Dagur - 14.09.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 14. september 1990
Þriðja öryggismálaráðstefna sjómanna haldin í Reykjavík 21. og 22. september nk.:
Fjallar sérstaklega um öryggí sldpa og áhafiia þeirra
- að ráðstefnunni standa 20 stofnanir, hagsmunasamtök.og félög
Öryggismálaráðstefna sjó-
manna verður haldin dagana
21. og 22. sept. n.k. að Borgar-
túni 6 í Reykjavík. Ráðstefnan
er sú þriðja sem haldin hefur
verið frá árinu 1984 og fjallar
sérstaklega um öryggi skipa og
áhafna þeirra. Að ráðstefn-
unni standa 20 stofnanir, hags-
munasamtök og félög.
Málaflokkar þeir sem verða til
umræðu á ráðstefnunni eru;
menntun og öryggisfræðsla sjó-
manna, notkun, þjálfun og eftirlit
með björgunar- og öryggistækj-
um, slysaskráning og rannsóknir
sjóslysa, öryggi smábáta, öryggis-
og björgunarþjónusta við sjófar-
endur, ásamt fleiri málefnum er
hæst bera í umræðunni nú. Leit-
ast hefur verið við að velja til1
framsögu og stjórnunar umræðu,
menn með sem víðtækasta þekk-
ingu á þeim málum sem fjallað er
um.
Fyrsta ráðstefnan um örygg-
ismál sjómanna var haldin í sept-
ember 1984, að tilstuðlan Rann-
sóknanefndar sjóslysa og Sigl-
ingamálastofnunar ríkisins, í
samvinnu við 14 aðrar stofnanir,
hagsmunasamtök og félög. Næsta
ráðstefna var haldin í september
1987, að tiistuðlan sömu aðila, að
viðbættum nokkrum.
Á ráðstefnunni 1984 var mikið
rætt um menntun og þjálfun
áhafna skipa og bar mikið á
umræðu um notkun og meðferð
björgunar- og öryggisbúnaðar
skipa. Töldu ráðstefnugestir
brýna þörf á að koma á nám-
skeiðum í meðferð björgunar- og
öryggisbúnaðar og nteðferð
slökkvitækja og eldvarnabúnað-
ar.
Fulltrúar SVFÍ upplýstu þá á
ráðstefnunni að í undirbúningi
væri hjá félaginu að koma slíkum
námskeiðum á fót og var Slysa-
varnaskóli sjómanna stofnsettur
árið 1985 og má fulivíst telja að
umræðan á öryggismálaráðstefn-
unni hafi flýtt fyrir framgangi
málsins.
Opinská umræða á ráðstefn-
unni árið 1984 og 1987 hefur leitt
til víðtækrar umfjöllunar milli
þeirra aðila sem að öryggismál-
um sjómanna standa og flýtt fyrir
ákvarðanatöku og framkvæmd
vmissa veigamikilla mála. Má þar
nefna stöðugleikaathuganir á
minni fiskibátum, öryggiseftirlit á
fiskiskipum, lögleiðingu flot-
björgunarbúninga, framkvæmd
björgunaræfinga um borð í
skipum, neyðaráætlun og svo
mætti lengi telja.
Ráðstefnan framundan er öll-
um opin og það er einlæg von
undirbúningsnefndar að þessi
ráðstefna verði vel sótt og árang-
ur af henni verði eigi minni en á
fyrri ráðstefnum.
Öryggismál sjómanna eru sá
málaflokkur sem þarfnast viðvar-
andi umfjöllunar og opinskárrar
umræðu. Það er ekki hægt að
afgreiða þessi mál í eitt skipti fyr-
ir öll og menn verða stöðugt að
vera á varðbergi gagnvart þeim
hættum sem sjómennsku fylgja.
Það má enginn sjómaður hugsa
eða segja sem svo; ég þarf ekki
að mæta, það verða nógu margir
sem koma á ráðstefnuna. Þetta er
og verður sameiginlegt áhugamál
sjómanna og aðstandenda þeirra
svo og útgerðarmanna, að ekki sé
minnst á þá sem að þessum mál-
um starfa.
Ráðstefnustjórar eru þeir Hall-
dór Ibsen frá Útvegsmannafélagi
Suðurnesja og Helgi Laxdal vara-
forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands. Magnús
Jóhannesson siglingamálastjóri
setur ráðstefnuna föstudaginn 21.
sept. en að því búnu flytur
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra ávarp.
Dagskráin hefst síðan kl. 09.10
og stendur fram eftir degi og
verður síðan fram haldið á laug-
ardeginum. Skráning þátttak-
enda fer fram í síma 91-25844 hjá
Siglingamálastofnun ríkisins og
er þátttökugjald kr. 3500.-.
1. Magi, rass og læri:
Styrkjandi og vaxtamótandi tímar.
Engin hopp. fjörugir tímar, fjörug
tónlist. Byrj. og frh.
2. Framhaldstími:
Tímar fyrir framhaldsfólk. Mjúkt og
hart erobikk. Púl - sviti - fjör.
3. Róleg leikfimi:
Áhersla á maga, rass og læri, þol
teygjur, slökun. Hentar þeim sem
vilja fara sér hægar.
4. Leikfimi og megrun:
Fyrir þær sem vilja léttast um
nokkur kíló. Styrkjandi og vaxta-
mótandi æfingar. Vigtun, mæling.
Persónuleg leiösögn. Hvatning.
Fjörugir tímar!!
5. Átak í megrun:
Fyrir þær sem vilja og þurfa virki-
lega aö taka sig á. Þetta eru 4 vik-
ur í einu 4x í viku. 2 tímar í leikfimi
og 2 tímar ganga úti. Mikil hvatn-
ing og aöhald. Láttu nú veröa af
því!!!
6. Erobikk:
Þolleikfimi fyrir karla og konur.
Hörkufjörog mikiö púl. Mikil hopp.
Dúndur tónlist.
7. Þrekhringur.
Erobikk og tækjaleikfimi í sama
tímanum (stöövaþjálfun). Hörku
tímar, fjör, hvatning og aðhald.
Tímar fyrir konur og karla.
Tryggvabraut 22
Akureyri
V/SA
Þaö nýjasta og vinsælasta í
Bandaríkjunum í dag. Hörkupúl -
mikill sviti - dúndur tónlist. Hringdu
og spuröu nánar.
★ Hægt er að kaupa
mánaðarkort, þriggja
mánaðakort.
★ Sérstök kort fyrir
vaktavinnufolk.
★ Morguntímar og dag-
tímar í maga, rass og
læri.
Barnapössun.
★ Opnir tímar á föstu-
dögum.
Fitubrennslutími. 45 mín.
stöðug hreyfing um
gólfið. Mikil brennsla -
engin hopp.
Tröppuþrek.
Púl - púl - púl.
Skírteinaafhending
sunnudag 16. sept.
frá kl. 14-16.
Við byrjum 17. september.
Innritun er hafin í síma 24979 frá kl. 15-20.