Dagur - 07.06.1990, Blaðsíða 16
Filmiimnttaka- Kjörbúð KEA Byggðavegi
nimumUUdKcl. Kjörmarkaður KEA Hrísalundi,
BÚHIll Sunnuhlíð
Staða sveitarstjóra á Skagaströnd:
Alls bárust 8 umsóknir
5 óskuðu eftir nafnleynd
Umsóknarfrestur um stöðu
sveitarstjóra á Skagaströnd
rann út sl. þriðjudag. Alls bár-
ust 8 umsóknir og þar af ósk-
uðu 5 umsækjendur eftir nafn-
lcynd. Hinir þrír eru Áki
Áskelsson, Reykjavík, Magn-
ús Stefánsson, Bifröst Borgar-
firði, og Ólafur Arnfjörð
Guðmundsson, Ólafsvík.
Hreppsnefnd Höfðahrepps,
sem senn lætur af störfum, fund-
aði í gær um umsóknirnar en ekki
verður tekin ákvörðun um hver
tekur við af Guðmundi Sigvalda-
syni fyrr en ný hreppsnefnd verð-
ur að veruleika. Óvíst er hvenær
það verður, en sem kunnugt er
hefur talning í sveitarstjórnar-
kosningum á Skagaströnd verið
kærð til sýslumanns á Blönduósi.
Samkvæmt sveitarstjórnalögum
á ný hreppsnefnd að hafa tekið
við fyrir 10. júní nk. en nefnd sú
sem Jón ísberg setti á laggirnar
vegna kærunnar skilar ekki áliti
fyrr en eftir hálfan mánuð. Pað
gæti því eitthvað dregist að ný
hreppsnefnd taki við og nýr sveit-
arstjóri valinn á Skagaströnd.
Það veltur allt á einu utankjör-
staðaratkvæði. -bjb
Búnaðarsamband Eyjafjarðar:
Ný „Búkolla“ árið 1992
Reykt í rólegheitum. Mynd: KL
Atvinna skólafólks á Akureyri:
Verkeftri og vilji fyrir
hendi en flármagn vantar
- segir Árni Steinar Jóhannsson, garðyrkjustjóri
Undirbúningur vegna nýrrar
útgáfu bókarinnar Byggðir
Eyjafjarðar er nú að komast á
fullt skrið en áætlað er að ný
bók komi út árið 1992. Liðin
eru 18 ár frá því Byggðir
Eyjafjarðar var gefin út af
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
og þá voru bindin tvö. Ekki
hefur verið ákveðið nú hvort
bindin verða tvö en megin-
áherslan verður lögð á upplýs-
ingar um einstök býli og ábú-
endur.
I fyrri útgáfunni var efninu
skipt í tvö bindi. Annars vegar
var um að ræða sögu Búnaðar-
sambandsins og upplýsingar um
hreppana á Eyjafjarðarsvæðinu
en að sögn Guðmundar Stein-
dórssonar, sem sæti á í ritnefnd
þeirri sem stjórn Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar hefur skipað,
verður minna farið út í sögu bún-
aðarfélaga á svæðinu eða sveita-
lýsingar nú heldur verður nýja
útgáfan með svipuðu sniði og
seinna bindið af útgáfunni frá
„Við opnum paradís laxveiði-
mannsins með viðhöfn í lóninu
austan Laugalandsvegar þann
15. júní,“ sagði Gísli Jónsson,
framkvæmdastjóri Ferðaskrif-
stofu Akureyrar.
Flugskóli Akureyrar, sem jafn-
framt er fyrsti flugskóli á Is-
landi, er 45 ára í dag. Skólinn
var stofnaður 7. júní 1945 af
þeim Árna Bjarnarsyni bóka-
útgefanda og Gísla Ólafssyni
lögregluþjóni og hefur starfað
nær óslitið allan þennan tíma.
Flugfélag Norðurlands rekur
skólann, og við hann starfa 3
kennarar og hefur skólinn til um-
1972, þ.e. upplýsingar um bæi og
ábúendur.
„Já, ætlunin er að byrja að
taka myndir af bæjunum í sumar
og menn geta farið að munda
penslana, það er að segja þeir
sem á annað borð hafa tíma til
þess fyrir slátt,“ sagði Guðmund-
ur.
í nýju útgáfunni verða væntan-
lega litmyndir en hvernig form
verður á upplýsingunum um bú
og ábúendur segir Guðmundur
ekki endanlega ákveðið á þessari
stundu. Byggðir Eyjafjarðar I og
II, eða Búkolla eins og þessar
bækur hafa oft verið nefndar,
hafa víða verið mikið notaðar.
Guðmundur segist því búast við
að endurútgáfu verði vel tekið.
„Já, ntaður sér víða að seinna
bindið er ansi illa farið af mikilli
notkun og við höfum fengið
áskoranir úr sveitunum um að
endurútgefa þessar bækur.“
Ritnefndina skipa auk Guð-
mundar þeir Jóhannes Sigvalda-
son og Kristján Sigfússon. JÓH
Að sögn Gísla ætlaði hann að
sleppa eldislaxi í tjörnina við
Leiruveginn, en tvennt kom í veg
fyrir það. í fyrsta lagi er tjörnin
of heit og í öðru lagi eru bakkar
tjarnarinnar ekki nægilega
ráða 2 tveggja sæta kennsluvélar
af gerðinni Piper-Tomahawk.
í skólanum eru 15 til 20
nemendur sem bæði sækja skól-
ann misvel og eru misjafnlega
langt komnir í fluglistinni. Einnig
starfar skólinn á Húsavík og
Siglufirði þegar um nemendur er
að ræða frá þeim stöðum.
Framkvæmdastjóri er Sigurður
Aðalsteinsson. GG
„Atvinnumál skólafólks og
unglinga á Akureyri eru mik-
ið vandræða- og alvörumál.
Skólafólk á aldrinum 15-16 ára
á í mjög miklum erfiðleikum
með að fá vinnu í sumar og
þetta vandamál kemur eins og
holskefla yfir okkur og er erfitt
úrlausnar,“ sagði Árni Steinar
Jóhannsson, garðyrkjustjóri
Akureyrarbæjar.
grónir. „Austurbakkinn er ekki
aðlaðandi vegna moldar. Laxin-
urn verður því sleppt í lónið aust-
an Laugalandsvegar neðan við
skógarreitinn, en þar er náttúru-
fegurð og vatnið í lóninu er gott.
Við hefjum veiðina 15. júní, en á
staðnum verður veiðivörður, sem
selur leyfi og verður fólki til halds
og trausts. Hátt í 1000 laxar, stór-
ir og smáir, verða í lóninu og
stangafjöldi verður takmarkaður
við 12 stangir. Verð veiðileyfis
verður við allra hæfi og veiðin
takmörkuð við tvo laxa á selt
veiðileyfi. Veitt verður með
flugu, spæni og maðk, önnur
veiðarfæri eru bönnuð. Veiðitím-
inn verður frá kl. 9-15 og 15-21
og aðeins veitt af austurbakkan-
um. í haust að veiðitímabilinu
loknu, verður sá veiðimaður
verðlaunaður með helgarferð til
Luxemborgar, sem veitt hefur
stærsta laxinn og einnig sá veiði-
maður, sem veiðir flesta laxa í
sumar," sagði Gísli Jónsson. ój
Að sögn Árna er fimmtán ára
aldurshópurinn svo miklu stærri
en ráð var fyrir gert að vandræði
hafa skapast. 202 unglingar eru
skráðir, en gert var ráð fyrir 75
unglingum, ef miðað er við
reynslu fyrri ára. Bæjarráð hefur
veitt tíu milljónum króna auka-
lega til þessa aldurshóps til
atvinnusköpunar, en jafnframt fá
unglingarnir aðeins vinnu hálfan
daginn. Nú er í athugun að skapa
50 ný atvinnutækifæri fyrir 16 ára
unglinga. 74 voru á skrá hjá
Vinnumiðlunarskrifstofunni síð-
ast þegar skrá Var gerð.
„Mér er falið að skoða alla
möguleika. Félagsmálaráðuneyt-
ið er inni í dæminu. Það útdeilir
fjármagni vegna atvinnu skóla-
fólks. I fyrra sköpuðu peningar
frá félagsmálaráðuneytinu 11
störf fyrir skólafólk hjá Skóg-
ræktarfélagi Eyfirðinga. Raunar
eru allir möguleikar skoðaðir
þessa dagana, en hvað verður er
Nýkjörin hreppsncfnd í
Hrafnagilshreppi í Eyjafirði
kom sainan til fyrsta fundar í
fyrrakvöld og kaus hún þá Ólaf
Vagnsson í embætti oddvita
hreppsins. Varaoddviti var
kjörinn Anna Guðmundsdótt-
ir.
Nýjar hreppsnefndir Saurbæj-
ar- og Öngulsstaðahrepps hafa
ekki kontið saman til l'unda eftir
kosningar og því hefur ekki verið
kjörið í embætti og nefndir.
Hreppsnefndirnar verða þó að
ekki ákveðið. Verkefnið Land-
græðsluskógar 1990 á Melgerðis-
melum gætu tekið við unglingum
og margt fleira, en því miður þá
vöðum við ekki í peningum og
það er vandamálið.
Að skera vinnuna niður í hálfs
dags starf eins og gert hefur verið
er neyðarúrræði. Ef allir ættu að
hafa fulla vinnu þyrftum við 20
milljónir hið minnsta, en þær eru
ekki til staðar.
Atvinnumál unglinga eru erfitt
viðfangsefni þegar slík holskefla
ríður yfir, en víst er að við gerum
okkar besta. Hvað við geturn síð-
an gert verður að ráðast, viljinn
er fyrir hendi og verkefnin, en
fjármagnið vantar. Trú mín og
vissa er sú að atvinnumálunum
verði bjargað, en þá verða
atvinnufyrirtæki og forsvarsmenn
þeirra að leggja okkur lið, þeirra
er málið einnig," sagði Árni
Steinar Jóhannsson, garðyrkju-
stjóri. ój
koma saman til funda fyrir næst-
komandi sunnudag en samkvæmt
lögum verða þær að koma saman
innan hálfs ntánaðar frá kosning-
um.
Á fundi hreppsnefndarinnar í
Hrafnagilshreppi voru jafnframt
kjörnir tveir fulltrúar hreppsins í
nefnd sem vinna mun að samein-
ingu sveitarfélaganna þriggja
framan Akureyar. Fyrir hreppinn
munu sitja í nefndinni Ólafur
Vagnsson og Anna Guðmunds-
dóttir. JÓH
Akureyri:
Um 1000 löxum sleppt í
lón austan Laugalandsvegar
- veiði hefst 15. júní nk.
Flugskóli Akureyrar
fagnar 45 ára afinæli í dag
Hrafnagilshreppur:
Ólafur í oddvitastólinn
- Ólafur og Anna í sameiningarnefnd