Dagur - 04.08.1990, Side 14
14 - DAGUR - Laugardagur 4. ágúst 1990
Laus staða
Við námsbraut í hjúkrunarfræði í læknadeild
Háskóla Islands er laus til umsóknar staða lekt-
ors (37%) í hjúkrunarfræði, aðalkennslugrein
geðhjúkrun. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt
til tveggja ára frá 1. október nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegri skýrslu um námsferil,
vísindastörf og kennslu- og hjúkrunarstörf um-
sækjenda, skulu sendar menntamálaráðuneyt-
inu, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir
1. september nk.
Menntamálaráðuneytið, 2. ágúst 1990.
Hvers vegna er nágranni
þinn áskrifandi að
Heima er bezt
Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er
bezt“ er eitt af vinsælustu tímaritum hérlendis.
Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást
í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott
og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir
sent heim til þín í hverjum mánuði. Útfylltu þess vegna
strax í dag áskriftarseðllinn hér fyrir neðan og sendu hann
til „Heima er bezt“, pósthólf 558, 602 Akureyri, og þú munt
um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru
því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt“.
Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti.
x--------------------------------------------
Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyri.
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu
„Heima er bezt“.
□ Árgjald kr. 2.000,00.
□ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990.
Nafn:________________________________________
Heimili:_____;_______________________________
/f ^
Vikuferð til
Færeyja
Farið með rútu fimmtudaginn 23. ágúst frá
Húsavík til Seyðisfjarðar siglt með m/s
Norröna til Þórshafnar.
Gist verður tvær nætur á Suðurey og þrjár
nætur í Þórshöfn.
Hér er um að ræða ódýra skemmti- og
skoðunarferð.
Verð kr. 38.800,-
Innifalið í verði er:
★ Rúta
★ Leiðsögn
★ Far með m/s Norröna
★ Ferja til Suðureyjar
★ Gisting í 2ja manna herbergjum
★ Sameiginlegur kvöldverður á Hótel
Borg síðasta kvöldið í Færeyjum.
Upplýsingar á Ferðaskrifstofu Húsavíkur
sími 42100.
Ath. Ferð er háð lágmarksþátttöku.
Sími 42100 - Fax 42101
Björn Sigurðsson,
sérleyfishafi - Sími 42200.
V .......... ............................J)
m
efst í hugo
Þá er verslunarmannahelgin, þessi mesta
ferðahelgí ársins gengin í garð. Á þessum
árstíma eru því ferðalög ofarlega í huga
margra og svo er einnig með mig. Að undan-
förnu hefur verið mikið fjallað um þær útihá-
tíðir sem nú eru f gangi. Á það bæði við um
hvernig að þeim sé staðið, t.d. hvernig lög-
gæslan og allur aðbúnaður á svæðunum
almennt sé. Þá hefur einnig verið fjallað ítar-
lega um það hvort borga beri virðisaukaskatt
af skemmtanahaldinu og sýnist sitt hverjum.
Margir foreldrar og forráðamenn unglinga,
hafa sjálfsagt áhyggjur af börnum sínum
sem nú eru að skemmta sér í Húnaveri,
Vestmannaeyjum, Galtalæk eða Húsafells-
skógi. En á þessum stöðum eru skipulagðar
útihátíðir en þó eru hátíðirnar í Húsafelli og
Galtalæk auglýstar sérstaklega sem fjöl-
skylduskemmtanir án áfengis.
Miðað við reynsluna í Húnaveri í fyrra og
á þjóðhátíð Vestmannaeyja í gegnum árin,
má búast við töluverðri áfengisdrykkju á
meðal unglinga. En þrátt fyrir allt er það nú
samt mín skoðun, að af tvennu illu sé skárra
að unglingar hópist saman á skipulögðum
útisamkomum, heldur en þau hópist saman
einhvers staðar þar sem aðbúnaðurinn er
verri eða alls enginn. Á þessum skipulögðu
útisamkomum er löggæsla góð, salernismál
í þokkalegu lagi og síðast en ekki síst
heilsugæsla á staðnum.
Þar sem þúsundir unglinga eru saman
komnir, má alltaf búast við því að eitthvað
óvænt komi uppá. Unglingar fara misjafn-
lega „vel“ með áfengi og þá er misjafn sauð-
ur í mörgu fé. Slys hafa yfirleitt fylgt þessari
mestu ferðamannahelgi ársins og enginn
veit hver er næstur. Vonandi fara allir var-
lega um helgina og hafi hugfast; að hollt er
heilum vagni heim að aka.
En það er annað mál sem er mér ofarlega
í huga þessa stundina. Það hefur löngum
verið talaö um Akureyri sem mikinn ferða-
mannabæ, enda' veðurfarið hér á sumrin
með því besta á landinu. En þá er það
spurningin. Hvernig mynd fá ferðamenn sem
sækja Akureyringa heim af bænum? Þeir
sem koma til bæjarsins að norðan, sjá fyrst
stórt og mikið ómálað hús við bæjarmörkin
sem við nánari athugun er Efnaverksmiðjan
Sjöfn, sem m.a. framleiðir málningu. Einnig
eru á þessu svæði t.d. verkstæði og kringum
sum þeirra er dálítið rusl sem er lítið augna-
yndi.
Þegar komið er í miðbæinn, er fjaran í
Strandgötu á vinstri hönd, sem er lítið
augnayndi og svo gömlu húsin í miðbænum
sem mörg mættu missa sig. En þó minnst
hafi verið á þessi atriði er víða fallegt á Akur-
eyri en spurningin er hvort ekki væri hægt aö
hressa enn frekar upp á svip bæjarins, svo
ferðamenn fái þá tilfinningu að Akureyri sé
fallegasti bær á íslandi.
Og svo eitt að lokum: Mikið væri gaman
að fá heita potta við sundlaugina í Glerár-
hverfi. Ætli pottur kosti mikið meira en ein lít-
il vatnsrennibraut. Kristján Kristjánsson
vísnaþóttur
Höskuldur Einarsson er lengi
bjó að Vatnshorni, kvað
þessa sléttubandavísu að góu
lokinni.
Snjóinn þíðir góa góð,
gefast blíðir dagar,
móinn skrýðir geisla glóð,
glansa víðir hagar.
Séra Jón Þorláksson kvað, er
hann heyrði trúlofunarfrétt:
Allan stansar á því mig
að hann þýðist píka.
Mun ei gamli Satan sig
senn fara að gifta líka?
Næstu vísurnar kvað hinn
glaðlyndi hagyrðingur Friðrik
Jónsson póstur á Helgastöð-
um í Reykjadal. í vetrarferð
austur yfir Reykjaheiði:
Pað skal öllum brögðum beitt
að brjótast heiðar - veginn.
Ég mun kvíða ekki neitt,
Anna er hinumegin.
Líklega hefur Friðrik skotið
þessari að félaga sínum er
þeir sáu til kvenna:
Verfu ekki angurvær,
öllum hrintu trega.
Skaparinn hefur skenkt
oss tvær,
skiptum bróðurlega.
Næsta vísa flaug frá Helga-
staðabónda þegar ung blóma-
rós giftist dönskum manni:
Það minn huga þráast ergir
þá ég hugsa um ástandið,
þegar danskir djöflamergir
draga frá oss kvenfólkið.
Þá leyfi ég mér að birta
heimagerðar vísur. Skýringar
óþarfar:
Bóndans sæmd ég sótti að,
sá ei annað meira.
Seinna hef ég hugleitt það
ég hefði getað fleira.
Ég hef vaðið vísna sjó,
við sem flesta hjalað.
Seinni árin aðeins þó
eins og köttur malað.
Lok í elli brýt ég blað.
Betra líf ég reisi.
Nú ég stefni ákaft að
ávirðingaleysi.
Næstu vísu kvað Jakob Thor-
arensen í upphafi stríðsins
1939:
Nú má heita að heimurinn
heiðri öllum rifti,
er sem guð og andskotinn
ætli í makaskipti.
Þessa orti Jakob um Stephan
G. Stephansson:
Skýr, með óra aldrei fór,
á við fjóra að þreki.
Hlýr og rór, um styrkhug stór,
Stórisjór að speki.
Hvorutveggja vel gert, nefn-
ist næsta vísa Jakobs:
Virðuleg sex daga vinna
er veröldin alsköpuð,
en meistaraverk þó ei minna
hafi mennirnir skapað guð.
í kreppunni um 1930 orti Jak-
ob Thorarensen:
Pað er hálfpart, herra minn,
heimskulegur dauði,
hann er að verða, heimurinn
hungurmorða af auði.
Steinn Steinarr kvað þessa
vísu í Rússlandsför:
Ömurleg er gerskra grund,
gjálpar skólp í mýri.
Raula ég fyrir rauðan hund
rímur úr ævintýri.
Halla Loftsdóttir kvað:
Fæst ei tak að forma brag,
fer því staka í mola.
Ég var í klaka í allan dag
ein að flaka kola.
Ef... (Heimagert.)
Ég er skepna þreytt og þyrst,
það mig kynni að styðja
ef ég gæti lært þá list
að lofa, syngja, biðja.
Þú ert oft að angra mig
efans kalda skyssa.
Aðeins hólpnir eiga þig
engla himna vissa.
Næsta vísa er frá Ströndum
vestur og mun fornyrðið
„fén“ hafa haldið henni í
geymd.
Á Ströndum eru fén svo feit
að fáir síðu éta,
en þeir sem eru í annarri sveit
innfæddir, það geta.
Ingólfskaffi hét greiðasala í
Reykjavík. Þar fannst miði
og vísa á undir borði, en
höfundur mun enn ófundinn:
Ungu skáldin yrkja kvæði
þó ekki geti það.
í Ingólfskaffi er ég í fæði
þó ekki éti það.
Með nákvæmlega sama hætti
fannst vísa á Hótel Borg. Var
hún öllu ljótari og spannst af
eitthvert jsref:
Jóhannes er bóndi á Borg,
bruggar margt um nætur.
Selur bæði kaffikorg,
konu sína og dætur.