Dagur - 07.06.1990, Page 4
nn^An
rsr\r\ u
4 - DAGUR - Fimmtudagur 7. júní 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Skarpari línur í
bæj arpólitíkinni
Flestum á óvart tókst sjálfstæðismönnum og
alþýðubandalagsmönnum á Akureyri að ná sam-
komulagi um meirihlutasamstarf í Bæjarstjórn
Akureyrar á því kjörtímabili sem nú er hafið. Mál-
efnasamningur nýja meirihlutans var samþykktur á
félagsfundum beggja flokka í fyrrakvöld, þótt marg-
ir væru ekkert yfir sig hrifnir af samstarfi þessara
fjandvina í íslenskri pólitík.
Sem fyrr segir var þessi meirihlutamyndun um
margt óvænt. Fyrir það fyrsta hafa þessir tveir
flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag,
fram til þessa ekki átt mikla samleið á stjórnmála-
sviðinu, enda stefnumið og áherslur flokkanna í öll-
um veigamestu málum afar ólík. Samstarfssamn-
ingur flokkanna er því væntanlega hin fróðlegasta
lesning og víst að báðir hafa þurft að víkja verulega
frá yfirlýstri stefnu til að skapa einhvern samstarfs-
grundvöll. Má í því sambandi m.a. nefna mjög ólík-
ar áherslur flokkanna gagnvart stóriðju við Eyja-
fjörð, tekjuöflun bæjarsjóðs og uppbyggingu félags-
lega kerfisins. í annan stað er ljóst að flokkarnir
hafa minnihluta bæjarbúa á bak við sig, því í ný-
afstöðnum kosningum hlutu flokkarnir tveir ein-
ungis 46,7% greiddra atkvæða. Báðir töpuðu veru-
legu fylgi frá bæjarstjórnarkosningum 1986, eða
samtals 657 atkvæðum, þótt báðir næðu að halda
óbreyttri fulltrúatölu í bæjarstjórn. Það getur því
engan veginn hafa talist ótvíræður vilji bæjarbúa að
þessir flokkar tækju við forystuhlutverkinu í bæjar-
stjórn, þótt sú hafi orðið raunin. Þvert á móti lýsir
útkoma flokkanna tveggja í bæjarstjórnarkosning-
unum ákveðnu vantrausti bæjarbúa á störf þeirra á
síðasta kjörtímabili. Þetta sést ef til vill best á því
að fylgi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er nú hið
minnsta um mjög langt skeið og að Alþýðubanda-
lagið tapaði tæpum þriðjungi þess fylgis sem það
hafði fyrir fjórum árum.
Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur hafa mjög
nauman meirihluta í Bæjarstjórn Akureyrar, sam-
tals 6 fulltrúa á móti fjórum fulltrúum Framsóknar-
flokksins og einum fulltrúa Alþýðuflokks. Það má
því ekkert út af bera ef meirihlutinn á að halda velli
út kjörtímabilið. Sannast sagna hefðu Akureyringar
þurft á traustari meirihluta að halda eins og málum
er komið í bænum. Á hinn bóginn er ljóst að þeir
flokkar sem skipa minnihluta bæjarstjórnar á kjör-
tímabilinu munu veita Sjálfstæðisflokki og Alþýðu-
bandalagi öflugt aðhald og leitast eftir fremsta
megni við að koma fram stefnumálum sínum. Með
þessari skipan mála mun sú lognmolla, sem á síð-
ustu árum hefur verið viðloðandi Bæjarstjórn Akur-
eyrar og störf hennar, væntanlega heyra sögunni
til. Pólitískar línur munu skerpast og ágreiningsmál
og mismunandi áherslur minnihluta annars vegar
og meirihluta hins vegar munu væntanlega koma
skýrt fram. Það er í sjálfu sér ánægjulegt og verður
bæjarfélaginu örugglega til framdráttar þegar til
lengri tíma er litið. BB.
Feðgarnir leggja á ráðin um hinn fullkomna glæp; Broderick, Connery og Hoffman.
Vel lukkaður stjörnukokkteill
Borgarbíó sýnir: Fjölskylduverknað
(Family Business).
Leikstjóri: Sidney I.umet.
Aðalhlutverk: Sean Connery, Dustin
Hoffman og Matthew Broderick.
Tri-Star 1989.
Það er mikið lán að Sean Conn-
ery er orðinn of gamall fyrir
Bond-flekunina. Fyrir vikið fáum
við að sjá hann í mun skemmti-
legri hlutverkum eins og til dæm-
is því er hann leikur í Fjölskyldu-
verknaðinum. Hann er síbrota-
maður, blessunarlega laus við allt
siðferði. Aðeins líðandi stund
hefur gildi. En um leið er Conn-
ery faðir og afi. Sonurinn er leik-
inn af Dustin Hoffman. Til að
byrja með hélt ég að þetta væri
ekki sígilt Hoffmans-hlutverk en
annað kom fljótlega á daginn.
Hoffman er kjötkaupmaður sem
elur tniklar vonir í brjósti fyrir
hönd sonar síns. Hann er ham-
ingjusamlega giftur, á skítnóga
peninga en er engu að síður
óánægður nieð ævistarfið, kjöt-
kaupmennskuna. Hvers vegna er
ekki gott að segja - ástæðan
skiptir raunar ekki máli. Surnt er
einfaldlega leiðinlegra en annað
og þarfnast engra skýringa. En
kannski vegna þess að Hoffman
er á rangri hillu verður hann í
Fjölskylduverknaðinum eins og
vanmetagemlingur eða jafnvel
utanveltubesefi. Um leið er
Hoffman kominn í gömlu rulluna
aftur; rulluna sem hann hefur
alltaf leikið og nægir að nefna í
því sambandi Little Big Man,
Tootsie og auðvitað Rain Man,
en öllu lengra mun Hoffman ekki
komast í túlkun sinni á utanveltu-
manni samfélagsins. í Fjöl-
skylduverknaðinum er Hoffman
að feta sig til baka frá Regn-
manninum en þeim einhverfa
bregður engu að síður greinilega
fyrir í kvikmyndinni. Takið til
dæmis eftir atriðinu þar sem þeir
feðgar eru að kaupa inn fyrir
ránið.
Broderick er þriðja stjarnan,
sonarsonurinn. Hann er séníið
sem á sér þann draum æðstan að
verða sjálfstæður og ekki síst
hrósverður einstaklingur í augum
föður síns. En það er á brattann
að sækja og hvorugur virðist fær
um að skilja hinn. Og þáð é‘r°eiW-
mitt þessi sonar-föður tog,Úréít;i'
sem gerir Fjölskylduvcrknað áð
meiri kvikntynd. Hún er nefni-
lega ekki aðeins spennumynd
heldur einnig svolftil lexía í upp-
eldisfræðum. Sterkur persónu-
leiki Connerys er eins og rammi
utan um hina tvo; hann er líkt og
heilagur andi í sakramenti Lúters-
trúarmanna, undir og yfir og allt
í kringum.
Skrifstofutæknarnir 16, sem útskrifaðir voru laugardaginn 16. inaí. Efri röð, frá vinstri: Elías Árnason, Albert
Jensen, Lydía A. Helgadóttir, Eyrún Hermannsdóttir, Jóna Kristín Guðmundsdóttir, Sólveig Jóhannsdóttir, Erla
Elísabet Sigurðardóttir, Erik Jensen, Valgeir Anton Þórisson og Benedikt H. Sigurgeirsson. Fremri röð frá vinstri:
Halldóra Stefánsdóttir, Erla Hallgrímsdóttir, Sigrún Haraldsdóttir, Helgi Kristinsson, framkvæmdastjóri Tölvu-
fræðslunnar Akureyri; Laufey Stefánsdóttir, Lísa Sigurðardóttir og Bylgja Sveinbjörnsdóttir. Ljósmynd: Páll A. Pálsson.
Tölvufræðslan Akureyri:
Skrifstofutæknar útskrifaðir
Laugardaginn 26. maí sl. voru
16 skrifstofutæknar útskrifaðir
frá Tölvufræðslunni Akureyri.
Skrifstofutækninámskeið
Tölvufræðslunnar Akureyri er
um 260 klukkustundir að lengd
og skiptist í tölvu- og viðskipta-
, greinar. Þetta er fjórði hópurinn
sem útskrifast frá Tölvufræðsl-
unni Akureyri á þessari önn, þar
af voru tveir á Akureyri, einn á
Húsavík og einn á Patreksfirði.