Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 18. september 1990 - DAGUR - 13 Samviskufangar Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli almennings á máli þessara sam- viskufanga. Amnesty vonar að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum mönnum og skipi sér á bekk með þeim, sem berjast gegn mannréttindabrotum á borð við þau, sem hér er greint frá. íslandsdeild Amnesty gefur einnig út póstkort tii stuðnings föngum mánaðarins. Hægt er að gerast áskrifandi að þessurn kort- um með því að hringja til skrif- stofunnar, Hafnarstræti 15, virka daga frá kl. 16-18 í síma 16940. Tchad: Mahamat Abdoulaye er 31 árs kvæntur tveggja barna faðir. Hann stýrði kennara- skólanum í höfuðborginni N’Djamena og var prófessor í efnafræði við Háskólann í Tchad. Hann var handtekinn 2. apríl 1989 af öryggislögreglunni og frá þeim tíma hefur honum verið haldið föngnum og dvalarstaður hans ekki gefinn upp. Yfirvöld í Tchad hafa hvorki gefið upp ástæður fyrir varðhaldinu né hvar Abdoulaye er hafður í haldi. Hann er í hópi 200 manna af Zaghawa ættflokknum frá norð- austur hluta landsins sem hand- teknir hafa verið án ákæru frá því í apríl 1989. Handtökurnar hóf- ust í kjölfar valdaránstilraunar sem yfirvöld telja að nokkrir liðs- foringjar í hernum af Zaghawa ættflokknum hafi skipulagt. Margir af þessum 200 mönnum hafa verið handteknir vegna gjörða ættingja sinna eða af því að þeir voru í forsvari fyrir ætt- flokk sinn. Mahamat Abdoulaye hefur ekki verið ákærður og hann hefur ekki heldur fengið tækifæri til að véfengja réttmæti handtökunnar. Amnesty hefur kannað mál hans og komist að þeirri niðurstöðu að hann hafi á engan hátt tengst valdaránstilrauninni í apríl 1989 og hafi verið fangelsaður fyrir það eitt að vera í forsvari fyrir ættflokk sinn. Enginn hefur fengið að heim- sækja Mahamat Abdoulaye, ekki einu sinni fjölskylda hans. Fregn- ir herma að einstaklingar sem handteknir voru á sama tíma og Abdoulaye hafi ýmist dáið eða verið drepnir meðan á varðhald- inu stóð, en um örlög Abdoulaye er ekki vitað. Vinsamlegast skrifið kurteisleg bréf og farið þess á leit að Maha- mat Abdoulaye verði látinn tafarlaust laus. Skrifið til: Son Excellence Monsieur hissein Habre Presidente de la Republique du Tchad N’Djamena Republique du Tchad. Sýrland: Mahmud Jalbut er 35 ára Palestínumaður. Hann var handtekinn 28. október 1980 samkvæmt neyðarlögunt sem hafa verið í gildi allt frá árinu 1963. Hann hefur verið í haldi án ákæru og réttarhalda, að því er virðist vegna þátttöku í Banda- lagi Kommúnista (CPPB), en sá flokkur er bannaður. Mahmud Jalbut er kvæntur og á eina dóttur. í mars 1986 bárust þær fréttir að hann þjáðist af magablæðingum og fengi litla sem enga læknishjálp. í fyrstu var hann hafður í haldi í Shaikh Hassan fangelsinu í Damaskus, en í október 1985 var hann flutt- ur í Adra fangelsið í grennd við Damaskus. Amnesty hefur sent yfirvöldum í Sýrlandi áskoranir vegna máls Jalbut, en þeim hefur ekki verið svarað. í dag er ekki vitað hvernig heilsa hans er. Bandalag Kommúnista var stofnað árið 1973 af fólki sem sagði skilið við Kommúnista- flokkinn. Kommúnistaflokkurinn á fulltrúa í Framfarafylkingunni sem er við völd. Stjórnvöld hafa reynt að koma í veg fyrir starf- semi Bandalags Kommúnista og félagar þess hafa verið handtekn- ir vegna friðsamlegrar andstöðu við stefnu núverandi ríkisstjórn- ar, sérstaklega íhlutun Sýrlend- inga í Líbanon allt frá árinu 1976. I október 1980 voru forystumenn Bandalagsins handteknir í kjölfar vináttu- og samvinnusáttmála milli Sýrlands og Sovétríkjanna og tilraunar til að koma á fót stjórnarandstöðu í landinu. Á meðal hinna handteknu var aðal- ritari bandalagsins, Riad al-Turk. Rúmlega 200 félagar í Banda- lagi Kommúnista hafa verið handteknir frá árinu 1980. Nokkrum þeirra var haldið í stuttan tíma og síðan sleppt, en meirihlutinn situr enn í fangelsi án ákæru og réttarhalda. Amn- esty hefur sent fjölda áskorana fyrir hönd félaga í bandalaginu sem hafa verið pyntaðir við yfir- heyrslur og einnig fyrir hönd félaga sem ekki hafa fengið nauð- synlega læknishjálp. Yfirvöld í Sýrlandi hafa ekki svarað þessum áskorunum. Vinsamlegast skrifið kurteisleg bréf og farið þess á leit að Mahmud Jalbut verði tafarlaust sleppt. Skrifið til: His Excellency Khaled alAnsari Minister of Justice Nasr Street Damascus Syrian Arab Republic/Sýrland. Suður-Kórea: Hong Song-dam er 35 ára listamaður og andófs- maður. Hann var sakaður um njósnir fyrir Norður-Kóreu og dæmdur skv. öryggislögum í sjö ára fangelsi. Ásakanir um njósnir voru lagðar fram eftir að hann sendi skyggnur af einu málverka sinna til Norður-Kóreu og bækur til Kóreubúa í Vestur-Þýska- landi. Hong Song-dam hefur unnið til verðlauna fyrir verk sín í Kóreu. Hann er þekktur fyrir þrykk- myndir sem sýna þjóðdansa, tónlistarmenn og fátækt fólk, svo og pólitíska viðburði eins og t.d. atburði í Kwangju árið 1980, þegar herinn drap 200 óbreytta borgara. Hong Song-dam var for- maður Kwangju deildar samtaka Hesturmn Haustið er komið á því leikur ekki vafi. Hrossaeign lands- manna eykst ár frá ári og stöðugt fjölgar þeim sem halda hesta i kaupstöðum landsins. Nú fer sá tími í hönd þegar fólk dregur undan hestum sínum og gefur þeim frí fram yfir ára- mót. Því er mikilvægt að hestun- um sé sleppt á góðan haga þar sem skjól er gott fyrir haustveðr- áttunni og að þeir nái að safna þjóðernissinnaðra listamanna, en hlutverk samtakanna er að blása nýju lífi í kóreska alþýðulist og stuðla að sameiningu Norður- og Suður-Kóreu. Hong Song-dam var handtek- inn 31. júlí 1989 og yfirheyrður í þrjár vikur. Honum var neitað um lögfræðilega aðstoð, fékk lít- inn svefn og mátti sæta barsmíð- um. Var hann þannig neyddur til að játa að hafa farið í leynilega ferð til Norður-Kóreu. Við réttarhöldin bar meinafræðingur vitni um að Hong Song-dam bæri áverka eftir barsmíðar og spörk sem hann hafði fengið í varðhald- inu. Dómarinn úrskurðaði þá játningu Hong Song-dam ótæka og gat þess að hún hefði verið fengin fram með því að neita honum um stjórnarskrárbundinn rétt til lögfræðiaðstoðar. Við réttarhöldin kom saksókn- arinn fram með þá staðhæfingu að myndin „Saga þjóðernishreyf- ingarinnar“, sem sýnir uppreisnir sem hafa orðið í Kóreu, væri „full af hugmyndafræði Norður- Kóreu“ og með því að senda skyggnu af verkinu til sýningar á alþjóðlegri ungmennahátíð væri listamaðurinn „áróðursmaður fyrir hugmyndafræði Norður- Kóreu“. Ásakanir um njósnir eiga rætur að rekja til þess að Hong Song- dam sendi bækur, sem til sölu eru á almennum markaði í Suður- Kóreu til Kóreubúa í Vestur- Þýskalandi. Stuttu síðar fékk Hong Song-dam senda peninga frá þessum Kóreubúa, sem yfir- völd telja njósnara Norður-Kór- eu. Við réttarhöldin sögðu vitni að féð hefði hann fengið fyrir sölu á myndum sínum í Vestur- Þýskalandi. í júní 1990 var Hong Song- dam dæmdur í sjö ára fangelsi, en hann hefur áfrýjað dómnunt til hæstaréttar. Hann er hafður í haldi í Seoul fangelsinu í höfuð- borginni. Vinsamlegast skrifið kurteis- legt bréf og farið franr á að Hong Song-dam verði tafarlaust látinn laus. Skrifið til: President Roh Tae-woo The Blue House 1 Sejongno Chongnogu Seoul Republic of Korea. og haustið holdum sem vörn fyrir vindi, vætu og snjókomu. Of oft rekumst við á hross sern eru í þröngunt sinubornum hólf- um eða uppbitnum hólfum, sem gefa litla möguleika til að hross- unum líði vel. Hesteigendur komið hestum ykkar á góðan skjólgóðan haga þannig að þeim líði vel, þeir eiga það fyllilega skilið. Er ekki hesturinn þinn besti vinurinn? ój AKUREYRARB/ÍR Starf ritara við Tónlistarskóla Akureyrar Framlengdur er umsóknarfrestur um stöðu ritara við Tónlistarskóla Akureyrar. Umsóknarfrestur er til 28. september n.k. Um er að ræða hálfa stöðu síðdegis. Nánari upplýsingar í Tónlistarskólanum í síma 21788, hjá skólafulltrúa í síma 27245 og hjá starfsmannadeild í síma 21000. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannadeild. Starfsmannastjóri. á Tonllstarskóli Ejjafjarðar Innritun fer fram í grunnskólum á starfs- svæöi skólans miðvikudaginn 19. og fimmtu- daginn 20. september kl. 10-13. Einnig verður innritað í síma skólans 31171. Kennslugreinar: Píanó, orgel, gítar, bassi, harmonika, fiðla, blásturshljóðfæri, tromm- ur, söngur og forskóli. Skolasetning verður að Möðruvöllum í Hörgárdal mánudaginn 24. september kl. 20.30. Skólastjóri. AKUREYRARBÆR - DAGVISTARDEILD Eiðsvallagötu 18 ■ Sími 24600. Fóstrur - Fóstrur Nú er gullið tækifæri að breyta til og reyna eitthvað nýtt. Staða hverfisfóstru á Akureyri í Glerárhverfi er laus til umsóknar. Staðan er 100% staða og starfið er mjög fjöl- breytt. Hverfisfóstra sér um dagvistir, leikvelli og dag- mæður í sínu hverfi. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt, vera skipulagður og hafa áhuga á því að vinna með fólki. Starfið veitist frá 1. des. nk. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir dagvist- arfulltrúi, alla virka daga frá kl. 10-12 í síma 96- 24600. Skriflegar umsóknir skulu berast dagvistarfulltrúa fyrir 20. okt. 1990, á þar til gerðum eyðublöðum sem fást hjá starfsmannastjóra og dagvistarfull- trúa. Dagvistarfulltrúi. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér og fjölskyldu minni samúö og hlýhug viö fráfall og útför eiginmanns míns, BALDVINS HELGASONAR. Guö blessi ykkur öll. Sigrún Jóhannsdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.