30
• Kynning á ITC-félagsskapnum
• Kynning á framtíðarskipulagi í Glerárhverfi
• Kynning á skóm frá Strikinu
• Vörukynningar hjá KEA frá kl. 16-19
• Kynning á sportfatnaði, tœkifœrisfatnaði,
brauðum og fleiru
• Sýning á útisvœði á hjólhýsum,
tjaldvögnum, tjöldum og útilegubúnaði
• Barnabókakynning
• Sýning á módelflugvélum
• Sýning á tréútskurði
• Getraun í gangi, verðlaun 10.000 kr. úttekt
í Sunnuhlíð
• Kynning á Claude Langy snyrtivörum í
versluninni Ynju frá kl. 14-18.
í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð á Akureyri eru 20
verslanir og þjónustuaðilar
Njóttu vorsins með okkur og láttu sjá þig á
Vordögum 1990