Dagur - 14.09.1990, Qupperneq 1
Miklar endurbætur standa nú yfir á Akureyrarkirkju. Kirkjan er máluð í hólf ug gólf og parketgólf kirkjunnar slípað
og lakkað. Tilefni þessara endurbóta er 50 ára afmæli kirkjunnar á þessu ári, en haldið verður upp á þessi tímamót
í nóvember. Við það tækifæri verður safnaðarheimili kirkjunnar formlega vígt. Mynd: Goili
Nauðsynlegt að auka keimslurými
Menntaskólans á Akureyri
- skólameistari telur brýnt að veita fé til nýframkvæmda
Kennslurými Menntaskólans á
Akureyri hefur í allmörg ár
verið minna en svo að það full-
nægi nútímakröfum og
aðstöðu fyrir þann fjölda
nemenda sem þar stundar
nám. Tryggvi Gíslason, skóla-
meistari, telur brýna þörf á
úrbótum í þessu efni, og áform
eru uppi um að auka húsakost
skólans.
Menntaskólinn á Akureyri er
600 manna skóli, og hefur fjöldi
nemenda lítið breyst undanfarin
tólf til fimmtán ár. Kennslurými
er um þrjú þúsund fermetrar. Að
sögn skólameistara er það um
helmingur þess sem talið er nauð-
synlegt í stöðlum, fyrir fram-
haldsskóla af þessari stærð.
„Stofnunin hefur orðið að bíða
vegna annarra brýnna fram-
kvæmda um nokkurt árabil, en
nú tel ég að röðin að sé komin að
Menntaskólanum á Akureyri, og
að veitt verði fé á fjárlögum til
nýframkvæmda við hann,“ segir
Tryggvi Gíslason.
I ljósi þess sem að framan
greinir er þörf á að byggja tvö til
þrjú þúsund fermetra viðbótar-
húsnæði við skólann á næstu
árum, til þess að unnt sé að upp-
fylla kröfur tímans. Skólastof-
urnar í gamla skólahúsinu eru
margar hverjar þrjátíu til fjörutíu
fermetrar. Tryggvi bendir á að
fyrir 25 manna bekkjardeildir sé
slíkt kennslurými auðvitað al.ltof
lítið, og með öllu ófullnægjandi.
„Þótt hús skólans séu góð og
umgengni ágæt þá eru þau of Iítil.
Við því er ekki nema tvennt til
ráða; annars vegar að nemendum
fækki eða þá að byggja við. Þar
sem aðsókn hefur verið mikil að
M.A. um langt skeið, og raunar
meiri en hægt hefur verið að anna
þrátt fyrir byggingu nýrra fram-
haldsskóla, tel ég eðlilegt að
ráðist verði í byggingarfram-
kvæmdir. Ég mun leggja það mál
Saumastofan Drífa á Hvammstanga:
Ganilar skuldir erfiðar
„Af bráðabirgðauppgjöri fyrir
sjö fyrstu mánuði þessa árs sést
að reksturinn hefur gengið
bærilega og staðið undir sér,
en ræður samt illa við allan
þann fjármagnskostnað sem
við höfum í gömlum
skuldum,“ sagði Guðmundur
Haukur Sigurðsson, stjórnar-
formaður hjá Saumastofunni
Drífu á Hvammstanga að
afloknum stjórnarfundi sl.
fimmtudag.
Saumastofan hefur aðallega
verið í því að prjóna peysur fyrir
Árblik á þessu ári, en nú segir
Guðmundur að farið verði að
vinna aftur fyrir Fínull hf. með
öðrum verkefnum. Saumastofan
fær þá allt efni frá Fínull, en sér-
saumar síðan úr angóraullinni
flíkur sem fara bæði á innlendan
og erlendan markað. Næg verk-
efni eru því framundan hjá
saumastofunni, en þar vinna nú
um 15 manns.
„Maður er hæfilega bjartsýnn á
framtíðina, en eins og er, er ljóst
að verkefnin eru næg að minnsta
kosti fram að áramótum og við
því ekkert á því að snúa tánum
upp í loft í bili,“ sagði
stjórnarformaðurinn að endingu.
bæði fyrir kennarafund og nýja
skólanefnd M.A., sem heldur
fyrsta fund sinn hinn 18. þessa
mánaðar," segir Tryggvi Gísla-
son. EHB
Hlutabréfm í ÚA á markað í gær:
Símalímir á sölustöðum
voru rauðglóandi
- selt á fyrsta degi í Reykjavík
fyrir 16 milljónir
Símalínur voru rauöglóandi í
gær þegar byrjað var aö taka á
móti pöntunum í ný hlutabréf í
Útgerðarfélagi Akureyringa.
Tekið er á móti pöntunum á
tveimur stöðum, annars vegar
hjá Kaupþingi hf. í Reykjavík
og hins vegar hjá Kaupþingi
Norðurlands hf. á Akureyri. A
báðum þessum stöðum var sal-
an lífleg á fyrsta deginum.
Nafnverð þeirra bréfa sem nú
eru laus á frjálsum markaði er
um 24 milljónir króna og eru
bréfin seld á genginu 3,0.
„Hjá okkur hafa selst hlutabréf
í dag fyrir um 16 milljónir króna
þannig að hér er búið að taka á
móti pöntunum í 5 af þeim 24
milljónum sem til sölu verða. Og
ég reikna með að á Akureyri sé
búið að selja annað eins,“ sagði
Elvar Guðjónsson, sölustjóri
verðbréfadeildar Kaupþings hf. í
Rcykjavík skömmu fyrir lokun í
gær.
Tckið verður á móti pöntunum
í eina viku en að því loknu verða
þessar kaupóskir lagðar saman.
Nemi þær hærri fjárhæð en til
sölu er í útboðinu verður hverj-
um umsækjanda úthlutað kaup-
rétti hlutfallslega. Elvar segir aö
aðeins sé tekið við óskum á fyrr-
greindum sölustöðum, bréflega
eða í telefaxi en ekki í gegnum
síma. Mjög margir hafi leitað eft-
ir upplýsingum í gær þannig að
búast megi við líflegri sölu áfram.
JÓH
Dalvík:
Fjár leitað með
flugvél í haust
Göngur á leitarsvæðum er til-
heyra Dalvíkurbæ verða með
heldur óvenjulegum hætti í ár.
í stað þess að senda fíleflda
gangnamenn, rakka og fáka til
Ijalla verður flugvél send á loft
til leitar.
Skýring á þessum óvenjulegu
„göngum“, sem reyndar voru
með sama sniði á síðasta hausti,
er einföld; ekki er að vænta
margra áa vegna þess að fé á
þessu svæði var allt skorið niður
vegna riðu haustið 1988 og síðan
hefur þar verið fjárlaust.
Þau svæði sem kembd verða
með þessum hætti eru Ytra-
Holtsdalur, Böggvisstaðadalur,
Upsadalur og Hólsdalur. Þá
munu „gangnamenn“ einnig
fljúga yfir Múlann, ef ske kynni
að þar séu flökkukindur á sveimi.
Éf kindur úr nágrannabyggðar-
lögum, t.d. Ólafsfirði, finnast á
þessum svæðum verða gerðir út
vanir gangnamenn á jörðu niðri
og reynt að komast fyrir féð á
hefðbundinn hátt.
Samkvæmt upplýsingum Dags
taka bændur á fjórum jörðum
innan lögsagnarumdæmis bæjar-
ins lömb í haust eftir niðurskurð-
inn. Þetta eru Háls, Hrafnsstaðir,
Hrafnsstaðakot og Hóll. Alls
taka þessir fjórir bændur um 200
fjár í haust, bróðurparturinn fer í
Hrafnsstaðakot. óþh
SkagaQörður:
fyrir bil
- höfðu sloppið
úr hólfi
Ekið var á ljögur hross hjá
hænum Syðstu-Grund í
Akrahreppi í Skagafirði sl.
miðvikudagskvöld og tvö
þeirra drápust strax, en
aflífa varð hin. Verið var að
reka hrossin milli hólfa og
álpuðust þau upp á veginn á
leiðinni. Engin viðvörun
eins og bíll með blikkandi
Ijós var með í för, enda ekki
orðiö aldimmt.
Klukkan var farin að nálg-
ast níu á miðvikudagskvöld
þegar Pajero jeppi á leiö aust-
ur, lenti á hópnum, sem í voru
tvö trippi og meri með folald.
Hrossin lentu á milli lágu
geisla tveggja híla, því að úr
austurátt kom annar bíll sem
sá hrossin og fór ekki fram úr
þeim. Jeppinn lenti hinsvegar
á hópnum og valt við það á
hliðina á vcginum. í honum
voru fimm manns og mesta
mildi talin að ekki uröu slys á
fólki, en öryggisbelti björguðu
miklu.
Fimmtán ára gamall dreng-
ur frá Syðstu-Grund var á leið-
inni með hrossin í annað hólf,
en þau höfðu sloppið út úr
hólfinu sem þau voru geymd í.
Töluverð ferð var á hrossun-
um og hafði drengurinn dreg-
ist aftur úr þegar þau hlupu
upp á vcginn með fyrrgreind-
unt afleiðingum. Hann var því
ekki í hættu frá bílnum sem
valt. SBG
Silfurstjarnan hf.:
Góð viðbrögð við
fyrstu prufusendingu af
bleikju til Parísar
Viðbrögð við fyrstu prufusend-
ingu af bleikju frá Silfurstjörn-
unni hf. í Óxarfirði á Frakk-
landsmarkað gefa góðar vonir
um framhaldið, að sögn Björns
Benediktssonar, stjórnarfor-
manns Silfurstjörnunnar.
Um síðustu helgi fór fyrsta
prufusendingin af Silfurstjörnu-
bleikju, alls tíu kassar, til Parísar
og segir Björn að Frakkarnir hafi
látið vel af. „Fiskurinn er að vísu
ekki almennt kominn upp í þá
stærð sem Frakkarnir vilja, þ.e.
yfir 2 kíló, en þeir virtust mjög
ánægðir með gæði fisksins og
litinn. Ef gæðin eru í lagi og fisk-
urinn nær tiltekinni stærð, sem
mér sýnist hann örugglega ná, þá
lítur þetta vel út,“ segir Björn.
Gerður hefur verið samningur
við aðila í París um kaup á bleikj-
unni, en hann hefur á sínum
snærum 1400 veitingahús í
Frakklandi. Ætlunin er að senda
Silfurstjörnubleikjuna vikulega
til Parísar með flugi frá Keflavík.
óþh