Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 18. september 1990
Búlgarska knattspyrnuliðið CSKA Sofia kom til Akureyrar í gær en það mætir KA-mönnum í Evrópukeppni meist-
araliða á Akureyrarvelli kl. 17.30 á morgun. Með í för voru 9 búlgarskir fréttamenn sem komu til að fylgjast með
leiknum. Hópurinn flaug beint frá Búlgaríu til Kcflavíkur og þaðan norður og lenti á Akureyrarflugvelli síðdegis í
gær. Liðið æfir á Akureyrarvelli í dag. Allt bendir til að um geysilega sterkt lið sé að ræða en það er einmitt þekkt
fyrir gott gengi í Evrópukeppni. Þar hefur það alls 19 sinnum tekið þátt, þrisvar komist í 8-liða úrslit og tvisvar í
undanúrslit. Liðið komst í 8-liða úrslit í fyrra en féll út eftir ósigur fyrir franska stórliðinu Marseilles. Þess má einnig
geta að á síðasta keppnistímabili hafði liðið tryggt sér meistaratitilinn í heimalandi sínu heilum mánuði áður en tíma-
bilinu lauk. Til vinstri á myndinni eru tveir af forráðamönnum liðsins ásamt formanni knattspyrnudeildar KA,
Stefáni Gunnlaugssyni, og Gunnari Kárasyni, sem einnig á sæti í stjórn deildarinnar, en þeir tóku á móti Búlgörun-
um við komuna ■ gær. Mynd: kl
Fornóslaxinum slátrað í dag:
Verður seldur í
gegnum Sölumiðstöðina
Laxinum í eldistöðinni Fornósi
hf. á Sauðárkróki sem lýst var
gjaldþrota fyrir helgi verður að
megninu til slátrað í dag og
hann sendur suður. Ætlunin er
að selja hann í gegnum Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna.
Magnið er á bilinu 10-15 tonn
og stærðin eitt til tvö kíló að
stærstum hluta.
Halldór Þ. Jónsson, skiptaráð-
andi, sagði í samtali við Dag í
gær að búið væri að ráðstafa lax-
inum, en verið væri að vinna að
þessu og mestum hluta laxsins
yrði trúlega slátrað í dag og
afgangnum fljótlega.
Stjórn Fornóss hf. lét lýsa
fyrirtækið gjaldþrota sl. fimmtu-
dag og um helgina komu menn
að sunnan til að skoða laxinn.
Það virðist því ætla að takast að
koma laxinum í verð áður en
hann veslast upp og deyr. SBG
Serkir hf. á Blönduósi kanna landið fyrir nýja framleiðsluvöru:
í athugun að framleiða sorppoka úr pappír
- tilraunaframleiðsla gæti hafist fyrir áramót
„Við erum að velta fyrir okkur
framleiðslu á sorppokum þar
sem um verulegan markað er
að ræða. Þó að ekki kæmi ann-
að til en umhverfisvemdarsjón-
armið þá ætti að vera opin leið
inn á markaðinn af þeim
ástæðum,“ segir Ágúst Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
pappírspokaverksmiðjunnar
Serkja hf. á Blönduósi, en svo
gæti farið að nú undir áramót-
in hefji verksmiðjan fram-
leiðslu á þessum pokum í til-
raunaskyni.
Ágúst segir að víða í norðvest-
anverðri Evrópu sé bannað að
urða sorp í plastpokum. Um
brennslu plastpoka segir í skýrslu
sem Serkir hf. hafa gert, að plast-
pokar eyðist ekki í náttúrunni
heldur verði að brenna þá.
„Algengasta tegund mengunar er
díoxínmengun sem veldur
krabbameini. Til að komast hjá
slíkri mengun þegar plast er
brennt verður hitinn að vera að
minnsta kosti 1200 gráður á
celcíus við brunann. Ekki er vitað
til að nokkur sorpbrennsla á
Þingeyjarsýsla:
Þrjú óhöpp
á laugardag
Tvær bílvcltur og árekstur áttu
sér stað um svipað leyti í
umdæmi lögreglunnar á Húsa-
vík síðdegis á laugardag.
Fólksbíll valt í Reykjadal og
einnig valt fólksbíll í Mývatns-
sveit. Ekki urðu slys á fólki í
þessum umferðaróhöppum en
bílarnir skemmdust mikið.
Um svipað leyti var smáárekst-
ur tveggja bíla í Reykjadal, engin
meiðsli urður á fólki við það
óhapp og litlar skemmdir á bílun-
um. IM
landinu geti brennt við svo háan
hita enda er slíkt mjög dýrt,“ seg-
ir í skýrslunni.
„Við erum hér með mjög vel
búna verksmiðju sem vantar
verkefni enda getum við framleitt
meira heldur en allur íslenski
markaðurinn notar. Því verðum
við að líta eftir einhverju sem
gerir okkur fært að nýta bæði
vinnuafl, vélar og fjárfestingar
betur en við höfum gert,“ segir
Ágúst.
Könnun hefur þegar verið gerð
á markaðinum og segir Ágúst að
hugmyndin fái góðar viðtökur.
„Menn eru spenntir fyrir þessu
en málið er ekki komið það langt
að við séum farnir að sjá fyrir
okkur hvenær framleiðsla geti
hafist. Við munum þó væntan-
lega framleiða til prufu og fá ein-
hver sveitarfélög til að reyna
þetta. Ég tel mér trú um að fyrir
áramót geti sú tilraunafram-
leiðsla hafist,“ segir Ágúst. JÓH
Sandblástur og málmhúðun hf.:
Veltan hefur aukíst um 80%
o g húðunin hefur þrefaldast
„Reksturinn gengur afar vel og
umsvifin fara vaxandi. I dag er
unnið á vöktum, en starfs-
mennirnir eru 14 fastráðnir.
Mér skilst að frekar Ijótt hljóð
sé í mönnum í járniðnaðinum á
Akureyri, en hér er næg vinna
og bjart yfir mönnum,“ sagði
Jón Dan Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Sandblásturs og
málmhúðunar hf. á Akureyri.
„Við framleiðum Ijósastaura
úr 300-400 tonnum á ári og zink-
húðum þá síðan. Veltan hefur
aukist um 70 til 80 prósent milli
ára. Húðunin hefur þrefaldast og
mest er unnið fyrir smiðjurnar í
Reykjavík. Nokkur stór verkefni
fyrir járniðnaðinn á Akureyri
hafa fengist hingað norður vegna
zinkhúðunarinnar. Nýmæli hjá
okkur er framleiðsla á vegriðum
fyrir Vegagerð ríkisins, en við
kaupum þau svört erlendis frá og
síðan eru þau beygð og húðuð.
Að ná þessari framleiðslu inn í
Iandið var stórt hagsmunamál
fyrir þjóðarbúið,“ sagði Jón Dan
Jóhannsson.
Að sögn Jóns er Sandblástur
og málmhúðun gamalgróið fyrir-
tæki, en rekstur þess hófst 1962.
Núna er fyrirtækið rekið sem
Úr framleiðslusa! Sandblásturslog málmhúðunar hf.
hlutafélag fjögurra bræðra og
föðurins Jóhanns, sem stofnaði
til rekstrarins ásamt bróður sín-
um Aðalgeir. ój
Eldsvoði á Grenivík:
Handslökkvitækin
forðuðu stórtjóni
„Við gátum forðað stór-
bruna með þeim hand-
slökkvitækjum sem til stað-
ar voru I húsinu. Síðan
brugðu þeir mjög skjótt við í
slökkviliðinu hér á staðnum
og stóðu sig mjög vel í
slökkvistarfinu. Ef kalla
hefði þurft til slökkvilið frá
Akureyri í þennan bruna þá
stæði örugglega ekkert eftir
af húsinu núna,“ sagði
Vigdís Kjartansdóttir,
stöðvarstjóri Pósts og síma á
Grenivík, en eldur kom upp
í íbúð hennar í húsi Pósts og
síma laust eftir hádegi á
föstudag.
Eldurinn kom þannig upp
að þriggja ára sonur Vigdísar
kveikti í fötum í geymslu og
breiddist eldurinn fljótt út um
geymsluna og þvottahús.
Þarna inni voru yfirhafnir fjöl-
skyldunnar og nær allt skótau,
ásamt ýmsum öðrum munum.
Þá eyðilögðust þvottavél,
frystikista og tauþurrkari en
með hann var einmitt farið inn
í þvottahúsið kvöldiö fyrir
brunann. Vigdís segir að þeir
munir sem urðu eldinum að
bráð séu metnir á 300-400 þús-
und krónur.
Úr geymslunni var lokað
inn í íbúðina og einnig var lok-
uö hurð milli íbúðarinnar og
póstafgrciðslunnar. Því varð
starfsfólk í afgreiðslunni ekki
vart við eldinn strax. Þegar að
var komið hafði eldurinn teygt
sig út um glugga á geymslunni
og var að byrja að læsa sig í
þakskegg hússins. JOH
Haustuppboð á loðskinnum í Danmörku:
Verð á skiimum
loks á uppleið
Eftir langvarandi veröfall á
loöskinnum fer verð nú hækk-
andi auk þess sem söluhlutfall-
ið batnar. I Kaupmannahöfn
iýkur í dag septemberuppboði
á loðskinnum sem staðið hefur
síðan á fimmtudag. Verð á
minkaskinnum hefur yfirleitt
hækkað í danskri mynt.
Alls eru boðnar rúmar 4 millj-
ónir minkaskinna á þessu upp-
boði og hafa 95% þeirra selst.
Scanblack og Scanbrown skinn
eru uppistaða framleiðslunnar og
hækkuðu Scanblack högnaskinn
um 40% að meðaltali rniðað við
uppboð í maí í vor. Scanblack
læðuskinn lækkuðu hins vegar
um 1%, Scanbrown högnaskinn
hækkuðu um 15% og Scanbrown
læðuskinn lækkuðu um 1%.
Refaskinn lækkuðu lítillega í
verði frá því sem var á uppboðinu
í vor. Nú voru boðin um 110 þús-
und refaskinn og hækkaði ein
tegund, Blue Frost, í verði frá því
sem var í vor. Hækkunin var um
5%. Hins vegar seldust skinnin
betur en á fyrra uppboðinu.
Samkvæmt uppíýsingum frá
Sambandi íslenskra loðdýrarækt-
enda hefur mjög mikill samdrátt-
ur orðið á framleiðslu loðskinna í
heiminum. Gert er ráð fyrir að
framleidd verði 26-27 milljónir
minkaskinna en markaður er fyr-
ir 32-32 millj. skinna. JOH