Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 18. september 1990 - DAGUR - 3
fréttir
■ Göngin í Ólafsíjarðarmúla:
„Gerð drenlagna er lokið og vatns-
klæðning er komin á rétta staði“
- sagði Björn Harðarson, staðarverkfræðingur Vegagerðar ríkisins
Mynd: KL
„Okkur miðar vel í fram-
kvæmdum hér við og í göngun-
um í Ólafsfjarðarmúla. Gerð
drenlagna er lokið og eins er
búið að koma vatnsklæðning-
unni fyrir í lofti og á veggjum
ganganna þar sem þess var
þörf,“ sagði Björn Harðarson,
staðarverkfræðingur Vega-
gerðar ríkisins.
Jarðýtur og stórvirkar vinnu-
vélar voru að störfum utan gang-
anna að austanverðu, en þar var
unnið við útkeyrslu á möl til að
byggja veginn upp. Inni í
göngunum hittum við fyrir stað-
arverkfræðing Vegagerðar ríkis-
ins, hvar hann var á eftirlitsferð
við annan mann. Að sögn Björns,
staðarverkfræðings, hafa starfs-
menn unnið að gerð drenlagna út
úr göngunum, en stórar og mikl-
ar vatnsæðar höfðu tafið störf
nokkuð.
„Við höfum lokið gerð lagn-
anna og nauðsynlegt var að nota
sverari lagnir en ráð var gert fyrir
í upphafi vegna vatnsmagnsins.
Hér fremst í gangaopinu renna
fram 150 sekúndulítrar. Vatns-
klæðningin er öll komin á sinn
stað og þetta reynist allt vel,“
sagði Björn.
Blaðamaður og Ijósmyndari
óku í gegnum göngin og áberandi
var hvað allt var þurrt og laust
Vatnsklæðningin koniin á sinn stað.
við vatnsaga.
Framkvæmdir við vegagerðina
sjálfa um göngin er hafin og í lok-
in verður 12 cm þykkt malbikun-
arslitlag lagt á í október, en
umferð verður hleypt á göngin
um mánaðamótin nóvember-des-
ember.
„Jarðgangagerðin hófst í byrj-
un ágúst 1988 og fyrsta spreng-
ingin var gerð 10. október sama
ár, þannig að þessi framkvæmd
hefur gengið tljótt og vel að mínu
mati,“ sagði Björn, staðarverk-
fræðingur. ój
Átaki í sölu
lambakjöts lokið:
Sölusprenging
í ágústmánuði
í ágústmánuöi seldust um
1100 tonn af lambakjöti og
hefur sala á lambakjöti í ein-
um ntánuöi aldrei verið jafn
mikil síðustu þrjú verðlags-
ár. í heild seldust um 8000
tonn af lambakjöti á síðast-
liðnu verðlagsári, sem lauk
um síðustu mánaðamót.
Markaðshlutdeild lamba-
kjöts sýnist svipuð því sem
hún hefur veriö síðustu árin,
eða um 53-55% af heildar-
sölu kjöttegunda.
Nú um mánaðamótin lauk
sérstöku söluátaki á lamba-
kjöti sem staðið hefur frá því í
apríl í vor. Bráðabirgðatölur
fyrr í sumar gáfu til kynna
slakari sölu en raunin varð og
munaði þar mestu um hina
ntiklu sölu í ágúst.
Salan á síöasta verðlagsári
minnkaði um 6%, sé miðað
við verðlagsárið þar á undan.
Þrátt fyrir þetta hafa birgðir
lambakjöts í landinu minnkaö
um 28,4% á milli ára og eru
þær nú um 1400 tonn. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Sam-
starfshópi um sölu la.nbakjöts
eru minnkandi birgðir í sam-
ræmi við markmið stjórn-
valda.
Heildarsamdráttur í sölu á
kjöti, þ.e. lamba-, svína-,
nauta- og fuglakjöti, undan-
farin tvö verðlagsár er um 7%.
JÓH
SPINNIÐ
VNNÐ!
VERTLIMEÐI MEISTAfiAKEPPNI C0CA C0IA
JÓ-JÓ-MEISTARÍNN FRÁ JACK RUSSEL VERÐUR Á AKUREYRIIDAG MEÐ SVNINGil OG KEPPNI i ERIR-
TÖLDUM VERSLUNUM: MATVÖRUMARKAÐINUM KAUPANGIKL, 15.00, SHELL-NESTIV/HÖRGÁRBRAUT KL.
16.00 0G BORGARSÖLUNNIKL. 17.00
Á DALVÍK OG ÓLAFSHRÐIÁ MBVIKUDAG
Á DALVÍK í VERSLUNINNIDRÖFN KL. 14.00 0G ÓLAFSFIRÐI i SÖLUSKÁLANUM KL, 15.30.
FJÖLDIVINNINGA