Dagur - 07.06.1990, Side 13
I
nnn t
nnn*n
n ►
Áhaldaleiga.
★ Sláttuvélar.
★ Sláttuorf.
★ Valtarar.
★ Hekkklippur.
★ Runnaklippur.
★ Úöunarbrúsar.
★ Rafm. handklippur.
★ Jarövegstætari.
★ Hjólbörur o.fl. o.fl.
Garðurinn,
Hólabraut 11, sími 22276.
Klæði og geri við bólstruð
húsgögn.
Áklæöi, leðurlíki og leðurlúx.
Leöurhreinsiefni og leðurlitun.
Látið fagmann vinna verkiö.
Kem heim og geri kostnaöaráætlun.
Bólstrun Björns Sveinssonar.
Geislagötu 1, Akureyri, sími
25322.
Hreingerningar - Teppahreins-
un - Gluggaþvottur.
Tek aö mér hreingerningar á íbúö-
um, stigagöngum og stofnunum.
Teppahreinsun meö nýlegri djúp-
hreinsivél sem skilar góöum ár-
angri.
Vanur maður - Vönduö vinna.
Aron Þ. Sigurðsson.
Sími 25650.
Vinsamlegast leggiö inn nafn og
símanúmer í símsvara.
Tökum að okkur daglegar ræst-
ingar fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Ennfremur allar hreingerningar,
teppahreinsun og gluggaþvott.
Ný og fullkomin tæki.
Securitas, ræstingadeild, símar
26261 og 25603.
Hreingerningar -
Teppahreinsun.
Tökum að okkur teppahreinsun,
hreingerningar og húsgagnahreins-
un með nýjum fullkomnum tækjum.
Gerum föst verðtilboð ef óskaö er.
Inga Guðmundsdóttir,
sími 25296.
Hreinsið sjálf.
Leigjum teppahreinsivélar.
Hjá okkur færöu vinsælu Buzil
hreinsiefnin.
Teppaland - Dúkaland,
Tryggvabraut 22,
sími 25055.
Akureyrarprestiikiill.
Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag
fimmtudag kl. I7.I5.
Allir velkomnir.
Sóknarprestarnir.
Grcnivíkursókn.
Sjómannamessa verður á hafnar-
bakkanum á Grenivík n.k. sunnu-
dag kl. 11.00 árdegis.
Svalbarðskirkja.
Guðsþjónusta n.k. sunnudag kl.
14.00.
Sóknarprestur.
Glerárkirkja.
Hátíðarguðsþjónusta sjómanna-
dagsins n.k. sunnudag k. 11.00
árdegis.
Sjómenn aðstoða.
Pétur Þórarinsson.
Akureyrarkirkja
verður opin frá 1. júní til 1. sept-
ember frá kl. 10.00-12.00 f.h. og
14.00-16.00 e.h.
j Minjasafnið á Akureyri.
Opið frá 1. júní til 15. septemberfrá
kl. 13.30-17.00.
Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81.
Sýningarsalurinn er opinn á sunnu-
dögum kl. 1-4. Opnað fyrir hópa
eftir samkomulagi í símum 22983 og
27395.
Safnahúsið Hvoll, Dalvík,
verður opið í sumar frá 1. júní til 15.
september alla daga vikunnar frá kl.
13.00 til 17.00.
Arnað heilla
4. júní voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju. Sigrún
Ragna Úlfsdóttir. húsmóðir og
Örnólfur Eiríksson, bóndi.
Heimili þeirra verður að Hólakoti,
Saurbæjarhreppi.
Áttræður er á morgun 8. júní,
Hermann Vilhjálmsson frá Torfu-
nesi, til heimilis að Eyrarvegi I,
Akureyri.
Þann sama dag fyrir 50 árum gekk
hann að eiga Aðalbjörgu Sigurðar-
dóttur frá Hróarsstöðum í Fnjóska-
dal. I tilefni af afmæli og gullbrúð-
kaupi taka þau hjónin á móti gest-
um að Lóni við Hrísalund milli kl.
18.00-22.00 á morgun, afmælisdag-
inn.
Athugið .
Mittningarspjöld Hríseyjarkirkju
fást í Bókabúð Jónasar.
Minningarkort Sjálfsbjargar Akur-
eyri fást hjá eftirtöldum aðilum:
Bókabúð Jónasar, Bókval, Akri
Kaupangi, Blónrahúsinu Glerárgötu
28 og Sjálfsbjörgu Bugðusíðu 1.
Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól-
borgar, selur minningarspjöld til
stuðnings málefna þroskaheftra.
Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð
og Blómahúsinu við Glerárgötu.
Minningarspjöld Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá:
Pedromyndunr Hafnarstræti 98, Sig-
ríði Freysteinsdóttur Þingvallastræti
28, Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi
24 og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð
17.
Minningarspjöld Styrktarsjóðs
Kristnesspítala fást í Bókvali og á
skrifstofu Kristnesspítala.
Minningarkort Akureyrarkirkju fást
í Bókvali og Blómabúðinni Akri í
Kaupangi.
Minningarkort Glcrárkirkju fást á
eftirtöldum stöðum:
Hjá Ásrúnu Pálsdóttur Skarðshlíð
16 a, Guðrúnu Sigurðardóttur
Langholti 13 (Rammagerðinni),
Judith Sveinsdóttur Langholti 14, f
Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlíð,
versluninni Bókval, í Glerárkirkju
hjá húsverði, Blómahúsinu Glerár-
götu, Bókabúð Jónasar og Blóma-
búðinni Akri Kaupangi.
Fimmtudagur 7. júní 1990 - DAGUR - 13
Hann fæddist við Strandgötuna,
þessa lífæð í svo mörgum kaup-
stöðum, þar sem menn koma.
reka erindi sín og fara. Á aðra
hönd er sjórinn, skipaferðir og
hafnarmannvirki, á hina bærinn
með sínum margbreytileik.
Strandgatan er einskonar lífæð
milli þess sem kernur og fer og
þess sem er sífellt og óbreytan-
legt. Húsin, garðarnir, fólkið. í
stað þess sem hverfur á braut
kemur annað. Með ný dagsverk
til að ljúka. Fjörulykt berst í hús
og fugíar eru á vappi allan ársins
hring. Sjófuglar sveima yfir á
vetrum en á vorin kemur sendl-
ingur á leiru og á sumrin fara
endur og æðarfugl með unga sína
og kenna þeim sundtökin. undir-
stööu lífsbjargar þeirra.
Við Strandgötuna fór einnig
mörg lífsbjörg mannanna fram. Á
meðan Torfunesbryggjan var og
hét komu skip og fóru. Færðu
lífsbjörg og varning. Lágu í vari
er veður voru válynd. Og vélfugl-
ar fljúga yfir til og frá flugvelli.
Það er fallegt við Strandgötuna
og þótt hún liggi utan raunveru-
legs miðbæjar Ákureyrar er hún
samt miðpunktur. Þaðan er svo
auðvelt að fylgjast með hinu dag-
lega lífi.
1 Strandgatan átti eftir að verða
heimkynni hans næstum alla ævi
og aðeins þarf að undanskilja tvö
stutt tímabil. Guttormur var
skírður að Ósi við Eyjafjörð á
fyrsta aldursári, sumarið 1918 en
þar bjó þá amma hans Elín
Gunnlaugsdóttir, ckkja Gutt-
orms Einarssonar, Ásmundsson-
ar í Nesi og var drengurinn látinn
bera nafn afa síns. Fyrstu ár
bernskunnar ólst hann upp í
sömu sveit, á nýbýli sent foreldr-
ar hans, Valgerður Guttorms-
dóttir og Friðgerir H. Berg reistu
og nefndu Hofteig. En fjögurra
ára fluttist hann til Akureyrar
ásamt foreldrum sínum og bjó
þar alla tíð eftir það. Þar gekk
hann í barnaskóla og síðar
menntaskóla. Þar giftist hann
báðum eiginkonum sínum og þar
fæddist dóttir hans Elín Valgerð-
ur Berg.
Guttormur kom víða við á
starfsferli sínum. Ungur fór hann
til Svíþjóðar að kynna sér rekstur
fatahreinsana og þvottahúsa og
starfaði síðan við það nokkurn
tíma. Hann var einnig til sjós um
tíma og sinnti þá starfi
„kokksins" því matargerðarlist
var honum í blóð borin en mörg
síðari árin vann hann við verslun-
arstörf. Guttormur átti auðvelt
með að koma orðum að hugsun-
um sínum. Það kom vel fram í
því starfi sem hann varð ef til vill
þekktastur fyrir. Hann starfaði
sem fréttamaður Ríkisútvarpsins
á Akureyri um margra ára skeið,
áður en útvarpið hóf reglulega
starfsemi norðan heiða. Margar
fréttir, sem útvarpshlustendum
bárust af norðlenskunt málefnum,
voru skrifaðar á görnlu svörtu rit-
vélina undir vesturglugganum í
Strandgötu 27.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtaldri fasteign
fer fram á eigninni sjálfri
á neðangreindum tíma:
Fiskeldishús á Haukamýri, þingl.
eigandi Fiskeldi h.f., miövikudaginn
13. júní, 1990, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Byggða-
stofnun og Hróbjartur Jónatansson
hdl.
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Hann kom ætíð til dyranna
eins og hann var klæddur. Fast-
mótaður svipurinn og hljómmikil
röddin báru skarpskyggni og
sterkri skapgerð vitni en þó var
honum fjarri að flíka innri til-
finningum. Hann hafði yndi af
lestri og tómstundir voru notaöar
til lesturs góðra bóka. Sumarleyf-
in til að ferðast, helst til útlanda
og kunnáttuleysi í tungumálum
háði honum ekki í þeim ferðum.
Guttormur var góður málamaður
og ensk tunga honum álíka töm
og ylhýra móðurmálið.
Á yngri árum lék hann knatt-
spyrnu og á þeim árum stóð hug-
ur Itans einnig til tónlistariðkana.
Hann var mjög næmur á því sviði
og bar við að semja lög. Ein-
hverju sinni, sent ungur maður
mun hann hafa sýnt Björgvin
Guðmundssyni tónskáldi lag eftir
sig og Björgvin hvatt hann til að
halda tónsmíðum áfram. En vera
má að hann hafi gert þvílíkar
kröfur til sjálfs sín í þeim efnum,
fundist hann aldrei gera nægilega
vel, og af þeim ástæðum byrgt
þetta áhugamál svo með með
sjálfum sér að fáir vissu af. Hann
lék í nokkurn tíma á saxafón með
hljómsveit en að öllum líkindum
hefur hann haft mestan áhuga
fyrir og ánægju af að leika á fiðlu
sem hann gerði á yngri árum.
llann varð rótfastur viö
Strandgötuna. Gat ekki hugsað
sér að yfirgefa þá vídd milli
mannlífs og náttúru sem lína
hfnds og sjávar skapar fyrr en lagt
var upp í hina lengstu för. Oft var
Strandgatan áningarstaður í
kaupstaðarferðum. Mörg stund
lcið yfir kaffibolla og samræðum.
Fyrir öll kynni, fyrr og síðar eru
íbúum Strandgötu 27, bæði látn-
um og lifandi færðar alúðar-
þakkir.
rjolskyldan Asláksstödum.
Áhugavert starf
26 ára fjölskyldumaður með góða verslunar-
menntun óskar eftir vinnu á Akureyri.
Er vanur sölumennsku, skrifstofu- og verslunarstörf-
um. Get hafiö störf 1. september nk.
Uppl. í síma 91-621309 eftir kl. 18.00.
Ég bið Guð að blessa alla þá er minntust mín
með svo mörgu inóti á áttræðisafmælinu
26. maí s.l.
Innilegar þakkir!
SVAFA KRISTJÁNSDÓTTIR,
frá Ytri-Tjörnum.
sti
Bróðir okkar og frændi,
ÞORMÓÐUR BENEDIKTSSON,
Höfðahlíð 2, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju, föstudaginn 8. júní kl.
13.30.
Ragna Benediktsdóttir,
Hallgrimur Benediktsson,
Kristin Kristjánsdóttir,
Hólmfríður Breiðfjörð.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát litla drengsins okkar og
bróður,
HÁKONS MARTEINS LEIFSSONAR.
Sérstakar þakkir sendum við séra Pétri Þórarinssyni og
Kirkjukór Glerárkirkju.
Guð blessi ykkur öll.
Ásdís Sæmundsdóttir, Leifur Ólafsson,
Hiidur Leifsdóttir,
Ólöf Leifsdóttir,
Sæmundur Þór Leifsson
og aðrir aðstandendur.
\
l
s