Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 11
hér & þar
Þriðjudagur 18. september 1990 - DAGUR - 11
1
Poppstjörnurnar misstíga sig:
Elton John stríðir við
ofát
Rokkstjarnan Elton John óttast
nú mjög um tónlistarferil sinn.
Kappinn var fyrir skömmu inn-
ritaður á meðferðarstofnun í
Chicago þar sem reyna á að vinna
bug á mikilli áfengisdrykkju hans
og bæta mataræðið. Elton virðist
nefnilega farinn að skvetta óhóf-
lega miklu brennivíni í sig og
ekki bætir úr skák að hann er far-
inn að bæta nokkrum aukakíló-
um á sig. Því óttast hann nú mest
af öllu að verða stimplaður af
aðdáendum sínum sem gömul,
útbrunnin og feit rokkstjarna.
Kunningjar Eltons hafa látið
eftir sér hafa að á stundum hafi
hann drukkið svo hraustlega að
hann hafi hreinlega lognast út af.
Eins og svo margar stjörnur
sem hugsa verða um aðdáend-
urna var Elton orðinn mjög
niðurdreginn vegna þessa ástands
og í andlegum öldudal innritaði
hann sig á meðferðarheimilið í
Chicago til meðferðar þar sem
aurinn var ekki sparaður. A með-
ferðarheimilinu þurfti hann að
búa um rúm sitt sjálfur og þvo
þvott upp á eigin spýtur. Hann
sótti fræðslutíma um ofát og
ofdrykkju.
Frekari frami söngvarans bygg-
ist á röddinni og hana verður
Elton að vernda. Á síðust þrem-
ur árum hefur hann einu sinni
gengist undir hálsaðgerð og ljóst
þótti að ef hann ætlaði áfram að
lifa í ofáti og óhófi yrði stutt í að
röddin gæfi sig.
Elton lét þau orð falla við einn
vina sinna að ef þessu héldi áfram
kæmi ekki nokkur sála framar á
tónleika hans, nema til þess eins
að hlæja að honum. Fjölmiðlar
yrðu enda fljótir að þefa uppi
ástand hans og þá yrði ekki að
sökum að spyrja. Þeir félagarnir
Elton og Rod Stewart ræddu
vandann og ákváðu í sameiningu
að Elton færi í meðferðina. Nú er
söngvarinn staðráðinn í að koma
lífu sínu í rétt hjólför, segja bless
við fyrra líferni og mæta aftur til
leiks á sviðinu fyrir framan
aðdáendur sína sem gamli góði
Elton John.
og brennivm
Elton John var farinn að skvetta óhóflega í sig brennivíni og mataræðið var
ekki upp á það besta.
Stærsta bygging
heims verður
reist við
Tokyoflóa
Andfætlingar okkar í Japan eru
að hefja byggingu á skýjakljúf,
sem verður hæsta bygging í heimi
þegar byggingu hennar lýkur,
sem að vísu verður ekki fyrr en
árið 2015! Byggingarkostnaður er
áætlaður 326 milljarðar dollara,
eða ótölulegur fjöldi fjárlaga
íslenska ríkisins, og í hinu 500
hæða húsi munu um 140 þúsund
manns starfa. Gert er ráð fyrir að
allt að 300 þúsund manns geti
verið þar á mesta annatíma dags-
ins sem er snöggtum fleira en öll
íslenska þjóðin.
Byggingin er kölluð Aeropolis
2001 og kemur til með að rísa á
tilbúinni eyju á Tokyoflóa
skammt frá bænum Urayasu sem
þekktust er á Vesturlöndum fyrir
að hýsa japanska Disneyland
garðinn. í þessu hálfrar annarrar
mílu háa húsi verða stjórnarskrif-
stofur, heildverslanir, hótel,
verslanir af öllum gerðum og
stærðum, tónleikasalir, skólar,
veitingastaðir í miklu úrvali og
ráðstefnusalir. Hraðgengar lyftur
geta flutt fólk frá götuhæð og upp
á 500. hæðina á 15 mínútum, en
byggingin verður tengd við land
með neðanjarðargöngum, hrað-
brautum, lestum og ferjum.
Par sem þessi væntanlega
hæsta bygging heims mun rísa á
jarðskjálftavirku svæði, er hönn-
un byggingarinnar miðuð við að
hún þoli hörðustu jarðskjálfta.
í>að er gert með því að undir
henni verða vatnsfylltir jafn-
vægistankar, en tölvustýrt kerfi
mun miðla vatni milli tanka eftir
ví í hvaða átt byggingin vaggar.
stærstu skjálftum gætu þó þeir
sem eru á efstu hæðum fengið
ókeypis „flugferð" eina 15 til 20
metra fram og til baka. Greini-
lega ekki fyrir flughrædda, eða
hvað?
Einnig verður gert ráð fyrir
fellibyljum, en þeim verður ein-
faldlega hleypt gegnum þetta
risahús um sérstök göng og þá
verður allt í himnalagi. Já,
japanska efnahagsundrið tekur á
sig ýmsar myndir, en hvað skyldi
fermetrinn koma til með að kosta
á fimmhundruðustu hæðinni?
Akureyri
og 24830
U0SHEIMAR
NORRÆNI HEILUNARSKÓUNN
Norræni heilunarskólinn hefst 29. september.
Kennt verður í tveimur áföngum.
1. áfangi: Innri líkami mannsins, áran og orkustöðvar.
Hugleiðslutækni og sjálfsvernd.
2. áfangi: Andleg uppbygging og þróun mannsins, karma
og endurholdgun. Hin sjö svið, geislarnir, vatnsberaöldin,
meistarar, tívar, geimverur o.fl.
Ennfremur hugleiðslu-, orku- og heilunaræfingar.
Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 25. sept-
ember kl. 20.00 í Strandgötu 23.
Innritun í símum 25095, 25419 og 22093.
íslenska heilunarfélagið.
Á AKUREYRI
Almenn námskeið
Myndlistaskólans á Akureyri
3. október til 21. janúar.
Barna- og unglinganámskeið
Teiknun og málun.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 6-8 ára. Tvisvar í viku.
4. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
5. fl. 9-10 ára. Einu sinni í viku.
6. fl. 11-12 ára: Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð fyrir unglinga.
Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeið. Einu sinni í viku.
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna
Teiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplysingar og innritun
í síma 24958.
Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00
virka daga.
Skólastjóri.