Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 6

Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 18. september 1990 Ráðsteftia um íslenska bókfræði og landsfundur Bókavarðafélags íslands á Akureyri 20.-23. sept. Dagana 20. og 21. september nk. verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri ráðstefna sem bera mun heitið Islensk bókfræði í nútíð og framtíð. Ráðstefnan er haldin að frum- kvæði Háskólans á Akureyri. I tengslum við ráðstefnuna verð- ur tíundi landsfundur Bóka- varðafélags íslands haldinn á sama stað dagana 22. og 23. september. Að undirbúningi ráðstefnunn- ar um íslenska bókfræði hafa full- trúar fjölmargra stofnana tekið þátt. Þar á meðal eru framhalds- skólarnir á Akureyri, Amtsbóka- safnið, Fagbókasafn FSA og Héraðsskjalasafnið á Akureyri. í fréttatilkynningu um ráð- stefnuna segir að mikill skortur sé á íslenskum bókfræðiverkum og margra álit að löngu sé tíma- bært að gerð verði úttekt á stöðu íslenskrar bókfræði og mörkuð stefna til framtíðar. Með þeirri aukningu sem orðið hafi í útgáfu í landinu á síðustu árum hafi þörfin fyrir endurskoðun og átak orðið brýn. Á ráðstefnunni er ætlunin að könnuð verði staða bókfræðinnar á íslandi með því að leiða saman sérfræðinga og heyra þeirra hug- myndir og kynnast hvernig staðið sé að málum erlendis. Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun Pústþjónusta Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða. Pakkningar, klemmur, upphengjur. Fast verð fyrir pústkerfaskipti. Höfum fullkomna beygjuvél. Ryðvarnarstöðin sf. Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 • 603 Akureyri. SAMVINNU TRYGGINGAR Fulltrúaráðsfundur Samvinnutrygginga g.t. og Líftryggingafé- lagsins Andvöku verður haldinn miðviku- daginn 19. september nk. í Ármúla 3, Reykja- vík og hefst hann kl. 13.30. Stjórnin. Vinningstölur laugardaginn 15. sept. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.058.587.- O Z. 4af5^pí 4 89.431.- 3. 4 af5 97 6.361.- 4. 3af5 3.430 419.- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.470.498.- UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 um tölvunotkun við bókfræði- vinnu og miðlun bókfræðiverka. Fjórir norrænir fyrirlesarar munu kynna ráðstefnugestum hvernig unnið er að skráningu upplýsinga á Norðurlöndum, með sérstaka áherslu á tölvuvæð- ingu og beinlínis aðgang að bók- fræðiverkum í tölvum. í tengsl- um við ráðstefnuna verður sýning á geisladiskum og kynning á þjónustu fyrirtækjanna Faxon og Blackwell’s, sem eru ein stærstu bóksölufyrirtæki í Evrópu. Einn- ig mun fyrirtækið Tæknival leggja til allan tölvubúnað vegna þessarar sýningar og kynna vél- búnað fyrir geisladiska. Öll erindi og álitsgerðir ráð- stefnunnar verða gefin út að ráð- stefnu lokinni. Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri hefur veitt styrk til þess verks. Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum um íslenska bók- fræði. Allar nánari upplýsingar eru veittar á Bókasafni Háskól- ans á Akureyri í síma 96-27855. Eins og áður segir hefst ráð- stefnan fimmtudaginn 20. sept- ember með ávarpi Haraldar Bessasonar, rektors Háskólans á Akureyri. Að því búnu fjallar Daníel Benediktsson um bók- fræði sem fræðigrein og dr. Sig- rún Klara Hannesdóttir um alþjóðlega bókfræðilega stjórnun. Pórdís T. Þórarinsdótt- ir verður með næsta fyrirlestur sem ber heitið íslensk efnisorða- skrá og Erland Munch-Petersen, frá danska bókavarðaskólanum, flytur fyrirlestur um bókfræðilega stjórn á landsmælikvarða og sérskrár. Eftir matarhlé á fimmtudag verður Hildur G. Eyþórsdóttir með fyrirlestur um bókfræðiverk Landsbókasafns, Þorleifur Jóns- son um norræna samskrá um tímarit, Einar Sigurðsson um bókmenntaskrá Skírnis og skrá um íslensk blöð og tímarit, Kristín Bragadóttir um skráningu á íslenskum bókmentum, dr. Sig- rún Klara Hannesdóttir um bók- fræðiverk Rannsóknastöðvar í bókasafna- og upplýsingamálum og dr. Hörður Kristinsson um bókfræðiverk Náttúrufræðistofn- unar Norðurlands. Að morgni föstudags verða umræður um könnun á bókfræði- verkum íslenskra bókasafna. Um rannsóknabókasöfn fjalla Ingi- björg Árnadóttir, Ragna Steinars- dóttir og Gunnhildur Manfreðs- dórtir, um skólasöfn Kristín Björgvinsdóttir og um almenn- ingsbókasöfn Anna K. Torfa- dóttir. Að loknu kaffihléi taka nor- rænir fyrirlesarar við. Fyrst fjallar Anders Ravn um dansk Arti- kelindex og tölvuvædda miðlun hans, að því búnu Jan-Erik Malmquist um tímaritalykla og þjóðbókaskrána í Svíþjóð og að síðustu Björg Stemland um lykl- un tímarita í Noregi. Eftir hádegi verður Þórhildur Sigurðardóttir með fyrirlestur um norræna samvinnu á sviði bók- fræði, Steingrímur Steinþórsson um fjarvinnslu og fjarvinnslustof- ur og Sigrún Magnúsdóttir um „Quo vadis“ - hvert skal stefna. Að erindunum loknum verða pallborðsumræður og ráðstefn- unni verður slitið kl. 20 með kvöldverði í Hrísey. Landsfundur bókavarða í fyrsta skipti á Akureyri Landsfundur bókavarða er hald- inn annað hvort ár og er megintil- gangur fundarins sá að bókaverð- ir hvaðanæva af landinu hittist og beri saman bækur sínar um hvað er efst á baugi í málefnum bókasafna og bókavarða hverju sinni. Þetta er í fyrsta skipti sem landsfundur Bókavarðafélags íslands er haldinn á Akureyri. Fundarefni verða fjögur. í fyrsta lagi verður fjallað um skýrslu þá er unnin var fyrir menntamálaráðuneytið um stefnumörkun í bókasafna- og upplýsingamálum á íslandi. Gerð verður grein fyrir efni skýrslunn- ar og munu fulltrúar bókasafna fjalla um hana og benda á það er betur mætti fara. í öðru lagi mun Ágústína Ingvarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Stjórnsýslufræðslu ríkisins, fjalla um almannatengsl, mannleg samskipti og sjálfsvirð- ingu. í þriðja lagi heldur Halldór Árnason, formaður Gæðastjórn- unarfélags íslands, fyrirlestur um gæðastjórnun með megináherslu á gæði opinberrar þjónustu og í fjórða lagi kynnir Þórir Ragnars- son, bókavörður á Háskólabóka- safninu, tölvuvæðingu Þjóðar- bókhlöðunnar og hagnýtt gildi hennar fyrir bókasöfn landsins. óþh Passíukórinn á Akureyri: Tónlistarveisla framundan - barokk, djass og verk eftir Björgvin Guðmundsson Átjánda starfsár Passíukórsins á Akureyri er að hefjast um þessar mundir. I tilkynningu frá kórnum kemur fram að efnisskráin í vetur verður mjög fjölbreytt og skemmtileg og flutt verður tóulist allt frá barokktímanum upp í djass. Alls eru þrennir tónleikar á dagskrá og skulum við líta á starfið framundan. Fyrstu tónleikar Passíukórsins í vetur verða haldnir í desember. Þá verður frumflutt messa fyrir átta raddir eftir Carpentier. Messan er mjög óvenjuleg í hljómagangi og hljómasetningu af barokktónlist að vera og það er ekki fyrr en nú á síðustu árum sem verk eftir þetta stórkostlega tónskáld hafa verið dregin fram í dagsljósið. Hafa þau vakið mikla hrifningu. Aðrir tónleikar kórsins verða í marsmánuði. Þar er einnig um að ræða frumflutning, að þessu sinni á verkinu New Hope Jazz Mass eftir finnska tónskáldið Heikki Sarmanto. Á þeim tónleikum fær Passíukórinn til liðs við sig nokkra færustu djassara landsins, m.a. saxófónleikarana Stefán S. Stefánsson og Sigurð Flosason. Auk þess er búist'við að Diddú syngi einsöng með kórnum. Strengleikar Björgvins Guðmundssonar Þriðju tónleikarnir verða síðan í júní og verður þar mikiil við- burður á ferðinni eða alheims- frumflutningur á Strengleikum eftir Björgvin Guðmundsson. Roar Kvam, stjórnandi kórsins, hefur útsett verkið fyrir kór og hljómsveit. Tónleikarnir verða haldnir í tilefni 100 ára afmælis Björgvins. Björgvin Guðmundsson fædd- ist á Austfjörðum en fluttist til Kanada og bjó þar í 20 ár. Eftir dvölina vestra fluttist hann til Akureyrar og starfaði þar sem tónmennta- og söngkennari mestan hluta ævi sinnar. Hann var fyrsta íslenska tónskáldið sem samdi óratoríur. Af öðrum þáttum í starfi Passíukórsins má nefna að kór- inn heldur námskeið dagana 5.-7. október fyrir nýja félaga, sem eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í öflugu og spennandi kór- starfi. Leiðbeinandi á námskeið- inu verður Hólmfríður Ben- ediktsdóttir, söngkennari. Hún jnun leiðbeina kórfélögum í raddbeitingu, nótnalestri og kynna nokkur undirstöðuatriði í völundarhúsi tónfræðinnar. Af þessu er ljóst að kórinn gerir allt til að gera byrjendum fyrstu spor- in léttari í kórstarfinu og koma þeim vel af stað. Einnig er stefnt að öflugu og fjölbreyttu félagslífi innan kórs- ins til að gera starfið enn ánægju- legra og skemmtilegra. Æfingar verða tvisvar í viku, á miðviku- dögum kl. 20-22 og laugardögum kl. 15-17. Kórinn ítrekár að allir eru velkomnir til starfa. Frekari upplýsingar veita Roar Kvam og Sveinn í Tónlistarskóla Akureyr- ar (s. 21429), Svandís eftir kl. 20 (s. 22228) og Dagmar eftir kl. 19 (s. 25989). Einnig Helgi eftir 1. október (s. 21429). SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.