Dagur - 07.06.1990, Side 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 7. júní 1990
Sumarbúðir við Vestmannsvatn í Aðaldal:
Horft til betri tíma með tilkomu hitaveitu
- gefur möguleika á nýtingu yfir veturinn
Æskulýðssamband kirkjunnar í Hólastifti hefur
um 25 ára skeið starfrækt sumarbúðir við Vest-
mannsvatn í Aðaldal, jafnt fyrir unga sem aldna. Á
morgun hefst sumarstarfið þegar norðlensk ung-
menni flykkjast að vatninu og taka til við leikja- og
íþróttaiðkun margs konar. Að sögn sr. Jóns Helga
Þórarinssonar, stjórnarformanns ÆSK, sem verð-
ur ásamt öðrum, sumarbúðastjóri á Vestmanns-
vatni, er aðsóknin með skásta móti í sumar. Fyrir
dyrum stendur gjörbreyting á starfsaðstöðu við
Vestmannsvatn því í ágúst verður lögð hitaveita
heim á staðinn, sem m.a. gefur möguleika á nýt-
ingu húsanna allt árið.
Á síðasta ári var aðsókn að
búðunum mun minni en verið
hafði árin á undan og verulegur
halii varð á rekstrinum, sem
treystir alfarið á dvalargjöld-
in. En með tilkomu hitaveitunnar
horfa forráðamenn ÆSK til betri
tíma og hyggja að margháttuðum
breytingum og endurnýjun við
Vestmannsvatn í framtíðinni. í
maí sl. var lokið við að tengja
ofna og lagnir í svefnskála og
aðalskála þannig að allt verður
tilbúið þegar hitaveitulögnin
kemur að Vestmannsvatni í
ágústmánuði. En hvernig verður
staðið að nýtingu staðarins yfir
vetrartímann? Eví svarar sr. Jón
Helgi:
„Við erum bjartsýn á framtíðina,“
segir sr. Jón Helgi Þórarinsson,
sóknarprestur á Dalvík, í samtali við
Dag, en hann er formaður stjórnar
Æskulýðssambands kirkjunnar og
verður sumarbúðastjóri við Vest-
mannsvatn í sumar.
Ýmislegt starf
fyrirhugað yfir veturinn
„Það hefur ekki endanlega verið
ákveðið, en við ætlum okkur að
bjóða Vestmannsvatn söfnuðum
fyrir ýmislegt starf. Mér dettur í
hug fermingarstarf, það hefur
færst í vöxt að prestar komi með
fermingarbörn til undirbúnings
yfir vetrartímann á staði eins og
Vestmannsvatn. Með komandi
hausti ætlum við að kynna stað-
inn bæði fyrir söfnuðum og
skólum. Reyndar hafa skólar ver-
ið hér, bæði haust og vor, en það
hefur verið annmörkum háð sök-
um mikils kostnaðar við raf-
magnskyndingu. Nú verður þetta
allt annað í framtíðinni en það
hafa ekki ennþá verið gerðar
neinar ákveðnar áætlanir hvernig
nýtingunni verður háttað
nákvæmlega. Ég hugsa að til að
byrja með verði boðið upp á
styttri námskeið. Við byrjum
smærra og munum auka við eftir
því sem eftirspurn verður.“
Heitur pottur byggður
með tilkomu heita vatnsins
- í bæklingi sem gefinn var út
fyrir þetta sumar segir að þegar
sé farið að leggja drög að stækk-
un og endurnýjun búðanna við
Vestmannsvatn. Hvar er það mál
á vegi statt?
„Það er nú eiginlega á um-
ræðustigi varðandi stækkun en
við horfum til endurnýjunar
þegar hitaveituverkefninu er
lokið. Það verkefni er eðlilega
kostnaðarsamt og við verðum að
klára það fyrst áður en við getum
hugsað lengra fram. í framhaldi
af því að hér verði meiri starf-
semi yfir allt árið þá þurfum við
að byggja annan svefnskála, sem
yrði rýmri og hugsaður jafnvel
með þarfir fullorðinna í huga. En
þetta er allt á umræðustigi ennþá.
Svo má nefna að með tilkomu
hitaveitunnar þá er fyrirhugað aði
byggja heitan pott og hver veit
nema að hér eigi einhvern tím-
ann eftir að rísa sundlaug. Hún
er í kollinum á mönnum, hvenær
sem hún kernur."
Hópur Þjóðverja dvelur
við Vestmannsvatn í sumar
- Nú hefur maður alltaf staðið í
þeirri trú að eingöngu börn hafi
sótt sumarbúðir við Vestmanns-
vatn en í bæklingnum má sjá að
aldraðir, blindir og útlendingar
verða hjá ykkur í sumar. Er þetta
einhver nýjung?
„Nei, þetta hefur verið í mörg
ár, ég gæti trúað í ein 10-15 ár
sem við höfum tekið á móti öldr-
uðum og félögum í blindrafé-
lögunum í Reykjavík og á Akur-
eyri. Hvað erlendu gestina varð-
ar þá er það tilfallandi þetta árið.
Við fengum pöntum frá nokkrum
Þjóðverjum sem ætla að dvelja
hér um vikutíma í júlí. Hins veg-
ar höfum við um nokkurra ára
Betri heilsa - Heilsuhlaup Krabbameiiisfélagsins 1990
- hlaupið á Akureyri í fyrsta sinn
Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis tekur í fyrsta
skipti þátt nk. laugardag í
heilsuhlaupi því sem haldið
hefur verið undanfarin tvö ár í
Reykjavík á vegum Krabba-
meinsfélagsins þar. Hlaupið er
undir yfirskriftinni „Betri
heilsa - Heilsuhlaup Krabba-
meinsfélagsins 1990“. Hlaupið
hefst kl. 12 á hádegi í göngu-
götu og lýkur þar. Vegalengd-
in er 5 km og gildir einu hvort
er hlaupið, skokkað, gengið
eða hjólað. Mestu skiptir að
taka þátt og vonast forráða-
menn KAON eftir að fjöl-
skyldan mæti öll til leiks.
Skráning hefst í dag, fimmtu-
dag, kl. 10 og stendur til kl. 17 á
skrifstofu KAON að Hafnar-
stræti 95, 4. hæð. Eiunig verður
hægt að skrá sig á morgun á sama
BVeOÐAvfBHR
ÁSVSGUR
AÍjsnlHBVUi
“UMUWNARSTH/FTI
".vVMINwSiÉjwí^
HSLflAMAGRASTnÆti
OROT TNINGARBRAUT