Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 14

Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 18. september 1990 Húsnæði óskast r a Húsavíkurbær auglýsir eftir stórri íbúð eða ein- býlishúsi til leigu á Húsavík fyrir skólasálfræð- ing. Húsnæðið þarf að vera til afnoia sem allra fyrst. Upplýsingar gefur bæjarstjóri í síma 41222. Bæjarstjórinn á Húsvík. Haustlauk Allar tegundir ha Verslið þar sem ú Opið laugardaga og sunnudaga í Hafnarstrætr \ kl. 9-16 og t0-1 í Sunnuhlíð laugard. kl. 10-18. , Póstsendum. Næg bílastæði. Raflagnadeild Kaupfélags Ey- fírðinga flutti að Óseyri 2 í júlí síðastliðnum. Við það breytt- ust aðstæður hennar inikið til batnaðar en deildin hafði lengi búið við þröngan húsakost í Glerárgötu 36. Við flutninginn á Óseyri sköpuðust einnig ákjósanleg skilyrði fyrir aðkomu að deildinni því næg bílastæði eru í nágrenninu og Óseyrin í þjóðbraut eftir að neðsta brúin var byggð á Glerá. Raflagnadeild KEA í nvjum húsakynnum - stórbætt aðstaða, segir Gunnar Austflörð, deildarstjóri Raflagnadeildin hafði verið til húsa í Glerárgötu 36 frá árinu 1964. Starfsemi hennar var sett á laggirnar 1951 þegar miklar raf- veituframkvæmdir hófust í sveit- um Eyjafjarðar. Þá óskuðu félagsmenn eftir því að kaupfé- lagið yrði þeim innan handar við rafveituframkvæmdirnar og útvegaði vörur og kunnáttumenn í því sambandi. Eftir því sem tímar liðu og rafvæðingin varð útbreiddari breyttist verksvið deildarinnar og starfsemi hennar miðaðist nær eingöngu við sölu á raflagnaefni í heildsölu til raf- virkja auk smásöluverslunarinnar að Óseyri 2. Deildarstjórar Raflagnadeildar hafa verið þrír frá upphafi. Fyrsti deildarstjóri hennar var Anton Kristjánsson, síðar Aðalsteinn Valdemarsson og núverandi deildarstjóri er Gunnar Aust- fjörð. Að sögn Gunnars hafa all- ar aðstæður Raflagnadeildarinn- ar breyst við að flytjast í hið nýja húsnæði, sem er mjög rúmgott og aðstæður til aðkomu hinar ákjós- anlegustu. ÞI. Nýr veitingastaður: Greifinn á að og vill framreiða bestu pizzumar Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Bjömshús, Hjalteyri, þingl. eigandi Einar Helgason o.fl., föstud. 21. sept., '90, kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild Landsbanka íslands. Eiðsvallagata 20 e.h., Akureyri, tal- inn eigandi Guðlaug Jóhannsdóttir, föstud. 21. sept., ’90, kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild Landsbanka Islands. Hafnarstræti 77, 3. og 4. hæð, Akur- eyri, þingl. eigandi Jóna Ákadóttir o.fl., föstud. 21. sept., ’90 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild Landsbanka íslands Hafnarstræti 88, efri hæð að norðan, þingl. eigandi Stefán Sig- urðsson, föstud. 21. sept., '90, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Fjár- heimtan hí. og Gunnar Sólnes hrl. Helgamagrastræti 10, Akureyri, þingl. eigandi Ólafur Halldórsson, föstud. 21. sept., '90, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka fslands og Gunnar Sólnes hrl. Karisbraut 7, Dalvík, þingl. eigandi Sigurjón Kristjánsson, föstud. 21. sept., '90, kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild Landsbanka íslands. Móasíða 1, 02-06, Akureyri, þingl. eigandi Kristján Gunnarsson, föstud. 21. sept., '90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Helgi Sigurðs- son hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl. og Benedikt Ólafsson hdl. Móasíða 8 a, Akureyri, þingl. eig- andi Hannes Sigurðsson, föstud. 21. sept., '90, kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru: Halldór Þ. Birgisson, hdl., Gunnar Sólnes hrl„ Benedikt Ólafsson hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Rimasíða 27 a, Akureyri, þingl. eig- andi Sigurður Sigurðsson, föstud. 21. sept., '90, kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er: Ólafur Sigurgeirsson hdl. Skarðshlíð 26 a, Akureyri, talinn eigandi Guðmundur Svansson, föstud. 21. sept., '90, kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur Birgir Árnason hrl. og Veð- deild Landsbanka íslands. Skarðshlíð 4j, Akureyri, þingl. eig- andi Jenný Jónsdóttir, föstud. 21. sept., ’90, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Ólafur Birgir Árnason hrl. og Fjárheimtan hf. Stórholt 6 a, Akureyri, þingl. eigandi Jóhannes Árnason, föstud. 21. sept., ’90, kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er: Eggert B. Ólafsson hdl. Tjarnarlundur 3b, Akureyri, þingl. eigandi Rakel Bragadóttir, föstud. 21. sept., ’90, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Tungusíða 23, Akureyri, þingl. eig- andi Ólafur Svanlaugsson, föstud. 21. sept., ’90, kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild Landsbanka íslands. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtaldri fasteign fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Svarfaðarbraut 32, Dalvík, þingl. eig- andi Vignir Þór Hallgrímsson, föstud. 21. sept. '90, kl. 16.00. Uppboðsbeiðepdur eru: Ólafur Birgir Árnason hrl., Benedikt Ólafsson hdl., Hróbjartur Jónatans- son hdl., innheimtumaður ríkissjóðs, Veðdeild Landsbanka íslands og Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Við Glerárgötuna á Akureyri er nýr veitingastaður sem sér- hæfír sig í gerð á pizzum að hætti ítala. Staðurinn heitir Greifinn, en hann er starfrækt- ur af Ítalía pizza sf. Eigendur staðarins eru tveir ungir menn Guðjón Gyifason og Hlynur Jónsson. „Við hófum rekstur hér 10. ágúst og starfsemin gengur vei, en staðurinn tekur 70 manns í sæti,“ sögðu þeir félagar. Að sögn Guðjóns hefur rekst- ur Greifans gengið með ágætum og fólk sækir staðinn mjög vel, ungir sem gamlir, og stór hluti viðskiptamanna er fjölskyldufólk með börn sín. ARABIA Hreinlætistæki DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI (96)22360 Staðurinn býður upp á tuttugu gerðir af pizzum og sú vinsælasta heitir Fjórar árstíðir, fjórskipt pizza með ýmsu ívafi af kjöti og fiski. „Við erum með sérstakt hádegistilboð, en þá er súpa og salatdiskur innifalið í verði pizz- unnar og jafnframt bjóðum við skólafólki uppá sérstakt lægra verð. Bar er á staðnum, en leyfi fékkst strax frá yfirvöldum, þannig að með matnum er hægt að fá sér rauðvíns- eða bjórglas, sém vissulega gerir réttina góm- sætari. Við komum á móts við unga fólkið og þá sem ekki neyta áfengra drykkja og erum með fjölbreytt úrval gosdrykkja sem eru seldir hér á mun lægra verði en annars staðar. Hjá okkur vinnur 21 þar af 8 fastráðnir og við leggjum mikla áherslu á heim- sendingarþjónustuna sem og allt okkar starf því Greifinn á að og vill framreiða bestu pizzurnar,“ sagði Hlynur veitingamaður. Tilkynning M Lúðrasveit Akureyrar Vetrarstarf Lúðrasveitar Akureyrar hefst í dag, þriðjudaginn 18. september kl. 20.00 í Laxagötu 5. Við hvetjum alla félaga að mæta og einnig bjóðum við nýja félaga velkomna. Stjómin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.