Dagur - 04.08.1990, Síða 15
helgarkrossgátan
%á j JjT •B^ ' 1- o 8 ruoS- qÓoAf Folletjt Sarnhl. Fleiri maóur Köc]ei Obur Trep SvlIcum O Tfóa
t
7 ' 7 ilri . >
Se-inar
Mj'olka H.
0 Skemm- ast Unq- ciómur Maróa þrelkun Spy rjir Qkunrlur dei sla- baun Stt'nnr C>Qvr}0ii1- sóVn 1■ Sjón - rj/er'ib
77/- e/ot 3. þcf L Kaué 5 ífelU
Ein s urv« S fl-fu rd Ifann : 7.
Klamp- anno. 5- firaíjeiri Fornafn Yeisla
Eins Slór 'fttt :
> t
'Plit Velbúnah nv1 FIÍS * • <?. V/
f\anna Grjót u fc. -
7> Cxsfa 10. L i 'to. Hreijfing ttreins <
fWn na TÓLur Samdi
O i n r 5 CL m h L ■
k f 'Oþrif
Tata L lI l r *« 8. Ke-f þófc
Beiur Smá- naglar 'Mt V/
Stafnum G ei r- na.C)U > 7. J II.
Tekið skal fram að skýr greinarmunur er gerður á grönnum og breiðum sérhljóðum.
Þegar þú hefur ráðið gátuna, skaltu skrifa stafina í tölusettu reitunum á lausnarseðilinn hér
að neðan. Klipptu síðan lausnarseðilinn út og sendu til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri,
merktan: „Helgarkrossgáta nr. 138.“
Sjöfn Ólafsdóttir, Hólagötu 2, 900 Vestmannaeyjum, hlaut
verðlaunin fyrir helgarkrossgátu nr. 135. Lausnarorðið var
Gönguleiðir. Verðlaunin, skáldsagan „Hringir í Skógi“,
verða send vinningshafa.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er skáldsagan
„Spor á vegi“, eftir Aðalheiði Karlsdóttur frá Garði.
í kynningu á bókarkápu segir m.a.: „Saga þessi gerist að
mestu leyti í sveitinni. Aðalsöguhetjan heitir Huld og er ævi-
þráður hennar rakinn í bókinni en fjölmargir aðrir koma
auðvitað við sögu. Örlögin spinna sinn vef og eins og í dag-
legu lífi manna skiptast á skin og skúrir...“
Útgefandi er Skjaldborg.
IÉ □ lilantl laaar. Vs B/í * 4*J 01*11
% € i T R E L (V R
/SSÍkÍÍ' jmþt ji; fc p, 5 « u R u Á fl
ft M T I L r áJ
F*tt, F T L « A/4.. G-
fí06Í 0 R M í"ta= R ’fl S
: • r.í l Humm Dtid Ku.kU L fl U r Uk.e ft M
r*k. 'fl tt O L P & 'o fl k> ú
ru. R E £> X ■57 ft & u t> R r
<J.l* 5 T R o k A M ft ÍTJn' £
J.U„f n T u u 'r R ~~~ u V ft k
Lo'uf L- r M M ft G M 'ft T ft
SÁMif p Ccó O L,i . rm*. R. o 'e R
Fola r u h E 5 s u M P S
JucL Tapa ‘N 3 o 4 L fl k N ft p P ft
fi k R n R o Þ 'fl T T
ABAlHSIDtTH KA&ISDÓTTIB HÚ OARfil
SPORÁVECI
RAMMÍSLENSK
ÁSTARSAGA
Helgarkrossgátan nr. 138
Lausnarorðið er ................
Nafn ..............
Heimilisfang ......
Póstnúmer og staður
Laugardagur 4. ágúst 1990 - DAGUR - 15
y íþróttir
Bikarkeppni kvenna í knattspyrnu,
undanúrslit:
Valur sigraði Þór
- og mætir ÍA í
Valsstúlkur tryggðu sér rétt til
að leika í úrslitum bikarkeppni
KSÍ með því að sigra Þórs-
stúlkur að Hlíðarcnda í fyrra-
kvöld í undanúrslitum. Vals-
stúlkur skoruðu einu sinni án
þess að gestunum tækist að
svara fyrir sig. Markið skoraði
Guðrún Sæmundsdóttir úr
vítaspyrnu þegar um 15 mín.
voru til leiksloka.
„Það er ekki oft sem maður
kennir dómaranum um úrslit
leikja en þessi vítaspyrnudómur
var alveg útí hött,“ sagði Sigurð-
ur Pálsson þjálfari Þórs í samtali
úrslitaleiknum
við Dag. „Stelpurnar spiluðu
mjög vel á köflum í leiknum og
hefðu allt eins getað farið með
sigur af hólmi.“
Jafnræði var með liðunum
lengst af og bæði fengu þau ágæt-
is marktækifæri. Eftir að Valur
skoraði úr vítaspyrnunni, dró lið-
ið sig aftar á völlinn og freistaði
þess að halda fengnum hlut. Það
gekk eftir og liðið hefur því
tryggt sér rétt til að að leika til
úrslita í keppninni.
Valur mætir liði ÍA sem sigraði
KA í hinum undanúrslitaleiknum
um síðustu helgi.
Knattspyrna 2. flokks:
Jafiit í leik Þórs og Vals
Þór og Valur skildu jöfn í A-
riðli 2. flokks á íslandsmótinu í
knattspyrnu í fyrrakvöld. Leik-
urinn fór fram á Þórsvellinum
og skoraði hvort lið tvö mörk,
eftir að staðan í hálfleik var
1:1.
Valsmenn byrjuðu leikinn mun
betur en Þórsarar og þeir upp-
skáru mark rnjög fljótlega. Þórs-
arar komust síðan meira inn í
leikinn og tókst að jafna þegar
nokkuð var liðið á hálfleikinn.
Þórir Áskelsson átti þá hörku-
skot að marki Vals, markvörður-
inn hélt ekki skotinu og Ingólfur
Guðmundsson var fljótastur að
átta sig og skoraði af miklu harð-
fylgi. Til viðbótar áttu leikmenn
beggja lið skot í stöng fyrir hlé.
I síðari hálfleik var nokkuð
jafnræði með liðunum úti á vell-
inum en Þórsarar fengu mun
hættulegri færi upp við markið.
Sérstaklega voru Áxeli Vatnsdal
mislagðir fætur upp við markið.
Valsmenn náðu forystu á ný í
síðari hálfleik með góðu marki
en Þórsarar jöfnuðu á ný þegar
um 15 mín. voru til leiksloka.
Varnarmaður Vals hugðist skalla
til markvarðar síns en boltinn
hafnaði í slánni og út og þar var
Arnaldur Skúli Baldursson mætt-
ur og renndi boltanum í netið.
Knattspyrna 2. flokks:
Markalaust hjá Víkmgi og KA
KA-menn sóttu eitt stig til
Reykjavíkur er þeir gerðu
markalaust jafntefli við Víking
í A-riðli 2. flokks á íslands-
mótinu í knattspyrnu í fyrra-
kvöld.
Nokkurt jafnræði var með lið-
ununt en KÁ-menn voru þó held-
ur nær því að fara með bæði
stigin. Tvívegis komust leikmenn
liðsins einir í gegnum vörn Vík-
inga en skutu framhjá í bæði
skiptin. Þá áttu þeir einnig hættu-
leg skot úr aukaspyrnum að
marki Víkinga en markvörður
liðsins varði vel í bæði skiptin.
Víkingar fengu einnig sín færi
en tókst ekki frekar en gestunum
að koma boltanum inn fyrir mark-
línuna og markalaust jafntefli því
niðurstaðan.
Knattspyrna 2. flokks:
Sex mörk á Húsavík
- í jafnteflisleik Völsungs og Skallagríms
Skallagrímur úr Borgarnesi
hélt á brott með eitt stig frá
Húsavík, er liðið sótti Völsung
heim í B-riðli 2. flokks á ís-
landsmótinu í knattspyrnu í
fyrrakvöld. Leiknum lyktaði
með jafntefli og skoraði hvort
lið 3 mörk.
Skallagrímur komst yfir strax í
upphafi leiksins með ódýru marki
en Þór Stefánsson jafnaði leikinn
fyrir hlé. Strax í upphafi síðari
hálfleiks komust gestirnir aftur
yfir með sínu öðru marki.
í þeirri stöðu var Völsungurinn
Ásmundur Arnarsson settur inná,
þrátt fyrir að eiga við meiðsli að
stríða og átti hann eftir að koma
mikið við sögu í leiknum. Skalla-
grímsmenn bættu þriðja markinu
við skömmu síðar og breyttu
stöðunni í 3:1.
En Ásmundur og félagar voru
ekki sáttir við þá stöðu og á 15
mínútna kafla skoraði Ásmundur
tvö falleg skallamörk og jafnaði
leikinn á ný. Fleiri urðu mörkin
ekki og má segja að bæði lið geti
verið sátt við úrslitn miðað við
gang leiksins.
KR og ÍBV eru efst í B-riðii,
Skallagrímur er í þriðja sæti og
Völsungur í því fjórða.
Landsmótinu í
golfi lýkur í dag
Keppni á landsmótinu í golfí,
sem fram fer á Jaðarsvelli lýk-
ur í dag. Keppni í meistara-
flokki karla og kvenna og 1.
flokki karla og kvenna hefur
staðið yfír frá því á miðvikudag
og verða síðustu 36 holurnar
leiknar í dag.
Það verður áreiðanlega hart
barist á lokasprettinum enda til
mikils að vinna. Þau Úlfar Jóns-
son GK og Karen Sævarsdóttir
hafa titil að verja í meistaraflokki
og miðað við spilamennsku
þeirra fyrstu tvo keppnisdagana,
láta þau titilinn ekki af hendi
átakalaust.