Dagur - 07.06.1990, Síða 7
Fimmtudagur 7. júní 1990 - DAGUR - 7
Samviskufangar
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli
almennings á máli eftirtalinna
samviskufanga. Amnesty vonar
að fólk sjái sér fært að skrifa bréf
til hjálpar þessum mönnum og
skipi sér á bekk með þeim, sem
berjast gegn mannréttindabrot-
um á borð við þau, sem hér eru
virt vettugi.
íslandsdeild Amnesty gefur
einnig út póstkort til stuðnings
föngum mánaðarins. Hægt er að
gerast áskrifandi að þessum kort-
um með því að hringja til skrif-
stofunnar, Hafnarstræti 15, virka
daga frá kl. 15-18 í síma 16940.
Malawi: Thoza Khonje, 42 ára
svæðisstjóri malawíska sykur-
fyrirtækisins. Honum er haldið
án dóms og laga í Mikuyu fang-
elsinu í Zomba.
Thoza Khonje er frá norður-
hluta Malawi, en starfar í suður-
hluta landsins. Hann var hand-
tekinn, ásamt tveimur vinum
sínum, 28. febrúar 1989 í Nehalo
verslunarmiðstöðinni. Talið er að
ríkisstjórn lýðveldisins hafi fjölda
uppljóstrara á sínum snærum og
virðist einn þeirra hafa heyrt
ummæli Khonje urn nýlega fyrir-
skipun lífstíðarforsetans Kamuzu
Banda, um að senda kennara frá
norðurhluta landsins til síns
heima. Khonje sagði slíkt myndi
leiða til hruns menntakerfisins,
því meirihluti kennara er frá
norðurhluta Malawi. Þessi
ummæli voru túlkuð sem gagn-
rýni á lífstíðarforsetann og urðu
til þess að Khonje var handtek-
itin ásamt félögum sínum. Hand-
takan varð á sama tíma og Banda
forseti kom af stað nýjustu her-
ferð sinni gegn íbúum frá Norð-
ur-Malawi. Þeir hafa verið sakað-
ir um að hafa í hyggju að ganga
úr ríkjasambandi við Malawi og
fyrir tilraun til að þróa eigin efna-
hagskerfi og skaða þar með aðra
hluta landsins. Gefið var í skyn
að kennarar frá Norður-Malawi,
sem ynnu í mið- og suðurhluta
landsins, slægju slöku við kennsl-
una. Fyrirskipun Banda forseta
um að flytja kennara til norður-
hlutans kom ekki til fram-
kvæmda, að því er virðist vegna
sömu ástæðna og Khonje hélt
fram.
Amnesty er kunnugt um 13
aðra Malawibúa frá norðurhluta
landsins sem handteknir voru í
ársbyrjun 1989 við svipaðar
kringumstæður. Þeir eru allir
samviskufangar. Á meðal þeirra
eru opinberir starfsmenn, kenn-
arar, námsmenn og einn læknir.
Þeir virðast vera í haldi sam-
kvæmt öryggisreglugerð landsins
frá 1965. Fyrirskipanir um varð-
hald á að endurskoða á 6 mánaða
fresti, en það er sjaldan gert og
fólk er haft í haldi í ótakmarkað-
an tíma án dóms og laga.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að Thoza
Khonhe verði tafarlaust látinn
laus. Skrifið til:
His Excellency the Live Presi-
dent Ngwazi
Dr. H. Kamuzu Banda
Office of the President and the
Cabinet
Private Bag 388
Liliongwe 3
Malawi
Sovétríkin: Pavel Solovyov, 38
ára gamall meðlimur í hvíta-
sunnusöfnuði. Hann var dæmdur
í þriggja ára fangelsi fyrir að
halda trúarsamkomu undir beru
lofti.
Pavel Solovyov var handtekinn
í febrúar 1989 eftir að hafa leitt
unglinga syngjandi sálma um
einn af almenningsgörðum Slavy-
ansk í Úkraínu. 3. mars 1989 sak-
aði dómstóll í Donetsk hann um
„meinfýsin spellvirki" skv. 206.
grein úkraínsku hegningarlag-
anna. 18. grein alþjóðlega sátt-
málans um borgarlegan og
stjórnmálalegan rétt. tryggir rétt
einstaklingsins til að stunda trú
sína opinberlega eða í kyrrþey,
einn eða í hópi annarra. Frá því
1988 hafa sovésk yfirvöld haldið
því fram að fólk sé ekki handtek-
ið fyrir trúariðkun sína. Með því
að ásaka einstakling urn „mein-
fýsin spellvirki" er viðkomandi
refsað fyrir að „raska ró almenn-
ings vísvitandi og sýna þjóð-
félagslegt virðingarleysi". Þetta
hafa sovésk yfirvöld oft notað til
að refsa fyrir friðsamlegar að-
gerðir sem þau sætta sig ekki við.
Amnesty telur að fangelsun
Pavel Solovyov brjóti í bága við
rétt hans til trúfrelsis og iítur því
á hann sem samviskufanga.
Hvítasunnusöfnuðurinn er
kristilegur trúflokkur bókstafs-
trúarmanna sem festi rætur sínar
í Rússlandi í byrjun þessarar
aldar. í trú safnaðarins eru mörg
atriði sem stangast á við þær
ströngu reglur sem sovésk yfir-
völd hafa sett um trúariðkun. Á
síðastliðnum 20 árum hafa tugir
hvítasunnusafnaðarmanna lent í
fangelsi fyrir að boða trú sína eða
fyrir að neita að gegna herþjón-
ustu.
Frá árinu 1987 hafa a.m.k. þrír
hvítasunnumenn verið fangelsað-
ir fyrir að neita að gegna her-
þjónustu, en sama ár hófusovésk
yfirvöld að láta lausa hundruð
samviskufanga. Pavel Solovyov
er fyrsti hvítasunnumaðurinn
sem vitað er til að hafi verið fang-
elsaður á undanförnum árum fvr-
ir að boða trú sína.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að hann verði
tafarlaust látinn laus. Skrifið til:
Yu Reshetov
Head of the Human Rights Sect-
ion
USSR Ministry of International
Affairs
pr. Kalinina 9
Moscow
USSR/Sovétríkin
Myanmar: Nay Min, 42 ára
garnall lögfræðingur, var hand-
tekinn 21. október 1988 í Yangon
(áður Rangoon) stuttu eftir að
herinn framkvæmdi valdarán og
kom á herlögum í landinu.
Fregnir herma að hann hafi verið
dæmdur í 14 ára fangelsi vegna
fréttaskýringa sem hann sendi
BBC og fyrir að „hafa undir
höndum rit sem lýstu andstöðu
við n'kisstjórnina".
Eftir valdaránið lagði n'kis-
stjórnin bann við opinberri gagn-
rýni á stjórnina og við fjöldasam-
komum, þ.e.a.s. þar sem fimm
eða fleiri koma sarhan. Opinberir
fjölmiðlar sögðu að Nay Min væri
í haldi fyrir að senda „upplognar
fréttir og rógburö" til BBC í
ágúst og september 1988. Opin-
berir fjölmiðlar segja að Nay Min
„hafi oröið óánægður með n'kis-
stjórnina eftir að hafa heyrt sögu-
sagnir í tengslum viö óeirðirnar í
mars og apríl 1988". Hér er skír-
skotun til staðhæfinga um að
öryggissveitir hafi myrt friðsama
mótmælendur á þessu tímabili.
Óopinberar fregnir herma að
Nay Min hafi verið í nánum
tengslum við leiötoga lýðræðis-
sinna er þeir stóðu fyrir mótmæl-
um 1988.
Fregnir herma aö Nay Min hafi
verið leiddur fyrir rétt 7. og 21.
nóvember. 1 síðara skiptið kvart-
; aði hann yfir slæmri meðferð og
bað um að vera lagður inn á
sjúkrahús, en beiðni hans var
neitað. Um síðir var hann leiddur
fyrir hérrétt, en herdómstólum
var komið á fót samkvæmt her-
lögum í júli' 1989. Málsmeðferð
fyrir slíkum dómstólum er ein-
földuð; réttur einstaklingsins til
varnar er mjög takmarkaður og
ekki er hægt að áfrýja til hærri
dómstóls. Allt þetta er brot á
alþjóöareglum um sanngjörn
réttarhöld. I október 1989 bárust
fregnir unt að Nay Min hefði ver-
ið dæntdur í 14 ára erfiðisvinnu
samkvæmt lögum um neyðarráö-
stafanir frá 1950. Hann var fund-
inn sekur um að hafa „sent upp-
lognar fréttir og rógburð til
BBC" og fyrir að „hafa undir
höndum rit sem lýstu andstöðu
við ríkisstjórnina".
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og fariö fram á að Nay Min
verði tafarlaust látinn laus. Skrif-
ið til:
Gen. Saw Maung
Prime Minister and Minister of
Defence and of Foreign Affairs
Ministers' Office
Yangon
Union of Myanmar
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFELAGA
, ^©utyJKSIK)
BUVELASYNING
Sölumenn JÖTUNS verða með sýningu
á ýmsum heyvinnutækjum á ÞÓRSHAMRI
kl. 11.00-17.00 laugardaginn 9. júní
Sérfræðingur frá Undirhaug verksmiðjunum í Noregi verður með sölumönnum
Sýnd verða eftirtalin tæki og vélar:
PZ sláttuþyrlur
PZ tromlumúgavél
CLAAS rúllubindivél
Sýningarafsláttur
Verð kr. SWrftJO
Afsláttarverð kr. 794.000
MASSEY FERGUSON
399 dráttarvél
Frá UNDERHAUG
SILAWRAP rúllupökkunarvél
Sýningarafsláttur
Verð kr. 53^000
Afsláttarverð kr. 469.000
SILAGRIP baggagreip
K.
m.
PZ FANEX heyþyrla
Öflug og afkastamikil
III ISUZU PICK UP Nauðsynlegur á hverjum bæ
BÆNDUR!
Notið tækifærið
og skoðið þessi
frábæru landbúnaðartæki
m
Pepsi og kaffi
á staðnum
ÞÓR5MAMAR HF.
Við Tryggvabraut Akureyri
Sími 22700