Dagur - 04.08.1990, Blaðsíða 9
Laugardagur 4. ágúst 1990 - DAGUR - 9
ákveðin í því að segja nei við
áfengi og var ekki með neina
tæpitungu í því máli, nei var nei
og síðan var það útrætt mál af
minni hálfu. Ég fékk þess vegna
fljótlega að vera í friði fyrir þrýst-
ingi utanaðkomandi vegna þess
hversu harða afstöðu ég tók, en
auðvitað hefur í gegnum tíðina,
sem unglingur og í menntaskóla,
þetta komið fólki sem maður
hittir töluvert á óvart að maður
segi algjörlega nei við áfengi. Ég
lendi ennþá í því að vera boðið
áfengi og beðin um að vera með,
en af því að ég tók þetta harða
afstöðu sem unglingur held ég að
ég hafi aldrei lent í þessari alvar-
legu pressu sem að krakkar lenda
oft í ef þau eru ekki alveg ákveð-
in í því hvað þau ætla sér. Þá
ganga hinir á lagið og telja þau á
að prófa þetta, því að það vilja
margir meina það að allir verði
að prófa alla hluti. Ég tel mig
ekki hafa þurft að prófa þessa
hluti á eigin skinni til að vera
dómbær um það að segja nei.
Mér hefur alveg nægt það að
horfa í kringum mig og sjá mína
jafnaldra', félaga og kunningja
nota áfengi og misnota það og sjá
þær afleiðingar sem það hefur
haft í för með sér.
Reykt hef ég heldur aldrei,
enda var ég svo heppin að vera í
grunnskóla þegar Krabbameins-
félagið rak sinn mikla áróður og í
dag er líka vitað það mikið um
reykingar að það er svo sem eng-
in furða þó það hvarfli ekki að
manni að byrja á því.“
Tvímælalaust betra líf
- Etlar þú að sitja jafnlengi sem
stórgæslumaður og forveri þinn?
„Kjörtímabilið er tvö ár og ég
ætla mér nú ekki að verða
mosagróin í þessu, en alla vega
vinn ég að þessu næstu tvö árin.
Hvað hægt verður að gera byggist
síðan á úr hverju verður að spila
peningalega. Halda verður utan
um þær stúkur sem eru starfandi
og reyna að styrkja þær sem eru
veikari. Síðan verður að hafa úti
allar klær til að fá fleiri til að
starfa að þessu, en starfa að því
núna. Tíminn verður svo að leiða
í ljós hvort einhverjar nýjungar
verða.“
- Lokaorð?
„Ég vona það að með þessu
starfi mínu, geti ég og aðrir sem
vinna að bindindismálum, sýnt
og sannað það fyrir öðrum að
það er alveg hægt að lifa lífinu og
sleppa áfengi og öðrum vímuefn-
um. Með því að ganga á undan
með góðu fordæmi sýnum við að
þetta er hægt og hvetjum fleiri til
að gera slíkt hið sama. Okkar
mat er það að þetta sé tvímæla-
laust betra líf og miklu hollara.“
SBG