Dagur - 16.06.1990, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 16. júní 1990
Gosbrunnar og lækir
Gosbrunnar eru nær ómissandi í
allar tjarnir því þeir vekja athygli
fólks og mynda skemmtilegt
hljóð og stemmningu. Gosbrunna-
dælur er hægt að fá í margs kon-
ar útfærslum, stórar sem smáar,
og alls kyns stúta á þær sem gefa
mismunandi bunur. Margar lóðir
hér á Akureyri hafa töluverðan
hæðarmismun og því kjörið að
koma sér upp læk (bæjarlæk). En
ef lóðin hefur lítinn hæðarmis-
mun er ekkert auðveldara en búa
hann bara til. Lækir þurfa hæð-
armismun eins og gefur að skilja.
Það má hugsa sér að efsti hluti
lækjarins sé tjörn sem rennur
sífellt í og svo renni vatnið niður
steinsteypta rennu (læk) og endi í
niðurfallsröri. Niðurfallsrörið
þarf að hylja vel með gróðri svo
að þetta líti sem eðlilegast út.
Lækinn sjálfan eða rennuna
mætti einnig hylja með því að
hafa grasið í kring svolítið úfið
(óslegið) eða með lágvöxnum
gróðri.
Gróður í kringum tjarnir
Gróðurinn í kringum tjarnirnar
er nokkuð mismunandi eftir
stærð og umfangi tjarnarinnar. í
kringum litla tjörn er gott að not-
ast við lágan, fyrirferðalítinn og
skrautlegan gróður eins og t.d.
silkibygg, hófsóley, blágresi,
kínavönd, geitabjöllu, rottueyra,
ýmsar primulur (lykla) o.fl.
í kringum stóra tjörn er gott að
notast við stærri tegundir, fyrir-
steypa án þess að setja upp
steypumót en undirbyggingin
þarf að vera sú sama ef vel á að
vera. Þegar byggja á tjörn úr
timbri þarf að grafa upp moldar-
jarðveginn og skipta um jarðveg
nákvæmlega eins og í fyrra tilfell-
inu. Síðan er timburbjálkunum
raðað upp eins og þeir eiga að
vera, þeir festir saman með gata-
girði og fyllt að utanverðu. Botn-
inn er yfirleitt steyptur. Tjörnin
er tjörguð að innan, bæði botn og
hliðar en áður en það er gert er
sett silikon í stærstu glufurnar.
Heppilegt efni í svona tjörn, eru
gamlir rafmagns- eða símastaurar
(þeir eru vel tjargaðir) eða gegn-
fúavarið timbur. Þriðja lausnin
og sú auðveldasta er tjörn úr
gúmmídúk. Þegar svoleiðis tjörn
er gerð er byrjað á jarðvegsskipt-
um eins og áður en ofan á
„púkkað“ lagið er sett 10 cm
þykkt lag af fínum sandi. Tjörnin
er mótuð í jarðveginn og síðan er
dúkurinn sniðinn til og lagður
yfir. Dúkurinn er síðan festur
niður með fargi, t.d. steinum síð-
an er látið renna í tjörnina og þá
strekkist dúkurinn. Þegar gengið
er frá köntunum er vatnið haft í á
meðan. Ef þetta er ekki gert og
tjörnin höfð tóm á meðan gengið
er frá köntum, getur allt dregist
til þegar vatnið er svo sett í og
einnig verður dúkurinn aldrei
eins sléttur.
í þessum þremur útgáfum af
tjörnum er aldrei gert ráð fyrir
niðurföllum eða afföllum en fólk
verður að fá að velja um það
hvort það vill ausa vatninu upp úr
með fötu eða hvort það vill bara
taka tappann úr og tæma tjörn-
ina.
Myndin sýnir ófullgerða tjörn úr timbri.
Tjörn með hlaðna kanta og botninn sjálfur úr gúmmídúk.
Myndin sýnir stcinstcypta tjörn. Takið eftir brúnni.
Hvers vegna vatn í garðinn?
Vatnið er manninum eðlislægt og
hefur róandi áhrif. Að sitja úti í
garði og hlusta á vatnsniðinn sem
myndast þegar gosbrunnurinn
spúir upp í loft og droparnir
skella á vatnsflötinn er hreint
ótrúlega róandi. Vatnið heillar
líka yngri kynslóðina en á annan
hátt og úr verður vatnsslagur.
Hver kannast ekki við það þegar
sólin fer að skína að krakkarnir
taka sig til, ná í garðslönguna og
sprauta hvert á annað. Par sem
gosbrunnar eru til staðar flykkj-
ast krakkarnir að til að busla, og
svoleiðis á það líka að vera.
Hvernig á að útbúa tjörn?
Tjarnir eru misjafnar að lögun og
gerð. Sumar eru steinsteyptar,
sumar byggðar úr timburbjálkum
og enn aðrar klæddar innan með
gúmmídúk. Til að byggja tjörn úr
steinsteypu þarf að byggja jarð-
veginn vel undir, þ.e.a.s. þá er
Umsjón: Baldur
Gunnlaugsson,
skrúðg.yrkjufr.
moldarjarðvegurinn grafinn upp
og hann fjarlægður (eða geymdur
til þess að laga í kringum tjörnina
á eftir). Undir botnplötuna þarf
að vera minnst 60 cm „púkkað“
malarlag og einnig meðfram hlið-
arveggjum. Þegar búið er að
ganga frá jarðvegsskiptum eru
sett upp steypumót og síðan
steypt í þau. Þegar búið er að slá
mótin fra er brunnurinn einangr-
aður með 4“ þykku frauðplasti að
utanverðu, mölin sett að og þá
má fara að ganga frá heildarútlit-
inu. Minni háttar tjarnir má líka
Heimilisgarðar á Akureyri eru margir hverjir mjög fallegir og skrautlegir,
á því er enginn vafi, en eitt er það þó sem lítið hefur verið gert af og það
er alls kyns útfærslur af tjörnum, lækjum og gosbrunnum. Eins og bæjar-
búar þekkja þá hefur verið stór gosbrunnur í gangi í Lystigarði Akureyrar
um margra ára skeið en einhverra hluta vegna hafa garðeigendur ekki not-
að þessa hugmynd, hvort sem það er vegna áhugaleysis eða vegna þess að
fólk heldur að það að gera fallegan gosbrunn sé svo mikið mál.
Vatn í heimilisgörðum
Myndirnar sýna hvernig fariö er að við gerð dúktjarnar.
Ein útfærsla af tilbúnum hæðarmismun. Gosbrunnur og lækur úr stein-
steypu.
Gróður
og
garðyrkja:
V/
ferðarmeiri en jafnframt skraut-
legan gróður eins og t.d. randa-
gras, risahvönn, bjarnarkló, út-
laga, en einnig smærri tegundirn-
ar eins og áður.
Gróður í tjarnir
Tjarnirnar bjóða upp á marga
möguleika í gróðurvali því
gróðurinn þrífst ekki aðeins fyrir
utan þær heldur einnig í þeim og
—plöntukynning-------------
má fyrsta telja vatnasóleyjuna
sem blómsfrar ótrúlega fallegum
blómum og myndar þekju af
blöðum. Hana er best að rækta í
körfum sem hægt er að taka upp
úr því ekki er víst að hún þoli
veturinn vel. Vatnasóleyjar eru
til í fjölda afbrigða sem þurfa
mismunandi vatnsdýpi til að
þrífast. Tjarnarlilja og aðrar Iris
sortir þrífast vel í vatni.
Koparreynir
Koparreynir.Sorbus koehneana,
er runni sem getur orðið allt að 3
metrar á hæð. Hann er af rósaætt
(Rosaceae) og er ættaður alla
leið frá Kín'a en þrátt fyrir það
virðist hann þrífast vel hér
norðanlands, jafnvel norðan við
hús. Laufblöðin eru eins og
smækkuð mynd af láufblöðum
ilmreynis en hafa á sér koparblæ
eins og nafnið gefur til kynna.
Koparreynirinn fær snjóhvít ber í
stórum klasa og eru berjastilk-
arnir eldrauðir. Þegar berin eru
komin slúta greinarnar alveg nið-
ur undir jörð því greinarnar eru
fíngerðar og þola ekki þungann.
Fyrir utan hve glæsilegur hann er
með berjaklasa þá fær hann
einnig glæsilega haustliti, oft
sterkrauðan.
Koparreynir. Sérkennilegur runni.